Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 C 19 sæmdur flugkrossinum og kapt- einstign. Lífslíkur flugmanna á vesturvígstöðvunum voru þrjár vik- ur og hann gat því talizt heppinn, en hann var uppgefinn eftir margar og hættulegar árásarferðir á degi hverjum, þjáðist af magasári og kom engu niður, nema sódavatni og blöndu af mjólk og koníaki. Hann hafði skotið niður 12 þýzkar flugvélar samkvæmt opinberum skýrslum, en hafði líklega grandað fleirum, því að hann tilkynnti ekki alla hugsanlega sigra sína vegna meðfæddrar hlédrægni, aðeins þá sem hann var viss um. Þegar brezka flugsveitin flaug yflr veg milli Sailly-le-Sec og ann- ars þorps, Le Hamel, sá Brown flug- vélar Richthofens ráðast á tvær svifaseinar, ástralskar RE-8-könn- unarflugvélar, sem reyndu árang- urslaust að hrista þær af sér. Helm- ingur flugsveitarinnar réðst á þýzk- ar flugvélar, sem nálguðust skot- graflr Breta, en átta Camel-flugvél- ar undir forystu Browns flýttu sér að koma könnunarvélunum til hjálpar. Við tók bardagi í 3.000- 7.000 feta hæð. Síðasta bráðin Þýzku flugvélamar voru fleiri en þær brezku og einn brezku flug- mannanna, Wilfred „Wop“ May lautinant, var ungur og óreyndur. Honum hafði verið skipað að taka ekki þátt í loftbardögum fyrr en hann hefði öðlazt meiri reynslu, fylgjast með úr hæfllegri fjarlægð og ráðast á aðeins eina, vamarlausa þýzka vél eða enga. May og Brown vom skólabræður frá Edmonton í Alberta, Kanada, og Brown hafði lagt ríkt á við hann: „Ef þér tekst að hæfa óvinaflugvél skaltu snúa heim strax. Þú verður ekki heppinn í annað sinn.“ Flugmenn Browns vom sigursæl- ir. Eftir nokkurra mínútna„hunda- slag“ höfðu þeir grandað fjómm þýzkum flugvélum og gert könnun- arvélunum kleift að komast undan. Eina þeirra hafði nýliðinn frá Ed- monton skotið niður og hann forð- aði sér sem skjótast. Þá sá Brown sér til skelfíngar að blóðrauð þríþekja steypti sér nið- ur að May til að komast í færi við hann. Ekki fór á milli mála að hér var Rauði baróninn á ferð, en hann virtist gæddur sérstökum hæflleik- um til að hafa upp á óreyndustu flugmönnum óvinanna. Byijendur munu hafa flogið 69 þeirra 80 flug- véla, sem hann hafði skotið niður. May var of reynslulítill til að geta leikið á v. Richthofen. Spand- au-vélbyssur Rauða barónsins hæfðu Camel-flugvél hans af 25 metra færi og göt komu á væng- ina. May særðist ekki alvarlega, en hann var í úlfakreppu. Brown steypti sér eldsnöggt nið- ur og flaug rétt á eftir þríþekju Richthofens, ofan við hana og til hægri. Rauði baróninn uggði ekki að sér. Brown vissi að hann mátti ekki hika og skaut af báðum Vick- ers-vélbyssum sínum, þótt hann gæti ekki haldið uppi langri og sam- felldri skothríð. Um leið og hann ýtti á gikkinn sneri Rauði baróninn sér við í sæti sínu — annaðhvort ósjálfrátt eða til að aðgæta hvort nokkur veitti honum eftirför. „Ég sá glampann í augum hans bak við stór hlífðargleraugu," sagði Brown seinna. „Síðan hneig hann niður í sætið." Stórskotaárás Þegar Brown neyddist til að hætta skothríðinni mynduðu kúlna- för samfellda rák eftir öllum búk Fokker-flugvélarinnar. Vélin riðaði, en rétti sig við og hélt áfram á eftir May. Brown missti sjónar af báðum flugvélunum, sem voru komnar í litla hæð, en var viss um að hann hefði hæft Rauða baróninn og ráðið honum bana. Rauða þríþekjan flaug yflr loft- vamabyssur tveggja Astralíu- manna, Popkins liðþjálfa og R.F. Westons skyttu. Þeir skutu án af- láts og töldu sig sjá stykki úr flug- vélinni falla til jarðar, en reýndu ekki að fá staðfest að þeir hefðu skotið hana niður. Þegar flugvél Richthofens flaug í um 150 feta hæð fram hjá einu skotvígi 53. stórskotasveitarinnar skutu tveir aðrir Ástralíumenn á hana úr Lewis-vélbyssum. Yfírmað- ur sveitarinnar, L. Beavis majór, sagði að Fokker-þríþekjan hefði tekið krappa beygju og velzt í loft- inu unz hún hefði skollið á akri í 400 metra Ijarlægð. Þríþekjan fleytti kerlingar eftir akrinum og staðnæmdist hjá skotgröf ástr- alskra hermanna í útjaðri Sailly-le- Sec. Þá var a.m.k. ein mínúta síðan Brown hætti að elta hana, líklega í innan við 3,2 km fjarlægð. Manfred von Richthofen sat teinréttur í sæti sínu og var látinn þegar að var kom- ið. Lík hans var flutt til Bertrang- les-flugvallar og hann var jarðaður með viðhöfn dag- inn eftir. Degi síðar var myndum af flakinu og út- förinni varpað úr flugvél yfir Cappy-flugvöll. Wop May slapp með kúlu í öðrum handlegg og Brown fékk opin- berlega staðfest að hann hefði skotið Rauða bar- óninn niður. Skömmu síðar var hann fluttur í sjúkrahús vegna magasárs og send- ur til Englands, þar sem hann var leystur frá þjónustu. Yfirmenn ástr- ölsku hermannanna í Frakklandi þökkuðu hins vegar 53. stórskota- liðssveitinni fyrir að hafa orðið Richthofen að bana. Deilan um hver banað þýzka flugkappanum var hafin. Þjóðverjar neituðu að trúa því að Rittmeister von Richthofen (höf- uðsmaður) hefði verið skotinn nið- ur. Þeir héldu því fram að hann hefði nauðlent bak við brezku víglínuna og verið skotinn í stjóm- klefanum. Þýzkt blað endurtók þessa staðhæfingu fyrir skömmu — 70 árum síðar. Ósamliljóða skýrslur Yflrmaður 4. brezka hersins, Sir Henry Rawlinson hershöfðingi, stóð frammi fyrir því síðdegis sama dag og Rauði baróninn var skotinn nið- ur að upp var komin hörð deila um hver hefði orðið honum að bana. Fram komu þijár ósamhljóða full- yrðingar: frá 209. flugsveit RAF Ásamt föður sínum í sjúkrahúsl f Courtrai (júlf 1917): ekki ósigrandi. Uppþvottavél með þremur þvottaqrindum. rúmar meira, betri meðferð, enn betri þvottur, 10 gerðir til afgreiðslu Míele Glæsileg ný vetrarlína frá GANT Full búö af fallegum og vönduðum fatnaði SENDUM í PÓSTKRÖFU SNORRABRAUT 56 SÍMI 13505 »14303 -sú mest selda ÍSTÉKK, Lágmúla 5. S. 84525.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.