Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
Richthofen oltir May; Brown oltlr Rich-
thofen: umdelld endalok.
„Rauðu
ógnvald-
arnlr“:
„fljúgandi
sirkusinn" í
Douai 1917
(flugvél Rauða
barónsins
næstfremst).
Hver varÖ
flughetjunni
von Richthofen að
bana?
Lengi hefur verið um það deitt hver hafi orð-
ið Manfred von Richthofen, mesta flug-
kappa Þjóðvevja í fyrri heimsstyijöldinni,
að bana fyrir 70 árum, skammt frá
Amiens í IMorður-Frakklandi.
Flestir hafa talið að það hafi
verið kanadískur flugmaður,
(eins og IJailað er um í ný-
legri kvikmynd), en nokkrirl
ástr alskir og brezkir orrustu
flugmenn vildu eigna sér sigur-
inn og ástralskir og kanadískir
stórskotaliðar töldu sig hafa banað
honum frá jörðu. En samkvæmt
bréfi, sem fannst nýiega og ekki
var vitað um áður, féil von Rich-
thofen fyrir kúlu úr meinleysis-^
legri könnunarflugvéi, þótt^
margir etgi bágt með
trúa þvf.
HERLENDM
HRINGSJÁ
Richthofen, sem
var almennt
kallaður „Rauði
baróninn", skaut
niður fleiri flug-
vélar en nokkur
annar orrustu-
flugmaður í fyrri
heimsstytj-
öldinni. Þjóð-
verjar dýrk-
,uðu hann
sem þjóð-
eftir Gudrn. Halldórsson hetjuogtöldu
hann ósi-
grandi. Hann flaug í eldrauðri og
auðþekkjanlegri þríþekju af Fok-
ker-gerð og flugsveit hans var köll-
uð „íjölleikaflokkurinn fljúgandi",
eða „Richthofen-sirkusinn". Hann
var aðeins 25 ára gamall og fræg-
asti flugmaður heims þegar hann
fór í hinztu ferð sína frá flugvellin-
um í Cappy við ána Somme, kl.
10.15 f.h. sunnudaginn 21. apríl
1918.
Þegar Rauði baróninn steig upp
í þríþekju sína lék herlúðrasveit
honum til heiðurs í tilefni af því
að hann hafði skotið niður 80. flug-
vél sína daginn áður. Veiðihundur
hans, Moritz, reyndi að stökkva upp
í stjómklefann og flugvirki tók af
þeim ljósmynd, þótt vinur barónsins
reyndi að koma í veg fyrir það.
Myndatökur fyrir árásarferð voru
taldar vita á illt, en Richthofen hló
að slíkri hégilju. Hann átti að fá
frí eftir þijá daga.
Hægláti Kanadamaðurinn
Rauði baróninn og félagar hans
flugu í áttina að þorpinu Sailly-le-
Sec í Somme-dalnum, þar sem flug-
sveitin átti að safnast saman. Um
líkt leyti bjó 24 ára hæglátur
Kanadamaður, Roy Brown, sig til
brottferðar frá Bertangles, brezk-
um flugvelli 40 km í burtu, í Sop-
with Camel-flugvél úr 209. sveit
nýstofnaðs flughers Breta, RAF.
Yfirmaður sveitarinnar var Charles
Butler majór, en undir Brown
heyrði flokkur fímm flugvéla á
hægri væng.
Brown hafði tekið þátt í lofthem-
aðinum í eitt og hálft ár og verið
••
/A
"s
mi/
-7“
/ ** •