Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 27
Hvað
er Lisfí
Tímaritið List bættist nýverið á
tímaritamarkaðinn. Það hefur
að geyma 64 blaðsíður af al-
mennum fróðleik um menningu
og listir, Myndlistarmaðurinn
Tryggvi Árnason hefur veg og
vanda af útgáfiinni, hann ritstýr-
ir og gefiir ritið út sjálfúr.
Athygli vekur að á forsíðu stend-
ur að um annan árgang tíma-
ritsins sé að ræða. „Undanfari þess
voru tveir fjórblöðungar með sáma
nafni sem ég gaf út í fyrra. Sam-
kvæmt áliti bókasafnsfræðinga var
rétt að telja þá fyrstu tölublöðin
þó að nú sé í fyrsta sinn um tímarit
í fullri stærð að ræða,“ segir
Tryggvi.
Enn er óvíst hvort gefín verða
út tvö eða íjögur tölublöð á ári og
þvi segist Tryggvi hafa farið hægt
í sakirnar við áskriftarsöfnun.
Tímaritið er gefíð út í 4.500 eintök-
um og hafa viðtökur við því verið
með ágætum.
Tryggvi segist hafa haft tímarit-
FÓLK
í fjölmiðlum
----\
■ VALGERÐ-
ur Matthías-
dóttir, dag-
skrárgerðar-
maður á Stöð
2, hefúr tekið
sér frí frá
sjónvarpsskj-
ánum um
stundarsakir. Hún segist þegar
farin að sakna dagskrárgerðar-
innar svolítið en áhorfendur sáu
henni síðast bregða fyrir í lok
október. Síðan þá hefúr hún unn-
ið að hönnun á nýju húsnæði
stöðvarinnar, sem stendur bak
við aðra af núverandi byggingum
Stöðvar 2. Valgerður bjóst við
að verkinu lyki um áramót en
kvaðst óviss um hvað þá tæki við.
■ BREZKA tímaritið Time Out,
sem er leiðarvísir þeirra sem
vilja kynnast skemmtanalífínu í
London og verzla þar, varð ný-
lega 20 ára. Það var upphaflega
eitt af mörgum vinstrisinnuðum
áróðursblöðum „popp“- og „neð-
anjarðar“-menningar og hefúr
eitt haldið velli. Á síðari árum
hafa verið gefín út nokkur rit,
sem líkja eftir Time Out, en þau
hafa barist í bökkum. Áskrifend-
ur Time Out eru 85,000 og marg-
ir telja ritið ómissandi, þrátt fyr-
ir ýmsa galla.
■ BLAÐAMENN njóta ekki
mikils álits ef marka má skoð-
anakönnun brezka blaðsins The
Post, að minnsta kosti ekki fyrir
heiðarleika. Lesendur hafa jafn-
vel meira álit á verkalýðsleið-
togum og fasteignasölumað sögn
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMBÐLAR SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 27 C
Stöð 2 snýr til
síns heima
Á Stöð 2 hefúr verið ákveðið að hætta beinum útsendingum frá
Hótel íslandi og er áhorfendafæð ástæða þess, að sögn Björns
Björnssonar, dagskrárstjóra innlendrar dagskrár. Undanfarnar
vikur hafa tveir þættir verið sendir út þaðan; „í góðu skapi" og
„Rödd fólksins“.
Tryggvi Ámason, myndlistar-
maður og útgefandi.
ið Art in America til hliðsjónar við
efnistök tímaritsins. Meðal efnis í
List má nefna greinar um varð-
veislu listaverka, leiksýningar,
rússneska ballettdansara, altaris-
töflur og Listasafn íslands auk við-
tals við Þórð Hall grafíklistamann.
Undirbúningur útgáfunnar hefur
tekið níu mánuði og er Tiyggvi
ánægður með árangurinn. „Það
eina sem ég er ósáttur við er að
ég hef þurft að vanrækja mína list,
en verð að vona að einhver líti á
ritið sem listaverk á einhvem hátt.
Einnig að einhverjir vilji gerast
bakhjarlar tfmaritsins, svo að út-
gáfa þess megi ganga sem best.“
Knattspymu-
áhugamenn
anda léttar
Allar efasemdir um að Stöð 2
sýni frá ítalsku knattspyrnunni
á laugardögum í vetur eru nú úr
sögunni eftir að samningar náðust
við framleiðanda efnisins. Að sögn
Heimis Karlssonar íþróttafrétta-
manns stöðvarinnar var samkomu-
lag milli Stöðvar 2 og dreifíngarað-
ila en framleiðandinn, RAI hafði
athugasemdir við það. Samkomulag
náðist og verður sýnt frá ítölsku
knattspymunni eins fljótt og auðið
er.
Skemmtiþátturinn „í góðu skapi"
sem verið hefur á dagskrá á
hveiju fímmtudagskvöldi, verður
tekinn af dagskrá um stundarsakir
og efni og uppbygging hans endur-
skoðuð. Bjöm vildi taka það fram
að það stæði ekki í neinu sambandi
við stjórnanda þáttarins, Jónas R.
Jónsson. Hann héldi áfram störfum
á Stöð 2 í öðmm verkefnum. Þjóð-
málaþátturinn „Rödd fólksins", sem
verið hefur annað hvert mánudags-
kvöld, verður framvegis tekinn upp
í sjónvarpssal.
Stöðvar 2-menn hafa þó fullan
hug á stöku beinum útsendingum
frá Hótel íslandi; m.a. á skemmti-
þætti milli jóla og nýárs, sem mun
bera heitið „í jólaskapi".
FÓLK
í fjölmiðlum
■ BALDUR Hermannsson, fúll-
trúi dagskrárstjóra, og Hafdís
Sveinsdóttir, fjármálafulltrúi
innlendrar dagskrárdeildar, eru
á förum frá Sjónvarpinu í lok
janúar. „ Við munum ganga út
hönd i hönd ásamt Hra&i Gunn-
laugssyni, við þessi gömlu,“ sagði
Hafdís en hún hefúr enn ekki
tekið ákvörðun um hvað tekur
við. Baldur sagði mikilvægt fyrir
nýjan dagskrárstjóra að geta
valið sér aðstoðarmenn. Sjálfúr
ætlaði hann að setjast í helgan
stein. „Ég er vel við aldur og
ætla að taka það rólega. Ég á
harðduglega konu sem getur
unnið fyrir mér, þó vel megi
vera að ég grípi í létt heimilis-
störf og einstök lausaverkefni."
blaðsins, en læknar njóta mestrar
virðingar. Sex af hverjum 10
töldu að „æsifréttablöð" eins og
The Sun, Daily Star og Daily
Mirrorhirtu ósannar fréttir.
Þrettán af hundraði vantreysta
Daily Express, DaiIyMaiI og
Today. Aðeins 4% vantreysta svo-
kölluðum „gæðablöðum" eins og
The Times.
■ SIGMAR B. Hauksson vinnur
nú að gerð Qögurra sjónvarps-
þátta um lifíiaðarhætti, og þá
sérstaklega matarvenjurlslend-
inga. Vinnuheiti þáttanna er /
askana látið og verða þeir liðlega
30 minútna langir. Þeir verða
frumsýndir í Sjónvarpinu á þrett-
ándanum en
vinna við þá
heftir staðið
yfír í eitt ár.
Þættirnir eru
að hluta leikn-
ir en einnig
er fléttað inn
í þá viðtölum.
Sér til aðstoð-
ar hefúr Sig-
mar m.a. fengið fornleifa- og
sagnfræðinga. Ekki er um
fræðsluefhi að ræða heldur eru
þættirnir ætlaðir til afþreyingar.
Fyrsti þátturinn Qallar um
lifhaðarhætti Íslendinga að
fornu; m.a. eru sýnd dæmi um
matargerð og búskaparhætti. í
öðrum þættinum velta menn því
fyrir sér hvers vegpia íslendingar
hafi ekki nýtt sér allar þær nátt-
úruauðlindir, sem hafa verið í
næsta nágrenni, t.d. skelfisk,
grös og hverahita. í þriðja þætt-
inum er að mestu horfíð til nút-
ímans og fjallað um ýmis utanað-
komandi áhrif á neysluvenjur
okkar. í fjórða þættinum er horft
til framtíðar og ýmsar vangavelt-
ur um hvernig neysluvenjur þró-
ast.
■ BREZKI blaðakóngurinn Ro-
bert Maxwell hefúr keypt hlut í
sovézka blaðinu Moscow News
og ætlar að hrinda af stokkunum
mánaðarútgáfu, sem verður
dreift um allan hinn enskumæl-
andi heim. Blaðið er gefið út í
andag/asnost-stefhunnar og
fjallar um ýmis máleftii, sem
ekki heftir mátt minnast á áður.
Ritstjórinn, Jegor Jakolev, er
frægur um öll Sovétríkin fyrir
hvassyrtar ritstjórnargreinar.
Áskrifendum sovézku útgáfúnn-
ar hefúr fjölgað að mun vegna
margvíslegrar gagnrýni blaðsins
og eru nú um ein milljón. Útgáfa
Maxwells verður tölvuvædd í
ráði er að breyta henni síðar í
vikublað.
Tilboð
sem þú
SéíVtaonaöa
þarft að taka afstöðu til
Um þetta leyti í fyrra ruku út 205 eintök af afmælisvélinni hjá PFAFF
(sérhönnuö vél vegna 125 ára afmælis). Okkur hefur nú tekist aö fá nokkra tugi
af þessari vél. Um leiö kynnum við nýja og ódýrari gerö af hinni margrómuðu
PFAFF tölvusaumavél — PFAFF 1467.
í tilefni af þessu bjóöum við 10% afslátt, og 5% afslátt aö auki, ef vélin er
staðgreidd. Þessi afsláttur fæst nú af öllum okkar saumavélategundum. Þitt er
að velja!
Dæmiö lítur svona út:
Verð -10% Staðgreiðsluverð
Pfaff 721 23.900.- 21.500,- 20.435,-
Pfaff 1047 42.500.- 38.250,- 36.335,-
Pfaff 1007 46.900,- 42.200,- 40.100,-
Pfaff 1171 53.500.- 48.150,- 45.740,-
Pfaff 1467 66.500.- 59.850,- 56.850,-
Pfaff 1471 Pfaff „overlock11 76.500,- 68.850,- 65.400,-
794 41.900.- 37.700.- 35.825.-
796 42.900,- 38.600,- 36.680,-
ATH! TILBOÐIÐ GILDIR TIL 18. NÓVEMBER
Við viljum um leið undirstrika að tilboðið gildir fyrir allt landið. Þú kemst að
samasamkomulagi í verslun okkar í Kringlunni eða Borgartúni 20, eðat.d. með
því að hringja frá Grenivík eða Stöðvarfirði svo dæmi sé nefnt. Við greiðum
einfaldlegaaukalegan sendingarkostnaðerfellurávöruna. Þettagildirum allar
okkar vörutegundir. Ræðið málin — við erum í síma 2 67 88
u -i -r.T-rjs
Kringlunni og Borgartúni 20