Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 34

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 34
34 C MORGUNBLAÐŒ) AFMÆLI SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Afinæliskveðja: A Svavar Arna- son Grindavík Nýlega mátti sjá það í Grindavík- urblaðinu Bæjarbót að Svavar Ámason, oragnisti í Grindavíkur- kirkju, væri hættur því starfi, eftir langa þjónustu og nýr organisti ráðinn í hans stað. Hliðstæðar frétt- ir færa íjölmiðlamir okkur næstum daglega — eins og eðlilegt er. Kannski þess vegna hverfa slík „smá“ tíðindi fyrir dægurþrasi og æsifréttum. Þannig gleymast marg- ir afburðaþegnar bak við þagnar- múr, án þess að fá minnstu þakkir eða viðurkenningu fyrir framlag til góðra mála á ýmsum sviðum. Stundum veldur hógværð þeirra sjálfra nokkru um ef svo er. Ekki vil ég fullyrða um að svo hafí verið með vin minn Svavar Amason, en það vekur athygli að fáum vikum eftir að mannaskiptin urðu við pípuorgelið í hinni nýlegu og fogru Grindavíkurkirkju á Svav- ar 75 ára afmæli. Svavar er þó við góða heilsu og býr yfír afburða tæknigetu til að þjóna þar lengi enn. Tvö organistaár til viðbótar hefðu nægt til að jafna starfsaldur föður hans í embætti. Og vert er að geta þess að Svavar hljóp all oft í_ skarðið fyrir föður sinn, meðan Ami var enn í embætti. Ami faðir Svavars var fyrsti org- anisti við Grindavíkurkirkju. Það fór næstum saman, að kirkjan var flutt frá Stað og endurbyggð í Jám- gerðarstaðahverfí 1909 og að Garð- húsahjónin Einar G. Ejnarsson, kaupmaður og Ólafía Ásbjöms- dóttir gáfu kirkjuorgel. Ámi, sem þá var nýfluttur í byggðarlagið, var ráðinn organisti og var hann það til ársins 1950 og tók þá Svavar við organistastarfinu. Hann hefur þjónað kirkju og söfnuði með mikl- um sóma síðan, eins og faðir hans hafði áður gert. Hann er ágætlega músíkalskur og söngelskur. Stjóm hans á kirkjukómum hefur vakið umtalsverða athygli og leikni hans á hljóðfærið sömuleiðis. Svavari hefur verið mjög annt um að hljóðfæri kirkjunnar væri gott og ég held að hann hafí gefið kirkjunni pípuorgel það sem þar er nú, að hálfu á móti safnarsjóði. Þá var hann í byggingamefnd er nýja kirkjan var byggð og var þar lið- tækur vel að vanda. Saga þeirra feðga og framlag að safnaðar- og söngmálum í Grindavík er stórmerk. Það var mikil söngvasál í litla húsinu á Garði, sem manni fannst troðfullt af bömum, en gat þó oftast bætt við hluta úr kirkjukómum eða blöð- duðum kór Grindavíkur — já, og öðmm söngvinum — til æfínga. Þá vekur það eftirtekt nú á mammonsöld, að hvorugur þeirra tók greiðslu fyrir þetta mikla þjón- ustustarf, þó að þörfín fyrir verka- PlirrigÁW- í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI launin hafí stundum verið augljós, einkum hjá Áma með sinn stóra bamahóp. Æviskeið Svavars spannar merkilega þróunarsögu Grindavík- ur. Það má segja að saga Svavars og saga Grindvíkur hafí verið uppi- staða í ívafí í sömu voð um langt árabil — frá kreppu til góðra kosta. Vöxtur og viðgangur Grindavík- ur varð meiri við sijómsýslu Svav- ars en nokkru sinni áður. Það var gæfa byggðarlagsins að margt dug- mikið fólk lagði út árar með Svav- ari og réri að sama marki. En hver er Svavar Ámason? Hann var elsta bam hjónanna Petrúnellu Pétursdóttur og Áma Helgasonar, sem lengst af vom kennd við Garð í Grindavík, fæddur 14. nóvember 1913. Síðan bættist þeim stór hópur mannvænlegra og góðra bama. Pyrir fátæka verka- mannaQölskyldu þýddu slíkar að- stæður margháttaða örðugleika, einkum í húsnæðismálum og öðmm nauðþurftum heimilisins. Vinnusemi, skyldurækni, nægju- semi — hörð og markviss barátta húsbóndans fyrir bættri afkomu hinnar stóra fjölskyldu ásamt glað- værð og ástúð húsfreyjunnar skópu heimilisbrag, sem fleytti bama- hópnum yfír bemsku- og uppvaxt- arár og bjó þau undir átök í lífsbar- áttunni. Flest bamanna fóm í fram- haldsnám við ýmsar iðngreinar, sjó- mannaskóla, verslunarskóla og há- skóla. Svavar varð því komungur að leita eftir vinnu til að létta undir með föður sínum til að sjá farborða stóm heimili, fyrst við að stokka upp línu, síðar vinnu við saltfisk- verkun og svo sjómennsku. Alls staðar þar sem hann lagði hönd að verki var iðjusemi og skyldurækni hans viðbmgðið. Það varð öllum ljóst að hann var mikið mannsefni. Þessi manngerð kom líka greinilega í ljós þegar hann 21 árs settist í Samvinnuskólann. Hann náði góð- um tökum á náminu og tók gott próf þrátt fyrir veikindaforföll. Hann var m.a. mjög góður stílisti. Á þessum ámm var hann orðinn harðsnúinn jafnaðarmaður og skrif- aði lokaprófsritgerð út frá þeirri forsendu. Mönnum varð það því minnisstætt að Jónas Jonsson, skólastjóri, þakkaði honum sérstak- lega fyrir ritgerðina, það var þó ekki háttur hans, ef menn höfðu tekið vinstrivillu. Á þessum ámm nam Svavar einnig hraðritun og komst því að sem þingskrifari en þá var segul- bandsöldin ekki gengin í garð. Þing- salimir heilluðu hann þó ekki eða kannski var það þjónustuhugsjónin sem tengd var heimabyggð hans og vinum og vandamönnum þar, sem tók hug hans og athafnaþrá þeim tökum að starfsferill hans hefur allur verið þar síðan. Hann vissi að þar var mikið verk að vinna. Frá uppvaxtaráram þekkti hann þrúgandi fátækt einyrkjans sem hafði stóra fjölskyldu á framfæri sínu. Hann þekkti þarfir tómthús- fólksins á mölinni og takmarkaða getu þess til bættra lífskjara við þær aðstæður er fyrir hendi vom. Forystuhæfíleikar Svavars komu snemma í ljós, enda var hann vel til forystu fallinn. Góðar gáfur erfði hann úr báðum ættum — einnig mildi og lipurð móðurinnar — ein- beitingu og þrautseigju föðurins, ásamt listfengi eins og áður er get- ið. Þegar suður til Grindavíkur kom, hlaut hann því að taka að sér for- ystu í ýmsum málum. Þijár leiðir taldi hann sig sjá til úrbóta: Fyrsta skrefíð var að sameina þá einstakl- inga sem leita vildu bættra kjara á félagslegum gmndvelli og stofna með þeim verkalýðsfélag. Hann stóð því fyrir stofnun Verkalýðs- félags Grindavíkur 1939. Nær sam- hliða vann hann að stofnun Al- þýðuflokksfélags Grindavíkur og stjórnaði því í áratugi. Það er lífsskoðun Svavars að þessi tvö fé- lög hafi hliðstæð stefnumörk og vinni markvisst að bættum hag allra — einkum þó þeirra er verri hafa aðstöðu til að bæta lífskjör sín og önnur mannréttindi. Þriðja skrefíð var að bæta verslunar- og viðskipta- stöðu Grindvíkinga á samvinnu- gmndvelli svo sem hann hafði búið sig undir með Samvinnuskólanámi. Ekki skal fullyrt að allur þessi breiði vettvangur hafí vakað fyrir honum er hann kvaddi þingsali, en hans kunna raunsæi bendir þó til að svo hafí verið og sýnir það kjark hans og einbeitni, þar sem vitað var að fomstu í þessum baráttumálum lá um hijóstur og stundum torfær- ur. Hann stjómaði síðan Verkalýðs- félagi Grindavíkur í 23 ár, með ein- stakri lipurð og réttsýni. Það vora ekki slagorð eða óraunhæft fimbul- famb sem beitt var til framgangs eðlilegri þróun kjaramála. Hann átti auðvelt með að setja sig inn í stöðu mála og mat hana með fullri dómgreind og ég hygg að hann hafí oftast — ef ekki alltaf — náð sanngjömum niðurstöðum án þess að kalla yfír sig úlfúð eða hefndar- hug andstæðinganna. Þegar hann síðar fór sjálfur að gera út bolla- lögðu menn um það hvort hann hefði séð svo mikinn auð í útgerð- inni eða hvort hann hafi viljað kanna starfsgreinina af eigin fram- taki. Ekki getur undirritaður dæmt um hvort hugdettur þessar em byggðar á rökum. Hitt er víst að hann vildi efla atvinnu í byggðar- laginu eftir föngum og það hefur útgerð hans gert — en hvort ánægja yfír því hefur vegið upp á móti áhyggjum og basli útgerðar hans skal ósagt látið, en hún hefur fært honum mikla reynslu og hún ein staðfestir þann fádæma dugnað og þrautseigju sem Svavar er gæddur. Líkur benda til að stjómmála- skoðun Svavars hafí afgerandi mót- ast í æsku. Barátta Alþýðuflokksins fyrir bættum kjöram verkalýðs- stétta og margháttaður stuðningur við þá er minna máttu sín af ýmsum ástæðum, fóm vel að hugarfari hans og mun hann ungur hafa gerst þar félagsbundinn. Þegar hann kom heim frá námi og hóf félagsleg afskipti var leiðin greið inn í sveitarstjómina. Hann var kosinn í hreppsnefnd 1942, varð oddviti 1946 og forseti bæjar- stjómar 1974 er Grindavík hlaut bæjarréttindi og var það til 1982. En við bæjarstjómarkosningamar það ár gaf hann ekki kost á sér. Starf hans að sveitarstjómarmálum hefur því verið langt og farsælt. Á þessum ámm breyttist Grinda- vík úr litlu fískiþorpi í blómlegan bæ. Ekki vora þó alltaf glæstir framþróunartímar. T.d. fækkaði fólki mikið á fímmta áratugnum þar sem byggðarlagið var ekki sam- keppnisfært við önnur byggðarlög um þjónUstu við fólkið, aðstöðu við aðalatvinnuveginn — sjávarútveg- inn — og svo var hörð samkeppni um vinnuaflið við Vamarliðið og aðra þá atvinnuvegi er blómstraðu á þeim áram. Þessari þróun var snúið við. Sennilega hefur upp- bygging hafnarinnar . átti þar stærstan þátt í. A.m.k. var það höfnin og ágæt fískimið Grindavík- inga svo og afburðaduglegt fólk, sem leiddi til þess að Grindvík var á þessum áram margoft með hæst- ar meðaltekjur á landinu. Um stjómmálaferil Svavars mætti skrifa langt mál. Hann hafði alla tíð’ mikið fylgi bæði flokks- bundið og óflokksbundið. Þó að hann tæki þátt í landspólitíkinni með setu á flokksþingum og ASÍ- þingum, var hann aldrei ofarlega á lista til alþingiskosninga. Eg held að hann hafí vantað metnað til að tildra upp þann stiga, því vissulega hefði hann verið trúverðugur full- trúi Suðumesjamanna þar, með þá reynslu sem hann bjó yfír, því trausti sem störf hans höfðu aflað honum og þeim málfylgjumætti er hann býr yfír. Hann er ágætur ræðumaður, fljótur að sjá aðalatriði og rökfastur vel. Hann getur verið orðhvass og óhlífínn ef honum finnst hallað réttu máli, en yfirveg- un og rökhyggjan em máttarstoðir málflutnings hans. Þegar Svavar varð fímmtugur, skrifaði Guðmundur í. Guðmunds- son, ráðherra, m.a.: „Svavar Áma- son er uppalinn á heimili fyrirmynd- ar Alþýðuflokksfólks og verkalýðs- sinna. Áhugi hans beindist fljótt að málefnum Alþýðuflokksins og verkalýðssamtakanna. í Grindavík hefur Svavar verið aðalforystumað- ur Alþýðuflokksins og verkalýðs- samtakanna svo lengi, sem ég man. Traust hans heima fyrir hefur verið slíkt, að við hreppsnefndarkosn- ingar hefir hann og félagar hans jafnan hlotið fylgi mikils meirihluta sveitunga sinna. En starfsemi Svav- ars hefur ekki verið bundin við Grindavík eina. Hann hefur verið í miðstóm Alþýðuflokksins og á þingum flokksins og Alþýðusam- bands íslands. í þeim störfum hefír hann ætíð reynzt ráðhollur og ráð- snjall og afstaða hans raunsæ, en laus við hleypidóma og hvatvísi. Hefír verið gott að leita ráða og álits Svavars á vandamálum og mátt treystá því, að hann leggði það eitt til mála, sem bezt og far- sælast er því fólki, sem hann hefur helgað líf sitt og starf. Við Al- þýðuflokksmenn þökkum Svavari mikið og óeigingjarnt starf á liðnum áram og væntum að njóta þess enn um langa framtíð." Varðandi samvinnuverslunina er það að segja að Svavar var of önn- um hlaðinn til að vera þar verka- maður. Faðir hans, Ámi Helgason, var fyrsti starfsmaður Pöntunarfé- lags Grindavíkur og síðar kaup- félagsstjóri og deildarstjóri eftir að kaupfélagið var sameinað Kaup- félagi Suðumesja, Keflavík. En allar götur síðan hefur Svav- ar verið deildarformaður Grinda- víkurdeildar KSK og fjölda mörg ár varaformaður kaupfélagsstjóm- arinnar. Hann hefur einnig verið í stjóm Hraðfrystihúss Keflavíkur hf, sem er í eigu KSK. Fyrr er getið um þátttöku Svav- ars í útgerð. Hún hófst 1949 er hann tók að sér framkvæmdastjóm fyrir útgerð Hafrennings hf. en þar gerðist hann síðar meðeigandi og var þar í forystuhlutverki þar til útgerðin hætti, fyrir nokkram ámm. Ekki fór Svavar varhluta af þeim erfiðleikum er útgerðarmenn eiga við að stríða, en staða útgerðar og fískvinnslufyrirtækja hefur farið mjög versnandi að undanfömu. Eitt þeirra fyrirtækja, sem stofn- að var á erfíðleikaámm í Grindavík er Hraðfrystihús Grindavíkur hf. Það var stofnað 1941 sem almenn- ingshlutafélag með þátttöku þorra Grindvíkinga. Því var ætlað að vinna afla af bátum sem ekki höfðu vinnsluaðstöðu ásamt afla eigin báta. Hraðfrystihúsið hefur alltaf haft mikil un.svif. Auk útgerðar og allra þátta fiskverkunar hefur það annast kjötfrystingu fyrir sláturhús KSK í Grindavík og um árabil hafði það einnig með höndum sölu mat- væla. Lengst af hefur það verið ómetanleg atvinnutrygging fjölda manns. Svavar var þar í stjórn frá 1948 og tók við stjómarformennsku af Einari Kr. Einarssyni, f.v. skóla- stjóra, sem baðst undan endurkjöri fyrir sjö ámm. Með vemlegum breytingum hluthafa fyrir 2-3 áram lét hann af stjómarforystu þar. Ég vænti þess fastlega, að ein- hver Grindvíkingur sem vel þekkir til, noti þetta afmælistilefni til að rifja upp þátt Svavars í sveitarsjóm- armálum Grindvíkinga. Hér verður því ekki nánar rakin sú merka saga. Svavar hefur ekki gifst en er svo lánsamur að hafa eignast ágæta sambýliskonu, Sigrúnu Högnadótt- Ég vil ljúka þessari uppriijun með persónulegu þakklæti til Svav- ars fýrir margar ánægjulegar sam- vemstundir og óska honum og Sig- rúnu heilla og hamingju enn um mörg ókomin ár. Jón Tómasson Afmæliskveðja: Helga Egilson Amma dúlla er sjötug í dag, 13. nóvember, reyndar fínnst mér það alveg ótrúlegt að þessi síunga kona skuli vera orðin þetta gömul. Amma mín er alveg einstaklega góð mann- eskja og ekki bara það, hún er líka alveg sérlega skemmtilegur per- sónuleiki, sem þekkir ekki orð eins og kynslóðabil, þess vegna er líka alltaf jafngaman að hitta hana, því það er eins og að hitta bestu vin- konu sína en ekki ömmu sína þegar við hittumst og ég er ekki ein um að finnast það. Það er hægt að tala um allt við hana, á öllu kann hún skil. Oft hefur mér fundist amma mín gleymast sem listakona í skugga afa (sem auðvitað er mikill lista- maður) og hún er reyndar ekki mikið fyrir að hafa sig frammi sem slík, en mér finnst hún alveg sér- staklega fjölhæf listakona, það væm ekki allir sem gætu skrifað leikrit með heimili og fullri vinnu, pijónað listaflíkur úr lopa og útbúið allskonar föndur fyrir tímarit og sjónvarp og finnast það ekkert mál, eins og henni. Til marks um fjölhæfni hennar þá datt mér einu sinni í hug að nú ætlaði ég að verða píanóvirtóus eins og afi minn, en hann var eitthvað efins um talent- inn hjá mér sem endaði með því að amma tók það bara að sér að kenna mér, en um snilli mína sem píanóleikara fara svo ekki fleiri sögur af eins og afi hafði fyrir spáð. Hins vegar er einhvern veginn ekki hægt að tala um ömmu án þess að tala um afa í sömu setning- unni svo samofin em þau og sam- taka í öllu sem þau gera, jafnvel afmælin þeirra ber upp á með stuttu millibili. Ég vil að lokum óska þeim báðum til hamingju með afmælin og þá sérstaklega ömmu með daginn í dag með ósk um að ég fái að njóta þeirra lengi í viðbót og þau hvors annars því ekki er hægt að hugsa sér annað þeirra án hins. Helga Þórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.