Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 40

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 40
40 C MORGUNBLAÐH) VELVAKANDI SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Heiti potturinn Jazztónleikar Sunnudagur 13. nóv. Kvartett Kristjáns Magnússonar. Hvert sunnudagskvöld kl. 22.00. Aðgangseyrir kr. 500. Valsmenn Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar verður á Broadway í dag, sunnudag, kl. 15.00 stundvíslega. Húsiðopnað kl. 14.30. Mætum öllhress, bless. Stjórn knattspyrnudeildar Vals. 1 i \ /1 ! X I 1 ?. N • 1 1 Jámhillur I ýmsum litum - upplagðar á vinnustaði, á lagerinn, í geymslur, bílskúr- inn o.fl. TRAUSTAR HILLUR LUNDIA-skápar, eða járnhillur á brautum, hafa þann meginkost að með þeim má fullnýta geymslu- rými. Hægt er að fá skápana með keðjudrifi, handdrifi eða rafdrifi og þeir eru afar einfaldir í uppsetningu. Hilluraðir má fá í mörgum stærðum og í allt að 10 metra lengd. Verðdæmi: 6 hillur 80x30 ásamt tveimur uppistöðum 200x30 = kr. 5.890.00. Lundia SUNDAB0RG 7 • SÍMI 680922 Lundia furuhillur og húsgögn eru ein- föld f uppsetningu, stflhrein og sterk. TRAUSTAR HILLUR LUNDIA-furuhillur eru frábær hag- leikshönnun. Möguleikar á sam- setningu eru óendanlegir; þú raðar saman hillum, skápum, borðum og skúffum á þann hátt sem þér hent- ar best. Lundia SUNDABORG 7 • SlMI 680922 Macintosh námskeið Excel Kennd er notkun þessa öfluga töflureiknis við útreikninga í viðskiptum, verkfræði og vísindum Lögð er áhersla á heildarþckkingu og grafík. 5.-8.desember kl. 16-19 Word Við opnum dymar að einu öflugasta Macintosh ritvinnslukerfinu. Námskeið sem kemur á óvart. 28.nóv. - l.desember kl. 16-19 Grunnur & Works Farið er yfir stýrikerfi Macintosh og Works fjölverkakerfið og lögð áhersla á ritvinnslu og gagnagrunn. Handbók innifalin . 21.-24.11 kl. 16-19 og 26.-27.11 kl. 9-16, 5.-7.12, kl 830-1230 Tölvu- og verkfræðiþjónustan Grensásvegi 16 - sími 68 80 90 Aðalleiðbeinandi: Halldór Kristjánsson, verkfræðingur § É Á FÖRNUM VEGI Hermann Jónsson úr- smiður er þarna með sigurverkið úr gamaili stofuklukku sem hann var að taka til viðgerð- ar. KANINN, HVALURINN OG GAMLAR KLUKKUR að var rigning með uppstytt- um í bænum og þeir sem voru á ferli hröðuðu sér flestir á göngunni til að vera komnir í skjól fyrir næstu dembu. Svo virtist sem fæstir væru til í að nema staðar og spjalla um dæg- urmálin og taka þannig þá áhættu að lenda í næsta skúr. En tveir ungir menn virtust ekki mikið að flýta sér og gáfu sér tíma til að svara eftirfarandi spurningu: Hvað fínnst ykkur um tillöguna sem fram hefiir komið á Alþingi um að Bandarikjamenn eigi að greiða fyrir aðstöðu Varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Kaninn á ekki að hafa fríðindi Ég tel alveg sjálfsagt að þeir greiði fyrir sig þvi þeir eru þarna fyrst og fremst í þágu Banda- ríkjana, sagði Ásgeir Eyþórsson. Alla vega eiga þeir ekki að njóta fríðinda - þeir eiga tvímælalaust að greiða tolla af innfluttum vörum eins og aðrir landsmenn. Ég tel að varnarliðið ætti kannski ekki að greiða fyrir aðstöðuna en þeir eiga alls ekki að njóta tollfríð- inda eins og þeir gera, sagði Lárus Hannesson. Það vita allir sem verið hafa í Keflavík að þama flæðir í gegn tollfijáls varningur eins og t.d. bjór. Það er líka sjálfsagt að banna innflutning á kjöti til Varnar- liðsins. Stjómvöld ættu að taka á þessu máli sem fyrst. Hættum hvalveiðum En nú var byijað að rigna aftur og við leituðum skjóls í Lands- bankanum við Austurstræti. Þar hittum við Helga Halldórsson og spurðum um afstöðu hans til hval- veiða og þeirra deilna em um þær hafa risið. Ég tel að við ættum að hætta að veiða hvalinn, sagði Helgi, í þessu máli er aðeins verið að verja hagsmuni eins fyrirtækis. Ef við höldum áfram að þijóskast við og höldum áfram að drepa hvalinn em viðskiptahagsmunir okkar í mikilli hættu. - Hvað finnst þér um hvalveiðarnar sjálfar? Hvalveiðar em náttúmlega eins og hver önnur slátmn. Röksemdir Grænfriðunga um að hvalirnir séu í útrýmingarhættu em ef til vill ekki sannfærandi, en við hjótum að hlusta á málflutning þeirra. Eins og þessi mál hafa þróast töpum við mikið á að halda hvalveiðunum áfram. Yíkverji skrifar Fyrir nokkm hlustaði Víkverji á símaþátt í einni af útvarpsstöðv- unum. Þar kvartaði ungur maður undan því hve ökukennsla væri dýr. Hann hafði farið í rúmlega 20 tíma og borgað fyrir það 35 þúsund krón- ur. Fannst honum þetta algert rán. „Og svo þarf maður að borga þetta sjálfur," bætti hann við. Ekki stóð á því að aðrir viðmæl- endur létu til sín heyra. Sá næsti sagði ökukennsluna kannski dýra, en hann hefði borgað margfalt minna, enda ekki tekið nema 10 tíma. Og þá var eins og kapphlaup hæfíst. Unglingamir hringdu hver af öðmm, ekki til þess að býsnast út af verð- inu, heldur til þess að segja frá því hve marga — eða réttara sagt fáa — ökutíma þeir hefðu tekið. Ég tók bara 8, ég bara 5 og „sigurvegarinn" hafði aðeins tekið 3 tíma áður en hann fór í próf. 20 tímar er della, sagði einn. Ung stúlka, sem ekki tók þátt í undir- boðunum, sagðist hafa tekið 15 tíma og sér hefði ekkert veitt af því. Kunn- ingjamir, sem tóku próf um sama leyti, hefðu á hinn bóginn litið á hana sem eitthvert viðundur, þar sem þeir hefðu allir „sloppið" með miklu færri. XXX ftir þessar umræður komst Víkveiji ekki hjá því að velta fyrir sér, hvemig ökukennslu hér á landi er háttað. Er mögulegt að meginmálið hjá unglingunum sé að fara í sem fæsta ökutíma — vegna þess hve kennslan er dýr eða jafnvel til þess að geta stært sig af því eftirá? Að sjálfsögðu er mjög einstakl- ingsbundið, hve fljótir menn eru að tileinka sér þá tækni sem þarf til þess að aka bíl, en það er ekki nóg að kunna aðeins skil á akstrinum, það er svo margt, margt fleira, sem menn þurfa að læra áður en réttlæt- anlegt er að þeir hefji akstur í um- ferðinni á eigin spýtur. Ökuleiknin ein nægir þar ekki. Flestir geta sennilega hleypt skoti úr byssu, en það er ekki það sama og að kunna að fara með skotvopn. xxx að er mikil ábyrgð lögð á herðar þeim sem setjast undir stýri, þeir eru með viðsjálvert tæki í hönd- unum. Sá grunur læðist að Víkveija að fjöldi ökumanna geri sér ekki nægilega grein fyrir þessu, næstum því að þeir líti á bílinn sem einskon- ar leiktæki. Það þykir sjálfsögð skylda að sýna háttvísi í umgengni við náungann — en þó að út af því sé brugðið verða sjaldnast stórslys, en sé háttvísi ekki sýnd í umferðinni getur það skilið á milli lífs og dauða. Enginn ökukenn- ari á að sleppa hendinni af nemanda fyrr en honum er þetta fyllilega ljóst. XXX ér um árið var nokkur umræða um að ökukennsla yrði valgrein eða skyldunám í skóla. En það mál komst aldrei lengra en á umræðu- stig. Ef til vill hafa rökin gegn því vegið þyngra en það sem mælti með því. Víkveiji er þess ekki umkoininn að leggja dóm á ökukennsluna, en með tilvísun til þeirrar umræðu, sem varð tilefni þessa pistils, leyfir hann sér þó að fullyrða að ekki er veij- andi að hleypa nýbökuðum bílstjórum á götuna eftir 5 tíma kennslu. Það er della.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.