Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 1
DRAUMAR/is DÆGURLAGA FJARBONDANS 6 wm SUNNUDAGUR SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 BLAÐ eftir Hjélmar Jónsson í SÚMAR voru tíu ár liðin frá því Rainbow Warrior, þáverandi skip grænfriðunga, kom hingað til lands I fyrsta skipti til þess að berjast gegn hvalveiðum íslendinga. Það var ekki laust við að einhverjir brostu í kampinn yfir þessum draumóramönnum, þegar þeir hurfu héðan af landi brott eftir litia frægðarför. Vera þeirra hér á miðunum þá hafði nánast engin áhrif á veiðarnar. Síðan hefur samtökunum vaxiðfiskur um hrygg og fáum er í dag hlátur í hug. Barátta þeirra gegn vísindaveiðunum erfarin að bera sjáanlegan árangur og ýmsir telja grænfriðunga færa um að ógna alvarlega viðskiptahagsmunum okkar. Ennfremur er bent á að sú hætta sé fyrir hendi að við fáum á okkur slæmt orð í náttúruverndarmálum. Með því að hvika ekki frá markaðri stefnu í vísindaveiðunum séum við að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Aðrir segja að útilokað sé að láta undan hótunum. Það sé fullvalda þjóð ekki samboðið, né sé hægt að sjá fyrir endann á þeirri þróun sem af því kunni að leiða. Forsenda þess að við byggjum þetta land sé sú að við ráðum sjálfir hvernig við rannsökum og nýtum auðlindir okkar. . ftSSS'? Morgunblaðið/Rax Síríus, skip grænfriðunga, úti fyrir Laugarnesi sumarið 1985. Innfellt, grindhvalaveiðar í Færeyjum. 1 \ 1 g I ' | 1 k Meðal margra baráttumála er friðun Antartíku og stöðvun losunar eiturefna í hafíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.