Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 Hundarnir komnir af stað og engin undankomuleið fyrir rollurnar. Hjónin á Daðastöðum, Gunnar Einarsson og Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, ásamt börnunum, Elísabetu og Reyni, sem svaf rólegur í vagninum. Lengst til hægri er Asgeir bróðir Guðrúnar. Synimir, Ólafúr og Kristján, vom í skólanum. en þau eru þó aðallega ræktuð vegna þelsins, sem er mjög fínt og verðmætt. Sauðnautin bjarga sér sjálf og að því leyti held ég að væri varasamt að leyfa innflutning á þeim. Ég er hræddur um að þau gætu gengið of nærri landinu.“ Yfir þrjátíu hundar á bænum En ekkert varð úr sauðnauta- ræktinni hjá Gunnari. Hann og kona hans, Guðrún Sigríður Krist- jánsdóttir, keyptu Daðastaði 1982 og búa þar ásamt fjórum börnum, þeim Ólafí Daníel, Kristjáni Inga, Elísabetu og Reyni. Ásgeir bróðir Guðrúnar hefur verið hjá þeim síðan í vor, en fer í skóla um áramót. Þau eru með 600 fjár á veturna, 25 kálfa, nokkra hesta, heimagæsir og síðast en ekki síst ijölmarga hunda. Þegar við komum til þeirra voru yfir þrjátíu hundar á bænum. Fimmtán fullorðnir og átján hvolpar á ýmsum aldri. Hundaræktin hófst með því að Búnaðarfélag íslands flutti inn íjóra hunda fyrir Gunnar frá Skotlandi fyrir 12 árum, en hann greiddi kostnaðinn. „Þessir elstu eru komn- ir á ellistyrk og ekki lengur notaðir til undaneldis," segir hann. „Ég er með marga hunda til að reyna að halda kyninu hreinu. Svona hundar hafa oft verið fluttir inn, en því miður hafa menn oft misst kynið niður vegna blöndunar. Það er nauðsynlegt að fá nýtt blóð inn í ræktunina, en því miður er engin sóttvarnaraðstaða til sem myndi gera þetta allt miklu auð- veldara. Mér finnst að það ætti að reyna að koma upp svona aðstöðu og síðan yrðu hundainnflytjendur látnir greiða þann kostnað sem væri því samfara að hafa hunda þarna. Það er auðvitað dýrt, en þeir sem hafa áhuga á að rækta góða hunda myndu örugglega borga það sem upp yrði sett. Þetta er eina leiðin.“ Skömmu eftir að viðtalið fór fram tilkynnti landbúnaðarráðuneytið að fyrirhugað sé að setja upp einangr- unarstöð í Hrísey. „Hingað til hef ég ekki ræktað hunda í stórum stíl og aldrei fengið nein ósköp af hvolpum. En af því að það er dýrt að hafa svona marga hunda hef ég selt upp í kostnað." „Við höfum svona haft upp í fóðr- ið,“ bætti Guðrún við. Guðrún segir að fyrst núna hafi þau fengið töluvert af hvolpum. „Hugsjónin hjá Gunnari var að koma á þeirri fjárhundamenningu sem hann hafði kynnst úti. Hann vildi láta fólk hafa hvolpa sem hafði áhuga á að gera eitthvað úr þeim.“ „Þessir hundar hafa reynst mér vel og þó nokkrir hafa fengið hunda hjá mér sem hefur gengið ágætlega með,“ segir Gunnar. „En það hafa líka farið frá mér hundar sem ekk- ert hefur orðið úr. Oft er það vegna þess að það hefur ekki verið farið rétt með þá. Það er ekki erfitt að temja svona hund og engin ástæða að ætla að menn geti ekki náð góð- um árangri þegar þeir eignast hund í fyrsta sinn. En það þarf aðeins að hafa fyrir að temja þá og oft vilja menn ekki þurfa að hafa fyrir því. Hundarnir eru náttúrulega mis- góðir og hafa misjafna eiginleika, en langflestir þeirra ættu að geta orðið mjög gagnlegir." Vill koma á fjárhundakeppni Áhugi Gunnars beinist að því að fá ungt fólk til að fá sér hunda af þessu kyni og temja þá að því marki að þeir geti tekið þátt í fjárhunda- keppni. Þetta er sérstök keppni sem lengi hefur verið við lýði í Skot- landi og hefur breiðst út víða um heim, meðal annars til Svíþjóðar og Noregs. í keppninni er hundur- inn látinn sækja kindur, reka þær frá sér og hafa þær í þríhyrning fyrir framan sig. Hann er látinn skilja vissan fjölda frá hópnum og D 7 Gunnar kominn út á tún með hundana og þeir bíða spenntir eftir fyrirmælum húsbóndans. reka þær inn í litla rétt. Hundurinn þarf að vera undir mjög góðri stjóm og kröfurnar eru miklar. „Mér hefur enn ekki tekist að glæða áhugann hjá nógu mörgum svo hægt sé að keppa í þessu hér. Ég held að það yrði íjárbændum mikil hvatning til að fá sér góðan smalahund. Eg er samt bjartsýnn og ekki enn búinn að gefa þetta upp á bátinn. Ég lít svo á að hundar af þessu kyni eigi allir að geta smalað sam- kvæmt þessu og sé ekki búið að kenna þeim það er ekki búið að kenna þeim nóg. Þeir geta samt sem áður verið gagnlegir. Hundurinn er eins og verkfæri. Það þykir sjálfsagt að smiður noti hamar jafnvel þótt vafalaust sé hægt að byggja góð hús með því að reka nagia með steini. Eins eru líka til margir góðir fjárbændur þótt þeir hafi ekki hund, en engu að síður er hundurinn tæki sem sjálfsagt er að nota. Mismunur á nýsjálenskum smala og íslenskum er sá að sá nýsjálenski gengur en hundarnir hans hlaupa. Sá íslenski er aftur á móti allur á iði, eins og hundurinn á að vera. Á Nýja Sjá- landi þætti það gott sýningaratriði ef menn vildu hlaupa á eftir rollun- um sjálfir eins og gert er hér.“ Hann segist vera tilbúinn að keppa við hlaupandi smala næsta haust. Þá færi hann í gegnum ákveðnar æfingar með fjárhund. Síðan kæmu fótfráir menn og gerðu sömu æfingarnar. Hann langar að sjá hvort þeim tekst betur að smala. „Ef svona hundur er þokkalega þjálfaður nýtist hann alltaf þegar menn eru með fé og einnig kýr meðal annars vegna þess að hann geltir ekki. Hundar eru mjög nauð- synlegir nú á tímum, sérstaklega eftir að fólki hefur fækkað í sveitun- um. Það væri ekki óeðlilegt að á búi með 400 til 500 fjár væru þrír hundar. Ef ég væri í þeirri aðstöðu myndi ég velja mér tvo Border Collie og einn af nýsjálensku kyni eins og ég kynntist úti, en þeir gelta. Þeir eru stórir og geysilega skemmtilegir og myndu nýtast vel hér.“ Langar að gera myndband um þjálfun Qárhunda En Border Collie-hundarnir hafa mikinn áhuga á að vinna. Gunnar segir að eðli þeirra sé að fara fyrir kindur en í raun sé hægt að stað- setja þá hvar sem er í kringum fjár- hópinn. Með tímanum er þeim síðan kennt að reka. Skotar fara ekki með þessa hunda í smalamennsku fyrr en þeir eru orðnir tveggja ára. Þangað til eru þeir þjálfaðir heima við, en þeir gleyma ekki því sem búið er að kenna þeim. „Það er ágætt að byija snemma að kenna hvolpunum undirstöðuat- riðin, en það þýðir ekkert að fara að kenna þeim að smala fyrr en þeir eru orðnir sex til sjö mánaða gamlir. Ef farið er með lítinn hvolp í stóran fjárhóp er bara hægt að fá hann til að reka vegna þess að hann hefur ekki kjark eða flýti til að komast fyrir hópinn. Hann þarf að vera orðinn fljótari en kindurnar þegar farið er að kenna honum." Gunnar er með marga hunda og það hefur komið fyrir að þeir hafi verið orðnir margra ára gamlir þeg- ar hann hefur byrjað að nota þá. I Þrátt fyrir það geta þeir orðið mjög

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.