Morgunblaðið - 11.12.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
D 23
Trygginga-
félögin
forðast
„alnæmis-
löndin"
Svo getur farið, að fólk, sem býr
í Afríku í einhvern tíma eða fer
þangað oft í viðskiptaerindum,
komist brátt að raun um, að
tryggingarfélögin vilji ekki selja
þeim líftryggingu. Það er óttinn
við alnæmið, sem veldur því.
Sum helstu tryggingarfélögin í
Bretlandi hafa einnig í huga að
neita þeim um viðskipti, sem búa á
ákveðnum stöðum í Bandaríkjun-
um, og líftryggingarumsóknir
þeirra, sem ferðast reglulega til
svokallaðra áhættusvæða, verða
teknar til gaumgæfilegrar athugun-
ar.
Geoff Coley, aðstoðarforstjóri
Mercantile & General, stærsta end-
urtryggingarfélagsins í Bretlandi,
spáir því, að innan 15 ára verði
líftryggingarstarfsemi liðin undir
lok í Afríku en talið er, að allt að
15% fullorðins fólks þar séu smituð.
Hill Samuel Life og Crusader Life,
sem voru til skamms tíma meðal
þeirra fáu, bresku tryggingarfé-
laga, sem tryggðu útlendinga í
Afríku, hafa nú hætt viðskiptum
við þá, sem búa í Vestur-, Mið- og
Austur-Afríku. Sun Alliance vísar
jafnvel burt fólki, sem ætlar aðeins
að vera í skamman tíma í Afríku
eða á ákveðnum stöðum í Banda-
ríkjunum, og athugar vel umsóknir
þeirra, sem fara oft til þessara
heimshluta.
Þessi afstaða endurtryggingarfé-
laganna, sem baktryggja venjuleg
tryggingarfélög, skiptir miklu máli
því að þau eru einfaldlega að leggja
tryggingarfélögunum lífsreglurnar.
Peter Brading, einn af forstjórum
Sun Life, bendir á, að sjúkrahús
og aðrar heilsugæslustöðvar í sum-
um Afríkulandanna séu sjálfar
helsta uppspretta smitunarinnar og
Coley bætir því við, að enginn viti
í raun hve slæmt ástandið er. „Yfir-
lýsingar stjómvalda í þessum
ríkjum stangast nefnilega verulega
á við þær upplýsingar, sem koma
frá læknum og öðru hjúkrunar-
fólki.“ -TERESA HUNTER
UR ELDINUM TIL
ÍSLANDS
EINAR SANDEN
Endurminningar Eðvalds Hinrikssonar
skráðar af Einari Sanden.
Óvenjuleg og ótrúleg bók um ævi
Eðvalds Hinrikssonar, föður þeirra Atla
og Jóhannesar. Eðvald er Eistlendingur og
sem foringi í verndarlögreglu föðurlands
síns lenti hann á stríðsárunum í úti-
stöðum, bæði við Rússa og Þjóðverja.
Það kom í hans hlut að yfirheyra skæðan
Rússneskan njósnara. Vegna mikilvægrar
vitneskju sem Eðvald komst þá yfir var
hann hundeltur af Rússum. Flótta hans
lauk á íslandi en þar með var ekki öll
sagan sögð. Hér var hann ofsóttur í
blöðum.
Úr eldinum til íslands er viðburðaríkari
en margar spennusógur.
AVISAGA
EÐVALDS HINRIKSSONAR
eymondssoi
OG FIÐ
R
tisaeðlur, fljúgandi skriðdýr og
aðrar furðuskepnur — undraheimur
sem eitt sinn var. Þessi fyrirbæri
vekja ótal margar spurningar. Hvers
vegna urðu risaeðlurnar aldauða?
Hver er uppruni mannsins? Vísinda-
menn hafa skyggnst með spæjara-
augum aftur í gráa forneskju og
svara spurningum. Fjarlæg fortíð
verður lífi gædd á litríkum
myndum, kortum og línuritum.
Þetta er saga hnattarins okkar
milljónir alda.
ISLÍSSKA AUCL ÝSINCASTOFAN HF
RUiiMluVji
IÐUNN
Brœðrabjorgarstíg 16 ■ sími 28555