Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 4
4 D hætta veiðunum, en stjómvöld skellt við skollaeyrum. Það sé ekki annað en fyrirsláttur að hvalveiðar okkar séu nauðsynlegar vegna jafnvægis- ins í hafinu, því þær hvalategundir sem lifi fyrst og fremst á fiski hafi aldrei verið veiddar hér svo nokkru nemi, þ.e.a.s. ýmsar smáhvalateg- undir og höfrungar. Saga hvalveiða sé ljót saga ofnýtingar og arðráns og það sé út af fyrir sig heppni að engri hvalategund skuli hafa verið útrýmt. Viðkoma hvala sé það lítil að stofnamir séu mjög lengi að ná sér séu þeir ofveiddir. Sem dæmi um það sýni rannsóknir að hnúfubak sé að íjölga hér við land nú, en hann hafí ekki verið veiddur að ráði síðan árið 1915. Nú sé aðeins einn nýtan- legur stofn hér svo öruggt sé og það sé hrefnustofninn, en úr honum ætti að mega veiða 700-800 hrefnur ár- lega. Náttúruvemdarráð varar við vísindaveiðunum Náttúruvemdarráð hefur ítrekað ályktað vegna vísindaveiðanna. í ályktun frá sumrinu 1987 segir að ° vísindaveiðamar séu því aðeins rétt- lætanlegar að þær séu langt innan þeirra marka sem stofnarnir þola; og þá einungis ef með þeim fást; upplýsingar sem ekki er hægt að afla með öðrum hætti. Einna helst þurfi gögn um ferðir og hegðun hvalastofnanna og þau gögn fáist aðeins að litlu leyti með veiðum. Síðan segir: „íslendingar byggja lífsafkomu sína á auðlindum sjávar og eiga allra þjóða mest undir skyn- samlegri nýtingu hafsvæðanna umhverfis landið. Að því verður að hyggja að afstaða okkar til hval- veiða rýri ekki traust okkar sem þjóðar með ábyrga afstöðu til nátt- úruverndar og nýtingar auðlinda sem við verðum í flestöllum tilvikum að deila með öðrum þjóðum." Það er rétt að láta Leif Bleidel hafa síðasta orðið um grænfrið- unga, því eflaust tjá þessi orð við- horf margra íslendinga til þeirra. „Sjálfur er ég líka jákvæður gagn- vart mörgum aðgerðum þeirra. Enda þótt ég hafi öðlast nokkra innsýn í vafasamar báráttuaðferðir Greenpeace gegn seia- og kengúru- drápi og sé þvf nokkuð á varðbergi þá er það samt sem áður í grund- vallaratriðum gott að reynt sé að hindra risastór iðnfyrirtæki í að menga höfín. Það er hins vegar erfítt fyrir margt fólk að skilja hvemig sá hugsjónaeldur sem birt- ist í mörgum djarflegum aðgerðum og tvímælalaust er mikilvægur hvati fyrir margt Greenpeace-fólk, getur logað samhliða þeim blaut- legu lygimálum sem samtökin nota í dýravernd arbaráttu n n i. “ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 BANDARÍKIIM Herða á aðgeriMn gegi I slendingum Frá mótmælum grænfriðunga gegn sovéska hvalveiðiskipinu Vostok 1976. eftir Ola Björn Kórason UM 900 þúsund félagar eru í Greenpeace-samtökunum í Bandaríkjunum og hefúr fjöldi félagsmanna aukist jafnt og þétt á undanförnum árum, að sögn talsmanns Greenpeace. Samtökin ætla að herða á baráttunni gegn íslendingum og verður sérstak- lega ráðið fólk í janúar næstkom- andi til að vinna að því að skólar og aðrar opinberar stofnanir kaupi ekki íslenskan fisk. Greenpeace-samtökin voru stofn- uð árið 1971, til að skipuleggja baráttu gegn kjamorkuvopnatil- raunum Bandaríkjanna undan ströndum Alaska. Ari síðar sneru samtökin sér einnig að hvalavernd- un en vemdun sjávarspendýra og barátta gegn losun geislavirks úr- gangs í hafíð, hafa verið megin- verkefni Greenpeace. Greenpeace er með um 180 launaða starfsmenn í Bandaríkjunum og skrifstofur í 27 borgum. Samkvæmt upplýsingum Cam- ball Plowden, hjá Greenpeace, starfa samtökin í 22 löndum og eru félagsmenn nær 3 milljónum. Helsta tekjulind samtakanna er fé- lagsgjöld og styrkir frá einstakling- um. I Bandaríkjunum er háegt að gerast áskrifandi að tímariti Green- peace fyrir 15 dollara á ári, en full- gildir félagar geta hins vegar valið milli þess að greiða 30, 50 eða 150 dollara á ári. Ef reiknað er með að allir greiði lágmarksupphæð, hefur Greenpeace um 27 milljónir dollara (um 1.240 milljónir íslenskra króna) í tekjur af félagsgjöldum á hverju ári í Bandaríkjunum. Plowden segir að íslendingar og Greenpeace eigi samleið á mörgum sviðum þó leiðir skilji þegar kemur aið hvalveiðum. Hann behdir á mengun sjávar meðal annars, losun geislavirks úrgangs. Aðspurður sagðist Plowden ekki geta fallist á rök um að hvalveiðar gætu verið nauðsynlegar til að halda jafnvægi í lífríki sjávarins. Hann sagði að ekki væri hægt að saka hvali eða önnur sjávarspendýr um að éta upp allan fisk, ástæða þess að físki- stofnar kunni að vera minni nú en áður væri fyrst og fremst léleg stjórnun og ofveiði. Plowden hélt því fram að nauðsynlegt væri að stjórna fiskveiðum þannig að ekki væri gengið á stofnstærð þeirra og að nægilegt æti væri fyrir sjávar- spendýr. Greenpeace hefur á undanförn- um misserum beitt sér fyrir því að skólar og opinberar stofnanir hætti kaupum á íslenskum fiskafurðum og hvatt almenning til þess að snið- ganga þær. Enn sem komið er hef- ur aðeins borgarstjórn Boston í Massachusetts samþykkt tillögu þar sem skólar og innkaupastofnan- ir borgarinnar eru hvött til þess að kaupa ekki íslenskan fisk, og hefur það gengið eftir. Um 51 skóla- umdæmi í Massachusetts og 19 umdæmi í Connecticut hafa hætt kaupum á fiskafurðum frá íslandi. í janúar á næsta ári verður ráðið fólk sérstafclega til þess að fá skóla og stofnanir í öðrum ríkjum, einkum í norðvestur- og austurríkjunum, til að hætta að kaupa íslenskan fisk. Plowden sagði að Greenpeace gripi ekki til aðgerða af þessu tæi ef talið væri að þær skiluðu ekki einhveijum árangri og að aðrar leið- ir hefðu reynst árangurslausar. Þegar hann var spurður um höfr- ungaveiðar Bandaríkjanna og hvemig Greenpeace berðist gegn þeim, sagði Plowden að samtökin hefðu reynt að koma í veg fyrir höfrungadráp sem væri mun minna nú en á síðasta áratug þegar um 400 þúsund höfrungar voru veiddir. Höfrungar eru ekki veiddir sérstak- lega heldur festast þeir í netum túnfiskveiðimanna og liðlega 20 þúsund dýr eru veidd á hveiju ári. Greenpeace hefur reynt að hafa áhrif á lög og reglur sem vemda höfrunga og Plowden sagði þeim hafa orðið nokkuð ágengt í þeirri baráttu, þó fullnaðarsigur hefði ekki náðst. Túnfískiðnaðurinn virð- ist hafa áhrif á bandaríska þinginu sem hefur barist gegn takmörkun- um á höfrungaveiði. Plowden sagði að Greenpeace hefði aldrei beitt sér fyrir því að bvetja almenning eða opinberar stofnanir til að sneiða hjá vömm bandarískra fyrirtækja sem með einum eða öðrum hætti stofna lífríki sjávarins í hættu. Það hefði verið talið að það þjónaði ekki nein- um tilgangi og skilaði ekki árangri. EVROPA hx sætta rig ettf vU orðta tóm eftir Önnu Bjarnadóttur Sjálfboðaliðar grænfriðunga setja upp upplýsingaborð í mið- bæjum fjölda evrópskra borga um flestar helgar. Þeir reyna að vekja athygli almennings á bar- áttumálum sínum gegn sela-, skjaldböku- og hvalaveiðum og hvers kyns umhverfismengun. Þeir taka stundum sérstök mál fyrir í einn dag, eins og Vestur- Þjóðveijar gerðu nýlega gegn hvalveiðistefnu íslendinga, og leggja þá aðaláherslu á það í kynningu sinni. Sjálfboðaliðarnir eru yfirleitt ungt fólk, margir eru enn í námi. Þeir vilja leggja sitt af mörkum tii að bjarga umhverfinu. Þeir vonast til að fá einhveiju áorkað með því að vekja athygli fólks á hættunni sem uimhverfinu stafar af-ofveiði, -kjaré- orkutilraunum, geislavirkum og ei- truðum úrgangi og loftmengun. Þeir vilja bjarga Norðursjónum, Miðjarð- arhafínu og Antarktíku. Þeir eru yfirleitt friðsamir og abbast ekki upp á fólk að fyrra bragði. En ef einhver sýnir áhuga þá stendur ekki á svör- um og þeir veita upplýsingar sem þeir telja réttar. Andstæðingar þeirra telja þá ýkja eða fara með fleipur og mörgum finnst þeir helst til ofstækisfullir. En það kemst ekki hreyfíng á hlutina nema djúpt sé tekið í árinni. Barátta grænfriðunga hófst með mótmælum gegn kjarnorkutilraun- um Bandaríkjamanna, árið 1971. Hreyfingin skaut rótum í Evrópu 1977. Þá keyptu stofnendur skrif- stofunnar í Bretlandi skipið „Rain- bow Warrior" fyrir peningagjöf frá „World Wildelife Foundation" í Hol- landi og Sviss. Franska leyniþjónust- an sökkti skipinu fyrir nokkrum löfn á Nýja Sjálandi en bað orkutilraunum Frakka við Mururoa- kóraleyjarnar. Nú eiga alþjóðasam- tök grænfriðunga fímm skip, 50 gúmmíbáta, 2 þyrlur, loftblöðru, 2 litlar flugvélar og rútu. Umhverfíssinnar í Hollandi opn- uðu skrifstofu Grænfriðunga í Amst- erdam 1972. Hreyfing þeirra er fjöl- mennust í Evrópu miðað við fólks- Qölda. Þar greiða 310.000 manns félagsgjöld á ári. Bresku samtökin hafa 180.000 félagsmenn. Grænfrið- ungar í Vestur-Þýskalandi hófu starfsemi 1980 og hafa 370.000 fé- lagsmenn. Danskir grænfriðungar hófu starfsemi sama ár og hafa 53.000 félagsmenn. Samtökin voru stofnuð í Belgíu 1983 og hafa 30.000 félagsmenn, í Sviss 1984 og hafa 24.000 félagsmenn, í Austurríki 1985 og hafa 25.000 félagsmenn, Ítalíu 1986 og hafa 9.000. Irar tóku sig til og opnuðu skrifstofu í byijun þessa árs og hafa 1.000 félagsmenn. Skrifstofur eru einnig reknar á )áni. og í Noregi. Sví menn samtakanna. Þau hafa legi niðri í Frakklandi í nokkur ár. Skrifstofurnar hafa allt frá tvein ur upp í fimmtiu starfsmenn. Þe sjá um rekstur samtakanna, upplý ingaþjónustu, gera rannsókni skrifa skýrslur og koma baráttumá um sínum á framfæri við stjóri málamenn og fjölmiðla. Alþjóð; nefnd samtakanna, sem fulltrúi fí hveiju landi á sæti í, mótar stefnur og tekur ákvarðanir um aðgerði Þær eru friðsamlegar en með þei reyna Grænfriðungar að koma í ve fyrir að hlutir sem þeir berjast gej geti átt sér stað, eins og til dæm hvalveiðar, sala hvalkjöts c íslenskra sjávarafurða, kjarnorki framieiðsla og mengun hafsins. Þa vekja einnig athygli á málstað sar takanna. Starfsmennirnir eru jal misjafnir og þeir eru margir. Sum virðast vei heima í þeim málum se þeir fjalla um og er annt um i breyta þeim til bátnaðar en að ' 'ist starfí msM og tremst til í bæklingum grænfriðunga kemur fram að barátta þeirra hefur borið árangur á ýmsum sviðum: Frakkar eru hættir kjarnorkutilraunum í Kyrrahafinu; hvalveiðar í viðskipta- skyni eru nú bannaðar; seladráp hefur dregist saman um 90%;'kjam- orkuúrgangi er ekki lengur sökkt í Atlantshafið; og bann við að eituref- naúrgangi sé sökkt í Norðursjóinn er til umræðu í Evrópubandalaginu. Samtökin hreykja sér af því að vera óháð stjórnmálaflokkum og þakka sér síaukna meðvitund almennings um umhverfismál. Könnun, sem samtökin í Sviss gerðu í upphafi þessa árs meðal fé- lagsmanna, leiddi í ljós að meirihluti þeirra hefur lokið verslunarskóla- eða stúdentsprófi. Karlmenn eru í meirihluta. Flestir félagsmanna eru á aldrinum 30-40 ára þótt samtökin höfði til fólks á öllum aldri og yfír helmingur félagsmanna er ógiftur. Það þykir benda til að grænfriðung- ar kjósi óvígða .sambúð fram yfir hjónaband. Þeir endurnýta gler, pappír og álumbúðir, spara orku og ferðast helst með almenningssam- göngutækjum. Aðeins 10% félags- manna eru meðlimir í stjórnmála- flokki en meirihluti styður stefnu jafnaðarmanna og græningja. Þeir' styðja grænfrjðungasamtökin af því að þau sætta sig ekki við orðin tóm heldur aðhafast eitthvað og eru án- ægðir með róttækar aðgerðir og ,*4t£/ö¥«^IPÍ8!í§!ína-. Fæstir taka þó virka þátttöku í starfsemi þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.