Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
D 43
Olga Ragnarsdóttir og Kristján Valdimarsson
Helgi Bogason Jón Arnarson
Ef það vantar peninga í kassann
er sjálfsagt að seija annað skatt-
þrep og láta hátekjumennina borga,
sagði Jón Arnarson, það er mun
réttlátara en að hækka skatta yfir
heilu línuna.
- Telur þú að skattar séu of háir
hér á landi?
Nei, ég álít að þeir séu hæfilega
háir og sjálfur myndi ég ekki telja
eftir mér að greiða hærri skatt-
prósentu af því sem ég hef fram
yfirt.d. 80 þúsund krónur.
Ég er ekki viss um að nýtt skatt-
þrep væri lausnin, það er kannski
réttlátast að dreifa byrðinni jafnt á
alla og hækka skattprósentuna,
sagði Helgi Bogason.
- Telur þú að skattarnir séu of háir?
Ég hef satt að segja litla reynslu
haft af sköttum. Ég hef verið í
námi undanfarin ár og hef ekki
neina skatta þurft að borga, sagði
Helgi.
Rolluafgreiðslan
Þar sem við ræddum við Helga
í anddyri pósthússins við Pósthús-
stræti var athygli okkar vakin á
athyglisverðu vegspjaldi. Þar virtist
mega lesa að Rolluafgreiðslan væri
að Armúla 52 þó eitt „a“ vantaði
reyndar í orðið sem gat verið sparn-
aðarráðstöfun. Það var ekki seinna
vænna en þeir kæmu upp rolluaf-
greiðlslu eins mikið og hleðst upp
af kindakjöti í landinu, sagði ein-
hver. Var Sauðfjárverndin þarna
að verki? I fyrstu virtist þetta óskilj-
anlegt rétt eins og þegar talað er
um hundruðustu og elleftu meðferð
á skepnum í Ljósi heimsins eftir
Halldór Laxnes. En allt á sína skýr-
ingu. Einhver prakkari hafði víxlað
stöfum í töflunni og mátti lesa þar
ýmisar skrýtnar tilkynningar þó
þetta með rolluafgreiðsluna væri
besta málið.
Húsnæðisvandi MR
f-
Til Velvakanda.
Menntaskólinn í Reykjavík þarf
viðbótarhúsnæði og það sem
fyrst. í næsta nágrenni við skólann
er hús við Þingholtsstræti sem
gæti komið að miklum notum.
Svæðið milli þessa húss og Casa
Nova mætti auðveldlega refta yfir
°g yrði það drjúg viðbót við hús-
næði Menntaskólans á tveimur eða
þremur hæðum.
Þar sem nú er mikið rætt um
offramboð á skrifstofuhúsnæði get-
ur heildverslunin velið úr hentugu
húsnæði. Væri ekki ráð að ræða
við rétta aðila um lausn á húsnæðis-
þörf skólans?
Skúli Ólafsson
spurt og svarað
B.Þ., KÓPAVOGI
nT 1. Það er orðið n\jög
I erfitt að fá öl á glerfl-
öskum. Ætla ölgerðimar í
landinu að
hætta með
glerflö-
skumar og
koma með
dósir í
staðinn?
2. Er það
ekki rétt
hjá mér að öl geymist ver á dós-
um en í glerflöskum?
3. Verður bjórinn aðeins seldur
i dósum?
Láms Berg, framkvæmdastjóri
hjá ölgerðinni Egill Skallagríms-
son hf.
SVAR
1. Ölgerðin Egill Skal-
lagrímsson framleiðir enn-
þá appelsín, malt, pilser og sótavatn
á glerflöskum og er ætlunin að
halda því áfram. Margar verslanir
hafa hins vegar aðeins öl á dósum
til sölu þar sem auðveldara er að
fást við sölu á þeim.
2. Glerílát eru bestu umbúðimar
fyrir öl en öl sem þolir illa birtu
geymist hins vegar betur í dósum.
Síðasti söludagur er stimplaður botn
allra dósa sem fara frá fyrirtækinu
og er hann langt innan þeirra marka
að nokkur hætta sé á skemmdum.
Yfirleytt er öl geymt mjög stutt í
verslunum hér á landi og kemur
þetta því alls ekki að sök.
3. í reglugerð um bjórsölu hér á
landi segir að allt áfengt öl skuli
vera á dósum. Pólar bjórinn sem
við framleiðum verður því seldur á
dósum. Aðeins má framleiða bjór í
glerílátum fyrir veitingahús ’sam-
kvæmt þessari reglugerð.
B.S., REYKJAVÍK,
nT Hver kostar starfsemi
I Mjólkurdagsnefndar?
Oddur Helgason hjá Mjólkursam-
sölunni,
SVAR
Mjólkurdagsnefnd starfar á
vegum mjólkursamlaganna
í landinu og henni er ætlað að miðla
þekkinu og
fræðslu og
auglýsa
mjólk,
ijóma og
skyr. Mjólk-
urdags-
nefnd ' er
ekki opin-
ber nefnd og hún er ólaunuð.
i
S.S., REYKJVÍK,
nT 1. Hvort er réttara að
I ségja kl. 24.30 eða 00.30?
2. Klukkan hvað verða vetrarsól-
hvörf í ár?
Þorsteinn Sæmundsson, stjam-
fræðingur;
SVAR
1. Eðlilegra er að segja i<
00.30 en 24.30 er einni
rétt. Þegar tímasetningar eins o
24.30 eru notaðar eru tíminn reiki
aður frá deginum áður og er þetta
t.d. víða gert í Almanaki Háskóla
Islands.
2. Klukkan 15.28 hinn 21. desem-
ber.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1988Los AngelesTimes Syndicate
Við höfum stundum taiað um
að við gætum alveg verið án
bílsins ...?
HÖGNI HREKKVÍSI