Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 27
U dX
L
• ........ ö>;áuiwú?MAJKMWUCRn:'aioAjaMUDflóM' '
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
D 27
FÓLK
í fjölmiðlum
■ Jólin eru nú á tímum
hvorki hátíð barna né verslana
heldur sjónvarpsstöðva. Is-
lensku stöðvarnar vanda sér-
staklega til hátíðardag-skrár og
er íslenskt efni í hávegum haft.
Sá galli er á gjöf Njarðar að
vandaðasta efni stöðvanna
tveggja er yfirleitt sýnt á sama
tíma. Fyrsti þáttur Nonna og
Manna, Ágústs Guðmundsson-
ar, hefst að kvöldi jóladags í
Sjónvarpinu fímmtán mínútum
á undan leikinni heimildar-
mynd Stöðvar 2 og
Vöku/Helgafells um Halldór
Laxnes. Einnig verður nútima
útfærsla á Djáknanum á Myrká
sýnd annan í jólum í Sjónvarp-
inu þegar Ólafúr Jóhann Ólafs-
son verður í slagtogi við Stöðv-
arstjóra. Að kvöldi nýársdags
verður seinni hluti heimildar-
myndarinnar um Laxnes síðan
sýndur á sama tíma og íslenska
leikritið Pappírs Pési og ný
heimildarmynd um Jökulheima
verður á dagskrá Sjónvarps.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum var þessum þáttum ekki
viljandi stillt upp gegn hver
öðrum heldur réð þarna tilvilj-
un ein.
■ Félagar í Blaðamannafé-
lagi íslands eru nú orðnir yfir
400, en það var blaðamaður og
ritsljóri Eystra Horns í Horna-
firði, séra Baldur Kristjánsson,
sem fékk það félaganúmer í
skírteini sitt.
GífúrlegQölg-
un hefúr orðið
á félagaskrá
BÍ, og á einu
ári fjölgaði
þeim um 50
manns. Skýr-
ingin á þessari
Qölgun er einkum sú, að í fyrsta
lagi hafa fréttamenn og annað
Qölmiðlafólk á nýju miðlunum,
útvarpsstöðvum og Stöð 2,
gerst félagar í BI, og í öðru
lagi hafa blaðamenn og frétta-
menn, ekki síst út á landi sem
vinna meira og minna við
fréttaöflun og greinaskrif,
gerst félagar. Sú ákvörðun
stjórnvalda að binda lánsrétt
úr húsnæðissjóðum ríkisins við
félaga í lífeyrissjóðum sem
kaupa skuldabréf af Húsnæðis-
stofnun, hefúr einnig stuðlað
að þessari fjölgun.
■ Kvikmyndagerðarmaður-
inn Helgi Felixson hjá Plús-
Film er þessa dagana að ljúka
við heimildarmynd um „sænsku
mafíuna" sem hann vinnur fyr-
ir Sjónvarpið. Myndin byggist
aðallega á viðtölum auk leik-
inna atriða. Hún fjallar um
þann hóp íslendinga sem fór í
nám til Svíþjóðar upp úr 1968
og sneri heim með nýjar skoð-
anir, sem mörgum þóttoi æði
byltingarkenndar. Voru náms-
mennirnir gjarna nefndir
„sænska mafían“. Gert er ráð
fyrir að þátturinn verði tilbúinn
til sýninga um áramót en óvíst
er hvenær hann verður sýndur.
Helgi hefúr unnið nokkra þætti
fyrir sjónvarp, m.a. um Halld-
óru Briem. Þá vinnur hann nú
að þætti um þorskastríðin.
Borga aðeins fyrir
það sem hotfi er á
IBandaríkjunum gerir sérstök
þjónusta sjónvarpsáhorfendum
kleift að borga aðeins fyrir það efni,
sem þeir vilja horfa á.
Á síðustu 12 mánuðum hefur
heimilum, sem notfæra sér þessa
þjónustu (en hún kallast pay-per-
view television), fjölgað úr fimm
milljónum í 10 milljónir og því er
spáð að 40 milljónir heimila muni
nota hana 1996.
Áhorfendur fá dagskrárkynningu
í hvetjum mánuði og geta valið úr
kvikmyndir, þætti í beinni útsend-
ingú og íþróttaefni, sem þeir kæra
sig um að horfa á. Síðan fá þeir
senda reikninga fyrir hvern þann
þátt sem þeir horfa á.
Þessi þjónusta nemur aðeins tæp-
um tveimur af hundraði kapalsjón-
varps-markaðarins, sem er metinn
á 13 milljarða dollara á ári. Hún
getur hins vegar orðið ábatasöm
fyrir eigendur kapalsjónvarps, kvik-
myndaver, forsvarsmenn íþrótta-
móta og fleiri aðila, sem skipta
megninu af tekjunum á milli sín.
Heimspressan
heim, samdægurs
Islenskum lesendum alþjóðaútgáfú Firmncial Times er nú boðið upp
á það nýmæli, að fá blaðið heim samdægurs. Það er Boðfélagið sem
býður þessa þjónustu og auglýsti það nýverið eftir blaðberum. Alls
verða þeir um 40-50 og hafa nokkrir þegar hafið störf.
Einar Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Boðfélagsins,
segir áskrifendurna rúmlega 200,
flesta í Reykjavík. Mesta þörfin sé
á blaðberum í úthverfin, t.d. Breið-
holt. Einar segir félagið heldur óska
eftir fullorðnum í blaðburðinn þó
börnin muni einnig bera út. Ágæt-
lega hafi gengið að ráða blaðbera,
þó enn sé hörgull á þeim í úthverf-
in. Blaðburðinum á að vera lokið
fyrir kl 19.
Boðfólagið hefur um nokkurt
skeið flutt inn alþjóðaútgáfur nokk-
urra stórblaða með svokallaðri
hraðþjónustu; m.a USA Today,
Wall Street Journal og nokkur
spænsk og ítölsk blöð. Þau hefur
verið hægt að fá samdægurs í bóka-
búðum. „Þegar við hófum að flytja
blöðin inn, voru uppi efasemdir um
að það myndi ganga. í byrjun gekk
blaðburðarþjónustan ekki sem
skyldi en hún er nú óðum að færast
í eðlilegt horf,“ sagði Einar.
HDTV-
sjónvarp veldur
byltingu
JAPANAR eru að taka í notk-
un svokallað háskerpusjón-
varp (HDTV), sem mun stór-
auka myndgæði og valda þar
með byltingu í sjónvarpsmálum
að sögn brezka blaðsins The
Observer.
Með tilkomu þessarar tækni
eiga myndir á skjánum að verða
eins skýrar og á 35 millimetra
litskyggnu. Auk þess mun hljóð-
kerfið byggja á stafrænni tækni
og hljóðið verður eins greinilegt
og á geisladiski.
Japanska ríkisútvarpið, NHK,
hefur unnið að þessum endur-
bótum í 18 ár og tilraunasend-
ingar eiga að hefjast í apríl nk.,
20 mánuðum fyrr en upphaflega
var ráðgert. Sérstökum há-
skerpusjónvarpstækjum, sem
hvert um sig mun kosta hvorki
meira né minna en 310.000
pund (rúmar 26 millj. ísl. kr.),
verður komið fyrir í félagsmið-
stöðvum víðs vegar í Japan.
Með ijöldaframleiðslu vonast
Japánar hins vegar til að geta
selt háskerputæki á 500.000 jen
(2.270 pund) um miðjan næsta
áratug. Ef skipt verður um hér
um bil 150 milljónir sjónvarps-
tækja, sem eru í notkun í Evr-
ópu, 70 milljónir í Japan og 200
milljónir í Bandaríkjunum er
talið að markaðurinn fyrir há-
skerputæki kunni að verða 15,5
milljarða punda virði eftir 12 ár.
Tækni, sem verður til á öðrum
sviðum rafeindatækni og fjar-
skipta vegna tilkomu háskerpu-
sjónvarpsins, verður jafnmikil-
væg og jafnvel mikilvægari.
Áhrifa háskerpusjónvarpsins
mun m.a. gæta í tölvubúnaði,
filmugerð, prentiðn, auglýsing-
um, hernaði og lséknisfræði.
ítalir yfirtaka
Super Channel
Italskt fjölmiðlafyrirtæki, Video-
music, hefur keypt 55% hluta-
bréfa í Super Channel, brezku
gervihnattarsjónvarpi, sem hefur
sjónvarpað til Evrópu síðan í janúar
1987. Videomusic flytur rokktón-
list og rekstur fyrirtækisins hefur
gengið illa. Super Channel, sem
átti að bjóða áhorfendum í Evrópu
bezta brezka sjónvarpsefnið, sem
völ væri á, hefur einnig átt í erfið-
leikum. Tap fyrirtækisins nam 60
milljónum punda fyrstu 20 mánuð-
ina sem það starfaði.
Eru íslensku glans-
tímaritin konublöð
Eða eru íslenskir karlmenn bara mjúkir?
Hefðbundin skilgreining á
konublöðum er að þau séu
skrifuð af konum fyrir konur.
Viðfangsefni erlendra konublaða
eru ákaflega misjöfn. Iðulega eru
þau almenns eðlis en markast oft
að öðru leyti af stéttarlegri stöðu
þeirra kvenna sem þau reyna að
höfða til. Þau íslensku tímarit sem
fallið gætu undir þessa skilgrein-
ingu eru tímaritin Heimsmynd,
Mannlíf og Nýtt líf, auk Vikunnar
sem er annar kapítuli vegna útg-
áfutíðni. Þessi þrjú tímarit eiga
margt annað sameiginlegt. Þau
eru íslensku glanstímaritin auk
þess sem þau eru í hópi fimm vin-
sælustu tímarita hér á landi, ef
Sjónvarpsvísir Stöðvar 2 er und-
anskilinn, samkvæmt nýlegi-i les-
endakönnun ofan úr Háskóla sem
Verslunarráðið lét ■■■■■■■■■■^^^M
gera. Einnig eru ______________i ± ili il m l _
ritstjórar þeirra BAKSVIÐ
allra konur, sömu-____________________________
leiðis ritstjómar- MrÁsgeirFribgeimon
fulltrúar. Um J & &
níutíu prósent auglýsinga í hveiju
þeirra eiga að selja snyrti- og
hreinlætisvömr, klæðnað og mat-
og heimilisvömr, samkvæmt laus-
legri athugun á nóvember-tölu-
blöðum. Við þetta má síðan bæta
að umtalsverður meirihluti les-
enda þessara tímarita em konur
en það á reyndar einnig við um
mörg önnur tímarit, eins og t.d.
Hús og híbýli og Þjóðlíf. Konur
ástunda lestur þessara tímarita
einnig mun betur ef marka má
áðurnefnda lesendakönnun. Þær
konur sem lesa þau gera það oft-
ar og reglulegar en þeir karlar
sem játa að hafa einhverntíma
gluggað í þau.
Staðreyndir af þessu tagi em
athyglisverðar en þær má túlka á
margan hátt. Rétt eins og sú nið-
úrstaða, sem fram kemur í könn-
un Verslunarráðs, að heimilis
stærð lesenda Samúels er að jafn-
aði meiri en lesenda annarra tíma-
rita þarf ekki að merkja að Samú-
el sé fjölskyldutímarit þá þýðir
samtíningurinn um glanstímaritin
ekki endilega að þau séu kon-
utímarit. Hins vegar má tala um
slagsíðu. Nýtt líf virðist næst því
að vera konutímarit. Hreinlætis-
og snyrtivömauglýsingar eru allt
að 80% allra auglýsinga og tveir
þriðju hlutar lesenda em konur.
Ritstjórnarstefnan virðist einnig
vera í humátt á eftir kenjum
kvenna. Hins vegar liggja ekki
fyrir greiningar á innihaldi Nýs
lífs frekar en annarra tímarita hér
á landi. 42—43% lesenda Heims-
■■■■■■i myndar og
Mannlífs em karl-
ar sem þýðir að án
þeirra þrifust þau
tæpast. Ritstjórar
þeirra segja að það
sé ekkert frekar reynt að höfða
til kvenna en karla. Að líkindum
er það rétt. Trúlega er markhópur
þessara tímarita óskilgreindur.
Ritstjórnarstefnan mótast af
ungri hefð eða formúlu sem þekk-
ist varla í öðmm löndum en geng-
ur upp hjá bókmenntaþjóðinni.
Víst er að svipur er með þessum
tímaritum og erlendum tímaritum
hvað varðar efnisval og efnistök.
Þau hafa mjúka áferð, ef svo má
segja, sem löngum hefur einkennt
konublöð. Það má því segja að
þau séu einskonar kvennatímarit
sem lesin em af körlum. Þar með
er enn frekari stoðum rennt undir
þá kenningu að karlmenn á þessu
ískalda landi hafi mýkra hugarþel
en sjentilmenn, monsjörar og senj-
orar sunnar í Evrópu.
UUFFENGA
Bergstaðastræti 37.
í hádeginu á sunnudögum
Vegna íjölda áskorana höfum við nú ákveðið að endur
taka lambakjötskynninguna næstu sunnudaga.
11. desember: Heilsteiktur lambahryggur m/lyngsósu
Bananaískrem m/vanillusósu
18. desember: Fylltar lambasneiðar m/kryddjurtasósu
Ávaxtarjómarönd m/karamellusósu
Verð kr. 895.- fyrir fullorðna og kr. 400.- fyrir börn