Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 11

Morgunblaðið - 11.12.1988, Page 11
D 11 MORGUNBLAÐIÐ MAIMNUFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR íl. DESEMBER 1988 MATUR OG DRYKKUR/Med Þórami Óskari Þórarinssyni á Grilli Hótels Sögu Nota gaffal dns og Kaninn Svartklæddur úr gufubaði inn á forbar hins Sögulega Grills: á fleti fyrir norskir bisnessmenn í rommi og kóka-kóla. Þórarinn Oskar Þórarinsson, fjöllistamaður, ásamt mér pantar Margarítu, þetta kynngimagnaða sambland sjávar- seltu, tequila m.m., sem minnir Agga á „the good ehir Jóhönnu • hard times“ með Sveinsdóttur ömmu mó j hús. vagni fyrir West- an. Margarítan svona líka prýði- lega hantéruð eftir drykklanga bið eftir tequilaflösku úr kjallaranum. (Margir geta nefnilega ekki hrist hana Margarítu saman.) Norsar- arnir gaspra þetta hefðbundna hallærislega um íslenskar píur í kapp við „Je t’aime moi non plus“ niðursoðið á bíóorgel, en Aggi seg- ir: „Ég lulla mér oft hér á þessum bar, sýp og hugsa, horfi á útsý- nið, temmilega lofthræddur. Enda segir Einar Már, vinur minn, að þeir sem ekki séu lofthræddir skorti hugmyndaflug. En ég hef sjaldan étið hér eftir að amma Lóló fór vestur og hætti að styrkja mig með sínum síðasta pening til að sækja fína staði." Sestur við gluggann í súlna- styrktum matsalnum pantar Þór- arinn eftir nokkrar vangaveltur Sniglaragout í hvítvínssósu í forrétt (840 kr.), Prinsessubauta (1.950 kr.) sem burðarstoð og Rabarbaraísmusl (440 kr.) til úthreinsunar. Meðan við bíðum eftir sniglunum talar hann um kúlfnarískt uppeldi það sem hann hlaut hjá langömmu sinni, Jó- safínu spákonu frá Nauthól, sem m.a. spáði þeim Davið borgar- stjóra og Vigdísi forseta því sem verða vildi. Aggi er langömmu- strákur og ömmu. Bjó lengst af í stórfamilíu í kampi þeim er stóð rétt sunnan við þar sem Hótel Saga stendur nú. (Samanber Eyjabækur Einars Kárasonar.) Býr þar enn þó kampur sé rifinn. „Jósa gerði upp á milli ijöl- skyldumeðlima. Á meðan aðrir fengu skyrhræring fengum við fáir útvaldir kótelettur, sundurs- teiktar í mikilli feiti," segir Aggi. „Þessi matreiðsla hefði nú ekki þótt góð fyrir sælkera, en hefði aftur á móti getað haldið úti heilli Stalíngradhersveit á hitaeiningum! Við Jósa vorum sér í matar- smekk. Hún ól mig upp við að borða spikfeitt. Á jólunum urðu oft læti yfir því að hún keypti of feitt svínakjöt. En eftir að friður- inn hafði sprungið á jóladag og familían splundraðist sátum við Jósa fram á nótt og kláruðum fit- una svo vall út úr okkur.“ Kemur þjónninn og skenkir hvítvíni í glas Þórarins í smökkun- arskyni, en sá hinn síðamefndi hefur þá tilburði að engu og held- ur áfram að tala með áherslu- handahreyfingum sem gætu verið pólskar, jafnvel danskar, en allt- éntþess eðlis að borðlampinn hrist- ist. Stöðugt. Ég hnippi í sörinn sem að lokum smakkar og kinkar: „Mér leiðast bara svona serímón- íur. Á þetta ekki að vera nógu gott í kjaftinn á manni?" Að því búnu sniglamir sem hér em tilreiddir í sósu lagaðri úr þeim hráefnum sem þeir kunna hvað best við sig með: hvítvíni, stein- selju, hvítlauk og ijóma. Gott — en það er bara svo miklu meira gaman að veiða þessi stinnu kríli upp úr kuðungum. Þeir em þess eðlis. Aggi gefur grænt ljós á sniglana, enda búinn að ná sér eftir herfilega matareitmn sem hann varð fyrir í Istanbul á dögun- um. Nær dauða en lífi. Hvorki í fyrsta né síðasta sinn. Birtist þá Prinsessubautinn, nautalundir ijóðaðar blóðrauðri sósu. Það vekur athygli mína að Þórarinn tekur til við að brytja bautann bita fyrir bita áður en hann bragðar á. „Þú ættir eiginlega að brytja þetta fyrir mig,“ segir hann. „Hún Jósefína brytjaði allt ofan í liðið. Skrældi meira að segja pyls- urnar, vegna þess að góð- ur vinur hennar kafn- aði af pylsu- hýði.“ Smjattar, fyggur, kyngir, segir svo: „Ég nota gaffal eins og Kan- inn. Stund- um hefur legið við slagsmálum þegar ég hef notað hníf og gaffal samtímis, eins og þeg- ar ég í minni fyrstu París- arreisu ’75 beitti þeim á spælt egg svo að slettist á alla viðstadda." • Þórami hugnast Prinsessubaut- inn vel „þegar maður er kominn inn fyrir „skánina". Hann er full- steiktur — nærri brenndur yst — en lungamjúkur að innan. Og „medium rare“ eins og ég bað um. Rauðvínssósan er góð — og nógu helvíti rauð. Ég væri alveg til í að taka afganginn með mér heim — eins og Jósa var vön að gera — og borða undir góðum þætti af The Untouchables!" Drykklanga stund bíðum við eftir eftirréttinum. Aggi hefur orð á því að líkast til séu þeir undir- mannaðir á Sögunni eins og á Mogganum og svo, svo víða. En það gerir ekkert til vegna þess að á Grillinu skipti útsýnið mestu máli. Hingað komi maður hvort sem er ekki til að „spise rart i en fart“. Aggi segir: „Málið hér í Grillinu er útsýnið: séra Frank M. Sinatra, Neskirkj- an, Hagó og Björn Jónsson, sjórinn og Esjan. Panórama okkur Vest- urbæinga. Svo finnst mér þessi sixties innrétting góð. Kannski gætum við fundið svona penthouse í Búlgaríu?!“ Og Aggi stúderar fólkið: fimmtudagskvöld og fullt af ný- komnum skandínövum í þessum vafasama helgarpakka. Lítill áhugi á þeirri deild. „En sjáðu þetta langborð," segir Aggi og bendir: „Þarna er einn íslenskur grandmafíósó með allt sitt hafur- task: samsafn af vesalingum og ættarenda fábjánutn. En svo er líka sinfónían mætt, og sérfræð- ingar í negró-Broadway-music og þama kemur svo einhver Nordal- inn og segir: Do you know what my grandfather said?“ Eftirrétturinn, rabarbararís- unuslið eins og þeir kalla það Sögulega, reynist undurgott. „Ótrúlega svalandi! Betra en Dutch Apple Pie Lóló ömmu,“ seg- ir Aggi hugfanginn. Kýs sér svo sem meltingardrykk Irish coffee: „Fæ súran maga af koníaki eftir Istanbúlreisuna. I haven’t got the stomach for it, svo ég vitni nú í hinn kvenhataða rithöfund, Nor- man Mailer, sem hefur svo sannar- lega fyrir sína parta tekið á síkósó- matíkinni og það strax á þriðja áratugnum." Sumsé: Á Grilli Hótels Sögu er staðlaður matseðill en traustur, fyrir staðlað (en mistraust) tæki- færisfólk (í góðri merkingu þess orðs), af 'íslensku jafnt sem er- lendu bergi. Brotið. Enda hótel sem bæði verður að hýsa fast- heldna SÍS-ara og glaseygða lopa- peysuskvísuspámenn. (Og skyldi einhver sakna skandínava yfir vet- urinn, þá er bara ...) Traustir og vel menntaðir þjónar ganga um beina. Þó of fáir. Ekki þeim að kenna. Og útsýnið blífur. Hvað er drykklöng bið — milli vina — og með gamla Vesturbæinn í augum úti? Morgunblaðið/Ámi Sæberg „Vœri tii í að taka afganginn af mér heim og borða undir góðum þætti af The Untouchables, “ segirAggi. lÖk^NORRÆNI HEILSUVERNDARHÁSKÓLINN (HALSOVÁRDSHÖGSKOLAN) BIT LEITAR AÐ NÝJU SAMSTARFSFÓLKI Norræni heilsuvemdarháskólinn (NHY) í Gautaborg er samnorræn mennta- og rannsóknarstofnun á háskólastigi. Kennslunni við NHV lýkur með prófi sem Master of Public Health (MPH-próf). Frá 1987 er einnig skipulögð kennsla í rannsóknum við NHY. Kennsluskráin nær yflr efni um almannaheilbrigði (Public Health), m.a. félagslækningar (samhállsmedicin), umhverfislækningar (miljömedicin), farsóttarfræði og líftölfræði (biostatistik), heilsu- og sjúkradeildarstjómun, umönnunarfræði (omvárdnadsveten- skap) og félagslækningar bama (socialpediatrik). NHV er einstakt menningammhverfí með starfsfólki og nemendum frá öllum Norðurlöndum og með víðtækum alþjóða samböndum. Mörkin milli fræðigreinanna em sveigjanleg og samvinnumöguleikar góðir. Síðan 1987 hefir háskólinn húsnæði í menningarbyggingum á fyrrverandi flotastöðinni Nya Varvet í Gautaborg, sem rúmar bæði kennslu- og skrifstofur og híbýli fyrir nemendur sem sækja námskeið NHV. NHV óskar nú nýrra vísindalegra samstarfsmanna í millistörf (forskarassistent/amanuensis) í eftirfarandi greinar: # Farsóttarfræði og læknisfræðileg tölfræði # Félagslæknisfræði (Samhállsmedicin) # Heilsugæsla og sjúkradeildarstjórnun (Hálso- och sjukvárdsadministration) Störfin í farsóttarfræði og læknisfræðilegri tölfræði þurfa að hefjast eins fljótt og hægt er. Ætlast er til að störfin við heilsugæslu og sjúkradeildarstjórnun byrji 1. janúar 1990. Ráðið er í störfin til 3ja ára með möguleika á framlengingu í önnur 3 ár. Launakjör em einstaklingsbundin og ákveðast í ráðn- ingarsamningi. Auk þess er sérstök uppbót fyrir þá sem eru ekki Svíar. Til að teljast hæfur er krafist venjulegrar menntunar til rannsóknastarfa (doktorspróf eða samsvarandi). Ef ekki er hægt að upp- fylla þessa kröfu alveg verður lögð sérstök áhersla á reynslu í kennslu (einkum á framhaldsstigi) ásamt annarri hagnýtri reynslu í stjórnun innan heilbrigðisgeirans. NHV leggur mikla áherslu á norræna samsetningu vísindahópsins. Undir sérstökum kringumstæðum getur þó borgari annars lands en Norðurlanda komið til greina. Umsóknir skulu sendar til Nordiska hálsovárdshögskolan og eiga að hafa borist í síðasta lagi 15. janúar 1989 til Nordiska hálsovárdshögskolan, Box 12133, 402 42 Göteborg. Umsókninni á að fylgja náms- og starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum og stutt greinargerð um vísindaleg og uppeldisfræði- störf. Skýrsla um vísindastörf sem vitnað er til skal fylgja í tvíriti. Nákvæm lýsing á hinum lausu stöðum fæst hjá NHV (sími 031-69 39 00). Frekari upplýsingar gefur professor Dag Thella (sími 031-69 39 48) eða professor Hans Wedel (sími 031-69 39 51) (farsóttarfræði og læknisfræðileg tölfræði, sími 031-69 39 48), prof- essor Carl-Gunnar Eriksson (félagslæknisfræði, sími 031-69 39 47) og professor Mats Brommels (heilsugæsla og sjúkradeildarstjórn- un, sími 031-69 39 25).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.