Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 25
öáöM nsiiT' 'd rr srxiAúfrrvcJc wi^x;tt.TM.nwmfii*/ i« <ho*j« MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 ' 3 8 D 25 Sorgin samstiga gleðinni Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Guðrún Guðlaug'sdóttir: Á LEIÐ TIL ÞÍN. Myndir eftir höfund. Hjáverk sf. 1988. Ljóð Guðrúnar Guðlaugsdóttur í Á leið til þín eru yfirlætislaus og líkari hvísli en kalli. Þetta eru ljóð í hefðbundnara lagi, jafnvel þegar formið er fijálslegt eru yrkisefnin gamalkunn og tökin á þeim ekki nýstárleg. En ljóðin leyna á sér. Við finnum að hér er alvara á ferð, lífsreynslan sem ljóðin tjá stundum sár. En höfundurinn er líka gáska- fullur, á til bæði gamansemi og háð sem bitnar ekki síst á honum sjálfum. Liðin tíð, hverful fegurð verða oft tilefni ljóða. Eitt þeirra nefnist Liðin tíð: Þegar ég var lítil lá ég oft á maganum við hyldjúpan pytt og horfði á brunnklukkumar. Þær létu sig fljóta fagurlega á lognkyrru vatni sem var dökkt eins og nóttin á norðurslóðum. Nú er fjarska langt síðan ljósir dagar bemskunnar lögðust til hvíldar i lygnu vatni brunnklukknanna. Tregi bernskunnar er líka í Fég- urðinni, ljóði sem greinir frá „frum- stæðri löngun" til að sameinast feg- urðinni og birtir þann boðskap að „fegurðin er sár/ og sorgin er oft/ samstiga gleðinni". Sorgin og ástin fá sitt rúm í Á leið til þín. Okkar saga og Ástar- fundur eru meðal þeirra ljóða þar I sem best tekst í ijóðrænni mýkt og . að hnitmiða ljóðin þannig að þau segi meira en stendur á blöðunum. Höfundinum auðnast að búa til heilsteyptar myndir sem vitna um listræn vinnubrögð. Ljóð sem ekki heppnast eru með þeim annmörkum að orðin freista að „lýsa“ í staðinn fyrir að draga upp myndir handa lesandanum að ráða. Einnig eru orðalag og orðin sjálf í almennara lagi, ná ekki að vekja eftirtekt. Slík ljóð eru best óbirt. Margir geta tekið undir með Guðrúnu Guðlaugsdóttur þegar hún yrkir í Ástinni: „Ég vildi óska/ að ástin/ tæki eldsneyti/ frá aflstöð,/ sem aldrei þryti orku,/ og ljós henn- ar/ gerði leið okkar greiðari." Einu gleymdi hann og Á tölvu- öld, síðustu ljóð bókarinnar, eru kaldhæðin, í þeim annar tónn en flestum hinna ljóðanna. Sá tónn lætur Guðrúnu ekki illa. Guðrún Guðlaugsdóttir Þegar á allt er litið er hér á ferð viðkunnanleg bók sem ekki kemur á óvart, en á sér ýmis leynihólf sem verða að teljast styrkleiki hennar. TTsvoW"'09 86 hnv"8'''0'' ®9U'rS>a6e,r ne5rS^'°9' taöa'a9a'e>'at' ocm- _ HWOTt COMIAOL FTS rAVOimiTE THACRSttfCliON COMPAGTD*t«CPIAYC1T CD473 620 35 Verö s\.qf • CD 473 Fullkominn geislaspllari frá PHILIPS I réttrl hönnun sem fullnægir þörtum tónelskra hljómtækjaunnenda. • Þráðlausfjarstýring. • L • Stafræn stjóm á hljómstyrk sem hleypur á í 7 þrepum á hverju 3 DB. • f • 20 laga minni. • £ • Sjálfvirkt afspilunarminni. • Leitan: Hoppar yfir lag, eitt lag spilað, hluti af lagi eöa síöasta endurtekið. • Þriggja hraða lagaleitari ásamt flnstillingu. • Stafrænn gluggi. Heimilistæki hf SætuniB • Hatnarstræii 3 • Kringlunni SÍMI: 69 15 15 SÍMI:M15 2S SÍMI:C915 20 S'OfiOUMfyUýtC PHILIPS ruddi brautina í framleiðslu geislaspilara árið 1980. Geisla spilararnir frá PHILIPS hafa verið í fararbroddi sem besti og tærasti flutningsmátinn á stafrænni hljóðupptöku. - Hérna sýnum við aðeins hluta af þeim mikla fjölda geislaspilara frá PHILIPS. Verð. 57.440- • CD 880 Einn fullkomnasti geislaspilarinn á markaðnum. Allt er lagt í sölurnar hjá PHILIPS til að tryggja sem hreinasta hljóm og einfalda notkun. • Ný gerð geislatónhöfuðs sem er 5% léttara en áður. • Enn styttri leitartími og lágmarks bjögun. • Allir hlutar CD 880 eru ur bestu fáanlegum efnum til að tryggja hámarks hljómgæði. • Þráðlausfjarstýring. • CD 880 geislaspilarinn er fyrir þá sem gera kröfur um gæði umfram allt. • Stór gluggi sem sýnir glöggt alla þá fjölmörgu stjómunar og notkunarmöguleika sem CD 880 býður notendum. • Nýung er stafræn stjóm á hljómstyrk sem hoppar á 64 þrepum á hverju desibili. kr. stgr MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR NETTAR, LITLAR OG LÉTTAR Japönsk snilldarhönnun, þýsk ending og nákvæmni. Lágt verð og rekstarkostnaður. MINOLTA EP 50 5 lita prentun ef vill, innsetning einstakra arka, hágaeöaprentun og hagkvæmni í rekstri. Ekjaran ARMÚLA 22. SiMI (81) 8 30 22. 108 REYKJAVlK seven SEAS VÍTAMÍN DAGLEGA GERIÐ GÆÐA SAMANBURÐ B-KOMPLEX & orenco HEILDSÖLUDREIFING Laugavegi 16, sími 24057. Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.