Morgunblaðið - 11.12.1988, Síða 30

Morgunblaðið - 11.12.1988, Síða 30
30 D MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 cArur eftir Elínu Pálmadóttur Rúmið, það Hugljúf mynd á jólaföst- unni í sjónvarpinu. Fjór- burarnir frægu komnir farsællega heim til sín og ligg)- andi á maganum í röð. Þótt nú sé verið að kynda upp í okkur jólaskapið með margvíslegum hætti, þá tengdist þessi frétta- mynd um fjórburana heima hjá sér af einhveijum ástæðum barninu sem fæddist á jólunum betur en allar hugvitsamlegu og fagmannlegu auglýsingarnar. ■ Þarna lágu þijú ungbörn — á vatnsdýnum. Tekið fram í frétt- inni. Nýjasta nýtt! Auðvitað líka auglýsing eftir allt saman. Auli getur maður verið! En það kom ekki í veg fyrir hugrenninga- tengs'in við litla jólabarnið, sem lagt var í jötu. „Rúmið, vinur minn, það er allt okkar lif. Það er þar sem maður fæðist, þar sem maður elskast, þar sem maður deyr," skrifaði franski rithöfundurinn Maupassant fyrir rúmum hundrað árum, þegar hann var að skrifa smásöguna og siðan leikritið fræga og sígilda, „Rekkj- an“. Og hann bætti galvaskur við: „Rúmið, það er maðurinn.“ Hefði allt eins getað snúið því við og sagt: Maðurinn, það er er allt okkar líf rúmið. í ákafan- um að sanna sitt mál hélt hann áfram: „Þvi til sönnunar að Frelsari vor, Jes- ús Kristur, var ekki háður nein- um mannlegum þörfum, virðist hann aldrei hafa þurft á rúmi að halda. Hann er fæddur á hálmi í jötu og dó á krossi." Vísindalega þenkjandi I hvorki í Galíleu né í Júdeu sofið vissi Maupassant að Jesús hafði I í rúmi. NAUÐSIADDIR f ARMENIU ÞURFA ÞÍNA HJÁIP Hjálparstofnun kirkjunnar hefur borist Leggjumst öll á eitt. Bregöumst fljótt við beiðni um hjálp á jarðskjálftasvæðinu við neyðarkallinu og greiðum heimsenda gíró- landamæri Armeníu og Tyrklands. seðla. Tugþúsundir Armena fórust í náttúru- hamförunum þar á miðvikudag. Þeir sem eftir lifa eru hjálparþurfi. Engin gjöf er þarfari. LANDSSÖFNUNIN BRAUÐ HANDA Kjrj HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR Suðurgötu 22, Reykjavík Við dauðlegar manneskjur verðum vist að sætta okkur við að þurfa að, eyða þriðjungi ævinnar í að sofa, flest öll. Mismikið eftir aldursskeiðum að vísu, mest í upphafi og í lokin, ef við fáum frið til að eiga langt líf. Maupassant karlinn svaf á síðustu öld í Frakklandi í stóru Lúðvíks XlII-rúmi með himna- sæng á súlum og lá á mynd- skreyttu gobelinteppi sem sýndi blóðugar dádýraveiðar. Hann var ekki nema 32ja ára gamall þegar hann hafði þessi orð um mikilvægi rúmsins og ekki far- inn að plaga hann mikið sá sjúk- dómur sem átti eftir að leggja hann í rúmið, þaðan sem hann skrifaði sinar ódauðlegu sögur. Hann hafði svo sannarlega ekki ýkt þörf mannsins fyrir gott rúm.^ Ekki sváfu forfeður okkar á slíkum dýrgripum. Satt að segja hafa íslendingar lengst af lítt hirt um að láta fara vel um sig í rúminu. Þarf ekki annað en sjá stuttu rúmin í byggðasöfn- unum, sem fólkið svaf í hálfsitj- andi og margir i hveiju rúmi. Enda sjálfsagt ekki um neitt að velja í þrengslum og eymd þeirra tíma. En eftir að við komumst i álnir ogjafnvel bruðl mikið eftir blessaða seinni heimsstyijöld- ina héldu menn áfram að sofa á hálfgerðum pínubekkjum. Börn og unglingar að vaxa fengu um langt árabil einhvers konar bekki eða svokallaða setubekki til að sofa á í litlum „barnaher- bergjum", sem ekki rúmuðu annað. Það var tískan. Kannski eru mestu framfarirnar sem orðið hafa á siðustu árum með íslenskri þjóð þær, að nú er fólk farið að veita sér breið og góð rúm með þéttum, góðum dýn- um. Það er komið í tísku. Kannski ýkjum við svolítið þar líka, eins og okkar er vandi. Ekki veit Gáruhöfundur hvort vatnsdýnurnar eru framför eða tískubóla. Enda ekki aðalatrið- ið, heldur að mannfólkið láti fara vel um sig í rúminu, sem er allt okkar líf, eins og Maup- assant orðaði það. Sjálfsagt eru skiptar skoðanir um það hvar og hvernig maður sefur best. Japanir rúlla dýnum sínum upp og inn í skáp á morgnana og út á strámottulagt gólfið á kvöldin, eins og gert er víða hér á barnaheimilunum til að láta krakkana lúra miðdegis- blundinn sinn. Þeim þykir það alltof mikið bruðl með húsnæði að láta stór rúm fylla herbergi ónotuð allan daginn. Og satt að segja er ákaflega notalegt að sofa á dýnum þeirra á tatami- gólfinu, sem er mýkra undir fót og skrokk en okkar hörðu gólf. Einu gleymdi Maupassant þó þegar hann taldi til mikilvæga þætti i lífinu sem tengdust rúm- inu. Hann gleymdi því að þar dreymir okkur og það er ekki síst mikilvægt í lífinu. Svona geta lítil sæt börn í vöggu sett hugarflugið af stað og það er aldrei að vita hvar það lendir — rétt eins og í draumum í rúm- inu. Og hughrif jólaföstunnar, sem tengdu fjórburana við litla barnið í jötunni, minnir líka á að alla tið hefur verið skipt á rúmum svo maður geti stungið sér undir hrein sængurfötin á jólanóttina. Sumir hafa jafnvel þann sið að láta börnin fara í ný náttföt á jólum. Kannski í minningu þess sem lagður var í jötu og vafinn reifum. En hvar ætla þessar gárur, sem farið hafa út um víðan völl, að enda? Á viðelgandi ljóði eftir Örn Arn- ar, Undir svefninn: Að spilla heyjum reiknast sjálfsagt synd, að sængin reynist mjúk, er taðan gefur. Á morgun bóndinn bölvar þeirri kind, sem beðjar héyið, meðan fólkið sefur. Mig saka varla Buslubænir hans — hann bölvar hæst og mest, ef smár er skaðinn - ef breyti eg eftir boði frelsarans og blessa þennan heiðursmann í staðinn. TJöföar til X Xfólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.