Morgunblaðið - 29.01.1989, Blaðsíða 1
SUNNUDAGUR
■ Hvemig samræmist besta læknisaðstoð því að upplýsingar um einkamál
séu ekki á vitorði fleiri en nauðsynlegt er? ■ Mjög fátítt að kvartanir berist um trúnaðarbrot
í heilbrigðiskerfinu ■ Helmingur heilsugæslustöðva hefiu* tekið tölvur í sína þjónustu
eftir Hjálraar Jónsson/myndir Hagnar Axelsson og F.inar Falur
Upplýsingar um sjúkdóma
eru iðulega mjög
viðkvæmt mál og
sjúklingar og
aðstandendur þeirra
leggja mikið upp úr því
að þessi vitneskja sé ekki á vitorði
fleiri en ýtrasta nauðsyn krefur. Það
liggur hins vegar í augum uppi að
greiður aðgangur að upplýsingum er
forsenda þess að hægt sé að veita bestu
læknishjálp. Því er mikilvægt að reglur
um þessi mál séu skýrar, þar sem
vitneskjunnar sé vel gætt, jafiiframt
því sem aðgangur að henni sé greiður
þegar þörf krefur. Ný læknalög hlutu
samþykki Alþingis skömmu fyrir
þinglok í vor er leið. Þau tóku gildi
1. júlí og leystu af hólmi lög frá árinu
1969. Setning laganna hefur ekki vakið
mikla athygli eða umræður og voru
þau samþykkt á þinginu án þess að
þingmenn sæju ástæðu tii mikillar
umljöllunar. Lögin fela þó í sér ýmis
nýmæli. Þar er til dæmis í fyrsta sinn
að finna ákvæði um varðveislu og
afhendingu sjúkragagna, sem iðuiega
hafa að geyma viðkvæmar
persónulegar upplýsingar. Nefnd á
vegum heilbrigðismálaráðherra
skipuð fulltrúum
landlæknisembættisins og
Læknafélags íslands er langt komin
með að undirbúa tillögur að setningu
reglugerðar um þau eftii og er þess
vænst að neftidin skili af sér tillögum
sínum innan tíðar. Neftidin stendur
frammi fyrir erfiðu verkefiii. Hún
hefiir fátt við að styðjast í lögum og
reglum hérlendis og þarf að feta
einstigið milli þess að öryggis og
hagsmuna sjúklinga og almennings sé
gætt og þess að einkamál hvers
sjúklings um sig séu varðveitt eins vel
og kostur er.
SUNNUDAGUR
29. JANÚAR 1989
Em upplýsingar
um sjúklinga vel
varðveittar?
BLAÐ
.V
-