Morgunblaðið - 31.01.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.01.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1989 HILDARLEIKIR HJÚNABANDSINS Helga Bachmann og Helgi Skúlason hafa verið gift í þrjátíu ár og jafn lengi verið í hópi fremstu leikara landsins. Nú leika þau aðalhlutverkin í einu frægasta hjónabandsleikriti samtímans, „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?“ hjá Leikfélagi Akureyrar eftir Kristínu Marju Baldursdóttur/myndir Rúnar Þór misskilningi sem gæti verið á milli þeirra. „Við þekkjum hvort annað og vitum hvað við getum verið and- styggiieg," segir Helga. En hjónin Marta og Georg eru verulega andstyggileg hvort við annað, og það sem verra er, áhorf- andinn hefur lúmskt gaman af að horfa upp á öll andstyggilegheitin, en botnar jafnframt ekkert í því hvað það er sem heldur þessum hjónum saman. „Enda er það í rauninni óútskýr- anlegt," segir Helgi. „Það eru þessi sterku bönd ytri og innri aðstæðna sem þau geta ekki slitið, Strindberg fæst einnig við þetta í Dauðadansi. Þetta fólk sem er tengt svo saman berst fyrir lífi sínu, gerir stöðugt árás hvort á annað, en getur samt ekki skilið." Helga: „Ekki hægt að útskýra þetta með orðinu ást.“ — En hvað heldur ykkur saman? Helgi hugsar sig um: „Köttur- inn.“ „Hann er nú bara 10 ára gam- all, Helgi,“ segir Helga. „Nei, ástæðan er sú að í upphafi löðuðumst við hvort að öðru. Við sáumst fyrst í leiklistarprófi í Þjóð- að koma úr baði,“ segir Helga. „En þetta verk trekkir upp, það kemur einhver glannaskapur upp í manni.“ Marta og Georg virðast bæði eiga samúð áhorfandans að áliti leikar- anna, því þetta eru óvenjuleg spjótalög eins og Helgi segir, og bæði hjónin jafn „flínk“. Þau eflast þegar þau fá áhorfendur og ná sér því vel á strik þegar ungu hjónin koma til þeirra og eru þá nánast í skapi til að fleygja sér út í hvað sem er. „Þau stunda leiki, og þessi nótt á sér enga hliðstæðu. Leikregl- ur eru brotnar og hvar ertu þá staddur? Þau beijast á blóðvelli, manneskjur, sem þurfa að vera svo vondar hvor við aðra,“ segir Helgi og' hristir höfuðið. — Þetta verk er samt fallegt í öllum sínum óþverraskap, hvernig má það vera? „Þetta er galdur sem einungis listamaður getur framið,“ svarar Helga. Við megum ekki einblína á grimmdina eingöngu. Þetta er eins og mynd sem virkar ljót í fyrstu, en síðan sér maður þennan tærleika í ljótleikanum, og verður meyr.“ — En mig langar að vita hvort það ríki aldrei samkeppni milli MARTA OG Georg kunna allar leikreglur hjónabandsins, slá aldrei vindhögg því þau þekkja út í æsar veikleika hvors annars og geta því af kunnáttu og vandvirkni sært og drep- ið ást og tilfinningar. í návist annarra eflast þau í illkvittni sinni og orðheppni og sýnasvart á hvítu hvílíkt helvíti hjóna- bandið getur verið. En þau munu aldrei skilja, þessi hjón í leikritinu „Hver er hræddur við Virginiu WooIf?“, því á milli þeirra liggur taugin sterka. Leikararnir Helga Bachmann og Helgi Skúlason sem saman hafa gengið veginn í þrjátíu ár, leiða nú íslenska áhorfendur í gegnum þetta „skolpræsi“ hjónabandsins í hlutverkum þeirra Mörtu og Georgs. HELGA OG HELGI — Sennilega mun svipurinn harðna þegar átökin heljast inni í leikhúsinu. Við erum ekki mjög árásargjöm núna,“ segir Helga hæversk- lega, enda eru þau hjónin nýkomin af fimm tíma æfíngu þar sem þau leggja sinn síðasta blóðdropa í sálir Mörtu og Georgs. — Leikstjórinn sagði að þið vær- uð í mjög góðu formi, segi ég þeg- ar þau setjast og andvarpa eftir átök dagsins. Og hvemig er leikari þegar hann er í góðu formi? Þá er ég fullkomlega, vitsmuna- lega og tilfinningalega opin fyrir öllu,“ segir Helga.„Ég er sem sagt ekki að tala um strekktan maga, þótt ég hunsi það ekki alveg að hreyfa mig svona endrum og eins. En annars stundum við engar reglu- legar líkamsæfíngar, en höfum tek- ið „heilsuköst" svona annað slagið, og það er ágætt.“ Helgi samsinnir því og lætur það fylgja með að hver æfíng sé á við marga kúrsa í líkamsrækt. „Annars fínnst mér ég ekki vera í neitt óvenjulega góðu formi núna, ekkert frekar en vanalega. En auðvitað er það örvandi að fást við verk sem er afburðagott.“ Það er Leikfélag Akureyrar sem frumsýnir „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?“ eftir bandaríska leikskáldið Edward Albee þann 10. feb. nk. Leikstjórar eru Inga Bjamason og Amór Benónýsson, tónlist eftir Leif Þórarinsson og leikmynd og búningar eftir Guð- rúnu Svövu Svavarsdóttur. Með hlutverk ungu hjónanna sem heim- sækja þau Mörtu og Georg átaka- nóttina miklu fara þau Ragnheiður Tryggvadóttir og Ellert A. Ingi- mundarson. Leikritið, sem íjallar um ástir óskaplega ósamlyndra hjóna, eins og Inga Bjamason komst að orði, var fyrst sýnt á Broadway 1962 og vakti mikla hneykslun í fyrstu, en gerði jafnframt stormandi lukku. Leikritið fékk ótal verðlaun og var síðar kvikmyndað með þeim frægu hjónum Elisabeth Taylor og Richard Burton í aðalhlutverkum. En nú eru það Helga og Helgi, eða Burtons íslands eins og Peter Ustinov leikari kallaði þau í gamni, sem takast á í þessu magnaða leik- verki. PÚKAR — Georg segir í einu atriðinu að hjónaband þeirra Mörtu „líti út fyr- ir að vera barsmíða- og rifrildissam- band“, þannig að áhorfanda skilst að svo muni þó ekki vera í rauninni? Helgi: „Nei það er miklu beittara en það. Taugin á milli þeirra er svo sterk að þau munu aldrei geta ski- lið eða farið frá hvort öðru þessi hjón. Og ef ekki væri fyrir þessa sterku taug, þá væru átök þeirra ógeðfelld." Helga: „Þau hanga ekki saman á húsinu. Eða á bílnum." Helgi: „Eða á mávastellinu." „Þetta verk stendur jafnfætis verkum Strindbergs, nema það er fyndnara," segir Helga. „Þetta eru soddan púkar, svo klár í hausnum. Niðurrifíð og drápið er afskaplega vandað hjá þeim, því þetta er fólk sem kann til verka og vinnur störf sín veí.“ Helgi: „Og húmorinn er aldrei langt undan. í miðrjum átökum get- ur hún allt í einu komið auga á „húmorbrilljans" hjá honum . . . Helga: . . . og reynir að leyna hrifningu sinni.“ — Hvemig er það, verða leikarar ekki að hafa upplifað hamingju og helvíti hjónabandsins til að geta leikið þessi hlutverk? „Heyrirðu hvað hún er lúmsk Helgi? Nei ég hef reynt við svo mörg hlutverk sem ég hef aldrei upplifað sjálf, eins og til dæmis Höllu þegar hún kastaði baminu sínu í fossinn, svo ég nefni eitt- hvað. Það er ekki hægt að virkja eða nota tilfinningar annarra, en það er hægt að spila og leika á eig- in tilfínningar, láta þær fæðast inni í sjálfum sér.“ „Tæknilega þá er ferlið það, að koma sér í ástand þeirrar persónu sem maður túlkar," segir Helgi. „Setja sig inn í hugsanagang og tilveru persónunnar. Það er ekki hægt með því að muna um hvað maður var að rífast við konuna sína deginum áður. En öll tilfinningaleg reynsla hjálpar manni auðvitað til að lifa þessar sveiflur á sviðinu og það er held ég ómögulegt að setja manneskju inn á svið sem aldrei hefur skipt skapi." Helga segist muna eftir leikara sem sagðist aldrei hafa fundið fyrir afbrýðisemi, en var þó að leika Jago í Othello. „Eg vorkenndi honum um leið og hann sagði þetta, því það er erfítt að leika tilfinningar sem maður hefur aldrei upplifað sjálf- ur.“ Hún þagnar aðeins, segir svo: „En svo er það leikarinn sem geng- ur inn á sviðið en hefur kannski stuttu áður misst náinn ættingja. Áhorfandinn fínnur að eitthvað er ekki í lagi, en hann hefur borgað sinn aðgöngumiða og á því heimt- ingu á að fá góða sýningu. Þetta er kalt starf, allar persónu- legar tilfínningar verður að hreinsa burtu áður en gengið er inn á svið- ið.“ ANDSTYGGILEG Helga og Helgi hafa verið gift í þijátíu ár sem þætti nú nokkuð gott í sömu atvinnustétt úti í hinum stóra heimi. „Við erum bara rétt að byija,“ útskýrir Helgi, og ekki laust við að hrifningar gæti í rödd- inni. En sambúðin hefur komið þeim að gagni í starfi, þau þekkja við- brögð mótspilarans og þurfa því ekki að sóa tíma í að eyða vafa og leikhúsinu. Hann var úr Keflavík hann Helgi, utanbæjarmaður." Helgi: „Já, ég fór bara með rút- unni heim um kvöldið aftur.“ — Því nefnir fólk aldrei ástina svona yfirleitt þegar það er spurt hvers vegna það hafi verið saman svona lengi? Þau líta hvort á annað. „Fólk er stundum feimið við orðið ást.“ „Það er líka til fólk sem þorir aldrei að elska af hræðslu við að missa eða vera hafnað,“ segir Helga. „En ég get alveg sagt þér hvers vegna ég er ennþá með hon- um Helga, mér finnst hann bara svo skemmtilegur.“ „Grikkir kölluðu það kaþarsis, þessa hugarhreinsun sem verður hjá leikaranum þegar hann losar um tilfinningalífið á sviðinu," segir Helgi. „Einnig sögðu þeir þetta vera nokkurs konar dóp fyrir áhorf- endur, því þeir þjást með leikaran- um allan tímann og dæla þar með úr sér spennunni. Þetta er í raun og veru mjög hollt fyrir sálina, ágætis heilaþjálfun.“ „Maður öskrar og grenjar, núna síðast í dag, en því fylgir þó nota- leg þreyta, mér líður eins og ég sé Helga og Helgu þar sem þau eru nú í sömu starfstétt? Helgi: „Það er tæknilega ómögu- legt að hún stingi undan mér hlut- verki. Og alla okkar tíð hefur verið þessi öldugangur, við erum til skipt- is í sviðsljósinu, það fer bara eftir hlutverkunum." Helga krossleggur hendur og verður ekkert nema yfirlætið. „Ég er nú svo greind að ég dreg mig alltaf í hlé þegar ég fínn að Helgi er að verða „abbó“. Og ef við förum í fylu þá er það alltaf ég sem gef eftir.“ Helgi: „Á mánudögum." Helga: „Þetta er spuming um greind.“ — Stundum fínnst mér þið dá- lítið lík, segi ég. „Já, við urðum strax mjög lík, bæði dökkhærð og hálslöng." — Hvað er það sem hefur alltaf dregið þig að Helgu, spyr ég Helga, og hann horfir lengi á mig opnum augum án þess að ansa. „Hann skilur það ekki,“ segir Helga loks og teygir sig út að glugganum til að gá til veðurs. „Nei, það er fullkomlega óskiljan- legt,“ segir hann og starir enn á mig. „Ég á ekkert svar við þessu.“ Horfír svo á konu sína hugsi: „Henni er alltaf að detta eitthvað í hug. Já, þú kemur mér sífellt á óvart!“ BERJASTÁBLÓÐ- VELLI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.