Morgunblaðið - 31.01.1989, Page 23

Morgunblaðið - 31.01.1989, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 81. JANÚAR 1989 23 Tíbet: Viðbúnadur vegna dauða trúarleiðtoga Nýju Delhi. Reuter. PANCHEN Lama, sem tíbetskir búddatrúarmenn töldu ganga næst- an sj&Ifum Dalai Lama, lést i Tíbet sl. laugardag og hefur Dalai Lama skipað fyrir um þriggja daga sorg. Fréttastofan Nýja Kina sagði á sunnudag, að Panchen Lama hefði látist af völdum hjartaá- falls en tibetskir útlagar segja sumir, að hann hafi verið við góða heilsu og telja, að ekki sé allt með felldu um andlát hans. Talsmaður Dalai Lama í Nýju Delhi á Indlandi sagði, að mikill kurr væri í Tíbetum, einkum ungu fólki, og óttuðust margir, að Kínveijum væri um að kenna skyndilegt andlát Panchens Lama. Hann var fimmtugur að aldri þegar hann féll frá. Panchen Lama var umdeildur meðal landa sinna. Lögðu sumir hatur á hann og kölluðu kínverskan lepp en aðrir virtu hann sem trúar- leiðtoga og fyrir að beijast fyrir bættum kjörum landsmanna. Fór hann gjarna hörðum orðum um þá, sem vildu slíta sambandinu við Kína, en hlífði heldur ekki „vinstri- sinnuðum" embættismönnum, sem stæðu í vegi fyrir framforum og auknu trúfrelsi. Panchen Lama átti sæti í kínversku ríkisstjóminni, var meðal annars varaforseti kínverska þingsins, og kemur dauði hans á mjög erfiðum tíma fyrir Kínveija. Tíbetar hafa að undanfömu hert á sjálfstæðiskröfum sínum og stendur nú fyrir dymm mikil trúar- hátíð f Lhasa, höfuðborginni. Fyrir ári kom til mikilla mótmæla á hátíð- inni en að þessu sinni átti Panchen Lama að sjá til, að allt færi friðsam- lega fram. Þúsundir pílagríma em teknar að streyma til borgarinnar og er búist við, að upp úr kunni að sjóða. Hefur lögreglan mikinn viðbúnað og ekki síst vegna þess, að nýlega var vopnum og skot- fæmm stolið úr geymslum hennar. Tíbetsku munkamir munu nú fara að leita að eftirmanni Panc- hens Lama, einhveiju bami, sem hann endurholdgast f, og getur leit- in tekið mörg ár. fltoKgpiitWiifrife Metsölublað á hverjum degi! Vor og sumar '89 1113 síður. Frægustu merkin í fatnaði. Búsáhöld, sportvörur, leikföng o.fl. Kr. 190 án burðargjalds dregst frá fyrstu pöntun. B. MAGNÚSSON HF. Hólshrauni 2,Hafnarfirði sími 52866. BR0NC0 7//M TOPAZ VCRD FRA 1.376 ÞÚSUND STADGRCin VCRDFRA 1.145 ÞÚSUND STADGRCITT ihMfia iaasd6a Jöse.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.