Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 Ms. Selnes í vandræðum suður af landinu: Fékk slagsíðu er sjór komst íjaftivægistank FLUTNINGASKIPIÐ Selnes fékk á sig slagsíðu um klukkan fjögur í gærmorgun er það var statt um 200 mílur SA af Vestmannaeyjum. Skipið hallaðist á stjómborða, um 20, að sögn Baldvins Sigurðsson- ar stýrimanns. Baldvin sagði að veður hefði verið frekar slæmt, VSV 7-8 vindstig og talsverður sjór. Ekki var strax ijóst hvað hefði farið úrskeiðis og var því björgunarlið sett i viðbragðsstöðu ef á þyrfti að halda en athugun leiddi í ljós að sjór hafði komist inn í jafii- vægistak á stjómborðshlið. Skipið var komið á réttan kjöl um klukk- an sjö um morguninn. Strax og slagsíðunnar varð vart var kallað eftir aðstoð Landhelgis- gæslunnar, sem sendi þyrlu sína til Vestmannaeyja, þar sem hún var í viðbragðsstöðu meðan allar hugs- anlegar orsakir óhappsins væru kannaðar. Þyrlur frá vamarliðinu voru einnig til taks ef til aðgerða kæmi og tveimur skipum var snúið áleiðis að Selnesinu. „Okkur þótti betra að fylgst væri með okkur meðan við værum að sjá hvemig þetta færi,“ sagði Baldvin Sigurðs- son. Skipið var komið á réttan kjöl um klukkan sjö um morguninn en þá var búið að dæla úr jafnvægis- tanki nr. 2 stjómborðsmegin. Talið er að annað hvort hafí loftkúla á ventli á jafnvægistankinum staðið á sér eða að rifa eða spmnga á loftinntaki hafí hleypt sjó inn á tankinn þegar sjór gekk yfír skipið. Öllum viðbúnaði var aflétt á þriðja tímanum síðdegis en áður hafði aðstoð skipanna tveggja verið af- þökkuð. Selnesið heldur nú áfram siglingu sinni áleiðis til Avonmouth í Eng- landi þangað sem það er á leið með 5200 tonn af vikri. 85 ár frá Heiniastjóm ÍSLENSKI fáninn var dreginn að hún við Stjómarráðshúsið í gær til að minnast þess að 85 ár voru liðin frá upphafi heimastjómar. Hannes Hafstein tók við ráðherra- embætti þann 1. febrúar 1904. „Við erum að minnast 85 ára af- mælis Stjómarráðsins," sagði Guð- mundur Benediktsson ráðuneytis- stjóri í forsætisráðuneytinu. Að sögn Guðmundar er venjulega ekki flagg- að á þessum degi en hann kvaðst mundu leggja til að framvegis yrði dagsins minnst með þessum hætti. „Mér fínnst það við hæfí,“ sagði hann. Reykjavík: Sexfalt fleiri atvinnulausir í REYKJAVÍK voru 623 skráðir atvinnulausir um miðjan janúar en á sama tíma í fyrra voru 110 manns á skrá. Af þeim 623, sem voru á atvinnu- leysisskrá í janúar, voru 389 karlar og 234 konur. Þar af voru 52 öryrkj- ar, 27 karlar og 25 konur. VEÐURHORFUR í DAG, 2. FEBRÚAR YFIRLIT { GÆR: Hæg vestan- og suðvestanótt víðast hvar á landinu. Él voru á vestanverðu landinu en annars þurrt. SPÁ: Laegð fer norðaustur yfir landið með hvössum vindi víða og jafnvel stormi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu. Rigning verð- ur suðaustanlands og allt að 4 stiga hiti en um landlð vestanvert verður snjókoma eða óljágangur og kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðan- og norðvestan- átt og frost um allt land. Él á Norður- og Vesturlandi en annars þurrt. Lóttskýjað ó Suðausturlandi. y. Norðan, 4 vindstig: •J0 Hitastig: rv: ' Vindörin sýnir vind- 10 gráður á Celsíus stefnu og fjaðrirnar \J Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * V H Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / = Þokumóða Hálfskýjað * / * ’, ’ Súld r * r * Slydda OO Mistur Skýjað / * / * * * —Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma * * * Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hltl +9 +5 veður skýjað súld Bergen 6 alskýjað Helsinki 6 skýjað Kaupmannah. 6 alskýjað Narssarssuaq +16 alskýjað Nuuk +11 skýjað Osló 4 hálfskýjað Stokkhólmur 4 léttskýjað Þórehöfn S skúr Algarve 14 skýjað Amsterdam 2 þokumóða Barcetona 14 hálfskýjað Beri/n 3 þoka Chicago 1 alskýjað Feneyjar 9 helðsklrt Frankfurt 1 þokumóða Glaogow 8 mistur Hamborg 3 þoka Las Palmas vantar London 4 mlstur Los Angeles 11 þokumóða Lúxemborg +2 hrimþoka Madrid 9 lóttakýjaö Malaga 16 lóttskýjað Mallorca 16 hálfskýjað Montreal 4 alskýjað New York 8 lóttskýjað Oriando 14 þokumóða Parfs +2 þoka Róm 14 þokumóða San Diego 10 skýjað Vfn 4 þokumóða Washlngton » 6 lóttskýjað Winnlpeg +32 helðsklrt Sj úkr atry ggingasj óður: Hugmyndimar þess virði að skoða þær — segir Davíð Oddsson borgarstjóri A borgarmálaráðstefhu Sjálf- stæðisflokksins var kynnt hug- mynd um að breyta Sjúkrasam- lafgi Reykjavíkur £ sjúkratrygg- ingasjóð, sem borgarbúar greiddu iðgjöld til og gerði þeim um leið kleift að móta eigin heil- brigðisþjónustu. Davíð Oddsson borgarstjóri telur hugmyndirnar fela í sér mikla kerfisbreytingu og því þurfi að fara að öllu með gát. „Þetta hefur lítið verið rætt í hópi borgarfulltrúa," sagði Davíð. „í meginatriðum fínnst mér hug- myndin athyglisverð að því leyti að þama er verið að reyna að skapa meiri kostnaðarvitund milli neitenda og þeirra sem þjónustuna veita. Á hinn bóginn er þetta mikil kerfís- breyting frá því sem menn búa við núna. Þannig að menn þurfa að stíga varlega til jarðar og átta sig á því hvað þeir eru að gera. Mér fínnst þessar hugmyndir vera þess virði að skoða þær en það er ennþá fjarri því að borgarstjómarflokkur- inn hafí tekið afstöðu til þeirra." Anna Steph- ensen látin í fyrrakvöld, þriðjudagskvöld, lést í Ríkisspítalanum í Kaup- mannahöfh Anna Stephensen fyrrum sendiráðsritari í sendi- ráði íslands þar í borg. Hún var 83 ára gömul. Anna fæddist vestur á ísafirði 14. október 1905. Hún fór ung til náms og starfa í Kaupmannahöfn. Varþar f verslunarskóla 1923—24. Árið 1929 varð hún ritari í sendi- ráði íslands. Þar starfaði hún síðan óslitið til ársins 1972. Hafði hún þá verið sendiráðsritari frá því í árslok 1960. Sveitarslj órnar- og byggðamál: Ráðstefiiu firestað Ráðstefnu Sjálfstæðisflokks- verið frestað vegna óhagstæðs ins um sveitastjómar- og veðurútlits. Fyrirhugað er að byggðamál, sem halda átti í halda ráðstefnuna laugardaginn Borgamesi nk. laugardag, hefur 8. apríl nk. Síðustu, uuguru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.