Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 19 ITC á íslandi: Samtökin fást við þjálfun í mannlegum samskiptum - segirHjördís Jensdóttir ITC-samtökin á íslandi efiia til kynningarátaks um starfsemina næstu daga og af þvi tilefiii var Hjördís Jensdóttir, blaðafulltrúi samtakanna, tekin tali og hún beðin um að lýsa starfseminni. „ITC eru samtök sem hafa þjálf- un í mannlegum samskiptum að leiðarljósi. Samtökin gefa fólki tækifæri til að búa sig undir aukinn starfsframa og gerir fólk hæfari til samskipta heima fyrir, í viðskiptum og þátttöku í opinberu lífi,“ sagði Hjördís. „ITC-samtökin voru stofn- uð í Bandaríkjunum árið 1938 af Emestine White, sem sá þörfina á því að vekja áhuga hjá konum á fundarsköpum, stjómun og þjón- ustu við samfélagið. Upphaflega vom samtökin því ætluð konum eingöngu, en nú er félagsskapurinn opinn jafnt konum sem körlum. Hér á landi eru meðlimir 5-600 og lands- samtökin skiptast í 23 deildir, hver með í mesta lagi 30 meðlimi. Deild- imar halda fundi tvisvar í mánuði. Karlamir hafa enn sem komið verið ragir við að taka þátt í starfinu, Ahrif gas- olíumengunar a lifriki sjvar Náttúruverndarfélag Suð- Vesturlands fer i vettvangsferð í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í Hafrannsóknastofiiun ís- lands, Skúlagötu 4. Skoðaðar verða fjöruplöntur og fjörudýr í skókerinu í anddyri stofn- unarinnar og Kristinn Guðmunds- son sjávarlíffræðingur og Gunnar H. Ágústsson deildarstjóri munu Ijalla um áhrif gasolíumengunar á lífríki sjávarins og svara spuming- um. Alíir eru velkomnir í ferðir og á kynningar félagsins. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Sverrir Hjördís Jensdóttir, blaðafiilltrúi ITC á íslandi, með nokkra bækl- inga, sem dreift verður á kynningu samtakanna í Kringlunni fimmtu- dag, föstudag og laugardag. Merki ITC-samtakanna. en við vonum að aukin kynning á starfseminni veki einnig áhuga þeirra." Hjördís sagði að fundimir, sem ávallt standa yfir í tvær klukku- stundir, skiptust í tvennt. Fyrst væri rætt um almenn félagsmál, fjallað um starf deildar innan Landssamtakanna, farið yfir fund- arsköp og fundarstjóm og bréf er- lendra og innlendra deilda ITC væru afgreidd. Meðlimir ITC fengju þannig þjálfun í almennum félags- málum. „Síðari hluta fundanna er farið yfir verkefni ýmiss konar, sem meðlimum hafa verið úthlutuð á síðasta fundi,“ sagði Hjördís. „Verkefnin geta til dæmis verið upplestur úr bókum eða ræða, sem aldrei má vera lengri en 5-8 mínút- ur. Við höldum okkur mjög stíft við tímamörk, enda er eitt markmið samtakanna að kenna fólki að skipuleggja tíma sinn betur. Hver félagi fær í hendur vinnubók, sem í er handbók, ræðubók og bók um hæfnismat. Félagar fá stig fyrir leyst verkefni og í Bandaríkjunurn er árangur hjá ITC metinn í menntakerfínu. Og þar hefur verk- efnabókin gildi þegar sótt er um starf, svo dæmi sé nefnt. Hvorugt á við hér á landi, en vonandi verður svo síðar.“ Fulltrúar deilda ITC á höfuð- borgarsvæðinu ætla að kynna starf- semina í Kringlunni frá kl. 15-19 í dag og á morgun, þ.e. fimmtudag og föstudag, og frá kl. 11 -16 á laug- ardag. Þá verður tekið á móti um- sóknum um aðild og dreift verður bæklingi með upplýsingum um samtökin og fundastaði á öllu landinu. / * I TAKT VIÐ TIMANN Viltu skara fram úr já hörðum vinnumarkaði? Við bjóðum þér upp á hagnýta kennslu í viðskipta- og tölvu- greinum, ásamt því helsta sem gerir þig að hæfum og dugandi starfskrafti. Þú getur valið um morgun- eftir- miðdags- eða kvöld tíma, eftir því sem þér hentar. Að námskeiðinu loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Innritun og allar nánari upp- lýsingar færðu í símum 68 75 90 og 68 67 90. Kristján Sveinsson „Eg hafði fariö á námskeið hjá Tölvu- fiæðslunni og líkað vel. í framhaldi af því ákvað ég að drífa mig í skrifstofu- tækni. Námið var mjög fjölbreytt og skemmtilegt og hópurinn samhentur Það kom mérsamt á óvart hve námið hefur nýst mér vel í starfi“ Við erum við símann til kl. 22 í kvöld. JÖLVUFRÆÐSLAN Borgartún 28 Af hverju þinn dagur? Jú; vegna þess að nú getum við boðið þér þennan frábæra stól á sérstöku verði: Rikke stólinn er sterkur og fallegur og alveg einstak- lega gott að sitja í honum. Það er þess vegna sem hann hentar alls staðar: í sjónvarpsholið, í stofuna, í hobbíherbergið og jafnvel í sumarbústaðinn. Grindin er úr formbeygðu beiki, sem er mjög sterkt og áklæðið er 100% bómull og er því fallegt og mjúkt. Eigum landsins mesta úrval af hægindastóium í öllum stærðum og gerðum. REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.