Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 Sænska ríkisstjórnin: Uppruni kaíbátanna er ekki fullsannaður Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKA ríkisstjómin lýsti í gær yfir, að hún hefði ekki nóg í hönd- unum, sem sannaði, að óknnnn kafbátamir við strendur Sviþjóð- ar væra komnir frá Sovétríkjun- um. Var yfirlýsingin svar hennar við þeirri fullyrðingu yfirmanns sænska sjóhersins, að kafbátarair væru sovéskir eins og allir vissu og ekkert annað. Bengt Schuback, yfirmaður sænska sjóhersins, sagði á hermála- ráðstefnu sl. mánudag, að kafbátam- ir, sem virtu að vettugi sænska lög- sögu, væru komnir frá leynilegum bækistöðvum í Sovétríkjunum. Þar með orðaði hann upphátt það, sem sænskir herforingjar hafa aðeins vogað sér að hvískra með hingað til. I yfirlýsingu stjómarinnar sagði, að fullyrðingar Schubacks væru ekki studdar nægjanlegum sönnunum. „Stjómin verður að hafa skotheldar sannanir í höndunum, ekki bara vísbendingar. Yfirlýsingar af þessu tagi valda bara leiðinlegum deilum milli yfirmanna sjóhersins, vamar- málaráðuneytisins og ríkisstjómar- innar,“ sagði Jan Nygren, aðstoðar- vamamálaráðherra. Erlendir stjómarerindrekar í Svíþjóð segja, að ríkisstjóminni sé augljóslega mikið í mun að gera lítið úr fullyrðingum Schubacks til að enginn skuggi falli á samskiptin við Sovétstjómina, sem neitar því, að kafbátamir séu sovéskir og hefur raunar hæðst að Svíum fyrir kaf- bátaleitina. Nokkra athygli hefur vakið sér- stök jrfirlýsing Bengts Gustafssons, forseta sænska herráðsins, en hann tekur undir með ríkisstjóminni, að ekki sé enn fullvíst hvaðan kafbát- amir komi, segist síðan bera fullt traust til Bengts Schubacks, yfir- manns sjóhersins, og klykkir út með þessu: „Það skiptir ekki öllu máli hvaðan kafbátamir koma, heldur ríður á mestu að binda enda á þann- an yfirgáng í sænskri lögsögu." Vestrænir hemaðarsérfræðingar segja, að augljóslega hafi Sovétmenn mikinn áhuga á að kortleggja sænska skeijagarðinn. „Kæmi til styijaldar yrðu þeir fljótir að gera sænska flo- tann óvirkan og síðan gætu þeir notað sketjagarðinn til að sitja fyrir skipum frá Atlantshafsbandalag- inu,“ segir Richard Fieldhouse, sjó- hemaðarsérfræðingur og starfsmað- ur Alþjóðafriðarrannsóknastofiiun- arinnar í Stokkhólmi. Alaska: Reuter Mengunarslys við suðurskautið Argentínska birgðaskipið Bahia Paraiso sökk í gær við Suður- skautslandið með um eina milljón lítra af dísilolíu innanborðs. Strandaði það á laugardag en í gær varð að hætta við björguna- raðgerðir vegna þess hve veðrið var slæmt. Segja vísindamenn, að fan olían öll í sjóinn geti hún valdið óskaplegu tjóni á við- kvæmu lifríkinu á þessum slóðum og haldið áfram að skaða það í 100 ár. Það er þó huggun harmi gegn, að olían er mestöll í tunnum og þykir líklegt, að þeim megi ná upp. Innflytjend- um fjölgar í Svíþjóð Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ALLS beiddust 19.600 manns hælis í Svíþjóð árið 1988 og er það íjölgun um 1.600 manns frá árinu 1987. Þetta kemur fram' í skýrslum sænska innflytjendaeftirlitsins enn þar kemur einnig fram, að 3.000 flóttamönnum hafi verið synjað um landvist á síðasta ári. íranir voru fjölmennastir þeirra sem sóttu um hæli, alls 5.022 manns, en næstir komu 3.384 Chilebúar, 1.147 írakar, 1.088 Eþíópar og 860 Rúmenar sóttu um landvistarleyfi í Svíþjóð. Alls sóttu 1.453 ríkisfangslausir flóttamenn um hæli. Kuldinn þokast suður á bóginn til Bandaríkjanna Skrifstofutækninám Tölvuskóli íslands Símar: 67-14-66 67-14-82 Ellefu létust í Kanada af völdum kuldans Great Falls, Montana. Reuter. KALDA loftið, sem grúfði sig yfir Alaska í rúmar tvær vikur og gerði íbúunum þar lífið erf- itt, hefur nú þokast suður á bóginn. í Alaska fór kuldinn niður í 50 stiga frost á Celcius. Kolnað hefúr í veðri allt suður til Mexikó. Blindbylur skall á i vesturhluta Kanada í gær og létust H manns í kuldanum, þar af átta I Alberta-fylki. Bandaríska veðurstofan sagði, að hitinn í Great Falls í miðju Montanafylki hefði hrapað úr 16,6 gráðum á Celcius síðdegis á mánu- dag niður í 17 gráða frost á þriðju- dagsmorgun. Veðurstofan spáir kólnandi veðri í vesturríkjunum um helgina og varaði fólk í Mont- ana við ferðalögum. „Varað hefur verið við hríðar- byljum og miklum kulda í öllu Börnwfifljrára ogn ^unglingafj^Við fáum frá baerafflfce nnaBBffal IkukáTfeej^hi^u^jnlmo] fyrir Michael l^^gksorwi| Funck-dönsurríi BflBIJfcl . • -ji * Innritun hafinmíWsíma 62-10-88 kl. 14-17 alla \ -m UblimHÉH Dansnviunq með giwrg þaðlnýjasta í dág. ^AIÍÍrkidansarnirBur mm. JMK* im fí 1 Moonwalker MicÍTaeÍlj |iackspn fénf?8i|SserstöÍ<& d0ÍI?ÍKnaF i I namsKeídrl KOLLU Montanafylki í kvöld,“ sagði veð- urfræðingurinn Phil Kumm. Daryl Williams, veðurfræðingur í San Francisco, sagði, að búist væri við, að veður færi mjög kóln- andi í vesturríkjunum, einkum vestan Klettafjalla, um helgina. Alaskabúar, sem orðnir voru þreyttir á að fást við frosnar lagn- ir, sögðust vera fegnir því, að kalda loftið væri farið að þokast suður á bóginn. „Það er ekki nema sanngjamt, að við deilum herleg- heitunum með löndum okkar fyrir sunnan," sagði leigubílstjóri í Anc- horage. Bæjarstjórinn í bænum Galena við Yukon River í Alaska, Joy Rost, sagði, að íbúamir væm orðn- ir yfir sig þreyttir á veðrinu. Þar fraus í vatns- og skolpleiðslum fyrir þremur vikum og loka varð skólanum í bænum. Veðurútlitið var þó betra þar á þriðjudag: „Það hefur hlýnað lítillega," sagði Rost, „upp í 48 stiga frost að minnsta kosti." Blomberq Þvottavélar 6 gerðir Verð við allra hæf i 'döftLV Einar Farestveit&Co.hff. DORGARTUN 28. SIMAR: (91) «6B»S OO 822800 - NÆO BILA8THOI Leið 4 stoppar við dyrnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.