Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 Kópavogsbúar Almennur kynningarfyrirlestur um tæknina Innhverfa íhugun verður haldinn í félagsheimili Kópavogs, Fann- borg 2, 2. hæð, í kvöld kl. 20.30 og föstudagskvöld 3. febrúar kl. 20.30 á sama stað. Fjallað verður um áhrif þessarar einföldu aðferðar á huga og líkama, einstaklinginn og þjóðfélagið. Nánari upplýsingar veittar í síma 26031. íslenska fhugunarfélagið. Maharishi Maheeh Yogi ÚTSALA - ÚTSALA 20-50% afsláttur á öllum vörum verslunarinnar. Glugginn, Laugavegi 40, (Kúnst-húsinu). Ársliátíá Félags harmonikuunnenda verður í Hreyfilshúsinu laugardaginn 4. febrúar. Aðgöngumiðar seldir í rakarastofunni Bartskeranum, Laugavegi 128. Upplýsingar í símum 72448, 676008 og 71673. Skemmtinefndin. K.B. pelsadeild Nýkomnir stórglœsilegirpelsar, húfur, bönd, treflar og eyrnaskjól úr mink, ref úlfi ogþvottabirni. K.B. pelsadeild, Birkigrund 31, Kópavogi. Símar 641443 og 41238. NAMSKEIÐ A TOFLUREIKNINN Multiplan er útbreidd- asti tölflureiknirinn á íslandi. Nú gefst pér gullið tækifæri til aö læra til hlítará pennan öfluga töflureikni á námskeiði hjá Tölvufræðslunni. Efni námskeiðsins: • Upphygging töflureikna • Helstu skipanir og valmyndir • Æfingar í notkun helstu skipana töflureiknisins • Stærðfræðiföll í Multiplan • Notktin tilbúinna líkanna Ný íslensk MultiplanbókTölvufræöslunnar fylgir námskeiöinu. Upplýsingar og innritun í símum 68 75 90 og 68 67 90. við símann til LI3StÖLVUFRÆÐSLAN kl. 22 í kvöld. ^ ■---------------—------—- LJorgartuni 28 Viðskiptabraut Tölvuskóli íslands Sími: 67-14—66 Guðmundur J. Guðmundsson: Dómur og skaðabætur myndu skapa hálfii harðari verkföll „ÉG HELD að millilandaflugið sé það viðkvæmt að menn verði að sveigja sig hver að öðrum, að minnsta kosti að reyna það. Dóm- ur og skaðabætur myndu skapa helmingi harðari verkföll og jafii- vel nálgast borgarastyrjöld," sagði Guðmundur J. Guðmunds- son um málaferli Flugleiða gegn Verslunarmannafélagi Suður- nesja. Guðmundur segir að menn hafi komið að máli við sig og boð- ið verkalýðshreyfingunni orlofs- ferðir á vegum erlendra flugfé- laga, vegna deilunnar við Flug- leiðir. Hann segir slíkt ekki vera til umræðu nú. Á stjórnarfundi Dagsbrúnar fyrir helgina var ályktað gegn þessiun málaferlum og skorað á Flugleiðir að draga málsóknina til baka. Guðmundur segir málsóknina varða öll samskipti verkalýðshreyf- ingarinnar og atvinnurekenda í landinu. „Þó að vinnulöggjöfm sé gömul og úrelt að margra dómi, þá 'nefur hún haldið lygilega í um 50 ár, hins vegar er ekki útfærsla þar í öllum atriðum," segir Guðmundur. „Verkföll eru hins vegar lögleg að- gerð og njóta vemdar. Félagsbundn- ir menn í verkalýðsfélögum mega ekki vinna og við höfum leyfi til að stoppa þá. Hins vegar er ekkert talað um ófélagsbundna menn. Ef túlkun Vinnuveitendasambandsins verður dæmd rétt, um að stjómendur og eigendur fyrirtækja megi vinna í verkföllum, þá geta til dæmis allir hluthafar Eimskips unnið. Hvar eru takmörkin þama? Þau eru komin á 50 ára reynslu." Tveir aðilar leituðu til Guðmundar um síðustu helgi og buðu verkalýðs- hreyfingunni orlofsferðir á vegum erlendra flugfélaga í samkeppni við Flugleiðir og kváðust bjóða betri kjör. „Þetta vom hreinir meglarar. Ég sagði að ég vildi ekkert við þá tala, að ég vildi heldur sjá þetta í höndum Islendinga,“ sagði Guðmundur. I ályktun stjómar Dagsbrúnar segir meðal annars: „Um tæplega þriggja áratuga skeið hafa til dæmis Dagsbrún og verkalýðsfélögin á Suð- umesjum veitt íslenskum flugfélög- um margþættar undanþágur í verk- föllum og má nefna sem dæmi, að ef ekki hefði komið til undanþágu Dagsbrúnar við Loftleiðir á sínum samband Flugbjörgunarsveita, Landssamband Hjálparsveita Skáta og Slysavarnarfélag ís- lands hafa gert með sér sam- komulag um leit og björgun á V.S. þakkar fyrir sig Verslunarmannafélag Suður- nesja hefiir sent þakkarbréf til allra þeirra sem stutt hafa félag- ið í yfirstandandi málaferlum þess við Flugleiðir h.f. í bréfinu segir m.a.: „Sá stuðn- ingur herðir V.S. í baráttunni við að veija rétt sinn, sem er jafnframt réttur allra launamanna í landinu. V.S. skorar á öll samtök launa- fólks að halda að sér höndum í við- skiptum við stefnanda á meðan á málaferlunum stendur." tíma í hörðu og ströngu verkfalli, þá hefði Loftleiðir orðið gjaldþrota." Þar segir ennfremur: „Þessi mála- ferli geta að einhveiju leyti þjónað stjóm V.S.Í., en þau eru óábyrg og hættuleg Flugleiðum. Stjóm Dags- brúnar skorar því á Flugleiðir að draga til baka málsókn þessa, því hveijar sem niðurstöður dómstóla verða, þá verða þær öðru fremur íslensku millilandaflugi til skaða.“ landi. Öllu íslandi er skipt upp í 20 svæði í þessu samkomulagi og nýlega koma út leitarskipulag fyrir svæði 1. Það svæði nær m.a. yfir Bláfjöll. Á hveiju hinna 20 svæða mun starfa svæðisstjóm skipuð þremur mönnum. Verkefni hennar er að sjá um leitir og aðgerðir á sínu svæði ásamt því að vinna að leitar- og björgunarskipulagi. Svæði 1, kallað Bláfjallaskipulag- ið, nær frá Hvalfjarðarbotni, um Þrengslaveg til sjávar og þvert yfir Reykjanes nokkuð fyrir vestan Klei- farvatn. Þessu leitarskipulagi verður dreift til björgunarsveita, lögreglu, Almannavama, Landhelgisgæslu og annara sem koma við sögu í leitum og aðgerðum. Unnið hefur verið að þessum skipulagsbreytingum frá 1985. Markmiðið með þeim er að flýta fyrir skipulagi aðgerða þegar þær em hafnar. Björgunarsveitir geta einnig nýtt sér skipulagið við æfing- ar og þjálfun félaga sinna. Bj örgunars veitirnar: Leitarskipulag tilbúið fyrir BláQallasvæðið Björgunarsamtökin þijú, Land- . (viðBankai pjöldibókatitla- Káfruw i Siíúm ÞINGHOLTSSTRÆTI2 (viðhorn Bankastrætis) er opinn til áframhaldandi bókaveislu fimmtudag 2. og föstudag 3. febrúar. frákl. 9.00-18.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.