Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 31
01 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 31 Ráðherrarnir Olafiir og Svavar óttuðust sýknudóm eftir Gunnlaug Þórðarson Það liggur í augum uppi að dóm- ur Hæstaréttar íslands í hinu svo- kallaða fræðslustjóramáli gat haft mikla þýðingu fordæmisins vegna. Dómurinn hefði orðið til leiðbeining- ar fyrir stjórnvöld um hvað væri óhætt að gera, þegar undirmenn neituðu gjörsamlega að fara eftir fyrirmælum yfirmanna sinna. Því var meiri nauðsyn en ella að fá dóm Hæstaréttar. Ráðherramir Svavar Gestsson og Ólafur Ragnar Grímsson ákváðu hins vegar í pólitísku hefndarskyni og af ótta við niðurstöðu Hæstaréttar að taka málið úr höndum réttarins, illu heilli. Sem áður hefur verið sagt voru fræðslustjóranum, sem krafð- ist kr. sex milljóna króna í bætur, dæmdar níuhundruð þúsund krón- ur, en vegna samkomulagsins mun sú upphæð vera margföld, þegar til kastanna kemur. Óhæfir ráðherrar Það er álit þorra manna, að menntamálum þjóðarinnar hefði Eftirfarandi tillaga var nýlega samþykkt á fundi framkvæmda- stjómar Verkalýðsráðs Sjálf- stæðisflokksins: „Á sama tíma og ríkisstjómin setur lög sem afnema umsamdar launahækkanir á hina lágu launa- taxta, sem réttlætt er með setningu laga um verðstöðvun, dynja yfír meiri skattaálögur en áður hafa þekkst m.a. með hækkun tekju- verið betur komið í höndum frú Guðrúnar Helgadóttur vegna reynslu hennar af starfi í þágu þeirra og manneskjulegra lífsvið- horfs, heldur en í höndum núver- andi menntamálaráðherra. Þetta hefur m.a. sannast á því hvemig þeir Svavar Gestsson menntamála- ráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson ijármálaráðherra hafa tekið á „fræðslustjóramálinu", en Guðrún Helgadóttir alþm. lét það mál einmitt til sín taka, þegar það var til umfjöllunar á Alþingi í jan- úar 1987. Þá fómst henni m.a. svo orð: „í huga mínum er enginn efl um að þar eð engin samvinna tókst milli ráðuneytisins og star&mannsins i þessu tilviki hefði hvaða ráðherra sem er hlotið að krefjast breytinga." Síðar í ræðunni fórust henni svo orð: „ . . . að mínu mati er frá- leitt að embættismanni i þjónustu ríkisins líðist að virða fjárlagaaf- greiðslu Alþingis að vettugi og lýsa því opinberlega yfir sem og í embættisbréfum að hann telji skatts, eignarskatts, vörugjalds og bensíngjalds og allir kostnaðar- og þjónustuliðir hins opinbera em hækkaðir stórlega. Kaupmáttur launa hefur rýmað um 13% á síðustu mánuðum vegna aðgerða stjómvalda. Öllum ætti að vera ljóst að fólk sem er á hinum lágu launa- töxtum sem nú em á bilinu frá 35.000 til 60.000 kr. á mánuði þol- ir ekki að taka á sig þessa kaup- fjárlög vitlaus og fari þess vegna ekki eftir þeim.“ „Stjórnvöld sem þjóðin hefur kjörið sér eiga rétt á að stefiiu þeirra sé framfylgt og embættis- mönnum er skylt að sjá svo til.“ Ennfremur: „Eðlilegt hefði ver- ið að mál þetta væri leyst milli ráðuneytisins og fræðslustjóra- embættisins, en fiölmiðlar kusu að gera úr þessum vanda fram- haldsþátt mjög svo ósmekklega.“ Við þessari ábendingu hennar er það að segja, að fmmkvæðið í því efni var algjörlega fræðslustjórans. Mikilvægi þrískipt- ingar valdsins Undir lok í ræðu sinni um „fræðslustjóramálið" fómst Guð- rúnu Helgadóttur alþm. mjög at- hyglisverð orð um þrískiptingu valdsins og bera þau vott um hve miklu hæfari hún hefði verið tii setu í ráðherrastól en ráðherramir tveir, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson, sem virðast ekki skilja mikilvægi þess í lýðræðis- skipulagi. Það hefur hins vegar máttarrýrnun. Það hefur verið um langan tfma stefna Sjálfstæðisflokksins að öllum Islendingum eigi að vera kleyft að eignast eigið þak yfír höfuðið, en með hækkun eignaskatts stuðlar núverandi ríkisstjóm að hreinni eignaupptöku og vegur alvarlega að sjálfseignastefnunni í húsnæðis- málum.“ Dr. Gunnlaugur Þórðarson „Það er ömurlegt, að fólkið í landinu skuli þurfa að hafa í mestu ábyrgðarstöðum menn, sem augsýnilega kunna engin skil á þýðingu hornsteina lýðræðis- ins . . .“ komið mér á óvart hve Guðrún Helgadóttir sem forseti sameinaðs þings hefur furðuiega afstöðu til umboðsmanns Alþingis líkt og land- búnaðarráðherrann flokksbróðir hennar. Guðrúnu Helgadóttur sýnd óvirðing Sá gmnur vaknar, að ráðhemin- um, Olafi Ragnari Grímssyni og Svavari Gestssyni, hp.fi þótt tilvalið, að geta um leið með hinu dæma- lausa samkomulagi, snuprað þing- manninn, sem var orðinn forseti sameinaðs þings að því að sagt er í óþökk þeirra. Það var auðvitað best gert með því að óvirða um- rædda þrískiptingu valdsins, sem henni var svo hjartfólgið mál a.m.k. áður en hún varð forseti SÞ. Orð Guðrúnar Helgadóttur alþm. um þrískiptingu valdsins við um- ræðu um „fræðslustjóramálið", en þá var hún ekki orðin forseti sam- einaðs þings, voru svohljóðandi: „Meðan ég sit á Alþingi tslend- inga mun ég reyna að virða þriskiptingu valdsins sem við búum við og gera eðlilegan greinarmun á löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dóms- valdi.“ Ráðherrarnir tveir óttuðust sýknudóm Engum getur dulist, að með þessu samkomulagi hugðust ráð- herramir tveir blygðunarlaust á kostnað þess opinbera koma í veg fyrir að svo gæti tekist til að Hæsti- réttur sýknaði ríkissjóð af öllum kröfum fræðslustjórans og að rétt- mæti gerða fyrrv. menntamálaráð- herra, Sverris Hermannssonar, yrði þar með viðurkennt. Greinilegt er að ráðherramir tveir óttuðust sýknudóm. Frá pólitískum bæjar- dyram þeirra séð mátti slíkt ekki eiga sér stað og því gripu þeir til þess gerræðis að falla frá áfrýjun málsins til Hæstaréttar. Hitt er víst að fyrrv. fjármálaráð- herra, Jón Baldvin Hannibalsson, taldi að fræðslustjóranum bæra engar bætur. Það er ömurlegt, að fólkið í landinu skuli þurfa að hafa í mestu ábyrgðarstöðum menn, sem augsýnilega kunna engin skil á þýðingu homsteina lýðræðisins og hika ekki við að troða þeim ofan í pólitískt svað, þegar þeim hentar. Slíku athæfí mega lögmenn, und- ir engum kringumstæðum, láta ómótmælt, að ekki sé meira sagt. Höfundur er hæstaréttarlögmað- ur. Mótmæla aðför að launafólki Miniúiig: SigríðurÞ. Claessen Þorbjarnarson Fædd 17. janúar 1915 Dáin 22. janúar 1989 Þótt segja megi að dauðinn sé eina staðreynd lífsins og jafnvel léttir þegar um langvinn og erfíð veikindi er að ræða, er hann alltaf jafn sár. Vissulega er auðveldara að taka á móti honum, þegar hann knýr dyra, ef hann hefur boðað komu sína með löngum fyrirvara. Engu að síður er eins og tíminn stöðvist á þeirri stundu sem enginn fær umflúið og ótal minningar hrannast upp. Sú var raunin þegar Bella mágkona mín lést 22. janúar síðastliðinn, en mig langar til að minnast hennar örfáum orðum með innilegu þakklæti fyrir löng og ánægjuleg kynni. Sigríður Þórdís Claessen Þor- bjamarson, eins og hún hét fullu nafni, fæddist í Reykjavík 17. jan- úar 1915 og var því nýorðin 74 ára þegar hún lést. Foreldrar hennar vora Arent Claessen, stórkaup- maður og aðalræðismaður, og kona hans Helga Þórðardóttir. Bella var næstelst fimm systkina; elstur var Jean, framkvæmdastjóri, en þriðji í röðinni Haukur, flugmálastjóri. Þau era nú öll látin, en eftir lifa yngstu systkinin tvö, Helga og Ar- ent yngri, eiginmaður minn. Snemma kom í ljós, að Bella var góðum gáfum gædd. Hún hlaut inngöngu í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan gagn- fræðaprófi, sem þótti góð menntun f þá daga. Auk þess stundaði hún nám í klausturskóla í Belgíu, þar sem hún lærði meðal annars frönsku, og einnig sótti hún versl- unarskóla í Englandi. Hinn 24. október árið 1936 gekk Bella að eiga Þórð Þorbjarnarson og var það mikill hamingjudagur í lífí hennar, því hjónaband þeirra var farsælt og gott. Þórður var fæddur 4. maí árið 1908 á Bíldudal, sonur hjónanna Þorbjamar Þórðarsonar, héraðs- læknis þar, og Guðrúnar Pálsdótt- ur. Að loknu stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929 hélt hann utan til náms, lauk BSc- prófi í fiskefnafræði frá Dalhousie University í Kanada 1933, og árið eftir að þau Bella giftust tók hann doktorspróf í lífefnafræði frá Uni- versity College í London. Þórður var merkur vísindamaður og telst tvímælalaust einn af braut- lyðjendum fískirannsókna hér á landi. Hann var forstöðumaður Rannsóknastofu Fiskifélags íslands 1934-1965 og síðan forsljóri Rann- sóknastofnunar fískiðnaðarins frá stofnun hennar 1965 og þar til hann lést 1974. Bella og Þórður lifðu hamingju- ríku fjölskyldulífí. Þau vora sam- hent hjón og góðir félagar; höfðu til dæmis yndi af að ferðast saman í sumarleyfum bæði hér heima og erlendis. Þau eignuðust einn son, Þórð borgarverkfræðing, og er eig- inkona hans Sigríður Jonatansdótt- ir, sem reyndist tengdamóður sinni frábærlega vel frá fyrstu tíð. Bama- bömin era þijú: Sigríður Þórdís, Jónatan og Þórður, og eru þau hvert öðra efnilegra. Ég hitti Bellu fyrst á heimili tengdaforeldra minna að Laufás- vegi 40, og mér er minnisstætt, hve falleg og glæsileg mér þótti hún. Hun bar höfuðið hátt og kunni þá list að halda uppi skemmtilegum samræðum á góðri stundu. Hún var listhneigð, fylgdist vel með bók- menntum, bæði íslenskum og er- lendum og las reiðinnar ósköp. Hafði einnig mikið yndi af góðri tónlist og lærði píanóleik á yngri áram. Bella lét sér alla tíð annt um lífsstarf manns síns. Hún lifði fyrir frama hans, og þar sem hann átti oft við veikindi að stríða reyndi mjög á styrk hennar og þol. Og síðustu árin, eftir að hún var orðin ekkja, þurfti hún sjálf að glíma við erfíðan lungnasjúkdóm. Sú barátta var bæði langvinn og miskunnar- laus, en samt kvartaði hún aldrei og var æðralaus til hinstu stundar. Um leið og ég votta aðstandend- um dýpstu samúð, kveð ég að lokum Bellu mágkonu mína með alúðar- þökk fyrir þá velvild og vináttu sem hún auðsýndi mér. Megi guð blessa minningu henn- ar. Sigurlaug Gröndal Claessen t t Móðir okkar, Bróðir okkar, BÓTHILDUR JÓNSDÓTTIR, JÓSEP GUNNARSSON, Hverfisgötu 104a, er látinn. lést á heimili sínu 31. janúar. Lilja Gunnarsdóttir, Börnin. Kári Gunnarsson, Bolli Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson. t t Maðurinn minn, Faðir okkar, SVEIIMN MAGNÚSSON, GUÐMUNDUR BJÖRNSSON, Hrafnhólum 6, Arkarlæk, áður Vi'ghólastíg 12, sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 27. janúar, verður jarðsettur Kópavogi, frá Akraneskirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 14.00. lést 1. febrúar. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness. Fyrir hönd aðstandenda, Fyrir hönd vandamanna, Guðrún Sigurjónsdóttir. börn hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.