Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.02.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 Sorpflokkunarstöð í Árbæ Áþekk sorpflokkunarstöð og1 um er rætt. Þessi er í Leeds i Englandi og er skammt frá þéttum íbúðar- kjarna. Hiti í Árbæingum vegna sorpflokkunarstöðvar MIKILL urgur er í íbúum í Árbæ vegna fyrirhugaðrar byggingar sorpflokkunarstöðv- ar skammt frá efstu húsum Árbæjarhverfis. Framfarafélag Árbæjar efhdi til borgarafund- ar í félagsmiðstöðinni Árseli á mánudagskvöldið. Þar mættu um 200 manns og tóku ýmsir til máls, bæði embættismenn Reykjavíkurborgar og fulltrúar Árbæinga. Þetta var „mikill hasarfundur" eins og einn Árbæingur komst að orði og sagði hann mikinn hug í þeim að berjast til hins ýtrasta gegn þvi að umrædd sorpflokkunar- stöð verði reist á þessum stað. Árbæingar óttast sitthvað í þessu sambandi, einkum þó lykt- mengun og stóraukna umferð sorpflutningabifreiða. Borgaryfir- völd og embættismenn borgarinn- ar hafa haldið því fram að sá ótti sé ástæðulaus, öll starfsemi slíkrar stöðvar fari fram innanhúss og lyktarmengun því ekki fyrir að fara, sorp verði ekki geymt í stöð- inni og aukinn umferðarþungi verði vart marktækur. Ef einhver fræðingur. Ögmundur hélt áfram: „Við sýnum þetta best með því að út- skýra hvemig vinnslan fer fram í svona sorpflokkunarstöð. Starf- semin er tvíþætt. í annan enda hússins verður keyrt það sem við köllum húsasorp. Því verður sturt- að í gTyfjur innanhúss, þaðan berst það á færiböndum í pökkunarvélar sem búa úr því bagga. Þeim verð- ur síðan ekið á urðunarstað í lok- uðum vörubifreiðum og hvert sorp- hlass á ekki að vera innan þessara veggja lengur en í eina og hálfa til tvær klukkustundir. Annað sorp verður flokkað í hinum enda hússins. Er einkum um fjóra flokka að ræða, málma, vökva, timbur og pappír. Því yrði þá væri hann tímabundinn þar eð í framtíðarskipulagi er að breyta Suðurlandsvegi og myndi þá umferðin að stöðinni öll fara um Bæjarháls. Hafa borgaryfír- völd lagt mesta áherslu á að lýsa hversu hagkvæm svona stöð sé óæskilega og hættulega verður vandlega pakkað og gengið frá, en hitt fer í endurvinnslu. Er stefnt að því að endurvinna 20 prósent af sorpinu, timbrinu, pappímum, sagi, sponum og slíku, en Jám- blendiverksmiðjan í Hvalfírði get- ur tekið 25.000 tonn af slíku á hveiju ári. Einu rök Árbæinga sem ég get fallist á að nokkru leyti er að umferðarþunginn hlýtur að aukast með tilkomu stöðvarinnar. Fram undan er hins vegar breyting á Suðurlandsvegi og myndi umferð að stöðinni þá beinast eftir ann- arri braut, Bæjarhálsi," sagði Ög- mundur. og Reykvíkingum mikils virði. Morgunblaðið ræddi við ýmsa að- ila sem málið snertir og fara um- sagnir þeirra hér á eftir. Elín Bjarnadóttir „Heföi aldrei flutt hingað“ „ÞAÐ ER hrikalegt að klína þessu svona ofan i okkur. Ég hefði aldrei flutt í Árbæinn ef ég hefði vitað af svona yfirvof- andi. Það er eins gott að borgin kaupi af okkur íbúðina ef hún verður óseljanleg vegna þessa,“ sagði Elín Bjaraadóttir, Árbæ- ingur, við Morgunblaðið. „Við megum búa við ólykt frá kaffíbrennslunni, svo leggur hrossaskítslykt yfír hverfin úr Víðidalnum, þannig að ég býð ekki í ástandið ef sorpfnyk fer að leggja yfír í ofanálag. Svo er líka furðuleg þessi staðsetning, því þama alveg á næstu grösum er t.d. þvottahús ríkisspítalanna og matvælafram- leiðendur svo eitthvað sé nefnt," sagði Elín að auki. Starfeemin skaðar ekki íbúa Árbæjar á nokkurn hátt - segir Ogmundur Einarsson tæknifræðingur „ÞAÐ SEM þarf að koma skýrt fram i þessu máli er, að starfsem- in mun ekki skaða Árbæinga á nokkurn hátt. Okkur hefur ekki tekist að leiða þeim það fyrir sjónir ennþá. Við þurfum að auka fræðsluna, sýna fólkinu þetta,“ sagði Ögmundur Einarsson tækni- Ibúar óttast starf- semi stöðvarinnar - segir Benedikt Bogason formaður Framfarafélags Árbæjar „FUNDURINN í Árseli var fyrst og fremst upplýsingafundur og mjög vel heppnaður sem slíkur. Það tóku margir til máls og það kom fram sterkur ótti vegna þeirrar starfsemi sem nú er fyrir- huguð þarna,“ sagði Benedikt Bogason formaður Framfarafélags Árbæjar í samtali við Morgunblaðið. Alls voru um 200 manns á fund- radíustala frá stöðvarmiðju," sagði inum og einhugur mikill gegn um- ræddri stöð, að sögn Benedikts. Hann kvað íbúa Árbæjarhverfís einkum óttast lyktarmengun svo og hættulega umferðaraukningu sorp- flutningabifreiða til og frá stöðinni. „Um 260 metrar eru frá næsta lóð- arhomi umræddrar stöðvar til homs næsta íbúðarhúss efst í Hraun- bænum, en um 400 metrar sé notuð Benedikt. Hann bætti við, að þegar veður væri hvað best í Árbænum væri norðanátt og þá myndi sú lykt sem kynni að berast frá sorpflokk- unarstöðinni leggjast yfir byggðina. „Ég reikna með því að farið verði af stað með undirskriftalista til þess að staðfesta vilja Árbæinga við borgaryfírvöld," sagði Benedikt að lokum. „Þeir sjá fyrir sér gömlu haugana“ - segir Davíð Oddsson borgarsljóri „ÞAÐ ER S sjálfu sér ekkert skrýtið þótt óróleika gæti i Árbæn- um, einkum með tilliti til þess að tiltekinn varaborgarfúlltrúi hefiir lagt sig fram um að rangfæra málið. Fyrir vikið sjá Árbæ- ingar fyrir sér gömlu sorphaugana við bæjardyr sínar. En ekk- ert gæti verið Qarstæðukenndara, þvert á móti er stöð sem þessi umhverfisleg bylting," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri við Morgunblaðið. „Þama verður iðnaðarbygging, að engu leyti frábmgðin öðmm í næsta nágrenni. Hún verður 400 •metra frá næsta húshomi og það er töluverð Qarlægð ekki síst þar sem ein ijölfamasta umferðaræð landsins, Suðurlandsvegur, liggur á milli. Þama verður ekið með sorpið inn í hús og það stoppar þar aðeins í fáar klukkustundir uns því verður ekið í böggum með lokuðum vömbifreiðum til urðun- ar. Hvað staðsetningu varðar, þá er þetta miðsvæðis og hagkvæmt. Við hefðum kosið að stöðin yrði í Kópavogi, en Kópavogsbær gat ekki leyst það mál frekar en önn- ur. Að eignir í Árbæ rými í verði vegna þessa er tóm vitleysa, við höfum rætt við fasteignasala sem staðfesta það,“ bætti Davíð við. Og Davíð sagði einnig. „Við þurfrm að skapa skilyrði til þess að Árbæingar sjái sem er, að þeir hafa ekkert að óttast. Þess vegna er til umræðu að bjóða fulltrúum Framfarafélags Árbæjar til Skot- lands þar sem þeir geta séð með eigin augum hvemig svona stöðv- ar em reknar inni í miðjum íbúð- arhverfum, hreinum og fallegum íbúðarhverfum." „Þetta er al- gjört rugl“ „ÞETTA er í einu orði sagt rugl, algjört rugl. Það er eins og þessir herrar hafi verið f pilukasti og ákveðið að drita þessari stöð þar sem pílan kom á kortið. Við þetta verður ekki unað, við erum kannski fá i Hraunbænum, en samt nógu mörg til að safna liði og leggjast fyrir gröfúmar þegar á að fara að grafa," sagði Jón Páll Siguijónsson, íbúi f Arbæ. „Þórður Þorbjamarson, verkfræð- ingur hjá Reykjavíkurborg, talaði í Arseli og þar kom fram að hann býr við Fomastekk," sagði Jón Páll. „Þá veit hann að það er nóg pláss fyrir stöðina við Stekkjarbakkann. Af hveiju setja þeir ekki stöðina þar, þá getur Þórður fundið sjálfur hversu góður nágranni svona ruslastöð er.“ Jón Páll Siguijónsson Morgunblaðið/Þorkell Guðmundur Guðmundsson „Mega aldeil- is gæta sín“ „ÞEIR segja að það verði engin lykt eða önnur mengun. Þeir verða þá aldeilis að gæta sín að standa við stóru orðin,“ sagði Guðmundur Guðmundsson íbúi i Árbænum. Guðmundur hugsaði sig um og bætti svo við: „Það er langt frá því að ég sé ápægður með það að svona stöð sé ætlað að rísa svona nærri fbúðarhverfi, en það er öllu mót- mælt nú til dags, sama hvað það er. Ég tek ekki undir þau mót- mæli, því einhvere staðar verður svona stöð að vera og ég trúi ráða- mönnum ef þeir segja að allt sé í lagi með það.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.