Morgunblaðið - 02.02.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
17
þakkir á þessum þrautadögum fyrir
það sem þú hefur gefið okkur
stúkusystkinum þínum, það hefur
verið okkur ómetanlegt. Eg veit að
þú átt, nú við brottför hans, styrka
stoð í þinni fjölmennu og gervilegu
fjölskyldu. Og þið Anna og Ingi-
gerður og börnin hans og afaböm-
in, þið eigið hann öll áfram í svo
ótal mörgum minningum er hlýja
og geta veitt leiðsögn í átt til hækk-
andi sólar og aukinnar farsældar,
ef vel er að gáð. Guð blessi ykkur
öll.
Indriði Indriðason
Minn kæri tengdafaðir er látinn.
Hann var einn sá allra besti maður
sem ég hef kynnst. Öll fjölskyldan,
vissi að í honum áttum við traustan
og góðan vin sem aldrei brást.
Hans persónu er erfítt að lýsa í
fáum orðum, en orðið heiðarleiki
kemur oft upp í hugann þegar til
hans er hugsað. Heiðarleiki gagn-
vart öllum og öllu, var einn af hans
kostum. Hafí elsku tengdapabbi
þökk fyrir allt og allt.
Þegar æviröðull rennur,
rökkvar fyrir sjónura þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir,
daga og nætur yfír þér.
(Sig. Kr. Pétursson).
Kristbjörg Sigurðardóttir
Skyndilegt fráfall Sindra Sigur-
jónssonar kom eins og reiðarslag
yfir okkur öll, ástvini hans. Minn-
ingarnar streyma fram í hugann,
allar á sama veg, eins og skínandi
perlur.
Eg sá tengdaföður minn fyrst
fyrir rösklega 20 árum. Ég fann
strax að þama var góður maður á
ferð, bara handtakið eitt var mér
nóg. Seinna skildist mér enn betur,
eftir því sem kynni okkar urðu nán-
ari, að hann var meira en góður
drengur, hann bjó yfir öllum þeim
mannkostum sem prýða máttu einn
mann. Kærleikur, hlýja og umburð-
arlyndi vom hans aðalsmerki. Hann
hafði einstaklega elskulega og fág-
aða framkomu, sem gaf honum
sérstæðan virðingarblæ.
Að Sindra stóðu sterkir stofnar.
Hann var elsta bam séra Sigurjóns
Jónssonar frá Kirkjubæ og frú
Onnu’Þ. Sveinsdóttur. Sindri var
skarpgreindur maður, en skóla-
ganga hans gat af ýmsum orsökum
ekki orðið á þá leið sem hugur hans
stóð til. Á sinni ævi öðlaðist hann
meiri vísdóm og þroska en nokkur
skóli hefði hugsanlega getað gefið
honum. Nær alla sína starfsævi
vann hann hjá Pósti og síma og var
skrifstofustjóri Póstgíróstofunnar
frá stofnun hennar.
Það var mesta gæfa Sindra í
lífínu er hann ungur að ámm kynnt-
ist Sigríði Helgadóttur, sem síðar
varð eiginkona hans og hans sterka
stoð í blíðu og stríðu. Þau vom
samhent og samstíga frá því að þau
sáust fyrst. Lífshlaup þeirra í gegn-
um árin og hátt í 50 ára hjúskap
var einstakt. Það hlaup var aldrei
eftirsókn eftir fyármunum, heldur
einlæg þroskaleit og löngun til að
lifa lífínu lifandi og það tókst þeim
líka betur en nokkmm öðmm sem
ég þekki.
Sindri og Sigríður eignuðust 5
syni; sem þau af sinni einstöku alúð
komu öllum v.el til manns. Allir em
þeir kvæntir og bamabörnin orðin
mörg. Við öll, synir, tengdadætur
og bamabörn, nutum umhyggju
þeirra hjóna í ríkum mæli og þau
vom alltaf tilbúin að hjálpa okkur
öllum. Það vom ófá skiptin sem þau
fluttu inn á heimili okkar til að
gæta bamabarna sinna, sem kunnu
vel að meta það hlutskipti að losna
við pabba og mömmu um tíma og
fá afa og ömmu í staðinn. I minn-
ingunni er það dýrmætt fyrir þau
að hafa átt slíkan afa sem var
þeirra besti vinur og átti trúnað
þeirra allra.
Það var undravert hve miklu var
náð. Þau hjónin unnu saman að
margvíslegum félagsmálum. Góð-
templarareglan var ríkur þáttur í
lífí þeirra beggja. Þar störfuðu þau
dyggilega saman. Á laugardögum
unnu þau saman á fombókamark-
aði sem faðir Sigríðar, Helgi
Tryggvason, hafði rekið til dauða-
dags, en að honum látnum tók
Sigríður við þeim rekstri. Þangað
lögðu margir leið sína og af þeirra
fundi er ég viss um að allir fóm
ríkari heim. Fyrir nokkmm ámm
stofnuðu þau ásamt góðum vinum
sínum leikfélagið Hugleik, sem
Sjá bls. 35
Kveddu
Kvef og Kvilla
með lyktarlausa hvítlauknum
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausí hvítlaukurinn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán. + 4 mán.)
sem á engan sinn líka í veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaður 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 30 ára stöðugar rannsóknir japanskra
vísindamanna.
Lifrænt raektaður í ómenguðum jarðvegi án
tilbúins áburðar eða skordýraeiturs.
Öll önnw huíllauksfrænleiðsla nolar hilameðferð.
Hiti eyðileggw hvata og virk efnasambönd í
hvítlauk og ónýtir heilsubætandi áhrifhans.
-Kyolic Daglega-
Það Gerir Gæfumuninn
KYOLIC fæst í hcilsuvöm- og lyfjavcrslunum og víðar.
Hcildsölubirgðir Logaland, hcildvcrslun
Símar 1-28-04 og 2-90-15. I
\ '
\
Viðskiptaþing 1989
íslandoq
Evrópubandalagiö
Verslunarráð íslands heldur 8. viðskiptaþing sitt
á Hótel Sögu þriðjudaginn 14. febrúar 1989 kl. 10.00-17.30
Aðalefni þingsins verður ísland og Evrópubandalagið
Lagðar verða fram og kynntar niðurstöður af þriggja mánaða starfi
fjögurra nefnda, sem hafa farið í saumana á málefnum Evrópubanda-
lagsins og metið stöðu okkar og hagsmuni varðandi innri markað
EB 1992. í þessum nefndum hafa unnið um 40 manns úr öllum
atvinnugreinum, undir forystu framkvæmdastjórnar Verslunarráðs-
ins og með atbeina hagfræðinga þess.
Þá mun framkvæmdastjóri verslunarráðs EB-þjóðanna, Eurocham-
bers, Hans Joachim von Búlow, fjalla um hlutverk þess og starf-
semi, en Evrópuþjóðir utan EB eiga kost á aukaaðild að ráðinu.
Heiðursgestur: Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands
Þingforseti: Hörður Sigurgestsson,
Uorstjóri Hf. Eimskipafélags íslands
Þingið er opið. Þinggjald er kr. 4.800. Inni-
falin er öll dagskrá með hádegisverði og
kaffi, og móttaka að þingi loknu. Ennfrem-
ur handbók með helstu niðurstöðum EB-
nefnda VÍ.
Skráning stendur yfir í sfma 83088.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Hús verslunarinnar
103 Reykjavík
le#™yysaá»
Leitið til okkar:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300