Morgunblaðið - 02.02.1989, Page 22

Morgunblaðið - 02.02.1989, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989 Grænland: Sljórnmálaórói vegna alþýðusambandsmálsins Kaupmannahöfh. Frá Nils Jörgen Bruun, JONATHAN Motzfeldt er nú ásamt formanni grænlenska landsþingsins, Lars Chemnitz, í heimsókn í Bandaríkjunum í sér- legu boði George Bush forseta. Heima í Grænlandi ríkir hins vegar alvarleg pólitísk kreppa, sem kann að enda með kosning- um eða breytingum á landstjórn- inni. Jens Lyberth, sem fer með menningar-, mennta- og atvinnu- mál í landstjórninni, sagði af sér fréttaritara Morgunblaðsins. embætti sínu tímabundið á laug- ardag. Stjómmálaóróinn í Grænlandi á rætur að rekja til samnings milli landstjómar Siumut-flokksins og Otto Steenholdt, formanns stuðn- ingsflokks stjómarinnar, Atassut, um að landstjómin bjargi græn- lenska alþýðusambandinu, SIK, frá gjaldþroti með því að kaupa af því nokkur hús, sem SIK byggði fýrir 18,6 milljónir danskra króna (um Sviss: Aftur aðeins karlar í ríkisstjórninni Rannsókná athæfí fv. dómsmálaráðherra ZUrich. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðains. ESKA rikisstjórnin er nú aftur aðeins skipuð karlmönnum. Samein- að þing kaus Kaspar Villiger, firambjóðanda Ftjálslyndaflokksins, FDP, ráðherra með 124 atkvæðum af 241 í gærmorgun. Monika Weber, frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, hlaut 33 atkvæði. Villi- ger var kosinn í stað Elisabethar Kopp, fv. dómsmálaráðherra, sem varð að segja af sér vegna afglapa i starfí. Hún var fulltrúi FDP og fyrsti kvenráðherra þjóðarinnar. Fjórir stærstu stjómmálaflokk- með tvo síðustu fulltrúa kantónunn- amir, sem hafa 72% þingsæta, hafa skipt með sér ráðherrasætunum sjö síðan 1959. Landesring, stærsti stjómarandstöðuflokkurinn, bauð nú fram ráðherraefni í fyrsta sinn. Hann gerði það í þágu kvenna og til að benda á að breyting á „töfra- formúlu" við samsetningu ríkis- stjómar kemur til greina. Skoðana- kannanir um helgina sýndu að Weber átti meira fylgis að fagna meðal almennings en Villiger. Nýi ráðherrann er kaþólikki frá Lúzem. Hann hefur stjómað vindla- verksmiðju Villiger-flölskyldunnar undanfarin ár. FDP f Ziirich hefur hingað til alltaf átt fulltrúa í svissn- esku ríkisstjóminni. Óánægja ríkir ar og henni er nú hegnt fyrir það. En hugsjónir Villigers em í anda frjálslyndra Ziirich-búa og hann sit- ur í stjóm dagblaðsins Neue Zurcher Zeitung. Þingnefnd hefur verið skipuð til að rannsaka athæfi Elisabethar Kopp, dómsmálaráðuneytisins og saksóknara ríkisins í sambandi við glæpahringi sem nota svissneska banka og fyrirtæki til að koma illa fengnu fé í umferð. Kopp varð að segja af sér ráðherraembætti eftir að hún viðurkenndi að hafa sagt manni sínum að fyrirtæki sem hann var varastjómarformaður í tengdist málinu. NAMSKEIÐ BOKF/ERSLA, VELRITUN O.FL. Sækið námskeið hjá traustum aðila Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskeið: ■ Bókfærsla I - fyrri hl...........6., 9., 13., 16., 20. og 23. febrúar Bókfærsla I - seinni hl......27. febrúar, 2., 6., 9., 13. og 16. mars Vélritun (byrjendur)......6., 8., 9., 13., 15., 16., 20. og 22. febrúar Þjónustunámskeiö..................................13.-14. mars Skjalavarsla - virk skjöl................................í apríl Námskeiðin eru haldin á kvöldin. Ýmis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku. Skraning og frekari upplýsingar: Sími 91-688400. Verzlunarskóli íslands 130 millj. ísl. kr.) án þess að þörf væri fyrir húsin. Húsin eru nú met- in á 12 millj. d. kr., en landstjómin leggur til 24 millj. d. kr. og fær húsin í staðinn. Með því að Græn- landsbanki taki auk þess á sig 10 millj. d. kr. tap af þessum húsa- byggingum, nær SIK upp á núll- punktinn með fjárhag sinn. Atassut, stuðningsflokkur Sium- ut, hefur gert það að skilyrði fyrir fjárveitingunni, að Jens Lyberth víki úr embætti sínu í landstjóm- inni, meðan sérstök nefnd rannsak- ar þetta mál. Lyberth var formaður SIK á því tímabili, þegar óreiða í bókhaldi samtakanna fór að ógna tilveru þeirra fyrir alvöm. Samtökin hafa ekki fengið reikninga sam- þykkta á ársfundum frá árinu 1985. Vinstriflokkurinn Inuit Ataga- tigiit, sem er í stjómarandstöðu, er andvígur flárstuðningnum og hefur krafíst þess, að landsþingið verði kallað saman til þess að taka af- stöðu til málsins. Landssjóður hefur áram saman lagt SIK til milljónir króna, þrátt fyrir að reikningar samtakanna lægju ekki fyrir. Otto Steenholdt, formaður Atass- ut, sagði í síðustu viku, að hann færi fram á, að flokkur sinn fengi sæti í landstjóminni, ef Siumut ætlaðist til áframhaldandi stuðn- ings hans við fjárframlög til hinna og þessara aðila, því að víða væra flárhagserflðleikar í grænlensku samfélagi. Reuter Iranska byltingin 10 ára Bjöllur glumdu snemma dags í gær í íran en þá hófust tíu daga hátiðarhöld í tílefioi 10 ára afmælis irönsku byltingarinnar. Þetta er i fyrsta sinn sem frá því að byltingin hófet í febrúar 1979 að friður rikir í landinu þegar byltingarinnar er minnst. Skilaboð leiðtoga landsins til þjóðarinnar voru á þann veg að markmið byltingarinnar um réttlæti og efíiahagslega uppbyggingu væru enn langt undan. Hátiðarhöldin hófust kl. 9.03 á bjöUuhringingum en á þeirri stund fyrir tíu árum steig AyatoUah RuhoUah Kho- meini erkibiskup á iranska grund eftir 15 ára útlegð. íranska fréttastofan Ima greindi frá þvi að vegna þessara timamóta hefðu rúmlega 400 strfðsfangar verið náðaðir og dómur núldað- ur yfír 40 föngum. Að sögn Ima verða mörg þúsund stríðsfang- ar leystir úr haldi fyrir 11. febrúar. Hátiðarhöldunum lýkur 11. febrúar en þann dag fyrir tíu árum var siðustu ríkisstjórn íranska keisarans, Reza Pahlavi, steypt af stóU. Myndin að ofan er frá kennslustund í meðferð Kalashnikovs-riffla. Það eru ungar skóla- stúlkur í mosku i Vardavard úthverfí Teheran sem þarna læra að handleika vopnin. Noregur: Aldrei meira atvinnu- leysi frá stríðslokum Ósl6. Frá Rune Timberlid, fréttaritara MorgunblaðainB. Atvinnuleysi er nú meira i Noregi en í nokkura annan tima eftir strið. 4% vinnuaflsins eða 120.000 manns fá enga vinnu og aðeins i janúar Qölgaði atvinnulausum um 30.000. Á atvinnuleysisskrá eru 86.000 manns en þar við bætast um 34.000, sem eru í eins konar atvinnubótavinnu hjá hinu opinbera. Efitir strið hefur atvinnuleysið áður verið mest í janúar 1984, 114.000 manns. Stjómarandstaðan er nú komin í vígahug vegna ástandsins í at- vinnumálum og ekki síst eftir að Kjell Borgen sveitarsjómaráðherra lýsti yflr, að líklega ætti atvinnu- leysið eftir að aukast á næstu tveimur mánuðum. Petter Thommasen, talsmaður Hægriflokksins, segir, að ríkis- stjómin sé öllu trausti rúin vegna ástandsins í atvinnumálum og Ar- ent M. Henriksen, þingmaður Só- síalíska vinstriflokksins, segir, að ástandið sé skelfílegt, atvinnuleysið hafí tvöfaldast á einu ári. Atvinnuleysistölumar eru heldur óskemmtilegar fyrir Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra og Verkamannaflokkinn á kosningaári en hún hefur nú boðað ýmsar að- gerðir. Meðal annars á að hraða framkvæmdum við ólympíumann- virkin í Lillehammer til að auka atvinnuna. Norðmenn hafa æma ástæðu til að óttast þróunina á vinnumarkað- inum. Lítið er um ný störf og stór hluti atvinnuleysingjanna er ungt fólk milli tvítugs og þrítugs. í næst- um öllum atvinnugreinum hefur verið samdráttur og uppsagnir en verst er þó ástandið í byggingariðn- aði og mannvirkjagerð. Bankar og fjármálastofnanir hafa sagt upp hundruðum manna og þá er neyðin ekki minni hjá verslunar- og tölvu- fyrirtækjum. Mest er atvinnuleysið í Finn- mörk, 6,7%, og stafar aðallega af hruninu, sem orðið hefur í sjávarút- vegi í Norður-Noregi. Minnst er það í Akershusfylki rétt við Ósló eða rétt rúm 2%. HONIG -merkið sem þú velur fyrst. 'i Fljótlegt og fyrirhafnarlftið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.