Morgunblaðið - 02.02.1989, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
Rekstraráætlun 1989:
Aðhald og auknar
tekjur hafa skilað
sér í betri afkomu
1-
- segir Gunnar Ragnars, forseti
bæjarstjórnarinnar á Akureyri
AFKOMA bæjarsjóðs Akureyrar var góð á síðasta ári og Qárhags-
staðan betri um áramót en hún hefur lengi verið. Áætlun um út-
gjöld bæjarins stóðst nokkurn veginn, en þar sem tekjur urðu tals-
vert meiri en ráð var gert fyrir batnaði Qárhagsstaðan verulega,
bæði rýmkaðist greiðslustaðan og heildarskuldir bæjarins minnkuðu,
sagði Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjómar, í samtali við Morgun-
blaðið. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 1989 var lögð fram til fyrri
umræðu sl. þriðjudag. Rekstraráætlun gerir ráð fyrir 1.157.503 þús-
undum kr. Gert er ráð fyrir 648 millj. kr. útsvarstekjum og tæpum
400 millj. kr. í tekjur af fasteignasköttum og aðstöðugjöldum. Sigf-
ús Jónsson, bæjarstjóri, sagði í framsöguræðu sinni að yfir 60% af
útgjöldum bæjarsjóðs yrði varið til svokallaðra „mjúku mála“ sem
féllu undir félags-, heilbrigðis- og fræðslumál.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frá bæjarstjóraarfundi siðastliðinn þriðjudag þegar Qárhagsáætlun fyrir árið 1989 var lögð fram.
í máli bæjarstjóra kom fram að
heldur væri rýmra um íjárhag bæj-
arsjóðs nú en áður og áætlað væri
að tekjur hans myndu hækka um
15% frá því í fyrra. Aðhaldsaðgerð-
ir og auknar tekjur hafa skilað sér
í betri afkomu og greiðslustaðan
hefði batnað um tæpar 19 milijón-
ir, að sögn Gunnars Ragnars.
„Fjölgun atvinnutækifæra á Eyja-
ýarðarsvæðinu, til dæmis í sjávar-
útvegi, hefur leitt til tekjuaukningar
hér og hefur sú aukning endur-
speglast i betri afkomu bæjarsjóðs.
Staðgreiðsla skatta kom mjög vel
út hjá bænum og batnandi greiðslu-
staða gerði bænum kleift að minnka
vaxtagjöld. Allt þetta hefur í för
með sér trausta stöðu bæjarsjóðs
nú.“ Gunnar sagði að meginein-
kenni flárhagsáætlunarinnar væri
mun meiri framkvæmdageta en oft
áður sem rekja mætti beint til góðs
atvinnuástands og aukinna tekna
bæjarsjóðs. Fjárveitingar til fjár-
festinga eru meira en helmingi
hærri á þessu ári en í fyrra og þar
ber hæst áframhaldandi uppbygg-
ing Verkmenntaskólans auk þess
sem áætlað er að ljúka framkvæmd-
um sundlaugar í Glerárhverfi. Þá
fer veruleg fjárveiting til umferðar-
mála auk viðhaldsverkefna og end-
urbóta á mannvirkjum bæjarins.
Sérstök ástæða er til að minnast á
framlag bæjarins til félagslegra
íbúðabygginga, en á árinu verður
hafin bygging á 60-70 slíkum íbúð-
um,“ sagði forseti bæjarstjórnar.
Gunnar sagði að oft væri rætt
um að bæjarstjóm hugsaði ekki
nægilega vel um atvinnumál. Það
væri hinsvegar mikill misskilningur
því bærinn hefði á fjölmörgum svið-
um beitt áhrifum sínum í þá átt og
mætti í því sambandi nefna háar
ijárveitingar til félagslegra bygg-
inga á síðustu árum. Um leið og
greitt væri fyrir húsnæðismálum
fólks væri jafnframt verið að skapa
skilyrði fyrir verkefnagrundvelli
byggingariðnaðarins.
Óstjórn í eftiahagslífi
Sigfús sagði að óstöðugleiki í
íslensku efnahaglífí og óstjóm í
fjármáium þjóðarinnar væri
áhyggjuefni. „A síðasta hausti var
t.d. enn einu sinni gripið inn í
ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir
hjá Hitaveitu Akureyrar og fleiri
stofnana af ríkisvaldinu. Á síðasta
ári var lagður sérstakur skattur á
erlend lán sem veldur veitunni bús-
i§um og nú snemma í janúar fór
Alþingi í síðbúið jólafrí án þess að
hafa samþykkt lánsfjárlög fyrir árið
1989. Hitaveitan þurfti að taka
stórt erlent lán í janúar til greiðslu
á skuldum en gat ekki því engin
vom lánsljárlögin. Dagvistarstofn-
anir og sundlaugin frusu inni með
eðlilegar verðlagshækkanir þegar
verðstöðvun brast á sl. haust og
þurfa þessar stofnanir því að hækka
sínar gjaldskrár allnokkuð umfram
verðlagshækkanir á þessu ári til að
halda í fyrra horfí.“
7,2% útsvar
Bæjarstjóm samþykkti á fundi
sínum í byijun desember að útsvar
skyldi vera 7,2%, sem var vandasöm
ákvörðyn, að sögn bæjarstjóra, þar
sem önnur þéttbýlissveitarfélög á
Norðurlandi höfðu samþykkt 7,5%
útsvar og sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu 6,7%. Utsvarsstofn
ársins 1988 var um 8,2 milljarðar
kr. Gert er ráð fyrir í áætluninni
að laun hækki á milli áranna 1988
og 1989 að meðaltali um 12% og
að um 2% samdráttur í vinnumagni
verði að ræða á milli áranna. Ut-
svarsstofn ársins 1989 er því áætl-
aður 9 milljarðar kr. og gera 7,2%
af þeirri upphæð 648 milljónir kr.
Almennt er því spáð að verðlags-
breytingar á milli áranna 1988 og
1989 verði 20%, að rýmun kaup-
máttar verði 8% auk 2% samdráttar
í vinnumagni.
Ósátt við tekjuöflunina
„Ég er sammála ýmsu sem fram
kemur í áætluninni, en það er margt
sem við alþýðubandalagsmenn vilj-
um gera athugasemdir við. Við er-
um mjög ósátt við þá stefnu, sem
meirihlutinn hefur tekið í sambandi
við tekjuöflunina," sagði Sigríður
Stefánsdóttir bæjarfulltrúi. „Heim-
ild til álagningar fasteignagjalda
er t.d. ekki fullnýtt. Á hinn bóginn
er meiningin að ganga að bama-
fólki, sem hefur böm sín á dagvist-
um bæjarins. Gert er ráð fyrir að
vistgjöld hækki um 58% á árinu á
meðan áætlað er að laun fólks
hækki um 14%. Ef heimild til álagn-
ingar fasteignaskatts yrði fullnýtt,
myndi bærinn auka tekjur sínar um
16 milljónir. Síðan emm við ósátt
við ýmis atriði viðvíkjandi ráðstöfun
fjármuna þó reyndar sé ekki búið
að skipta nýframkvæmda-fjármun-
unum. Bæjarfulltrúar em allir sam-
mála um að stórir áfangar náist í
byggingu Verkmenntaskólans og
sundlaugar { Glerárhverfi. Ég vil
gjaman að stórt skref verði stigið
í uppbyggingu dagvista. Þá hefur
verið þrengt að ýmsum viðhaldslið-
um í gegnum árin. Leggja þarf
áherslu á viðhald í gmnnskólum
bæjarins og ég vil tengja betur fjár-
hag bæjarsjóðs og veitustofna
þannig að 30 millj. kr. óráðstöfuð-
um fjármunum vatnsveitunnar, sem
býr við mjög rúman fjárhag, verði
varið í aðra málaflokka á vegum
bæjarins, t.d. til að greiða niður
skuldir hitaveitunnar."
Áferðarfalleg áætlun
Sigurður Jóhannesson bæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins sagði
fjárhagsáætlunina áferðarfallega
og í sjálfu sér mikið ánægjuefni að
bæjarsjóður skuli hafa úr svo mikl-
um peningum að spila. „Hitt er svo
annað mál að ég dreg mjög í efa
að niðurstöðutölur sumar standist.
í því sambandi vil ég sérstaklega
nefna tölur, sem taka til afborgana
af lánum og svo hinsvegar lántökur
á næsta ári. Ég hef trú á að verið
sé að töfra fram of lága tölu í lán-
tökunum. Gert er ráð fyrir lántök-
um upp á rúmar hundrað milljónir
og afborganir lána eru áætlaðar
130 milljónir þannig að verið er að
minnka lánin um 30 millj. kr.
Óraunhæft er að ætla að útistand-
andi bæjarskuldir hækki ekkert á
milli ára þegar meðalverðbólga er
um 20%. Eg geri fastlega ráð fyrir
að útistandandi skuldir bæjargjalda
hafí um næstu áramót aukist um
20 millj. kr., sé tekið tillit til verð-
bólguþróunar undanfarinna ára,“
sagði Sigurður.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1989:
MiimiUutinn sameinast
um breytingartillögur
MINNIHLUTAFLOKKARNIR í borgarstjóra kynntu sameiginlegar
breytingartillögur sínar við ftárhagsáætlun Reykjavikurborgar á
blaðamannafundi i gær. Breytingartillöguraar eru um 60 talsins og
hljóða þær samtals upp á um 600 milljónir króna, auk þess sem í
þeim er lagt til að ekki verði ráðist i lántökur upp á 350 milljónir
vegna framkvæmda við byggingu útsýnishúss i Oskjuhlíð og bíla-
stæðahúss við Bergstaðastræti.
Siguijón Pétursson (Abl) sagði
að fjárhagsáætlun meirihlutans í
borgarstjóm bæri þess sterk ein-
kenni að þeim Qármunum sem til
ráðstöfunar væru hjá borginni væri
fyrst og fremst veitt í „stórvirki og
gæluverkefni", sem ekki væm
beinlínis í þágu almennings í borg-
inni, heldur miklu frekar fyrir ráða-
menn til að hreykja sér af. Hann
sagði breytingartillögur minnihlut-
ans byggja á sömu forsendum og
gert væri í fjárhagsáætlun meiri-
hlutans, en í þeim væri bent á
hvemig unnt væri að nýta fjármuni
borgarinnar til annarra hluta heldur
en til byggingar „minnisvarða yfir
núverandi stjómendur borgarinn-
ar“. Siguijón sagði að samkvæmt
breytingartillögunum væm tæplega
600 milljónir króna í borgarsjóði
fluttar úr slíkum verkefnum, auk
þess sem gerðar væm tillögur til
verkeftia vegna vanáætlunar á tekj-
um í fjárhagsáætlun meirihlutans.
Auk bess væri lagt til að hætt verði
við lántökur vegna útsýnishúss á
Öskjuhlíð, og einnig lántökur vegna
byggingar bílastæðahúss við Berg-
staðastræti á vegum bílastæða-
sjóðs.
í breytingartillögum minnihluta-
flokkanna er gert ráð fyrir að út-
svarstekjur verði 165 milljónum
krónum meiri en gert er ráð fyrir
í fjárhagsáætlun meirihlutans, og
aðstöðugjöld verði 85 milljónum
hærri. Minnihlutinn leggur til að
4% af útsvarstekjum borgarinnar
verði varið til uppbyggingar dag-
vistarheimila fyrir böm, en það er
um helmingi hærri upphæð en gert
er ráð fyrir samkvæmt fjárhagsá-
ætlun meirihlutans í borgarstjóm.
Samkvæmt breytingartillögunum
er meðal annars gert ráð fyrir 47
Morgunblaðið/Þorkell
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn á blaðamannafundinum í gær,
talið frá vinstri: Guðrún Ágútsdóttir, Bjarni P. Magnússon, Siguijón
Pétursson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir og Elín G.
Ólafsdóttir.
milljóna króna auknum fjárveiting-
um til byggingar félagsmiðstöðva
fyrir unglinga, 56 milljóna króna
aukinni fjárveitingu til B-álmu
Borgarspítalans og framlag til
stofnanna í þágu aldraðra verði
aukið úr 164 milljónum króna í 296
milljónir króna.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar verður afgreidd á fundi
borgarstjómar sem hefst kl. 17 í
dag, fimmtudag, og mun fundurinn
væntanlega standa fram undir
morgun.