Morgunblaðið - 02.02.1989, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1989
43
11A MEÐRN TRPt£) EF? ÓRUGGT ER PETTR PÓNOKKUÐ LlFVCNLBST11
„Ruglaðar
þýðingar“
Til Velvakanda
Lögreglumaðurinn Fake barði að
dyrum hjá Búlgaranum Hideout.
Eitthvað á þessa leið var íslenzkur
texti með myndasögu á ensku í
Morgunblaðinu fyrir tæpum 30-
árum. Enn er þýðing þessi mörgum
eftirminnileg vegna þess að sitthvað
mun hafa skolazt til í henni.
Föstudagskvöldið 6. janúar sýnir
Stöð 2 kvikmyndina Sjóræningjam-
ir í Penzance (The Pirates of Penz-
ance), sem byggð er á samnefndri
gamanóperu Gilberts og Sullivans,
og gerist árið 1885. I dagskrár-
kynningu Stöðvar 2 segir: „Fóstra
hans, sem nú er kokkur og þvotta-
kona áhafnarinnar, hafði fengið þau
tilmæli frá föður drengsins að hann
skyldi verða flugmaður. En vegna
þess hve heymarsljó hún var mis-
skildi hún bónina og ól drenginn
samviskusamlega upp að sjóræn-
ingjasið."
Vissulega kemur mér á óvart að
unnt hafi verið að læra til flug-
manns átján árum áður en Wright-
bræður hófu sig frá jörðu. Fóstr-
unni heyrðist „pilot" vera „pirate".
En „pilot“ þýðir ekki aðeins flug-
maður, heldur einnig hafnsögumað-
ur eða stýrimaður. Satt að segja
hrósa ég happi yfir því að hafa
ekki myndlykil, því að hætt er við
að hinir bráðsmellnu orðaleikir Gil-
berts skili sér ekki í þýðingunni ef
svona er staðið að henni.
í stuttri grein sem nefnist „Það
borgar sig að læra heima“ og birt-
ist í viðskiptablaði Morgunblaðsins
29. desember sl. skýrir Bjarni Sig-
tryggsson frá því að Stöð 2 mæti
kreppueinkennum m.a. með því að
skera niður kostnað við þýðingar.
Hann bendir á með dæmi að spam-
aður á því sviði geti reynzt útflutn-
ingsfyrirtækjum dýrt spaug.
En e.t.v. á ég ekki að vera svona
neikvæður. Hver veit nema að það
vaki fyrir ráðamönnum Stöðvar 2
að gefa áskrifendum sínum kost á
ódým spaugi? Samt efast ég um
að ég fái mér afruglara, því að viss
hætta er á því að textinn á skjánum
sé jafnruglaður, hvort sem afruglar-
anum er beitt eða ekki.
Baldur Símonarson
spurt og svarað
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS I
SKATTAMÁL
MORGUNBLAÐIÐ aðstoðar að venju lesendur sína við gerð skatt-
framtala með þeim hætti að leita svara við spurningum þeirra
um það efiii.
Lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins, 691100, milli
klukkan 10 og 12 á morgnana og spurt um umsjónarmann þáttar-
ins „Spurt og svarað um skattamál". Hann tekur spurningarnar
niður og kemur þeim til embættis ríkisskattstjóra. Svör við spurn-
ingunum sem borist hafa og svör við þeim birtast hér á siðunni.
1. B.Þ., Reykjavfk.
Ég og maðurinn minn áttum
hvort sína íbúðina þegar við kynnt-
umst. Við seldum aðra íbúðina í
fyrra og hugsum okkur að kaupa
eina fyrir þessar tvær í náinni
framtfð. Þurfum við að greiða
skatta af peningunum sem við
fengum fyrir hina íbúðina eða
reiknast þeir til tekna að einhveiju
leyti? Er einhver tiltekinn tími sem
við getum varðveitt þetta fé skatt-
frjálst þar til við ráðumst í áður-
nefnd íbúðarkaup?
Svar
í svarinu er við það miðað að
rúmmál beggja íbúðanna hafí ekki
verið yfir 1.200 m3. Á það er bent
að áður en söluhagnaður er reikn-
aður er það verð sem íbúðin var
keypt á, eða byggingarkostnaður
íbúðarinnar, framreiknað með
verðbreytingarstuðli og er þannig
leiðrétt kostnaðarverð dregið frá
söluverði. Söluhagnaður, sem þá
kann að koma út, er ekki skatt-
skyldur ef íbúðin hefur verið í 5 ár
í eigu þess sem hana seldi. Hafí
íbúðin verið skemur í eigu seljanda
telst söluhagnaður skattskyldur. í
stað þess að telja söluhagnaðinn
til tekna í skattframtali 1989 er
þó heimilt að lækka kostnaðarverð
íbúðar, sem seljandi kaupir eða
hefur byggingu á eigi síðar en á
árinu 1990, um hinn skattskylda
söluhagnað. Þarf þá að sækja um
það til skattstjóra að skattlagningu
á söluhagnaði verði frestað. Slíka
umsókn skal setja fram í athuga-
semdum framteljanda varðandi
skattalega meðferð söluhagnaðar á
eyðublaðinu Kaup og sala eigna,
sem einkennt er RSK 3.02. Útfylla
skal þetta eyðublað eins og form
þess segir til um og senda það,
ásamt skattframtalinu, til skatt-
stjóra. Frekari upplýsingar um
skattalega meðferð á söluhagnaði
af eignum koma fram á bakhlið
þessa eyðublaðs.
2. 3721-6143, Reykjavík.
Er bensínstyrkur öryrkja frá-
dráttarbær?
Eru makabætur frádráttarbærar
að einhveiju leyti?
Ef öryrki neyðist til að flytja á
jarðhæð vegna fötlunar sinnar en
hefur átt íbúð áður getur hann þá
átt möguleika á húsnæðisbótum?
Svar
Svar við öllum spumingunum er
nei.
3. Þ.K., Keflavík
Kemur arfur eftir skipti beint til
skattskyldra tekna?
Svar
Arfur sem erfðaíjárskattur hefur
verið greiddur af, telst ekki til
skattskyldra tekna.
4. G.T., Akranesi.
Á sjómaður, sem er fastráðinn
á fískiskip allt árið, rétt á sjó-
mannaafslætti í 365 daga eða ein-
ungis þá daga sem hann er lög-
skráður?
Svar
Maður sem lögskráður er á
íslenskt skip eða skip sem gert er
út af íslensku skipafélagi á rétt á
sjómannaafslætti fyrir hvem dag
sem hann telst stunda sjómanns-
störf. Sjómaður.sem er lögskráður
telst stunda sjómannsstörf þann
tíma sem hann er háður ákvæðum
ráðningarsamnings Sem sjómaður
við útgerðaraðila skips.
Sjómaður sem vill gera kröfu
um sjómannaafslátt fyrir lengri
tíma en hann var lögskráður 'skal
gera sérstaka grein fyrir þeirri
kröfu sinni og gefa upplýsingar á
sérstöku eyðublaði, Greinargerð
með skattframtali um sjómannaaf-
slátt, sem einkennt er RSK 3.13.
í tilfefni af
10 ára afmæli
FÍSF
(Félags íslenskra snyrtifræðinga)
verður haldinn skemmti- og fræðslufundur sunnudaginn 19.
febrúar nk. Snyrtifræðingar, nemar, förðunarfólk og leikfólk,
þið sem hafið áhuga á að taka þátt f keppni í hugmyndaförð-
un, (þema: Undur veraldar) hafi samband við Ólöfu Ingólfsd.
í síma 622075.
Nefndin.
SIEMENS -gceði
DRAUMARYKSUGAN ÞÍN
FRÁ SIEMENS!
Þær gerast ekki betri en þessi. Ryksuga eins og þú vilt
hafa þær.
■ Stillanlegur sogkraftur.
Minnst 250 W, mest 1100 W
■ Afar lipur, létt og hljóðlát
■ 4 fylgihlutir í innbyggðu hólfi
■ Margföld sýklasía í útblæstri
■ Sjálfinndregin snúra og
hleðsluskynjari
■ SIEMENS framleiðsla tryggir
endingu og gæði
■ Verð kr. 11.400,-
SMITH&NORLAND
NÓATÚNl 4 • SÍMI 28300
Árshtti
verður haldin 4. febrúar í félagsheimili Fáks.
Miðasala á skrifstofu Fáks fyrirfimmtu-
dagskvöld.
Húsið opnað kl. 19.
Borðhald hefst kl. 20 stundvíslega.
Á matseðlinum verður svínakabarett ísérjlokki.
Veislustjóri verður Magnús Axelsson.
5tjórnundrfélag islands
Ananaustum 15 Simi 6210 66 ' • • • ••
FYRIRTÆKJAHEIMSÓKN
RíkisútvarpiÖ býöur félögum Stjórnunarfélags-
ins í heimsókn i nýtt húsnœöi í Efstaleiti 1,
föstudaginn 10. febrúar nk. kl. 16.30.
Dagskrá:
Kl. 16.30 Gestir boðnir velkomnir.
Kl. 16.35 Hönnun og bygging útvarpshúss, fram-
kvœmdum lýst.
Kl. 16.50 Húsnœðiö skoöaö.
Kl. 17.20 Ríkisútvarp i samkeppni:
a) Fréttaþjónusta
b) Auglýsingar
Kl. 17.50 Skipulag og rekstur Ríkisútvarpsins.
Kl. 18.10-19.00 Veitingar.
Skráning þátttakenda fer fram i
í síma 91-621066.