Morgunblaðið - 14.02.1989, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.02.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989 15 Sólveig Pétursdóttir, formaður barnavemdarnefiidar. Ingi Björa Albertsson, alþingis- maður. Fundur um kynferðis- lega misnotkun bama Kvenréttindafélag íslands efii- ir til fiindar um kynferðislega misnotkun á börnum. Verður fiindurinn að Hallveigarstöðum n.k. miðvikudag 15. febrúar og hefet kl 20.30. Ræðumenn verða fulltrúar frá samtökunum Sam- hjálp um siQaspell, Sólveig Pét- ursdóttir, formaður baraavemd- arnefndar, Bogi Nilsson, rann- sóknarlögreglusljóri, og Ingi Björn Albertsson, alþingismaður. Undanfarin misseri hafa umræð- ur um kynferðislega misnotkun á bömum og siflaspell loks komið upp á yfirborðið. Við athugun hefur það skýrst að kynferðislegt ofbeldi og áreitni gagnvart bömum - og þá oftast á heimilum þeirra- er miklu almennara og víðtækara og jafn- framt alvarlegra vandamál en marga óraði fyrir. Því telur starfs- hópur innán Kvenréttindafélagsins sem hefur ijallað um þessi mál tímabært að ræða þau opinskátt enda gæti það orðið til eilítillar hjálpar þeim mörgu sem hafa sætt slíku. Kristín Karlsdóttir verður fund- arstjóri. Edith Randý Ásgeirsdóttir flytur ljóð. Bent er á að öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. A Kennaraháskóli Islands: 300 kennarar í starfsleikninámi UM þessar mundir er að hefjast starfsleikninám fyrir kennara í almennum grunnskólum. Þátttakendur eru allt að 300 úr um 20 skólum víðsvegar að af landinu. Námskeiði er haldið á vegum Kenn- araháskóla íslands og er þetta í þriðja sinn sem það er haldið. Þau fyrri voru fyrir kennara í sérskólum og fyrir kennara á suð-vestur horni landsins. Hafa þá um 270 manns sótt slíkt námskeið eða um 10% af félögum í Kennarasambandi íslands. Hvert námskeið stendur í tvö ár. Starfsleikninámið felur í sér þjálfun í vinnubrögðum í kennslu í bekkjum, þar sem nemendur hafa mismunandi námsgetu að sögn Grétars Marínóssonar dósents. „Þetta er ein tegund af skólaþróun- arverkefni, það er að segja tilraun til að fá skólana í heild til að ákveða vinnubrögð og samhæfa sína starf- semi og nú einbeitum við okkur að kennslu í blönduðum bekkjum. Námið er flokkað sem endurmennt- un en ekki beint framhaldsnám og er fyrir kennara með reynslu og er rauna einnig leiðbeinendur. Þetta er starfsmenntun á starfstíma skóla, samhliða starfi þannig að þátttakendur nýta sér námið og reynslu, sem þeir hafa af kennslu," sagði Grétar. Fimmtán til tuttugu kennarar fá undirbúningsþjálfun við Kennara- háskólann og semja þeir jafnframt námsefni, serii þeir nota síðan við að stjórna námi samkennara við eiginn skóla. Þorsteinn Sigurðsson sér- kennslufræðingur hefur umsjón með náminu. Fræðslustefiia um Olympíumálefiii Ólympíunefhd íslands hefúr boríst boð frá Alþjóða-ÓIympíu- fi-æðsluráðinu um að senda allt að 5 fúlltrúa á fræðslustefiiu ráðsins í Ólympíu, 29. júní til 12. júlí, næsta sumar. Þátttakendur skuli vera virkir í íþróttastarfí og íþróttaiðkendur og ekki eldri en 35 ára. Þeir verða einn- ig að vera vel að sér í ensku eða frönsku. Tveim af þessum fimm, karli og konu, eru boðnar fríar ferð- ir, en aðrir greiða fullt gjald. Uppi- hald með gistingu í Aþenu með ferð- um til og frá Ólympíu er 400 dollar- ar á mann. Umsóknir skulu hafa borist fýrir 10. mars til Ólympíunefndar íslands, Iþróttamiðstöðinni Laugardal, 105 Reykjavík. (Frcttatilkyiming) Helgistundir í Dóm- kirkjunm NÚ Á föstunni verða helgistundir í Dótnkirkjunni á þriðjudags- kvöldum og verður hin fyrsta f kvöld og hefet klukkan 20.30. Á þessum helgistundum verður lesið úr Píslarsögunni og Passíu- sálmunum og leikið verður á orgelið. Einnig verða fluttar bænir og fyrir- bænir, ef þess er óskað, og eru þeir sem óska fyrirbæna, beðnir um að á föstunni hafa samband við dómkirkjuprest- ana. Þessar helgistundir taka um það bil hálftíma og er vonast eftir því að fólk komi og eigi hljóða stunda við íhugun og bæn í kirkjunni. Sem fyrr segir er fyrsta helgi- stundin í kvöld og mun sr. Hjalti Guðmundsson sjá um hana. Allir eru velkomnir. (Frá Dómkirkjunni) Kynningarfundur um Þjóðbókasafii: Eigum eignarskattsaukann inni til að flytja inn í árslok 1992 segir Svavar Gestsson menntamálaráðherra „ÞÓTT ÞEIR fjármunir sem innheimtir voru með sérstökum eigna- skattsauka vegna þessarar byggingar hafi ekki allir farið í hana á undanförnum árum, þá lítum við í menntamálaráðuneytinu þannig á að við eigum þá inni, til þessarar byggingar," sagði Svavar Gests- son menntamálaráðherra í ávarpi á kynningarfúndi sem haldinn var á föstudaginn um Þjóðbókasafú í Þjóðarbókhlöðunni. Svavar rifjaði upp aðdraganda byggingarinnar allt aftur til ársins 1957, þegar Gylfi Þ. Gíslason þá- verandi menntamálaráðherra skip- aði nefnd um sameiningu Háskóla- bókasafns og Landsbókasafns. 14 árum síðar samþykkti Borgarráð Reykjavíkur lóð undir byggingu Þjóðarbókhlöðunnar sem hýsa á safnið. Það var síðan fyrir forgöngu Sverris Hermannssonar mennta- málaráðherra, að ákvörðun var tek- in um sérstakan eignaskatt sem renna skyldi til byggingarinnar. „Það má segja að sú ákvörðun hafi í raun og veru hleypt þessum verk- um af stað af nokkrum myndarskap á nýjan leik,“ sagði Svavar. Hann vék síðan að inneign vegna eignaskattsins. „Við erum út af fyrir sig reiðubúin til þess að ræða við fjármálaráðuneytið um hvemig hagað verður vaxtatöku af þessari inneign okkar og í samræmi við vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar munum við ekki hafa miklar kröfur uppi í þeim efnum, en við teljum það ljóst að þessir fjármunir em þama, til þessara framkvæmda.“ Svavar sagði síðan að í málefna- samningi ríkisstjómarinnar sé kveðið á um að byggingu Þjóðar- bókhlöðunnar verði lokið í árslok 1992. í samtali við Morgunblaðið sagði Svavar að vissulega ætlaði hann að beita sér fyrir því að við þetta ákvæði verði staðið og að hann tryði því að Þjóðbókasafn gæti tekið til starfa í Þjóðarbókhlöðunni á tilsett- um tíma. Páll Skúlason prófessor sagði í ávarpi við upphaf fundarins að nú væri orðið tímabært að „menn beini huganum að þessu mikilvæga starfí sem hér á að verða“ Sveinbjöm Bjömsson prófessor flutti erindi um viðreisn Háskóla- bókasafns. Hann sagði það ekki hafa getað þjónað hlutverki sínu um skeið vegna fátæktar og hús- næðisskorts. Bragarbót var á því gerð í maí 1986, þegar samþykkt var í Háskólaráði að beina auknum fjármunum til safnsins. „Það em ekki aðeins háskólanemar sem þurfa að nota safnið, heldur einnig starfandi háskólamenn í atvinnulíf- inu, sem þurfa á endurmenntun að halda,“ sagði Sveinbjöm. Fundurinn var haldinn á vegum stjómar Háskólabókasafns í sam- vinnu við Landsbókasafn og bygg- ingarnefnd Þjóðarbókhlöðu. Til fundarins var meðal annarra boðið Menntamálaráðherra, forsetum Al- þingis, formönnum og varafor- mönnum flárveitinga- og mennta- málanefnda Alþingis, rektor Há- skólans, auk fréttamanna. LibbyV Stórgóða tómatsósan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.