Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
LÆRA
POKA
BANINN
Áhrifaríkt og fjölhæft
æfingatæki í baráttunni viö
lærapoka, appelsínuhúö og
aukakílóin.
- segir Katrín Hafsteinsdóttir,
líkamsræktarþjálfari
Æfingaáætlun fyrir allan
líkamann fylgir meö á
íslensku.
AÐEINS KR. 1.280,-
Frískandi verslun
Skeifunni 19 - 108 Reykjavík
Sími 681717
Vinsamlegast sendiö mér f póstkröfu
____stk. lærapokabana kr. 1.280,-
____stk. æfingadýnu kr. 1.790,-
Wafn
Heimthsfang
Simi
Staöur
Áhugasöm skólabörn leysa verkefiii í Þjóðminjasafiiinu. Morgunblaðið/Emilía
Þurfurn að sýna
börnum að söfii geti
verið skemmtileg
- segir Bryndís Sverrisdóttir, safn-
kennari við Þjóðminjasafii Islands
„ÁHUGI grunnskólakennara og nemenda þeirra á safiikennslunni í
Þjóðminjasafhinu eykst stöðugt. Skólaárið 1987-1988 komu hingað
rúmlega sex þúsund nemendur, skoðuðu safiiið og leystu úr verkefii-
um tengdum ýmsum munum þess. Eg hef orðið vör við að börn, sem
koma á safiiið á vegum skólanna, koma oft aftur til að skoða meira.
Þar með er einu aðalmarkmiði safiikennslunnar náð, að gera börnum
\jóst að söfii geti verið skemmtileg,“ sagði Bryndís Sverrisdóttir,
safhkennari við Þjóðminjasafh íslands.
Bryndís er önnur af tveimur safn-
kennurum í fullu starfi hér á landi.
Hún var ráðin til starfans af
menntamálaráðuneytinu árið 1983,
en hefur starfað við Þjóðminjasafn-
ið frá hausti 1986. Bryndís hefur
lokið fil.kand. prófi frá Háskólanum
í Lundi í Svíþjóð í þjóðhátta- og
fomleifafræði og las auk þess upp-
eldis- og kennslufræði þar. „Við-
horf til bama sem safngesta hefur
breyst mikið undanfarin ár,“ sagði
hún. „Bömin þóttu ekki alltaf æski-
legir gestir því safnverðir óttuðust
að þau skemmdu hluti. Uppátæki
eins og heimsóknir jólasveinanna
fyrir síðustu jól hefði verið óhugs-
andi í Þjóðminjasafninu fyrir nokkr-
um ámm. Með safnkennslunni hef-
ur jarðvegurinn fyrir slíkt verið
undirbúinn. Við viljum sýna bömun-
um að þau em velkomin hvenær
sem þau vilja og kenna þeim að
umgangast safngripi af virðingu og
læra að meta menningararf okkar.“
Bryndís sendir gmnnskólum
landsins bréf tvisvar á skólaárinu
og gerir þar grein fyrir þeim verk-
efnum, sem í boði em fyrir bekkjar-
deildir, er heimsækja vilja safnið.
„Þessi verkefni em unnin út frá
sýningarmunum og oft tengd náms-
efni bamanna," sagði hún. „Þannig
get ég nefnt sem dæmi, að ijórði
bekkur grannskóla lærir um Land-
nám íslands. Því hef ég útbúið sér-
stakt verkefni fyrir þann aldurshóp.
Bömin koma á safnið, skoða muni
frá landnámstíð og leysa síðan verk-
efnið, sem felst í spumingum um
það sem fyrir augu ber á safninu.
Með þessu móti tekst að vekja
áhuga bamanna á safnmunum og
vonandi verður námsefni þeirra um
Landnám íslands meira lifandi fyrir
vikið. Þá em einnig útbúin verkefni
vegna ýmissa sérsýninga, svo sem
Víkingasýningarinnar sem nú
stendur.“
Safiiið til fólksins
Bryndis sagði að landsbyggðar-
böm ættu yfírleitt ekki kost á því
að skoða fomgripi frá landsnáms-
öld. „Það væri full þörf á því að
útbúa góða farandsýningu um land-
námstímann, með textaspjöldum,
myndum, fomgripum eða eftirlík-
Morgunblaðið/Emilía
Bryndís Sverrisdóttir, safiikenn-
ari, við safiikassa um ull og tó-
vinnu, sem kennarar geta fengið
lánaðan hjá Þjóðminjasafiiinu og
notað við kennslu.
ingum af þeim, og myndbandi, sem
færi milli byggðasafna eða skóla,"
sagði hún. „Það væri til dæmis
mögulegt að útbúa nokkrar eins
farandsýningar og setja þær í aðal-
söfnin á hveiju svæði. Þaðan gætu
sýriingamar fárið á milli annarra
safna og skóla svæðisins."
Bryndís kvaðst hafa kynnt sér
safnkennslu í nágrannalöndunum.
„Ég hef fengið ýmsar hugmyndir
þaðan, til dæmis frá danska þjóð-
minjasafninu. Að þess fyrirmynd
sýndum við brúðuleikhús fyrir
yngstu bömin í Þjóðminjasafninu
síðastliðið haust. Bryndís Gunnars-
dóttir, kennari og leikbrúðukona,
Sr. Kristinn Á. Friðfinnsson
Sr. Kristinn Á. Friðfinnsson
settur Dómkirkjuprestur
UNDANFARNA mánuði hefiir sr. Þórir Stephensen verið í tímabundnu
leyfi lirá Dómkirkjunni. Sr. Lárus Ilalldórsson var settur til að Ieysa
hann af. Nú hefiir hann fengið leyfi frá störftim um sinn vegna veik-
inda. í hans stað hefur sr. Kristinn Á. Friðfinnsson verið settur til að
gegna embætti sr. Þóris.
Sr. Kristinn hlaut vígslu til Staðar
í Súgandafírði árið 1981. Þar þjón-
aði hann til ársins 1984. Frá þeim
tíma hefur hann stundað margvísleg
störf, lengst af við sjálfstæð sölu-
og markaðsstörf fyrir Samvinnu-
tryggingar G.T., að útgáfumálum
fyrir Þjóðkirkjuna á vegum Skál-
holtsútgáfunnar, þáttagerð fyrir
Ríkisútvarpið og afleysingaþjónustu
fyrir presta á Reykjavíkursvæðinu.
Þá hefur hann gegnt fjölda trúnað-
arstarfa í nefndum og ráðum á veg-
um ríkis og borgar, auk Háskóla
íslands og stúdenta. Eiginkona sr.
Kristins er Anna Margrét Guð-
mundsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Þau eiga Qögur böm.