Morgunblaðið - 14.02.1989, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
27
HVASSVIÐRI 0 G RA.FMAGNSTRUFLANIR VIÐA UM LAND
VESTMANNAEYJAR
Einangrun
í 2 sólar-
hringa
^ Vestmannaeyjum.
ÓVEÐRIÐ sem geisað hefiir und-
anfamar vikur hélt sínu striki um
helgina. Austan og síðan vestan
stórviðri rótaði upp sjónum að
hann var varla fær og vom flest
öll skip og bátar í höfh um helg-
ina og lá mikið af loðnuflotanum
í höfii í Eyjum frá því um miðja
síðustu viku. Landleguballi var
slegið upp á Skansinum sl.
fimmtudagskvöld en slíkt hefiir
ekki skeð í áraraðir. Herjólfur
varð að fella niður ferðir til Þor-
lákshafiiar á laugardag og sunnu-
dag vegna veðurofsans þannig að
engar samgöngur vom milli lands
og Eyja frá því á föstudag. I gær
hafði veðrinu slotað og héldu bát-
amir þá strax til veiða.
Það hefur ekki gerst áður í þau
13 ár, sem núverandi Heijólfur hefur
siglt milli lands og Eyja, að hann
hafí þurft að fella niður ferðir til
Þorlákshafnar tvo daga í röð. Jón
Eyjólfsson, skipstjóri á Heijólfi sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann
myndi ekki eftir slíkum veðraham
þau 19 ár sem hann hefur verið í
siglingum milli lands og Eyja. Her-
jólfur hefur frá því um miðjan janúar
orðið að fella niður margar ferðir. Á
laugardag lagði hann af stað til Þor-
lákshafnar en sneri við eftir hálftíma
siglingu. Jón sagði að þeir hefðu
snúið við því að þeir hefðu fengið
þær fréttir að ófært væri inn í Þor-
lákshöfn og allir vegir á landi frá
Þorlákshöfn hefðu verið illfærir sök-
um snjóa og óveðurs. Veðrið á sunnu-
dag var enn verra, mun meiri sjór
og hefði ferðin vestur eftir tekið í
það minnsta fimm tíma þannig að
myrkur hefði verið skollið á við komu
til Þorlákshafnar. Ekkert vit hefði
verið í því að fara þangað, því það
hafi nánast verið ófært eftir hádegi
hvað þá þegar myrkur væri skollið á.
„Ég bytjaði á gamla Heijólfi árið
1970 og hef verið í þessum siglingum
síðan. Ég man ekki eftir svona stans-
lausri brælu eins og verið hefur nú.
Yfirleitt hefur hann nú dúrað í einn
eða tvo daga á milli en svo hefur
ekki verið í vetur. Við höfum verið
heppnir og ekki orðið fyrir neinum
óhöppum 'en það má ekki mikið út
af bera. Skipið er að verða 13 ára
gamallt og hefur einungis eina aðal-
vél þannig að öryggið er ekki mikið
og það getur hver maður séð hvað
gerast myndi ef vélin stoppaði þegar
við erum að sigla með ströndinni í
veðrum sem þessum. Þetta öryggis-
leysi hlýtur að opna augu manna
fyrir því hve þörfin á nýju skipi er
orðin mikil,“ sagði Jón Eyjólfsson,
skipstjóri á Heijólfi, að lokum.
Matthías Óskarsson, skipstjóri og
útgerðarmaður Bylgju VE, kom til
Eyja á bát sínum á laugardagsmorg-
un. Bylgja var að koma frá því að
draga net við Hrolllaugseyjar og lenti
í miklu óveðri á heimstíminu. Matt-
hías sagði að þeir hefðu lagt 7 tross-
ur og legið yfir þeim í tvo daga.
Þegar þeir drógu þá voru nánast öll
netin ónýt. „Það var held ég ein
trossa af þessum 7 sem kom þokka-
lega heil upp, á hinum drógum við
bara teinana,“ sagði Matthías.
Á heimstíminu fékk Bylgja á sig
brotsjó og missti við það út eitthvað
af netum. Óttuðust þeir að netin
færu í skrúfuna og kúpluðu því
skrúfunni frá. Létu þeir Vestmanna-
eyjaradíó vita að þeir ættu í basli
en eftir að þeir höfðu gengið úr
skugga um að ekkert hefði flækst í
skrúfu gátu þeir haldið áfram.
„Maður segir nú alltaf, þegar
svona brælur ganga yfir á vertíð-
inni, að aldrpi hafi þetta nú verið
svona slæmt áður en ég held að það
sé ekkert vafamál að það eru orð
að sönnu nú. Maður hefur þó alltaf
getað haft net í sjö, þó hann hafi
brælt, en veðurofsinn nú hefur verið
slíkur að það hefur bara ekki verið
hægt að hafa veiðarfærin í sjó og
ég man ekki eftir slíku fyrr,“ sagði
Matthías Óskarsson.
Óskar J. Sigurðsson, vitavörður
og veðurathugunarmaður í Stór-
höfða, sagði að veðrið um helgina
hefði verið all slæmt. Aðfaranótt
laugardagsins komst vindhraðinn
upp í 86 hnúta af suðsuðaustri, sem
munu vera um 14 vindstig, og á
sunnudag komst vindurinn í 75
hnúta.
Óskar sagði að sjólag væri búið
að vera afar slæmt. Hann sagðist
hafa verið að skoða töflu, sem Veður-
stofan gerir um sjólag og nær 20
ár aftur í tímann, og hefði aldrei á
þeim tíma verið svo slæmt sjólag sem
verið hefur nú. _ Grímur
BORGARFJÖRÐUR
EYSTRI:
„Fljúgandi
íúrðuhlutir“
brjóta rúður
Borgarfirði eystra.
MIKIÐ vestanrok gerði hér síðast-
liðinn laugardag. Talsvert gekk á
hér í Borgarfirði, eins og venju-
lega í vestan- og norðvestanáttum
og virðast því engin takmörk sett
hvað veðurhæðin getur orðið mik-
il þegar blæs af þessum áttum.
Fþ'ótt fór að bera á hvers konar
fljúgandi furðuhlutum sem eig-
endur höfðu ekki fest nógu ræki-
lega, svo sem jámplötum, hjólbör-
um og fiskikössum og flaug einn
slíkur beinustu leið inn um stóran
glugga á félagsheimilinu. Þar að
auki reif upp grjót og möl sem
dundi á húsunum með margvísleg-
um afleiðingum.
í þorpinu brotnuðu margar rúður,
þar af til dæmis 14 í einu húsi. Kyrr-
stæður bíll fauk út af veginum og
er talinn ónýtur. í öðrum brotnaði
rúða, er eitthvað fauk í hana. Undir
kvöldið tók að lygna en á sunnudag
hvessti svo aftur, en ekki hefur
heyrst af skemmdum af völdum þess
eftirleiks, nema hvað einhveijar rúð-
ur brotnuðu í viðbót og rafmagnið
fór og var þá gripið til gömlu dísel-
stöðvarinnar.
í gær var hér tiltölulega rólegt
veður, en sama átt og enn eru hlerar
fyrir mörgum gluggum hér í þorpinu
en slíkur útbúnaður hefur oft komið
að góðu haldi hér í Borgarfirði þegar
veður gerast válynd. Sverrir
FLATEYRI:
Tjóná varn-
argarði
Flateyri.
Vestan ofsaveður var á Flateyri
um helgina. Sjór gekk yfir hús
sem standa við Brimnesveg og
flæddi í nokkur hús. Sjóvarná-
garður stórskemmdist og að sögn
Kristjáns Jóhannessonar, sveitar-
stjóraá Flateyri, eyðilagðist allt
það sem unnið var við sjóvamar-
garðinn í haust og það sem gert
hefiir verið undanfarin ár. Á fjár-
hagsáætlun í ár eru tvær inilljónir
króna, en hann þurfa 8 til 9 millj-
ónir króna til þess að bæta það
tjón, sem orðinn er.
Mikið tjón hefur orðið hjá íbúum
við Brimnesveg á húsum, girðingum
og gróðri. Tveir bátar í Flateyrar-
höfn voru nær lausir í óveðrinu en
tókst að bjarga þeim áður en illa
fór. Miklar rafmagstruflanir voru um
helgina vegna seltu og rafmagn
skammtað, en á mánudag var það
að mestu leyti komið í lag.
Á Vífilsmýrum í Önundarfirði var
veður hið versta sem hjónin Sigrún
Egilsdóttir og Magnús Ingólfsson
höfðu munað þau 12 ár sem þau
hafa búið þar. Bíll þeirra fauk á hlað-
inu og fór eina veltu og lenti aftur
á hjólunum og stórskemmdist.
Öldumar brotnuðu á húsunum og
þari, gijót og allskyns drals hentist
fleiri tugi metra inn á eyrina. Það
er því heldur nöturlegt um að lítast
við sjvarsíðuna. Bára Samsonardótt-
ir, einn íbúa við Brimnesveg, sem
flæddi inn hjá, sagði, að öldurnar
hefðu brotnað með svo miklu afli á
húsinu að útidyrahurð spenntist upp
að neðan og sjór flæddi inn í íbúðina
og skemmdi töluvert.
Sumir tóku það ráð að negla hlera
fyrir glugga. Hurðir í áhaldahúsi
Flateyrarhrepps gáfu sig undan sjón-
um og gekk hann þar inn og braut
meðal annars rúður í jarðýtum sem
voru þar inni. Mikið starf er fram-
undan að hreinsa, en ekki verður
fullséð hverning útlitið vérður endan-
lega fyrr sen snjó leysir.
Fólk er orðið þreytt á þeim um-
hleypingum sem verið hafa undan-
farið. Samgöngur erfiðar, varla hægt
að segja að fólk hafi getað komist
yfir Breiðadalsheiði þau fáu skipti,
sem að hún hefur verið opin frá ára-
mótum vegna veðurs og má segja
að mjólkurvörur og aðrar nauðsynjar
séu farnar að flokkast undir munað-
arvöru en mjólk hefur verið af mjög
skornum skammti og hefur liðið allt
að vika að hún hafi sést í búðunum.
- Magnea
ARNARFJ ÖRÐUR:
Bændur
hella niður
mjólk
Bíldudal.
Vonskuveður hefur verið á
Bíldudal undanfarna daga, vest-
anstormur og snjóbylur. Þetta
hefúr valdið rafinagnsleysi,
mjólkurleysi og algjörri einangr-
un staðarins.
Snjóflóð féll á staura við aðveitu-
stöð Orkubús Vestfjarða á Bíldudal
á laugardag og einnig brotnuðu
staurar í rafmagnslínum yfir í
Tálknafjörð. Af þessum sökum hefur
verið rafmagnslaust á Bíldudal und-
anfarna 3 daga en díselstöð hefur
verið keyrð og skammtað rafmagnið
þijá tíma í senn til skiptis milli bæjar-
hluta. En þar sem rafmagnskynding
er í flestum húsum hefur orðið mjög
kalt í híbýlum, meðan rafmagns-
skömmtun er viðhöfð.
Algjörlega hefur verið rafmagns-
laust í Ketildölum þessa daga og
þangað er einnig símasambands-
laust. Skóli, dagheimili og stærstu
vinnustaðir hafa lokað í dag vegna
rafmagnsskömmtunar, en unnið er
að viðgerðum og vonast er til að
rafmagnsskömmtun ljúki í dag,
mánudag. Mikill snjór er í bænum
og á fjöllum og ekki hefur tekist að
ryðja veginn yfir Hálfdán síðan 6.
febrúar og hafa Bílddælingar verið
mjólkurlausir síðan. Lítið vöruúrval
er einnig orðið í verslunum staðarins.
Bændur í Ketildölum hafa orðið
að hella niður allri mjólk undanfarn-
ar vikur því ekki hefur tekist að ryðja
veginn þangað, vegna snjóflóða og
ófærðar. Nú um helgina fór vegurinn
út í Ketildali í sundur vegna sjávar-
brims en skemmdir hafa ekki að fullu
verið kannaðar. Allt flug til Bíldu-
dals hefur legið niðri undanfama
daga. - RJ
HRUNAMANNA- ’
HREPPUR:
Elding
veldur bæj-
arbruna
Sjðra-Langholti, Hrunamanriahreppi.
Ibúðarhúsið á Auðsholti I í f
Hrunamannahreppi eyðilagðist í
eldsvoða á sunnudaginn. Enginn
slasaðist í eldsvoðanum. Innbú er
að mestu ónýtt. Slökkviliðið á
Flúðum gat ráðið niðurlögum
eldsins á nokkuð skömmum tíma.
Það var um klukkan 5 á sunnudag-
inn að Bjarni Jónsson bóndi í Auðs-
holti varð var við að eldur logaði í
þaki íbúðarhússins og var hann þá
þegar orðinn all magnaður. Slökkvi-
liðið á Flúðum var þegar kallað til,
en um 12-14 km akstur er að Auðs-
holti frá Flúðum. Að sögn Hannesar
Bjarnasonar slökkviliðsstjóra var
mikill eldur í þaki hússins og að hluta
til fallið þegar að var komið, enda
einangrað með reiðingi og öðru eld-
fimu efni á loftinu. Volg tjöm var
skammt frá bænum og því gott um
við að ná í vatn, en að auki er
slökkviliðið með 7.000 lítra vatnsbíl.
Tiltölulega vel gekk því að slökkva
eldinn, en þegar hann kom upp hafði
mikið illviðri, sem var hér eystra á
sunnudag, að nokkm gengið niður.
Vindur stóð á útihúsin, en ekki varð
Ijón á þeim. „Við höllumst að því
að eldsupptök hafi verið af völdum
eldingar, sem hafi lostið niður í raf-
magnsinntakið," sagði Hannes
Bjarnason.
Húsið er talið ónýtt, en það var
steinsteypt á einni hæð, um 120 fer-
metrar að flatarmáli. Húsið og innbú
var fremur lágt vátryggt. Auk
Bjarna bjuggu í húsinu bróðir hans,
sem einnig er bóndi, faðir þeirra aldr-
aður og föðurbróðir. Fimmbýli er í
Auðsholti og munu bændurnir búa
hjá þriðja bróðurnum, sem einnig er
bóndi á sömu jörð, en býr í nýlegu
húsi skammt frá hinu eldra.
Sig. Sigm.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 13. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 69,00 62,00 67,45 2,314 156.068
Smáþorskur 54,00 54,00 54,00 1,000 54.000
Ýsa 100,00 81,00 88,91 0,950 84.461
Lúða 395,00 285,00 351,22 0,147 51.453
Koli 92,00 92,00 92,00 0,027 2.484
Steinbítur 36,00 36,00 36,00 0,014 504
Lax 330,00 315,00 322,78 0,096 31.148
Kinnar 95,00 89,00 90,97 0,059 5.413
Hrogn 167,00 167,00 167,00 0,030 5.010
Samtals 84,21 4,'637 390.543
Selt var aðall. frá Tanga sf., Gunnari Ólafssyni hf. í Hafnarfirði
og úr Degi KE. í dag verður selt óákveðið magn úr ýmsum bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 67,00 64,00 65,40 7,630 498.979
Þorsk.(ósl.dbL) 47,00 47,00 47,00 0,203 9.541
Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 0,408 12.240
Ýsa 96,00 50,00 ' 81,71 0,804 65.694
Steinbítur 32,00 32,00 32,00 0,193 6.176
Hlýri+steinb. 43,00 43,00 43,00 1,443 62.049
Skarkoli 92,00 92,00 92,00 0,039 3.588
Lúða 290,00 290,00 290,00 0,009 2.610
Grálúða 55,00 53,00 53,68 12,236 656.864
Skata 5,00 5,00 5,00 0,105 525
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,017 255
Hrogn 160,00 160,00 160,00 0,139 22.240
Samtals 57,73 23,226 1.340.761
Selt var úr Ásgeiri RE og Farsæli SH. Fjarskiptauppboð verður
klukkan 11 í dag ef á sjó gefur.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 65,50 41,00 52,13 2,474 128.942
Ýsa 96,00 50,00 78,84 0,786 61.969
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,011 167
Karfi 44,50 30,50 36,29 0,370 13.428
Steinbítur • 53,00 53,00 53,00 0,042 2.200
Langa 41,00 41,00 41,00 0,090 3.690
Lúða 360,00 360,00 360,00 0,011 4.104
Skarkoli 83,00 83,00 83,00 0,138 11.429
Skata 137,00 137,00 137,00 0,008 1.041
Samtals 57,77 3,929 226.980
Selt var aðallega úr Fönix GK og Hrungni GK. I dag verður selt
úr dagróðrabátum ef á sjó gefur og á morgun verður selt óá-
kveðið magn, aðallega af þorski, úr Hrafni Sveinbjarnarsyni GK.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 6.- 10. febrúar.
Þorskur 87,95 126,800 11.152.346
Ýsa 93,60 37,400 3.500.474
Ufsi 52,38 7,290 381.874
Karfi 68,42 0,970 66.370
Koli 62,80 0,010 628
Grálúða 93,30 0,500 46.651
Blandaö 97,07 2,343 227.488
Samtals 87,70 175,314 15.375.831
Selt var úr Saerúnu ÁR í Hull 7. febrúar og Ottó Wathne í Grims-
by 9. febrúar.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 6.- 10. febrúar.
Þorskur 91,51 227,555 20.823.575
Ýsa 121,75 145,226 17.681.825
Ufsi 51,26 5,640 289.105
Karfi 70,05 4,640 347.106
Koli 111,18 35,750 3.974.699
Grálúða 91,36 18,680 1.706.670
Blandað 121,37 31,444 3.816.475
Samtals 103,65 469,249 48.639.455
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 6.- 10. febrúar.
Þorskur 80,43 0,762 61.287
Ufsi 86,25 3.004 259.089
Karfi 89,86 358,512 32.216.339
Grálúða 113,03 0,766 86.582
Blandað 27,67 58,949 1.631.109
Samtals 81,17 421,993 34.254.406
Selt var úr Jóni Vídalín ÁR í Bremerhaven 6. febrúar, Vigra RE
í Bremerhaven 7. febrúar og Aðalvik KE í Bremerhaven 9. feb.
i CT> cn is!
t iest ibí n“
MAZDA626I
Segja lesendur „AUTO
M0T0R UND SP0RT“
fimmta áriö í röð. Betri
meðmæli fást varla!
MAZDA 626
kostar nú frá aðeins
þúsund krónum.
(Gengisskr. 9.2.89)
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SÍMI68 12 99