Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 29

Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKIPn/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989 29 Útflutningur Um 600 milljón króna árssala tapastí V-Þýskalandi vegna Aldi-málsins Tíu lagmetisverksmiðjum með rúmlega 300 starfsmenn stefnt í rekstrarvanda Kaufen Sie kenen fisdi aus Isfcmd, zJL* EKKI KAUPA — Grænfriðungar í V;Þýskalandi dreifðu blaði, þar sem þeir segja Kaupið engan fisk frá Íslandi, t.d.: Og svo eru myndir til glöggvunar. ÁRÓÐURSHERFERÐ grænfrið- unga í V-Þýskalandi gegn hval- veiðistefnu íslands hefur komið harkalega niður á sölu lagmetis þangað, en vestur-þýski markað- urinn hefiir til þessa tekið um 35% af heildarlagmetisfram- leiðslu landsmanna. Nýverið sagði Aldi Suður, sem er hluti af hinni öflugu Áldi-verslanak- eðju í V-Þýskalandi, upp kaup- samningi sínum við Sölusamtök lagmetis. Má ætla að sölutap á þessu mikilvæga markaðssvæði verði a.m.k. 600 milljónir króna á þessu ári, en uppistaðan í lag- metinu sem fer til V-Þýskalands er rækja og nokkuð af kavíar. Grænfriðungum hefiir tekist að beina spjótum sinum að islensku lagmeti, vegna þess að hér er um merkjavöru að ræða, sem selst i miklum mæli undir merki íslands, þ. á m. Iceland Waters. Er því auðvelt að vekja athygli neytenda á henni og fá þá til að sniðganga hana í mótmæla- skyni við hvalveiðistefnu stjórn- valda. Aðrar íslenskar sjávarafurðir Bílar Volkswagen hefitr bætt afkomu Seat • Frá Ketilbirni Tryggvasyni fréttarit- ara Morgunblaðsins í Vestur-Berlín. Eftir margra áfa hallarekst- ur, er allt útlit fyrir að spænski bílaframleiðandinn Seat (aðal- stöðvar í Barcelona) komi til með að skila arði eftir uppgjör ársreikninga þessa árs. Þessi breyting á afkomu fýr- irtækisins má teljast töluverður sigur fyrir þýska bílaframleið- andann Wolkswagen AG (VW), en hann keypti Seat-fyrirtækið með öllum skuldum þess árið 1986. VW hefur á seinustu tveimur árum látið endurskipu- leggja allan rekstur og fram- leiðslu þessa stærsta spænska bílaframleiðenda og náði að lækka taprekstur hans úr 380 milljónum þýskra marka ársins 1986 í 50 milljónir 1987 sam- fara um 20% veltuaukningu á árinu. Ein af meginástæðum fyrir batnandi afkomu fyrirtækisins er góð sala í Ibiza-bílnum sem hönnuðir Seat unnu í samvinnu við sérfræðinga VW. Þessi bíll sem að mörgu líkist ýmsum bílum úr framleiðslu VW (Golf og Polo) hefur með undraverð- um hraða náð markaðshlutdeild (uppá 2,5%) í sínum stærðar- flokki í Evrópu og er allt útlit fyrir það að þetta hlutfall komi til með að aukast ennfremur. í Þýskalandi einu jókst salan í Ibiza-bílnum um ein 50% á sein- asta ári. Hjá Seat-verksmiðjunni eru áætlaðar miklar fjárfestingar á næstu árum til að bæta rekst- urinn enn frekar. í máli Juan Antonio Diaz forstjóra Seat, kemur fram að fyrirtækið beri, vegna batnandi rekstraraf- komu, fjárfestingar uppá 5 milljarða þýskra marka eða sem jafngildir um 130 milljörð- um íslenskra króna fram til ársins 1992. fara ekki á markað í Evrópu sem merkjavara, nema í örfáum tilvik- um. Islenski lagmetisiðnaðurinn er eini útflutningsiðnaður lands- manna, sém eingöngu framleiðir fullunna vöru, sem ýmist er seld undir íslensku vörumerki eða er- lendum einkamerkjum. Forsvars- menn Sölustofnunar segja, að mjög erfitt sé að finna önnur viðskiptal- önd, sem gætu tekið við umræddri framleiðslu og greitt fyrir hana á sambærilegan hátt og Áldi og aðrir vestur-þýskir kaupendur hafa gert. 10 verksmiðjur selja til 25 landa Á landinu eru nú starfræktar 10 lagmetisverksmiðjur innan SL og eru starfsmenn á fjórða hundrað, ef með eru taldir þeir sem þegar hefur verið sagt upp störfum á Húsavík og víðar vegna Aldi-máls- ins. Á sl. ári seldu Sölusamtök lag- metisins lagmeti til útlanda fyrir rétt liðlega einn milljarð króna FOB, eða alls 3.200 nettó tonn, að sögn Theodórs S. Halldórssonar, framkvæmdastjóra samtakanna. Ef Aldi Suður hefði ekki nýverið sagt upp samningi sínum, var áætlað að heildarútflutningur í ár næmi 4.600 nettó tonnum að verðmæti 1.700 milljónir króna. Alls selja Sölusam- tökin til 25 landa í flestum heimsálf- um, en verðmætasta viðskipta- landið til - þessa hefur verið V-Þýskaland. í öðru sæti eru Sov- étríkin, þá Frakkland og Bandaríkin númer fjögur. 2.300 Aldi-verslanir Aldi verslanakeðjan, sem skiptist í Aldi Suður og Aldi Norður, á 2.300 verslanir í V-Þýskalandi, sem eru þannig uppbyggðar að þær selja aðeins 600 vörutegundir, hvorki meira né minna. Hagnaður fyrir- tækisins byggist á gífurlegum veltuhraða og vörustreymi, en álagning er aðeins 10% á hveija vörutegund. Forsvarsmenn SL benda á að vöruframleiðendur víða um heim bíði oft árum saman eftir að fá hillupláss fyrir sínar vörur og er hart barist um það þegar ein og ein tegund heltist úr lestinni. Ef íslensk rækja dettur nú út, þá kemst t.d. heitsjávarrækja frá Austurlönd- um að og erfitt verður fyrir Sölu- stofnun að komast inn á ný, eftir AFGASRÚLLUR ESSO Olíufélagið hf 681100 að grænfriðungar hætta mótmæla- aðgerðum sínum. Það tók samtökin fjölda ára að komast í viðskipti við Áldi og það var ekki fyrr en 1982 sem heildarsamningur tókst og við- skiptin hafa vaxið jafnt og þétt síðan. Aldi-verslanir selja um 70% af heildarinnflutningi íslensks lag- metis í V-Þýskalandi og á sl. ári námu viðskiptin 400 milij. kr. Ákvörðun Aldi vegna hvalamálsins lokar öllum þessum verslunum fyrir íslensku lagmeti, sem kemur mjög hart niður á lagmetisfyrirtækjum landsmanna, að sögn forsvars- manna Sölustofnunarinnar. Mikíl birgðasöfnun íslensku verksmiðjurnar sitja nú uppi með miklar birgðir af unnum og óunnum sjávarafurðum, sem ætlaðar eru vestur-þýskum neyt- endum. Auk þess voru þær búnar að birgja sig upp af sérhönnuðum umbúðum fyrir framleiðsluna fyrir V-Þýskaland, sem nú er óvíst hvort verði notaðar. Söluvandræðin, sem skapast hafa vegna mótmæla græn- friðunga, hafa einnig alvarleg áhrif á ýmis innlend þjónustu- og fram- leiðslufyrirtæki, sem tengd eru lag- metinu. Þar má nefna fyrirtæki eins og dósaverksmiðjur, plastframleið- endur, prent- og umbúðamiðstöðv- ar, vöruflutningafyrirtæki og skipa- félög. Þegar lagmetisverksmiðjur neyðast til að loka eða draga veru- lega úr framleiðslu sinni, kemur það til viðbótar mjög illa við fyrirtæki í verslun og þjónustu í viðkomandi byggðarlagi. Lagmetisverksmiðjur eru nú á Siglufirði, Dalvík, Akureyri, Húsavík, Hornafirði, Vestmanna- eyjum, Kópavogi, Hafnarfirði, Akranesi og ísafirði. Starfsmenn viðkomandi fyrirtækja eru uggandi um sinn hag og á sumum þessum stöðum er enga vinnu að hafa, missi fólk á annað borð starf sitt, segja forsvarsmenn SL. Þeir benda á að mMikill fjöldi kvenna starfi í lag- metisiðnaðinum og meirihluti þeirra sé eiginkonur sjómanna á fiskiskip- um viðkomandi bæjarfélags. durol Durol-burstagólfmottan heldur óhreinindum framúrskarandi vel úti. Hún tryggir að 70% minna af óhreinindum berst inn í húsið. • Þetta þýðir: • Að starfsfólk þitt og viðskiptavinir hreinsa skó sína hvort sem þeir vilja það eða ekki. • Að minni óhreinindi eru í húsinu. • Að húsráðendur spara tíma og fé. Durol-burstagólfmottan er endingargóð og sérlega handhæg, vegna þess að hægt er að rúlla henni upp og fjarlægja óhreinindi undan henni. Einnig er mjög auðvelt að viðhalda fallegu útliti mottunnar með ryksugun og sápuþvotti. Durol-gólfmottuna er hægt að panta í öllum stærðum. Hún hentar mjög vel í mottugryfjur. BURSTA GERÐIN Smiðsbúð 10 - Garðabæ - sími (91)41630, (91)41930 fyrir bííaverkstæði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.