Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 30

Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989 Slökkviliðið í iitkall eftir að viðvönmarkerfí var sett í gang: Gamanið kostaði ungl- ingana 40 þúsund kr. HELDUR var það dýr skemmtun sem nemandi við Kvennaskólann í Reykjavík stóð fyrir á Akureyri um helgina. Nemandinn, stúlka í þetta sinn, mun hafa komið viðvörunarkerfi Iþróttahallarinnar í gang með þeim afleiðingum að hringt var út svokallað fyrsta útkall hjá Slökkvi- liði Akureyrar. Að sögn Baldvins Bjarnasonar, skólameistara í Verk- menntaskólanum, kostaði skemmtun þessi reykvísku krakkana 40 þús- und krónur og mun fararstjóri þeirra hafa séð um að safiia fénu saman. Hópurinn, milli 70 og 80 manns, kom til Akureyrar sl. föstudag og fékk afnot af kennslustofum Verk- menntaskólans í íþróttahöllinni á meðan á norðandvölinni stóð. Krakk- amir halda væntanlega til síns heima í dag eftir að Öxnadalsheiðin hefur verið opnuð. „Það hafa orðið tölu- verð vandræði með ýmsa hópa, sem em að koma í svona helgarreisur til Akureyrar, og verður þetta slys nú örugglega ekki til þess að auká líkumar á að við tökum hópa inn á okkur. Vissulega hafa ferðalögin gengið með ýmsum hætti, oftast vel og stundum illa. Við í Verkmennta- skólanum skrúfuðum fyrir allar slíkar heimsóknir fyrir einum þrem- ur ámm þegar einn skólahópurinn af höfuðborgarsvæðinu gekk bók- staflega fram af okkur með sóða- skap og drykkjuskap. Eftir þá dvöl töldum við saman áfengisflöskumar, sem skildar vom eftir í skólanum. Þær reyndust yfir 60 talsins. Við mynduðum þær og sendum suður í viðkomandi skóla sem sönnunar- gagn. Hópurinn sá hafði að vísu fararstjóra meðferðis sem ekki mun þó hafa verið barnanna bestur því hann fékk að gista fangageymslur lögreglunnar um nóttina," sagði Baldvin. Baldvin sagði að samskiptaskólar Verkmenntaskólans væm Ármúla- skóli og Egilsstaðaskóli og væri þeim fijálst að fá afnot af skólahúsnæði Verkmenntaskólans þegar nemend- ur þaðan væm hér á ferð. Kvenna- skólinn var samskiptaskóli Verk- menntaskólans þangað til fyrir nokkmm ámm svo sjálfsagt þótti að leyfa afnot nú upp á gamlan vin- skap, en því miður hefði ekki betur tekist til. Baldvin sagði að ekki hefði þurft að bijóta gler til að koma viðvömn- arkerfinu í íþróttahöllinni af stað. Hinsvegar hefði þurft að lyfta upp loki svo engin leið var að reka sig „óviljandi" í hnappinn. _ Morgunblaðið/Rúnar Þór Iðunn Ágústsdóttir ásamt nokkrum verka sinna. Iðunn Agústsdóttir sýnir mynd- verk í Blómaskálanum Vín IÐUNN Ágústsdóttir opnar mál- verkasýningu í Blómaskálanum Vín fimmtudagskvöldið 16. febr- úar kl. 20.30. Iðunn sýnir um þijátíu myndverk unnin í pastel og eru öll verkin til sölu. Sýningin er í minningu móður hennar, listakonunnar Elísabetar Geirmundsdóttur. Hún fæddist 16. febrúar árið 1916 og í vor em þijátíu ár liðin síðan hún lést. Sýn- ing Iðunnar stendur til 5. mars nk. Hátt í 200 ungmenni veðurteppt í rútum: Sungu á meðan beðið var HÁTT í 200 manna hópur ung- menna frá Reykjavík hélst við daglangt í rútum við Bakkasels- brekkuna á sunnudag vegna . KYNNING AAKUREYRI! IBM býður til kynningar og sýningar á Hótel KEA, Akureyri, 14. og 15. febrúar 1989 KYNNINGIN er báða dagana kl. 10,00 -11,30____________________ Kynntar verða ýmsar nýjungar og það sem er efst á baugi hjá IBM t.d. ný þjón- usta sem höfðar sérstaklega til lands- byggðarinnar. Væntanlegir þátttakendur á kynningarnar eru beðnir að skrá sig hjá Bókvali Akur- eyri, sími: 26100. SÝNINGIN ER OPIN: Þriðjudag 14.02. kl 10.00 -19.00 Miðvikudag 15.02. kl. 10.00 -16.00 TIL SÝNIS VERÐUR M.A.: j^- Nýja AS/400 fjölnotendatölvan sem fengið hefur frábærar viðtökur bæði hérlendis og erlendis. j^- Margar gerðir PS/2 einmenningstölva með nýjungum s.s. OS/2 og DOS 4.0 stýrikerfum, nettengingum, geisla- diskum og skanna. Nýjasta System 36 tölvan. jft Nýir búðarkassar sem auka verulega hagkvæmni í verslunarrekstri. Einnig fjölbreyttur hugbúnaður og verk- efni fyrir ýmsar tölvugerðir. Hér gefst gott tækifæri tii að kynnast af eigin raun hvað hægt er að gera með réttri tölvuvæðingu. FYRST OG FREMST SKAFTAHliÐ 24 105 REYKJAVÍK SiMI 697700 ófærðar. Ungmennin komust heilu og höldnu til byggða á ný með hjálp Flugbjörgunarsveitar- innar og Iflálparsveitar skáta á Akureyri eftir margra klukku- tíma bið. Fimm rútur lögðu af stað frá Akureyri til Reykjavíkur milli kl. 10.00 og 11.00 á sunnudagsmorg- un. Þær stöðvuðust allar við Bakka- selsbrekkuna vegna ófærðar enda Öxnadalsheiðin þá þegar orðin ófær. Rúta frá Norðurleið fór áleið- is til að sækja krakkana og komst hún fram að Engimýri. Björgunar- sveitarmenn sáu um að selflytja ungmer.nin frá Bakkaseli og yfir í Norðurleiðarrútuna, sem beið þeirra við Engimýri, sjö til tíu kílómetra leið. Notaðir voru snjóbílar og jepp- ar. Krökkunum mun ekki hafa orð- ið meint af biðinni. Krakkamir kvörtuðu ekki undan kulda enda hafði gítarinn verið tekin upp og rútulögin kyijuð á meðan beðið var aðstoðar. Krakkarnir voru öll komin til Akureyrar upp úr miðnætti á sunnudagskvöld. Tvær rútanna komust til Akureyrar um nóttina, en þijár þeirra vom skildar eftir. Öxnadalsheiðin var ófær í allan gærdag, en í dag er áætlað að moka heiðina. Mokstursdagar eru á þriðjudögum og föstudögum. Hjónanámskeið á Akureyri Hjónanámskeið verður haldið á Akureyri laugardaginn 18. febrúar. Námskeiðið fer fram í Glerárkirkju frá klukkan 12.00 til 18.00 og er öllum opið. Leið- beinendur verða séra Birgir Ás- geirsson, séra Jón Dalbú Hró- bjartsson og séra Þorvaldur Karl Helgason. Þeir hafa staðið fyrir allmörgum slíkum námskeiðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hafa þau verið vinsæl og vel sótt. síma 27575 milli kl. 11.00 og 12.00 til fimmtudags og milli kl. 20.00 og 21.00 í síma 27676. Einnig er hægt að láta skrá sig hjá séra Jóni Helga Þórarinssyni á Dalvík í síma 61685. Hér er um að ræða námskeið fyrir hjón á öllum aldri sem ræða vilja hjónabandið og sambúðina. Rætt verður um eðli og tilgang hjú- skapar, skoðuð ýmis dagleg við- fangsefni bæði gleðileg og sorgleg sem fyrir kunna að koma í sambúð karls og konu. Námskeiðið er ætlað fólki, sem er og hefur verið í hjóna- bandi í lengri eða skemmri tíma, fólki í sambúð eða þeim, sem hyggj- ast ganga í hjónaband. Með nám- skeiðinu er leitast við að auðga samskipti milli tveggja einstakl- inga, • sem vilja deila kjörum á lífsveginum, efla sjálfsvitund og stöðu gagnvart makanum. Þátttökutilkynningar skulu ber- ast til séra Pálma Matthíassonar í Háskólinn á Akureyri; Gestir frá Manitoba halda fyrirlestra HÁSKÓLINN á Akureyri fær á morgun í heimsókn gesti frá Mani- toba-háskóla í Kanada. Gestimir em hjónin Dennis Anderson og Nina Colwill, sem bæði em pró- fessorar við Manitoba-háskólann og munu þau flytja fyrirlestra í Iþróttahöllinni, stofu II. Dr. Dennis Anderson er Eyfirðing- ur að uppruna. Hann er meðal ann- arra afkomandi Egils Tómassonar, sem forðum bjó að Bakkaseli í Öxnadal. Anderson flytur fyrirlestur um markaðsmál, sem hann nefnir „New product marketing" milli kl. 10.00 og 11.00 á morgun og Nina Colwill flytur fyrirlestur um stjómun sem hún nefnir „Entrepreneurs versus managers" á milli kl. 11.00 og 12.00. IBM efiiir til tölvukynningar IBM á íslandi efiiir til sýningar og tölvukynningar á Hótel KEA á Akureyri í dag og á morgun, 14. og 15. febrúar. Kynningin verður haldin í samstarfi við sölu- aðila fyrirtækisins á Akureyri, Bókval-Tölvutæki. Á sýningunni verður meðal annars sýnd AS/400-fjölnotendatölvan auk margra gerða af PS/2-einmenn- ingstölvum með ýmsum nýjungum. Nýjasta System/36-tölvan verður sýnd og nýju tölvubúðarkassarnir jafnframt. Einnig verður sýndur fjöl- breyttur hugbúnaður og verkefni fyrir ýmsar tölvugerðir. Sýningin verður opin öllum í dag frá kl. 10.00 til 19.00 og á miðvikudag frá kl. 10.00 til 16.00. Samhliða sýningunni verður sér- stök tölvukynning IBM sem opin er báða dagana kl. 10.Ö0 til 11.30. Þar verða kynntar ýmsar nýjungar eins og til dæmis hvernig vegalengdir þurfa ekki að skipta tölvunotendur á landsbyggðinni lengur máli ef bil- un kemur upp í tölvu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.