Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 6
6 FRÉmR/INNLENT !8gi flAimffTí as HUOAamfltue •mm/.ih/uqhom MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1989 Jón Hjaltalín Magnússon Fæddur: 2. apríl 1948. Menntun: Rafeindaverkfræð- ingur Starf: Rekur eigið fyrirtæki - JHM almenn tækniþjón- usta. Heimilishagir: Kvæntur Sonju Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú böm; Magnús Hjaltalín 15 ára, Ólaf Öm 14 ára og Svövu Björk 10 ára. Auk þess á Jón eina dóttur, Guðlaugu, 20 ára. Félagslið: Víkingur, Lugi, Malmo FF, ÍA. Landsleikir: 54 og 155 mörk. Eiginkonur landsliðsmanna íslands fara til Parísar til að sjá úrslita- leikinn. Hér á myndinni eru nokkrar þeirra ásamt börnum. „Pólverjar erfiðir“ Guðmundur Guðmundsson skoraði sigurmark gegn Pólveijum í úrslita- leik KEA-mótsions á Akureyri i hittifyrra - sveif inn úr hominu á siðustu sek. leiksins og skaut milli nærstangarinnar og varkvarðarins. Frábært mark sem lengi verður í minnum haft. Urslitaleikur íslands og Póllands í dag verður fyrsti „alvöruleik- ur“ þjóðanna siðan á Akureyri, ef svo má segja. „Pólveijar hafa náð mjög góðum árangri hér í Frakkl- andi. Eg hef ekki séð þá leika, þann- ig að það er erfítt að segja mikið um þá,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson í stuttu spjalli við Morgvn- blaðið. „Ég veit að Pólverjar hafa að skipa mjög jöfnu og sterku liði. Þeir eru með góða homamenn - sá örvhenti Plechoc er geysilega erfíður. Þá eru þeir með snjallan linumann og góða- ar skyttur". Guðmundur sagði að það hafí ekki nein sérstök áhrif á leikmenn íslenska liðsins - að leika úrslitaleik. „Við höfum lengi leikið saman og því komnir með mikla reynslu. Við reynum að halda okkar striki - sem við höfum náð hér i Frakklandi. Leik- urinn verður erfíður. Pólveijar leika öðruvisi handknattleik en við eigum að venjast. Það má aldrei líta af þeim. Einbeitingin verður að vera 100% hjá okkur allan ttmann," sagði Guðmundur. Otrúleg orka og sprengikraftur í Miðbæjarskólanum var hann stór, sterkur og skotfastur, en að öðru leyti bar lítið á honum að sögn eins bekkjarbróðurins. í MR var hann íþróttafrömuður, en frekar lokaður og lítt málgefinn; „hann fór gjarnan í gönguferðir í löngu frímínútunum með sessunaut sínum, Einari Magnússyni, og þar var lítið sagt,“ sagði skólafélagi. Hann hefur ótrúlega starfsorku og sprengikraft, er sem, jarðýta" að margra sögn, hefiir lyft íslenskum handknattleik á efsta stall innan lands sem utan, fengið þjóðina með sér og öruggt má tejja að hún fylgist grannt með úrslitaleik Islands og Póllands í B-keppninni, sem fram fer í París í Frakklandi í dag. Sigur og tap gegn Póllandi í Frakklandi Átta ár eru síðan íslendingar léku gegn Pólveijum í stórmóti í handknattleik. Sá leikur fór fram í Frakklandi 27. febrúar 1981 og mátti fslenska landsliðið þá þola stórt tap, 16:25, í Dyon i B-keppninni. Aðeins einn leik- maður islenska liðsins, sem leik- ur nú gegn Pólveijum í París, lék þann leik. Einar Þorvarðarson, markvörður. Islendingar léku fyrst gegn Pól- veijum í undankeppni HM 1966. Pólveijar töpuðu stórt í Gdansk, 12:27, en unnu í Reykjavík, 23:21, í æsispennandi leik. Guðjón Jóns- son, Fram, skoraði þá tvö síðustu mörk íslenska liðsins - með gólf- skotum, sem hann var frægur fyrir. ísland vann Pólland, 21:18, í heimsmeistarakeppninni í Frakk- landi 1970 og síðan 21:19 í undan- keppni Ólympíuleikana á Spáni 1972. Pólveijar unnu svo aftur á móti á Ólympíuleikunum í Munchen 1972, 17:20. Þess má geta til gam- ans að Bogdan, landsl.iðsþjálfari, lék þá í marki Pólveija. / Alfreðí v-þýska sjónvarpinu Alfreð Gíslason fór í viðtal við v-þýska sjón- varpið í gærmorgun. Hann var spurður út í slakan árangur Vestur-Þjóðveija, og svar- aði því til að, undirbúningurinn hafí verið rangur að sínu mati. Liðið bjó saman á hóteli í sex vikur fyrir keppnina og æfði af krafti. Leikmenn fengu aðeins þriggja daga frí til að fara heim til sín eftir þijár vikur - komu síðan og voru saman aðrar þrjár vikur áður en keppnin hófst. Þetta taldi Alfreð ranga aðferð. Jón Hjaltalín Magnússon hefur verið formaður Handknatt- leikssambands íslands í tæplega fímm ár. Á þessum tíma hefur hann lyft „Grettistaki í boltan- um“, eins og margir viðmælendur orðuðu það, gert handknattleikinn að eftirsóknarverðri söluvöru. Hann er gífurlega metnaðarfullur fyrir hönd handknattleiksins og „hefur óskaplegan metnað fyrir hönd íslendinga, er mikill þjóðem- issinni,“ sagði Steinar J. Lúðvíks- son, varaformaður HSÍ. Árangurinn talar sínu máli, en ekki eru allir á eitt sáttir með starfsaðferðir formannsins. Sumir segja að illmögulegt sé að starfa með honum, því yfirgangurinn og „íslendingar leika besta handknattleikinn6 4 SVIPMYND Margir „handknattleikssér- fræðingar í Frakklandi hafa hælt íslenska landsliðinu í há- stert. Simon Schoebel, fyrrum landsliðsþjálfari Vestur-Þjóð- veija, sagði að íslendingar lékju best allra liða í keppn- inni. „Leikur liðsins er stórkost- leg auglýsing fyrir íþróttina. Leikmenn liðsins leika ekki fast, eins og til dæmis Vestur- Þjóðveijar, heldur leggja áherslu á léttleikandi og áferð- arfallegan handknattleik." Pompidou-lista- safinið skoðað íslensku landsliðsmennimir fóm í Berey-höllina í gær og horfðu á leik Rúmena og Spánveija um þriðja sætið. Eftir leikinn fóm leik- mennimir í skoðunarferð um París - þar sem m.a. átti að koma við í hinu glæsilega Pompidou-listasafni. Eftir Steinþór Guðbjartsson frekjan séu svo mikil að hann bijóti menn og félög af sér og hreinlega skilji eftir — jafnvel í sámm, sem ekki grói. Að þeirra mati er helsti veikleiki Jóns að hann sé einfari og vanti sam- starfshæfileika. „Hann gleymir manneskjunni," sagði einn, „sprengikrafturinn hleypir oft illu blóði í marga,“ sagði annar, „hann skýtur yfir markið á stundum," sagði sá þriðji, „hann er eintiján- ingur," sagði sá ijórði. Allir em 'sammála um að Jón sé maður framkvæmdanna, en margir benda á að hann hafi haft duglegt fólk með sér, sem minna hafi borið á. „Ég hef aldrei fund- ið fyrir frekju hjá Jóni,“ sagði Matthías Á. Mathiesen, fyrrver- andi ráðherra og formaður nefnd- ar HSÍ, sem vann að því að _fá Heimsmeistarakeppnina til ís- lands 1995. „Jón treystir á sjálfan sig, er opinn fyrir nýjungum og fær oft djarfar hugmyndir." „Jóni má að mörgu leyti líkja við Davíð Oddsson, borgarstjóra. Hann ræður því sem hann vill, sem getur verið erfitt að kyngja þar sem lýðræði ríkir, en þannig verður það að vera þegar stórt er hugsað og framkvæmt sam- s. kvæmt því. Jón er svo stórhuga forystumaður að enginn kemst með tæmar þar sem hann hefur hælana,“ sagði Gunnar Þór Jóns- son, yfírlæknir slysadeildar Borg- arspítalans og formaður landsliðs- neftidar HSÍ. „Hann kemur öllu í gegn, sem hann vill,“ sagði Ingvar Viktors: son, sem kom inn í stjórn HSÍ með Jóni. Til marks um það sagði hann frá því er íslenska landsliðið skipað leikmönnum tuttugu og eins árs og yngri var á leið á HM á Ítalíu í desember 1986. Á sama tíma hafði verið samið um lands- leiki hér heima við tvær þjóðir og leit illa út með að ná saman góðu landsliði í þá leiki vegna þátt- tökunnar á Ítalíu. Stjómarmönn- um þótti illt í efni, en Jón var "ekki af baki dottinn. „Ætli sé ekki hægt að fá þessari heims- meistarakeppni frestað." Valdimar Grímsson hefur staðið sig mjög vel í B-keppninni í Frakklandi og skor- að mörg falleg mörk úr homi. ■ BOGDAN, landsliðsþjálf- ari ísiands, sagði fyrir B-keppn- ina í Frakklandi, að ekkert lið fari í gegnum keppnina tap- laust. Vonandi rætist þessi spá Bogdans í París. Það er nefni- lega svo að Pólveijar eru þeir einu sem ekki hafa tapað leik í B-keppninni - til þessa. ■ SKÓLAKRAKKARNIR sem studdu íslenska landsliðið í C-riðlinum í Cherbourg em komnir til Parísar til að hvetja liðið í úrslitaleiknum. „íslenski“ hópurinn sigraði í keppni stuðn- ingsmanna í Cherbourg, og hlaut þessa ferð að launum. ■ ÞORGILS Óttar Mathie- aen, fyrirliði FH og landsliðsins, reiknar með því að leggja skóna á hilluna eftir þetta keppn- istímabil - a.m.k. „landsliðs- skóna.“ Hann segist jafnvel spenntur fyrir því að taka að sér þjálfun. Þorgíls óttar verð- ur 27 ára á þessu ári. ■ ÖLL liðin sem keppa um 1. - 12. sæti í B-keppninni búa á sama hóteli. Stóm og glæsi- legu hóteli í útborg Parísar, Vanves. ■ FJÖGUR hundruð islenskir handknattleiksunn- endur verða á áhorfendapöllun- um í hinni glæsilegu Bercy- íþróttahöll í París, þegar íslenska landsliðið leikur gegn Pólveijum í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.