Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 10
'10
8381 HAtfiiHH’ti .3S iJuilAutl'/iítíiJt
ölöA48Wa98QM
1989
SALMAN RUSHDIE
Reitti milljónir múhameðs-
rúarmanna til reiði.
á Indlandi, en hætti við það af ótta
við að styggja múhameðstrúarmann
í Bretlandi.
Indverskur almenningur kynntist
efni bókarinnar af viðtölum við Rush-
die í tímaritunum India Today og
Sunday í september. Viðtölin urðu
til þess að þingmaðurinn Syed Sha-
habuddin úr Janata-flokknum hvatti
til þess að bókin yrði bönnuð. Stjóm
Rajivs Gandhi varð við kröfunni og
tilkynnti Penguin ákvörðun sína 5.
október, skömmu eftir að hún kom
út í Bretlandi. Síðan var bókin bönn-
uð í Pakistan, Saudi-Arabíu, Egypt-
alandi, Sómalíu, Bangladesh, Súdan,
Malaysíu, Indónesíu, Qatar og Suð-
ur-Afríku.
Islamska stofnunin í Madras til-
kynnti starfsmanni sínum í Leicester
á Englandi, Faiyazuddin Ahmad, um
bann bókarinnar á Indlandi og hvatti
til áróðursherferðar gegn henni í
Bretlandi. Ahmad sendi samtökum
múhameðstrúarmanna í Bretlandi og
séndiráðum islamskra ríkja ljósrit af
köflum í bókinni, sem þóttu móðg-
andi við islam. Samtökin OIC í
Jeddah, sem 45 ríki múhameðstrúar-
manna eiga aðild að, hvöttu síðan
til þess að bókin yrði bönnuð.
I London boðaði ritari heildarsam-
taka múhameðstrúarmanna í Bret-
landi, dr. Syed Pasha, 19 manna
stjóm þeirra til skyndifundar 15.
október. Akveðið var að hefja bar-
RITHÖFUNDURINN
eftir llluga Jökulsson
Það er umfram allt með stórri furðu sem vestrænn lesandi blaðar
í Söngvum Satans; heyrðu mig nú, hvað á þetta að þýða, hvar er
dauðasökin, almáttugur minn er þetta allt og sumt, á maðurinn að
deyja fyrir þetta, ósköp sakleysislega bók þar sem stöku sinnum er
vikið að Múhameð spámanni og hann meðhöndlaður eins og
manneskja en ekki hálfguð, ósköp sakleysislega bók og svona
leiðinlega í þokkabót? Svo man vestrænn lesandi efitir því að ekki
eru nema tæp þúsund ár síðan til þess að gera landar hans fóru í
krossferðir til helga landsins, það eru skitin fimm hundruð ár síðan
villimannleg siðskiptastríðin voru háð og ljósmæður brenndar á
báli sem nomir; það gerðist svo næstum því í gær að bækur vom
brenndar í Þýskalandi og Osip Mandelstam hvarf austur í Rússlandi
af því hann hafði ort ljóð sem vom ekki að skapi þursanna sem
réðu Rauða torginu. Þá hrósar þessi lesandi happi yfir því að
hugsjónir em að mestu dauðar í hans heimshluta og trúin snýst um
sálgæslu, segja prestarnir.
RUSHDIE
fförlegurgoluþytur
Söngvar Satans er löng bók;
hún er að vísu ekki nema eitt-
hvað um 550 síður og Dosto-
évskí lyfti varla penna fyrir
minna, en Salman Rushdie er
heldur enginn Dostoévskí. Vestrænu
lesendumir í hugsjónalausu löndun-
um henda nú gaman að því hvað
svona leiðinleg bók hafí valdið mikl-
um ofsa í ríkjum múslima, en það
er náttúrlega ekkert gamanmál held-
ur fremur dapurlegt; hitt er verra
fyrir Salman Rushdie að með þessari
bók hefur honum fípast illilega og
væri synd að ágætur höfundur væri
drepinn fyrir heldur misheppnaða
bók; burtséð frá því að væntanlega
vill Salman Rushdie hreintekki láta
lífíð fyrir nokkra bók.
Hann er Indveiji, rétt rúmlega
fertugur, fæddist og ólst upp í
Bombay en fór seinna með foreldrum
eftir Guóm. Halldórsson
KHOMEINITRÚ ARLEIÐTOGI
kvað upp dauðadóm yfir brezka
rithöfúndinum Salman Rushdie
með svofelldri yfirlýsingu: „Ég
tilkynni múhameðstrúarmönnum
heimsins að höfúndur Söngva
Satans, sem beinist gegn islam,
spámanninum og kóraninum, og
allir þeir sem koma nálægt útgáfú
bókarinnar og þekkja efiii hennar
eru hér með dæmdir til dauða.“
Hann bætti því við að hver sá sem
fórnaði lífi sínu til að losa heiminn
við Rushdie „yrði píslarvottur og
færi beint til himna“.
Rushdie virtist ekki láta sér
bregða. Þegar hann var spurð-
ur hvort hann tæki hótunina
alvarlega sagði hann: „Satt
að segja hefði ég viljað skrifa
bók með harðari gagnrýni." Brezka
lögreglan greip þegar í stað til varúð-
arráðstafana og ákvað að veita hon-
um vemd.
Rushdie og kona hans höfðu þegar
fengið inni hjá vinum sínum vegna
fyrri mótmæla gegn bókinni í Pakist-
an, en lögreglan fór með hann á
annan dvalarstað. Fyrirhugaðri férð
Rushdies til Bandaríkjanna vegna
útgáfu bókarinnar þar var aflýst.
Bandarísk kona hans, Marianne
Wiggins, sem er einnig rithöfundur,
hætti við að fara til Bandaríkjanna
til að auglýsa síðustu bók sína og fór
í felur eins og hann.
Starfsmenn útgáfufyrirtækis
Rushdies, Viking Penguin, fengu lög-
regluvemd. Skrifstofum Penguins í
New York og Aþenu var lokað vegna
morðhótana. Forlaginu var tilkynnt
að allar bækur þess yrðu bannaðar
í 45 löndum múhameðstrúarmanna,
ef upplag Söngva Satans yrði ekki
eyðilagt. Þijár bókabúðakeðjur í
Bandaríkjunum hætta að hafa bók-
ina til sýnis og nokkur forlög í Evr-
ópu hættu við að prenta hana.
Útgefendur og bókaverzlanir, sem
létu ekki hræða sig, stórgræddu.
Bókin var rifin út. Fimmtíu þúsund
eintök seldust á nokkrum dögum í
Bandaríkjunum, þótt bókin væri ekki
opinberlega komin út þar. Rushdie
mun fá eina milljón dollara í sinn
hlut og getur verið ánægður, því að
sala á bókum hans hefur hingað til
verið dræm í Bandaríkjunum og bók-
in, sem allur styrrinn stendur um,
þykir leiðinleg.
Stuðningsmenn Rushdies hafa
efnt til mótmælaaðgerða við skrif-
stofur sendinefndar Irans í New
York. Mótmæli hafa einnig verið
höfð í frammi við bókaverzlanir, sem
hafa tekið Söngva Satans úr sölu. í
Kanada hefur verið ákveðið að veita
ráðherra lögregluvemd vegna morð-
hótana, sem munu stafa af því að
hann vill ekki banna innflutning á
bókinni.
Ríkin í Efnahagsbandalaginu ák-
váðu að kalla heim sendimenn sína
frá Teheran og Svíþjóð, Noregur og
Kanada fóru að dæmi þeirra. Bush
forseti lýsti yfír stuðningi við þessa
ákvörðun og gagnrýndi dauðadóm-
inn yfír Rushdie. Evrópuþingið í
Strassborg hvatti til þess að gripið
yrði til refsiaðgerða gegn íran, en
ekki er víst að af því verði, nema
Rushdie verði fyrir morðárás. AIi
Khamenei íransforseti segir að slíkar
hótanir hafí engin áhrif á stefnu
stjómar sinnar.
Stofnun í íran hét hveijum þeim
útlendingi, sem myrti Rushdie, einni
milljón dollara og hveijum þeim ír-
ana, sem ynni verkið, 200 milljónum
ríala og píslarvætti í kaupbæti.
Möhameðstrúarmenn í Bretlandi
lýstu sig samþykka því að Rushdie
yrði myrtur. Sendiherra írans í Páfa-
garði kvaðst fús til að myrða Rush-
die.
Efnt var til mótmælaaðgerða fyrir
utan brezka sendiráðið í Teheran og
manníjöldinn kyijaði: „Dauði yfír
Bandaríkjamönnum og Bretum."
Heimssamtök múhameðskrar æsku
hótuðu mótmælum við brezk sendi-
ráð um allan heim. Nýjar mótmæla-
aðgerðir blossuðu upp í Pakistan.
Pakistanar hvöttu til þess að bók-
in yrði bönnuð í Bretlandi og Banda-
ríkjunum og að öll eintök hennar
yrðu eyðilögð. í Bangladesh hrópuðu
mótmælendur: „Hengið Satan Rush-
die.“ Lögreglan í Bombay á Indlandi
var í viðbragðsstöðu vegna hótana
um að flugvélar British Airways yrðu
sprengdar í loft upp. Ótrúlegar frétt-
ir voru á kreiki um að „dauðasveitir
væru á leið til Bretlands".
Aðdragandinn að dauðadómi Kho-
meinis hófst í fyrrasumar á Indl-
andi, þar sem Rushdie er þekktur
fyrir verk sín. Dótturfyrirtæki
Penguins í Nýju Delhí kannaði mögu-
leika á því að gefa út Söngva Satans
Bókin brennd í Bradford:
Veldur deilum, þótt hún þyki
leiðinleg.
Khomeini:
„Hér með dæmdur til
dauða."