Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Starfsfólk
á veitingahúsi
Veitingahús í miðbænum óskar að ráða starfsfólk í sal, eld-
hús og dyravörzlu. Um er að ræða vaktavinnu eða hluta-
störf, Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu og geti
byijað strax. Umsækjendur undir tuttugu ára aldri koma
ekki til greina.
Sölumaður hjá
framleiðslufyrirtæki
Öflugt framleiðslufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir sölu-
manni. Starfsvið hans á að vera þjónusta við afmarkaðan
hóp stórfyrirtækja i sérhæfðri framleiðslu. Sölumaðurinn
þarf að vera með menntun á tæknisviði og ennfremur er
stjómunarreynsla af framleiðslusviði æskileg.
Listráðunautur
Áhugi kvenna á námskeiðum um stjórnun og rekstur fyrirtækja hefiir farið
vaxandi undanfarin ár.
Iðntæknistoftiun:
Áhugasamur ljósmyndari óskar eftir listráðunauti með að-
stöðu á sviði ljósmyndatækni, sem hefur hugsanlega faglega
tilboðsgerð í stækkun og íjölföldun á myndefni eins og svið-
setningu, meðferð hita, ljóss og ljóðrænni textagerð.
Hjúkrunarfræðing-
ar óskast
Landspítalinn auglýsir eftir hjúkmnarfræðingum á ýmsar
deildir. Staða hjúkrunardeildarstjóra á krabbameinslækn-
ingadeild kvenna er laus til umsóknar nú þegar. Þá er ósk-
að eftir hjúkranarfræðingi á gjörgæzludeild. A krabbameins-
lækningadeild, geislaeiningu, vantar vegna flutnings í K-
bygginguna tvo hjúkranarfræðinga og einn röntgentækni,
tímabundið til starfa. Þá vantar hjúkranarfræðinga á bama-
deild nú þegar eða eftir samkomulagi, bæði í fastar stöður
og afleysingar.
RAÐAUGLÝSINGAR
Ferðalandafræði
Menntaskólinn í Kópavogi efnir til kvöldnámskeiðs um ferða-
mannastaði og ferðamannaleiðir á íslandi o g upplýsingamiðl-
un til ferðamanna dagana 1,- 20. marz nk.
Einangrunarkerfi
Steinprýði hf. hyggst halda námskeið fyrir múrara og
múrarameistara dagana 8.-10. marz í meðferð Thoro Wall
utanhúss einangranarkerfisins. Einnig verða kynnt flotgólf,
viðgerðir, vtnsþéttingar- og utanhússfrágangsefni frá Thoro
og Elgo.
Fasteignasalar
Aðalfundur Félags fasteignasala og ábyrgðarsjóðs félagsins
verður haldinn nk. þriðjudag. Fundurinn fer fram á Hótel
Holyday Inn og hefst kl. 20.00.
Um 300konur hafa
sóttnámskeið um
rekstur fyrirtækja
IÐNTÆKNISTOFNUN íslands hefiir und-
anfarin ár haldið námskeið fyrir konur í
stofnun og rekstri fyrirtækja. Námskeiðin
hafa hlotið góðar undirtektir og hafa um
300 konur sótt þau. Fyrsta námskeiðið í
vetur var haldið á Selfossi og sóttu 13
konur það námskeið. Að sögn Emils Thor-
oddsen hjá Iðntæknistofiiun fylltist nám-
skeiðið á Isafirði strax og á Akureyri var
einnig meiri en næg þátttaka, en 20 konur
komast á námskeið í einu.
Námskeiðið er ætlað konum sem
reka lítil fýrirtæki, taka þátt
í rekstri fyrirtækja, hyggjast stofna
fyrirtæki og þeim sem vilja fræðast
um stofnun og rekstur fyrirtælq'a.
Námskeiðið á að auðvelda konum
að vega og meta eigin stöðu, styrk
og veikleika við fyrirtækjarekstur.
Reynsla Iðntæknistofnunar og ann-
arra námskeiðshaldara á Norður-
löndum sýnir, að konur taka miklu
frekar þátt í námskeiðum sem eru
sérstaklega ætluð þeim.
Á námskeiðunum er fjallað um
eftirtalin efni: Einstaklinginn og
viðskiptahugmynd, stofnáætlun,
stefnumótun, markaðssetningu,
fjármálf kostnaðarreikning, reikn-
ingsskil, skipulagningu og form
fyrirtækja. Þá kemur kona sem
hefur stofnað fyrirtæki og skýrir
frá reynslu sinni.
Á síðasta ári veitti Iðnaðarráðu-
neytið styrk til þess að gera nýtt
og aðgengilegra námsefni fyrir
þátttakendur, sem starfsmenn Iðn-
tæknistofnunar hafa tekið saman
og er þar komið inn á flest þau
atriði sem skipta máli. Viðbætur
vora gerðar í samræmi við ummæli
og óskir þátttakenda á námskeiðun-
um undanfarin ár. Aðal munurinn
er sá, að nú fá þátttakendur skrif-
legt námsefni, farið er dýpra í hlut-
ina og lögð era létt verkefni fyrir
konumar. Einnig hefur tímaijöldinn
aukist úr 15 í 26 tíma.
Næsta námskeið verður haldið í
Vestmannaeyjum og hefst 24. febr-
úar. Fyrsta námskeiðið i Reykjavík
verður haldið 28. febrúar. Einnig
er áformað að halda námskeið á
næstu mánuðum á Sauðárkróki,
Akranesi, Húsavík, Höfn og Pat-
reksfirði.
Helga Benediktsdóttir sótti nám-
skeið Iðntæknistofnunar árið 1987
ásamt þremur systram sínum og
stofnuðu þær sama ár húsgagna-
og gjafavöruverslunina, Gegnum
glerið. „Það var farið í ýmislegt sem
kom okkur að notum og má nefna
að ítarlega var fjallað um gerð
stofnáætlana þ.e. hvemig ætti gera
sér grein fyrir stofnkostnaði og
sölu fyrsta árið,“ sagði Helga í sam-
tali við Morgunblaðið. „Einnig var
Qallað um markaðskannanir, t.d.
hveijir væra okkar viðskiptavinir
og hvernig við, ættum að ná til
þeirra.“ Helga sagði að mikið upp-
lýsingaflæði hefði verið í gangi
námskeiðinu. Margar af konunum
hefðu þegar rekið fyrirtæki og aðr-
ar tekið þátt í því með öðram. Þær
hefðu miðlað miklu af sinni reynslu.
Helga kvað rekstur verslunarinnar
hafa gengið ágætlega. Húsgögn
væra oft erfið í sölu en gjafavaran
hefði selst vel.
Bolungarvík:
Enginn er
skráður at-
vinnulaus
Bolungarvik.
ÞRÁTT fyrir að tíðarfar hafi ver-
ið með versta móti er ekki hægt
að segja annað en að atvinnu-
ástand í Bolungarvík sé gott. Eng-
inn er á atvinnuleysiskrá og er
Ijóst af viðtölum við forráðamenn
fyrirtækja að þörf verður á auknu
vinnuafli á næstunni. í janúar
skráðu sig 7 atvinnulausir, sam-
tals í 43 daga.
Nær dæmalausar brælur hafa
verið á hefðbundnum miðum
skipa og báta frá Bolungarvík frá
því fyrir jól. Sjósókn hefur því verið
erfið og afli stopull. Þrátt fyrir það
hefur verið reynt að halda uppi vinnu
hjá fiskvinnslufyrirtækjum í bænum.
Línuafli hefur verið góður þegar gef-
ið hefur. Rækjuveiðar standa yfir í
Isafjarðardjúpi en senn sér fyrir end-
ann á þeim á þessari vertíð. Rækju-
aflinn hefur verið unnnin hjá Rækju-
verksmiðju íshúsfélags Bolungarvík-
ur hf. Undanfarna daga hefur afli
togara Bolvíkinga verið að glæðast.
Mikil byggingarvinna hefur verið
í Bolungarvík síðustu misserin, m.a.
við nýbyggingu grannsskólans, 14
þjónustuíbúðir aldraðra, verka-
mannabústaði og raðhús sem Jón
Fr. Einarsson byggingameistri er að
reisa.
Síðastliðið haust, þegar hægt var
að vinna á fullu í byggingafram-
kvæmdum, bar nokkuð á vinnuafls-
skorti í Bolungarvík. Má segja að
skortur á vinnuafli hafi verið viðvar-
andi í bænum lengi, ekki síst í fisk-
vinnslunni. Forráðamenn í íshús-
félagi Bolungarvíkur hafa eins og
svo margir aðrir gripið til þess ráðs
að fá til starfa útlendinga og er nú
eitthað á annan tug starfsmanna
íshúsfélags Bolungarvíkur og Einars
Guðfinsssonar hf. erlendir.
- Gunnar
Hofsós:
27 skráðir
atvinnulausir
Sauðárkr6ki.
VERULEGT atvinnuleysi er nú á
Hofsósi. Samkvæmt upplýsingum
sem fengust á hreppsskrifstof-
unni þar, var 21 skráður atvinnu-
laus í janúarlok og atvinnuleysis-
dagar 364. Á sama tíma í fyrra
voru 3 atvinnulausir og atvinnu-
leysisdagar 56.
Nú í seinni hluta febrúar hefur
atvinnulausum fjölgað í 27 og
er búist við að þessi tala eigi enn
eftir að hækka. Aðallega er um að
ræða fiskvinnslufólk og sjómenn sem
ekki hafa komist á sjó vegna ógæfta.
Þá era tveir af toguram Utgerðarfé-
lags Skagfirðinga í slipp og frystihú-
sið fær ekki nægilegt hráefni á með-
an. BB