Morgunblaðið - 26.02.1989, Síða 8

Morgunblaðið - 26.02.1989, Síða 8
8 MOftGUNBlAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 26, FEBRÚAR, 1989 j -p. » er sunnudagnr, 26. febrúar, 3. sd. í föstu. 57. 1 UAvJ dagur ársins 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 9.21 og síðdegisflóð kl. 21.39. Sólarupprás í Rvík kl. 8.46 og sólarlag kl. 18.37. Myrkur kl. 19.25. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.41 og tunglið er í suðri kl. 5.20. (Almanak Háskóla íslands.) Með því að vér höfum þessa þjónustu í hendi fyrir misk- unn Guðs, þá látum vér ekki hugfallast. (2. Kor. 4,1.) ÁRNAÐ HEILLA \ ára afinæli. í dag, 26. I V/ febrúar, er sjötugur Baldur Helgason, sjómað- ur, Njálsgötu 106 hér í Reykjavík. Hann ætlar að taka á móti vinum og vanda- mönnum í dag, afmælisdag- inn, milli kl. 15 og 18 í húsi SVFÍ í Hafnarfirði, Hjalla- hrauni 9. Baldur var lengst af á 46 ára sjómannsferli tog- arasjómaður og síðustu árin á sjónum var hann á togaran- um Bjania Benediktssyni, togara BÚR — Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur. FRÉTTIR 9. VIÐSKIPTAVIKA yfirstandandi árs hefst á morgun, mánudag. í LÆKNADEILD Há- skóla íslands eru lausar stöð- ur dósenta og lektora, allt hlutastöður (37%) og auglýsir menntamálaráðuneytið þær lausar til umsóknar í Lög- birtingi nú fyrir skömmu. Umsóknarfrestur er settur til 8. mars nk. Þessar stöður eru: Dósentsstaða í líffæra- meinafræði, dósentsstaða í sálarfræði og dósentsstaða í lyflæknisfræði og er staðan bundin við Borgarspítalann. Lektorsstöðumar eru: Lekt- orsstaða í lyflæknisfræði og er staðan bundin við Landa- kotsspítala. Lektorsstaða í bamasjúkdómafræði og lekt- orsstaða í fæðingar- og kven- sjúkdómafræði. Gert er ráð fýrir að stöðumar verði veitt- ar til 5 ára frá 1. júlí nk. SETBERGSSKÓLI. í gær var sagt frá því að menntamálaráðuneytið hefði auglýst lausa stöðu skóla- stjóra Setbergsskóla í Hafn- arfírði. Skólinn er í smíðum en gert ráð fyrir að hann taki til starfa næsta haust er skólaárið hefst. Verða þar deildir fyrir böm frá 6 ára til og með 10 ára aldri. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN: í gær var togarinn Ottó N. Þorláksson væntanlegur inn af veiðum til löndunar svo og frystitogarinn Freri. í gær fór Stapafell á ströndina. Togarinn Engey er væntan- legur inn í dag til löndunar á Faxamarkað. Þá er rússneskt olíuskip væntanlegt nú um helgina og erl. flutningaskip, Iceberg, sem mun hafa skamma viðdvöl. HAFNARFJARÐAR- HOFN: í gær kom ísberg að utan, en hafði haft við- komu í Vestmannaeyjum. Togarinn Víðir kom inn til löndunar á fiskmarkaðinn. í dag, sunnudag, er væntanleg- ur grænlenskur togari, Arvi- vik og kemur hann til að landa aflanum. MOLAR___________________ 4k Það var þýskur maður að nafiii Fahrenheit frá Danzig sem fann upp kvikasilfurshitamælinn árið 1714. Á því sama ári kemur franskur maður, Réaumur, fram með nýja skiptingu á hitastigunum. Og árið 1742 mælir Svíinn Celsíus með hitamæli- kvarða þeim sem sænski plöntufræðingurinn Linné hafði fundið upp. • Árið 1747 uppgötvar þýskur eðlisfræðingur, A.S. Marggraff, sykurinnihald fóðurrófunnar og fyrsta sykurverksmiðjan sem sög- ur fara af var reist í Þýska- landi í Slesíu árið 1801. KROSSGÁTAN LÁRÉTT: 1 biður um, 5 þrautgóðu, 8 lýð, 9 lágfótan, 11 mergð, 14 elska, 15 ill- kvittin, 16 hermenn, 17 óhreinka, 19 æviskeið, 21 náttúra, 22 göfugmenni, 25 for, 26 vætla, 27 bók. LÓÐRÉTT: 2 hlóðir, 3 skyldmennis, 4 drykkjurút- ana, 5 fara hratt, 6 málmur, 7 mánuð, 9 óvegur, 10 skem- ill, 12 sigraðir, 13 kom upp í vana, 18 spildu, 20 til, 21 fomafn, 23 tónn, 24 frumefní. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: 1 fjöld, 5 ættin, 8 áræði, 9 brúðu, 11 unnur, 14 nær, 15 göfug, 16 illan, 17 inn, 19 illt, 21 iglu, 22 dell- una, 25 nýi, 26 æla, 27 róa. LÓÐRÉTT: 2 jór, 3 láð, 4 drungi, 5 æðurin, 6 til, 7 iðu, 9 bagginn, 10 úlfaldi, 12 hálægar, 13 rennuna, 18 núll, 20 te, 21 in, 23 læ, 24 ua. Sjö dagar, sex dagar, fimm dagar, Qórir dagar, þrír dagar ... MANNAMÓT MÁLSTOFA í guðfræði. Næstkomandi þriðjudag, 28. þ.m., verður haldin málstofa í guðfræðL Þá flytur sr. Sig- urður Ámi Þórðarson, rektor Skálholtsskóla, fyrir- lestur sem hann nefnir: Er til íslenskt trúarviðhorf sem er einhvers virði? Málstofan verður haldin í Skólabæ, Suð- urgötu 26, og hefst kl. 16. KVEN STÚDENTAFÉ- LAG íslands og Félag ísl. háskólakvenna heldur aðal- fund sinn annað kvöld, mánu- dag, 27. febrúar, kl. 20 í veit- ingahúsinu Jónatan Livings- tone Mávur. Gestir fundarins verða 25 ára stúdínur frá MA. ITC-deildin Kvistur heldur fund annaðkvöld, mánudags- kvöld, kl. 20 í Holiday Inn og er fundurinn öllum opinn. ITC-Ýr heldur fund annað kvöld, mánudagskvöld, í Síðumúla 17 og hefst hann kl. 17.30. Fundurinn er öllum opinn og fer þá fram ræðu- keppni. KVENFÉLAG Nes- kirkju. Áður boðaður aðal- fundur félagsins fer fram annað kvöld, mánudag, í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 20.30. FÉLAG eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, kl. 14. Fijálst: spil og tafl. Dansað verður kl. 20. Á morgun, mánudag, er opið hús í Tónabæ. Undirbúningur góu- gleðinnar er í fullum gangi og eru gefnar nánari uppl. á skrifstofu félagsins. KVENNADEILD Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra heldur fund annað kvöld, mánudag, á Háaleitis- braut 11-13 kl. 20.30. Gest- ur fundarins verður Lilja Matthíasdóttir, snyrtisér- fræðingur. KVENFÉLAG Kópa- vogs ætlar að efna til hóp- ferðar á Víkingasýninguna í Norræna húsinu laugardag- inn 11. mars nk. verði þátt- taka næg. Uppl. um þessa ferð eru veittar í s. 40388 eða 41949. Á þriðjudagskvöldið kemur heldur félagið spila- fund í félagsheimili bæjarins. Spiluð verðir félagsvist og byrjað að spila kl. 20.30. KATTAVINAFÉL. heldur aðalfund sinn í dag, sunnu- dag, kl. 14 á Hallveigarstöð- um. Formaður félagsins er Ingibjörg Tönsberg og eru félagsmenn nokkuð á níunda hundrað. RETTA GERÐIST 26. febrúar ERLENDIS gerðist þetta á þessum degi: 1531: Tugir þúsunda borg- arbúa í Lissabon fórust í jarð- skjálfta. 1623: Hollendingar fremja fiöidamorð á enskum kaup- mönnum í Indónesíu þar sem heitir Amboyna. 1815: Napóleon tekst að flýja frá Elbu. 1828: Dom Miguel verður ríkisstjóri í Portúgal. 1832: Nikulás I. Rússakeis- ari afnemur stjómarskrá. 1848: Lýst yfir stofnun ann- ars fransjca lýðveldisins. 1871: Frákkar og Þjóðveijar semja bráðabirgðafrið í Ver- sölum. 1909: Tyrkir viðurkenna inn- limun Bosníu í Austurríki. 1921: Rússar undirrita samninga við Persa. 1936: Koki Hirot steypt af stóli í herbyltingu í Japan. 1952: Winston Churchill til- kynnir að Bretar hafi smíðað kjamorkusprengju. 1962: Suður-víetnamskir flugmenn gera loftárás á höll Ngo Dhin Diem forseta. 1976: Herforingjar og stjórnmálaleiðtogar í Portúg- al semja um endalok herfor- ingjastjómar og endurreisn lýðræðis. 1979: Bandarískir ráðherrar segja Bandaríkin tilbúin að beita hervaldi til að tryggja olíuflutninga frá Miðaustur- löndum. HÉRLENDIS gerðist þetta áþessumdegi: 1872: Póstþjónustunni breytt að þeirra tíma kröfum. 1930: „Stóra bomban“ grein Jónasar Jónssonar frá Hriflu í Tímanum um heimsókn Helga Tómassonar yfírlækn- is. 1974: Allsheijarverkfalli lýkur. AFMÆLISDAGUR þessara er 26. febrúar: Franski rithöfundurinn Vitor Hugo (1802-1885). Banda- ríski frumheijinn „Buffalo Bill“ (William F. Cody 1846—1917). Honore Daumi- er franskur listmálari (1808—1879). Bandaríski gamanleikarinn Jackie Glea- son árið 1916, látinn fyrir nokkrum árum. HÉRLENDIS fæðingar- dagur Björns Kristjánssonar ráðherra (1858). MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM Vélbáturinn Bjarni ridd- ari frá Haftiarfirði, 6 tonna bátur sem mjög var farið að óttast um, hvarf á leiðinni frá Hafiiarfirði til Þorlákshafnar fyrir um 4 sólarhringum. Með bátnum voru fimm menn. Þeir höfðu lent í hinum mestu hrakningum. Fyrir harðfylgi og sjómanns- kunnáttu tókst bátsverj- um að koma upp seglum. Um miðja aðfaranótt sunnudagsins tókst þeim að sigla inn á siglingaleið báta. Þar náðu þeir sam- bandi við vélbátinn Njál, sem dró bátinn til Hafiiar- fjarðar. Formaður á Bjarna riddara var Þor- steinn Sölvason. Hann hafði þá verið bátaform- aður í 25 ár og mundi ekki eftir jafii vondu veðri á sjó sem þessu. Hann hafði verið 60 klst. samfleytt við stýri bátsins er honum og félögum hans var bjargað. ORÐABÓKIN Ollið eða valdið Ég hef þótzt merkja það, að ýmsir ungir menn, sem komnir eru til starfa við Ríkisútvarpið og sjónvarpið, valdi ekki beygingu so. að valda — og er það miður. Ungur fréttamaður við sjón- varpið komst þannig að orði, þegar hann var hinn 16. þ.m, að lesa frétt kl. 23 um olíuskip, sem strandaði við Suðurheimskautið: „Olían hefur ollið meira tjóni en búizt var við.“ Og nokkru áður heyrði ég svipaða notk- un so. að valda í fréttum útvarpsins. Satt bezt að segja hélt ég, að allir þeir sem notið hafa kennslu í móðurmálinu, hefðu lært það, að lh. þ.t er valdið, en hvorki ollað né ollið. Vissu- lega verður því ekki neitað, að þetta eru talmálsmyndir, en þarflaust er að leiða þær til öndvegis og allra sízt í ríkisfjölmiðlum, sem eiga að vera til fyrirmyndar. Beyg- ingin er annars þessi: nh. valda - nt. ég veld - þt. ég olli — lh. þt. ég hef vald- ið. Er tæplega til of milils mælzt, að íjölmiðlamenn hafi yfir við hlustendur rétta beygingu orða. Annað er þeim ekki sæmandi. — JAJ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.