Morgunblaðið - 26.02.1989, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.02.1989, Qupperneq 13
MORGUNBLA-ÐIÐ SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1289 13 Sýning verður til Myndir taldar frá vinstri: Dansatriði úr söngleiknum On the Town í Jerome Robbins-sýningunni. Þessar yndismeyjar lögðu allt upp úr því að hafa þokka og kyngi í danstúlkun sinni og tókst það svo sannarlega. West Side Story er eitt af höfiiðverkum Robbins í söngleikadansi og það skipar stóran sess í nýju Broadway-sýningunni. Kóngurinn og ég er túlkaður i mjög glæsilegu dansatriði á Broadway-sýningunni. Robbins á frumæfingu með dönsurum, spáð i sporin. ari sýningu, um 150 manns bak- sviðs, 52 dansarar og 11 að auki sem kunna öll hlutverk, 6 dansstjór- ar sem halda öllu í formi og þannig er allt á dampi. Um næstu áramót verður þessi sýning sett upp í Tókýó og í Los Angeles, en um sýningu sem þessa er stofnað hlutafélag. Stærsti hluthafínn er Suntory- viský, en þeir keyptu hlutabréf fyr- ir 5 milljónir dollara og fá einkarétt- inn á sýningum í Japan og vita líklega alveg hvað þeir eru að gera því Japanir eru sólgnir í bandaríska söngleiki, dá þá hreinlega." Yöldu 60 dansara úr 3.000 dansara hópi Ljósmyndir/Martha Swope hefðu unnið með honum að stórum verkum. Hann horfði stundarkorn á mig, svaraði brosi mínu gagn- kvæmt og sagði: „Allt í lagi, en við verðum að fara út úr húsinu, því það er bannað að mynda hér inni.“ Ekkert mál, sagði ég og við tókum kóssinn út. Það var þá komin helli- rigning og ekki hundi út sigandi. „Við stelumst inn í hárgreiðsluher- bergið,“ sagði meistari danshöfund- anna og þar var myndin tekin. „Ég bið að heilsa landinu þínu,“ sagði Robbins þegar við kvöddumst," mér líkar svo vel við það, sérstaklega veðrið, það er svo skemmtilegt." Var heppinn, nýkominn í land af bátnum „Það var fyrir tilviljun að ég fór að vinna með ^Jerome Robbins," sagði Magnús. „Einar Sveinsson ballett dansari leigði íbúð með öðr- um og ég fór í hans pláss þegar hann fór. Sá sem bjó einnig í íbúð- inni vann í ballettinum og í gegnum hann kynntist ég Jerome Robbins og fór að vinna með honum. Það var reyndar í öðru verki en því sem nú er að komast á legg, en þessi fyrri sýning komst aldrei á fjalirn- ar. Það voru flórar stórstjömur sem ætluðu að koma því verki saman, Robbins, Leonard Bemstein með tónlistina, Stephen Sondheim með textann og John Guare, en leikritið var eftir Brecht. En eftir tveggja og hálfs mánaðar vinnu fór sam- vinna þessara snillinga út um þúf- ur, allt hmndi. Það vom haldnar fjórar sýningar fyrir vini og kunn- ingja og búið. En það var heilt ævintýri að vinna með þessum köll- .um öllum, sérstaklega með tilliti til þess að maður var rétt kominn í Iand af bátnum, nýskriðinn út úr skóla. Ég var heppinn, ég lék í þessari sýningu og það var góður skóli að vinna með þessum mönnum og maður kynntist mörgum. Sýning upp á nær 500 miiy. ísl. króna Þegar kom síðan, að þessari Broadway-sýningu sem við emm að ljúka við núna hringdi gamli maðurinn í mig, stálhress þótt hann sé orðinn 70 ára, og vildi fá mig til að aðstoða sig. Við eram tveir sem höfum verið aðstoðarmenn hans í verkefninu, skuggar hans algjörlega síðan þetta byijaði. Fyrst í stað var þetta endalaus heimilda- söfnun, því dansatriðin í þessari sýningu em mörg frá fimmta ára- tugnum og vom hvergi til skrifuð. Við þurftum því að finna dansar- ana, leita ljósmynda og nokkrar ólöglegar kvikmyndir komu í leitim- ar, Guði sé lof. Við náðum um síðir í allflesta dansarana, fólk sem var búsett í öllum fylkjum Banda- ríkjanna. Það mætti til New York í stúdíó niðri í bæ, en það var mik- ill höfuðverkur að hafa upp á þessu fólki, sérstaklega konunum sem vom giftar og bára nú önnur nöfn. En þetta var skemmtilegt þegar mannskapurinn var kominn á einn stað, gamalreyndir dansarar sem höfðu ekki tekið spor ámm saman, en það lögðust allir á eitt. Með uppriíjun atriða og spora, með að- stoð mynda, ólöglegra kvikmynda og annars sem til féll, var þráðurinn spunninn upp og stemmningin er öll sú sama. Tömin hefur staðið í 16 mánuði samfleytt og kostnaður- inn er kominn upp í 8,5 milljónir dollara eða á 5. hundrað milljóna í íslenskum krónum og til þess að hafa upp í kostnað þarf að vera uppselt á allar sýningar í 63 vikur. Þetta er fyrsta Broadway-sýningin þar sem miðaverðið fer upp í 55 dollara og það er nú kannski ekki til að hrósa sér af, en þetta hefur kostað mikið og Robbins sparar ekkert. 6-8 vikna æfingar er ekki óalgengur tími í söngleikjum, en ef Robbins heimtar 22 vikur þá er æft í 22 vikur og reyndar æfðum við í 23 vikur áður en opnað var á forsýningarnar sem hafa staðið í 7 vikur. Einnig það er óvenju langur tími fyrir framsýningu. Allir gömlu hönnuðimir vom settir á laun aftur og það er mikið mannahald í þess- „Jú, þetta hefur verið algjör ver- tíðarhrota þessi vinna, ekki frídagur síðan í ágúst í fyrra, nema jóladag- ur. Sá gamli er algjör vinnuþjarkur og auk þessarar sýningar vinnur hann jafnframt að nýju leikriti og ballett. Mesta ævintýrið í þessu verkefni var að fínna danshópinn. Samkeppnin er hörð í þessum bransa og við prófuðum 3.000 dans- ara til þess að velja 60 manna hóp. Það vom pmfur í New York, Chicago og Los Angeles og þessi þáttur tók 5 mánuði, allt lærðir atvinnumenn og allir prófaðir f dansi og söng. En nú er þetta á lokastigi. Á forsýningatímanum megum við breyta eins og okkur sýnist og þess vegna mega gagnrýnendur ekki koma á sýningamar fyrir framsýn- ingu. Það er venja hér að hafa for- sýningar með þessu móti og gert til þess að hlera áheyrendur með það fyrir augum að breyta og bæta sýninguna svo að hún falli fólki í geð. Það er svo dýrt að setja upp sýningar sem þessar að menn em að reyna að tryggja sýninguna og útiloka að sýning fái neikvæða umsögn hjá öllum gagnrýnendum. Reyndar er það svo að sumar sýn- ingar opna aldrei, deyja Drottni sinum áður en tjaldið er dregið frá, en að öllu jöfnu er þetta feikilega vel skipulagt og við ákváðum strax í júní hver opnunardagurinn yrði.“ Risinn í heimi danslistar og söngleikja Við vikum aftur talinu að Jerome Robbins. Hann varð sjötugur í haust, en vinnur af fullum krafti og Helgi Tómasson var einmitt í New York að sækja til hans ball- etta fyrir San Fransisco-ballettinn. Jerome Robbins hefur samið yfír 60 verk fyrir sígildan ballett, yfír 20 söngleiki, og hann hefur komið við sögu í tugum leikrita, kvik- mynda og sjónvarpsþátta, en að auki hefur hann tekið að sér að vera það sem kallað er sýningar- læknir í uppsetningu söngleilqa sem varð að bjarga með því að kalla til nýja menn. Meðal þessara söngleika má nefna: A Tree Grows in Brooklyn, Wish You Were Here, Wonderful Town, Silk Stockings og A Funny Thing Happened on the Way to the Forum. En meðal þeirra söngleikja Robbins sem hann hefur samið dansa við og stjómað í sumum tilvikum, má nefna On the Town, Billion Dollar Baby, High Button Shoes, Look Ma, I’m Dancin’ , Miss Liberty, Call Me Madam, The King and I, Two’s Company, Pajama Game, Peter Pan, Bells Are Ringing, West Side Story, Gypsy, Funny Girl og Fiddler on the Roof. Jerome Robbins hefur unnið til ótal verð- launa fyrir listsköpun sína, enda er hann viðurkenndur risi á þessu sviði heimsmenningarinnar. 450 búningar í Jerome Robbins-sýningunni „Á forsýningunum vinnum við að því að hnýta upp alla enda, tengja tækni og atburðarás, skerpa og fága, spá í atriðaröðina og núm- erin em prófuð í misjafnri röð. Það er ótrúlegur hraði í öllu og varla sá búningur að hann hrynji ekki af dansaranum með frönskum rennilás, enda er hlutverkasúpa í þessari sýningu og alls um 450 búningar. Leikhúsgestimir sjá ótrú- lega fimi dansaranna á sviðinu, en tilþrifín baksviðs þegar enginn tími er í raun til að skipta um búninga era með ólíkindum og ættu oft heima á sviðinu sjálfu. En allar þessar kröfur, hraðinn og erfíð at- riði kalla á mikla slysatíðni. Þess vegna þarf svo marga sem kunna öll atriðin. í þessar 23 vikur sem stanslausar æfíngar stóðu yfír var unnið í 10 tíma á dag. Það er dans- að og dansað af lífí og sál. Þetta er mikil hópvinna og strembin. Fyrst hópvinnan þar sem gömlu dansaramir komu til leiks og vissu- lega vom það skemmtilegustu dag- amir í öllum þessum búskap. Að sjá alla gömlu dansarana upplifa dansinn á ný, fá að vera þátttak- andi í stemmningunni, og svo hitt að sjá þessar tvær kynslóðir mæt- ast á miðri leið, þá gömlu sem em löngu hættir á sviðinu og þá ungu sem era að taka við eða em nýbyij- aðir. Maður fann vissa öfund hjá þeim gömlu í garð þeirra yngri og vissa forvitni hjá þeim yngri, for- vitni sem fjaliaði eiginlega um spuminguna hvort þeir sjálfir myndu eldast og hætta að dansa. Það er því búin að vera all löng leið að settu marki og þar sem um atriði úr mörgum söngleikjum er að ræða þá þurftum við að koma á kynningaratriðum á milli til þess að tengja á eðlilegan og hag- kvæman hátt. Stærð verkeftiisins er ótrúleg Þú spyrð hvað sitji helst eftir í verklok? Aðallega stærðin. Það er stærðin sem fer fyrir brjóstið á manni, að nokkur maður skuli nokkum tíma hafa ráðist í þetta. Það er enginn höfundur nema Jer- ome Robbins í þessu, hann einn vann alla vinnuna að baki. Stundum fannst ekkert og hann var búinn að endursemja. Síðan fannst mynd og þá var breytt til þess sem hafði verið áður. Þetta hefur verið hörð vinna og góður skóli. Ég hef lært mikið og það hefur verið merkileg reynsla að vinna að því að laga atriði að aðstæðum og láta aðstæð- ur aðlagast atriðum, láta allt ganga upp í sviðssetningu, en nú er þetta á lokastigi. Barnið er að fæðast og framundan er að taka frí, skreppa heim til íslands og anda aðeins að sér sjávarloftinu áður en ráðist er í næsta verk, sem reyndar er óráð- ið, en sitthvað liggur í loftinu.“ teiknara blaðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.