Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.02.1989, Blaðsíða 29
________________. . . í M0RGUNBLAÐl6"ItlNÍÍÚDAGUR~l«^:^'M Snjall innheimtumaður Kaupmannahöfh. Frá Grími Friðgeirssyni fréttaritara Morgunblaðsins. ELIN Schnedler 34 ára dönsk ur starfað við kennslu síðustu sex kona fv. ritari og kennari fann eigin leið til að afla tekna. Eiín gerir dönskum fyrirtækjum til- boð sem þau eiga erfitt með að hafna. Hún býðst til að rukka inn virðisaukaskatt sem fyrir- tækin eiga inni erlendis. Þetta er fé sem annars er afskrifað. að var fyrir einskæra tilviljun að ég komst yfír upplýsingar þess efnis að dönsk fyrirtæki gæf- ust hreinlega upp við að rukka inn um 100 milljónir danskra króna árlega erlendis frá“, segir Elín. Þessi upphæð er tilkomin vegna virðisaukaskatts sem samkvæmt reglum á að greiða til baka. „Þetta þótti mér áhugavert", segir Elín, „ég athugaði málið nánar og víst fólk staðfesti upp- hæðimar. Takmarkið er að ná þessum peningum til baka til Dan- merkur." Elín er m.a. menntuð sem ritari og hefur starfað sem slík fyrir Efnahagsbandalagið í Luxemburg. Reynslan á alþjóða- vettvangi kemur henni því til góða. Elín er menntaður kennari og hef- ár. Laun Það er erfítt að segja til um hve mikið ég fæ í minn hlut, fyrirtækin hafa flest afskrifað þessar upphæð- ir, vegna þess að þær eru yfírleitt ekki mjög háar og skriffínnskan ótrúleg ef ná á fénu inn. Það er ekki auðvelt, er maður reynir í fyrsta skipti að komast í gegnum umsókn um endurgreiðslu t.d. á grísku. Mitt tilboð er fólgið í því að ná peningunum heim til Danmerkur og umbun fæ ég fyrst þegar fyrirtækin, mínir viðskipta- vinir hafa fengið upphæðimar í hendur. Elín segist hafa reynt fyrst að ná í upplýsingar hjá tollinum, ut- anríkisráðuneytinu, viðskiptaráðu- neytinu og á fleiri stöðum í svipuð- um dúr, ‘en ávallt skorti á það sem virkilega þurfti til að geta hreinlega rakkað inn. Hún reyndi einnig hjá stofnunum Efnahagsbandalagsins, hjá gömlum vinnufélögum, en illa gekk. Það sem bar árangur að lokum var hreinlega að kynna sér lög og reglur, og hvernig þeim er fram- fylgt í hveiju landi fýrir sig. Þessar athuganir Elínar hafa fullvissað hana um að það vantar tilfinnanlega sérfræðinga á þessu sviði. Reglur og hvemig þeim er fram- fylgt er ákaflega misjafnt frá einu landi til annars og er þessvegna ákaflega erfítt, jafnvel fyrir stærri fyrirtæki að standa í þessum inn- heimtum. Útgjöld Astæða upphæðanna erlendis, er t.d. vegna kostnaðar við vörusýn- ingar, hótelkostiiaður, bílaleigu- bílar, símaleiga, leigubílakostnaður, eldsneyti, vegatollar og auglýs- ingar. Elín býður aðstoð sína í Efna- hagsbandakagslöndunum ásamt Austurríki. Hingað til hafa það að- allega verið fyrirtæki á Vestur Jót- landi sem hafa verslað við Elínu, en hún auglýsir þjónustu sína nú um allt land. Undirtektir fyrirtælqanna virðast ætla að vera ótrúlega góðar á þess- ari snjöllu hugmynd hinnar ungu konu, að ná inn annars íjlötuðu fé. Tæplega 2700 umsókn- ir liggja hjá Liðsauka Svipað hlutfall karla og kvenna RÚMLEGA 3.200 manns hafa sótt um störf hjá Liðsauka frá 1. júní 1988, eða fra'þeim tíma sem fyrirtækið tók í notkun fúllkomið tölvukerfi, að sögn forráðamanna fyrirtækisins. Enn eru í gildi um 2.680 um- sóknir, en 665 manns hafa feng- ið störf eða látið taka sig af skrá af öðrum ástæðum. Um 55% umsókna era frá kon- um eða 1.475 og 45% frá Yngrien 20-29 30-39 40 ára 20 ára ára ára ogeldri Konur 6% 55% 23% 16% Karlar 4% 51% 30% 15% körlum eða 1.205. Áberandi er að 48% þeirra kvenna, sem eru í leit að framtíðarstarfí óska eftir að starfa á skrifstofu; við almenn skrifstofustörf, ritarastörf eða bókhaldsstörf. En svo til sama hlutfall kvenna og karla era í leit að framtíðarstarfí, þar af óska 25% kvenna eftir hlutastörfum og 6% karla. Meira en helmingur allra um- sækjenda af báðum kynjum era á aldrinum 20-29 ára, eins með meðfylgjandi yfírlit yfír aldurs- dreifíngu umsækjenda sýna: JOÍIOM m Annað Stærð fyrirtækis og nýting tækni Skort á hæfum starfsmönnum Fj ármögnunarvandamál *—i—i—i—i—i—i—i—i—i 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% 45% Hindranir á fjárfestingu í nýrri tækni. 60% fjárfestu í nýrri tækni í KÖNNUN, sem Félag íslenskra iðnrekenda stóð fyrir á síðasta ári kom í ljós, að í tæpum 60% fyrirtækja, sem tóku þátt, var fjárfest í nýrri tækni á árinu 1987 og nam fjárfestingin um 5% af veltu. Einnig kom fram, að í 70% fyrirtækjanna var búist við að fjárfesta í nýrri tækni á árinu 1988 og í 67% fyrirtækj- anna á árinu 1989. Hjá aðildarfyrirtækjum FÍl starfa rúmlega 8.200 manns í 2140 fyrirtækjum og bárast svör frá 77 fyrirtækjum með um 4300 starfsmenn. Könnunin var í megin- atriðum tvíþætt. í fyrri hlutanum var athuguð fjárfesting fyrirtækja í nýrri tækni og í seinni hlutanum framlag fyrirtækja til vöraþróunar og þróunar á nýjum framleiðsluað- ferðum. Þá var einnig spurt um óvænta erfiðleika sem upp komu, hver áförm næstu ára era og hvaða hindranir séu helstar fyrir nýrri tækni eða þróunarstarfsemi. í ljós kom að 30% fyrirtækjanna lentu í óvæntum erfiðleikum og bar þar mest á tænilegum vandamálum við uppsentingu og notkun. Athugað var hvort í fyrirtækjun- um væri talið að einhverjar hindran- ir væra á fjárfestingu í nýrri tækni og þá hvetjar. Meirihlutinn telur að hindran eða flöskuháls standi í veginum. Fjármögnunarvandamál og skortur á hæfum starfsmönnum era þau atriði sem oftast era nefnd í þessu sambandi. ------♦ ♦ ♦--- Nýr skrif- stofustjóri á Hagstofunni SKÚLI Guðmundsson hefúr ver- ið skipaður skrifstofustjóri í Hagstoúi íslands, þjóðskrá, frá 1. janúar 1989, en hóf störf 1. febrúar sl. Skúli er fæddur 20. mars 1953. Hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum við Tjömina árið 1973 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla íslands vorið 1986. Að loknu embættisprófi hóf hann störf sem fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu og var settur deildarstjóri þar 1. febrúar 1988. Eiginkona Skúla er Sigríður Jó- hannesdóttir hjúkranarfræðingur. Fastar hópferðir til ALGARVEog ESTORiL í sumar. Sól, sjór og skemmtun í ógleymanlegri nóttúrufegurð. Poriúgal er paradís fjölskyldufólks. GISTISTAÐIR OKKAR ERU í SÉRFLOKKI. Auk þess úrval góðra hótela í Lissabon. Aætlunarflug um London 2-3 vikur. Hægt að stoppa þar ó bakaleið. Oendanlegir ferðamöguleikar með flugi og bíl. Algarve: Vib Magna í Albufeira og Montechoro. Estoril: Mimosa Country Club og Estoril Eden Suite. FERÐASKRIF5TOFAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.