Morgunblaðið - 26.02.1989, Side 31

Morgunblaðið - 26.02.1989, Side 31
801 HAÚflaa'H ,9S HUgAQUMMUy, 8\flU U I díll*Í IJJOl QIGAJaHUOHOM MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1989 08 t 31 JACKSON-ÆÐIÐ Einn tveir þrír og snúa... Brúðhjón vikunnar, Jón R. Miller og Ragnhildur Rúriksdóttir. BRUÐHJON VIKUNNAR Svikin um brúðarmarsirm vegna rafmagnsleysis að má segja með sanni að karl- kynið hafi verið allsráðandi í dansskólanum Dans Nýjung einn góðviðrisdag í vikunni, og svo er víst flesta daga. Þennan dag voru ijörtíu litlir strákar að æfa Funk- dansspor Michaels Jacksons við dúndrandi tónlistina. Það er sögu- legur atburður að herramir í danstímum séu orðnir fleiri en döní- urnar og að sögn Kolbrúnar Aðal- steinsdóttur danskennara hefur aldrei neitt þessu líkt gerst áður. Strákarnir litlu æfa sporin af ótrúlegri einbeitni. Tveir piltar höfðu þó gleymt sér augnablik. „Slagur slagur, kennari það er slag- ur“ hrópuðu nokkrir nemendanna æstir. Og mikið rétt. Piltur tekinn haustaki í miðium danstíma. En Kolbrún kunni lag á þeim. Þrum- andi tónlistin, taktföst spor piltanna og hnykkir fönksins vom allsráð- andi næstu mínúturnar. Skömmu síðar birtist maður og er engu líkara en Michael Jackson sjálfur sé mættur. Það er þá Peter Van Meer, 21 árs Hollendingur sem síðastliðin fimm ár hefur æft sig í að líkja eftir átrúnaðargoðinu. Hann segir þetta ekki vera hans aðalstarf heldur aðeins áhugamál. Ferill hans hófst með einni sýningu í sjónvarpsþætti og kemur hann nú víða fram opinberlega. Er þetta í annað sinn sem hann kemur hing- að, á vegum skemmtistaðarins Kúbu, og fer hann af landi brott í dag, sunnudag. að var heldur óvenjuleg hjónavígsla sem fram fór í Dómkirkjunni á hinum sanna degi hjónabandsins þann 12. febrúar er séra Bragi Friðriksson gaf saman þau Ragnhildi Rúriksdóttur leiklist- arnema og Jón R. Miller verkfræð- ing. - Aður en athöfninni lauk sátu menn skyndilega í ljóslausri kirkju . . . rafmagnið hafði farið af. Margir kirkjugestir hófu upp raust og sungu sálminn „Son Guðs ert þú með sanni“ án hjálpar organ- istans en lítið þýddi fyrir hina að fálma eftir sálmabók. Enginn var þá brúðarmarsinn er Jón leiddi brúði sína úr kirkju. Nokkrir mættu í veisluna nýstignir úr flensu, áttu glaða stund við kertaljós, en flestir voru famir að hríðskjálfa áður en yfir lauk. „Þetta var mjög rómantískt, stúlka ein í veislunni hafði á orði að svona vildi hún hafa sitt brúð- kaup. Presturinn hafði nýlokið við að gefa okkur saman og við vorum í miðri bæn þegar rafmagnið fór af. Hann hélt áfram að biðja en ég hugsaði „hvað gerist næst“ því þetta var til þess að kóróna það sem á undan var gengið," segir Ragn- hildur, 25 ára, dóttir Rúriks Har- aldssonar leikara og Önnu Sæ- bjömsdóttur. En hvað hafði gengið á . . . annað en rafmagnsleysi? „Við ætluðum að láta gefa okkur saman í Bessastaðakirkju þann sama dag. En ófærðin hafði verið mikil og bað séra Bragi okkur að hafa í huga að við gætum þurft að skipta um kirkju. Sú varð raunin og því var laugardagskvöldinu eytt í að hringja i alla gestina, hundrað talsins, tilkynna þá breytingu og að veislan yrði í Garðabæ en ekki á Álftanesi. Margir tóku þessu sem hveiju öðra aprílgabbi, enda voru nöfnin okkar orðnar einu marktæku upplýsingamar á boðskortunum. En þrátt fyrir mikið stress fór allt vel, það náðist að gefa okkur sam- an fyrir myrkur." íbygginn bætir brúðguminn því við að þetta hafi nú ekki verið alit. Hann hafði þá ásamt svaramannin- um, bróður sínum, beðið „óþægi- lega“ lengi eftir brúðinni í kirkj- unni. Jón, sem á íslenska fjölskyldu í móðurætt en er fæddur og uppal- inn í Bandaríkjunum, hvislaði að svaramanninum, bróður sínum að þar í landi hefði hann öragglega verið búinn að taka hatt sinn og staf. Svaramaðurinn hughreysti hann. En hvað olli töfinni? I hvass- viðrinu höfðu blómin í brúðarvend- inum tvístrast á síðustu stundu. Hvoragt þeirra vill leggja nokkra táknræna merkingu í alla fyrir- höfnina eða spennufallið, nefna þó að þau hafi „átt“ að giftast og senda hvort öðru hlýlegt bros. Þau hafa síðastliðin ár verið i „millilandasam- bandi“ -og segjast því hlakka mikið til að vera saman og spara flug- miða og símtöl. Oft hafi aðskilnað- urinn verið bæði langur og strang- ur. Þegar þetta birtist verða hjónin að öllum líkindum á vegum úti, akandi frá heimili Jóns í Orlando í Flórída til Los Angeles, með hund- inn sinn í skreyttum bíl, merktum ,just married“ eða „nýgift". Þau giftu sig ■ Jón R. Miller og Ragnhildur Rúriksdóttir, Bandaríkjunum ■ Steindór Rúnar Ágústsson og Lilja Guðrún Friðriksdóttir, Reykjavík Hér með er óskað eftir nöfnum þeirra sem gengið haf a í hjóna- band nýverið. Vinsamlegast hringið í síma 691162 á skrif- stofutíma eða sendið upplýs- ingar um nöfn brúðþjóna og brúðkaupsdag, ásamt sima- númeri. Umslagið skal merkt: Morgunblaðið „Fólk í fréttum" Pósthólf 1551,121 Reykjavík. Öryggisbók -Trompbók Tvær í oruggum vexti Sparisjóðirnir bjóða tvo góða kosti sem henta mismunandi þörfum sparifjáreigenda. TROMPBÓK er nýtt og betra Tromp - alltaf laust og án úttektargjalds. - Vaxtaauki reiknast um áramót á óhreyfða imistæðu. 67 ára og eldri fá hærri vaxtaauka en aðrir við- skiptavinir. ÖRYGGISBÓK er bundinn 12 mánaða reikningur með stighækkandi vöxtum á allri upphæðinni eftir því sem inn- stæðan liækkar. Á báðuin bókum er ávöxtun þeirra borin saman við verðtryggð kjör og vexti tvisvar á ári og sú ávöxt- uu látin ráða sem hagstæðari er sparifjáreigendum hverju sinni. SftSPARISJÓÐIRNIR —fyrir pig og þína

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.