Morgunblaðið - 19.04.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1989
Innflutningur landbúnaðar-
vara óheimill fiillnægi innan-
landsfiramleiðsla efitirspurn
ALLUR innflutningur á landbúnaðarvörum er bannaður sam-
kvæmt búvörulögunum nema staðfest sé að innlend framleiðsla
fiillnægi ekki neysluþörfinni. Að sögn Sveinbjarnar Eyjólfssonar
deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu er því innflutningur á
mjólk, kindakjöti, nautakjöti, svínakjöti, kjúklingum og eggjum
ekki leyfður þar sem nóg er framleitt af þessum vörum innan-
lands.
í lögum frá 1985 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á
búvörum segir að áður en ákvarð-
anir séu teknar um inn- og út-
flutning landbúnaðarvara skulu
aðilar sem með þau mál fara (land-
búnaðarráðuneytið) leita álits og
tiilagna Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Innflutningur á land-
búnaðarvörum skuli því aðeins
leyfður að Framleiðsluráð stað-
festi að innlend framleiðsla full-
nægi ekki neysluþörfinni. Inn-
flutningur á hráum og lítt söltuð-
um sláturafurðum hveiju nafni
sem nefnast er bannaður sam-
%-k
Abendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Bann við gæsaveiðum
Af gefnu tilefni vill lögreglan vekja athygli á ákvæðum
laga nr. 33/1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun, um bann
við gsæaveiðum frá 15. mars til 20. ágúst. Ákvæðin ná til
fugianna, eggja þeirra og hreiðra og gilda á landinu öllu og
innan landhelgi. Hver sá sem gerist sekur um ólöglegar fugla-
veiðar skal sæta sektum og er heimild fyrir upptöku veiði-
tælqa samkvæmt ákvæðum hegningarlaga. Það er ekki til
fyrirstöðu upptöku veiðitækis að annar en eigandi þess hafi
gerst brotlegur við lögin. Tilraun til ólöglegra fuglaveiða
sætir réfsingu sem fullframið brot. Hlutdeild í ólöglegum
fuglaveiðum er refsiverð.
Hreppstjórar fyrir hönd veiðiréttarhafa í umdæmum sínum
geta sótt um undanþágu frá fuglafriðunarákvæðum til ráðu-
neytis er grágæsir valda miklum og almennum spjöllum á
nytjagróðri. Enginn getur tekið það upp hjá sjálfum sér að
afgreiða slík mál.
Lögreglan tekur undir áskorun Skotveiðifélags íslands þess
efnis að skotveiðimenn virði óskráðar siðareglur og íslensk
lög, sem banna dráp gæsa á vorin. Fuglamir eru á leið til
varpstaða og sumarheimkynna hér á landi eða hafa hér við-
dvöl á leið til ennþá norðlægari staða. Það er ekki einungis
í þágu fuglanna að nauðsynlegt er að virða gildandi lög held-
ur og í þágu veiðimannanna.
kvæmt lögum frá 1928 um varnir
gegn því að gin og klaufaveiki og
aðrir alidýrasjúkdómar berist til
landsins.
Um innflutning á kartöflum,
nýju grænmeti, sveppum og blóm-
um segir í sömu lögum að land-
búnaðarráðherra veiti til þess leyfi.
Að fengnum meðmælum nefndar,
sem skipuð er tveimur fulltrúum
framleiðenda, tveimur fulltrúum
innflytjenda og oddamanni til-
nefndum af landbúnaðarráðherra,
getur hann ákveðið að innflutning-
ur tiltekinna vara skuli tímabundið
vera undanþeginn leyfisveitingu.
Innflutningur þessara vara skuli
því aðeins leyfður að innlend fram-
leiðsla anni ekki eftirspurn.
Að sögn Sveinbjarnar Eyjólfs-
sonar hefur helst verið leitað eftir
leyfi til innflutnings á osta- og
eggjadufti og hafi það oft á tíðum
verið veitt í litlu magni og þá helst
til einhvers konar tilraunafram-
leiðslu. Sá innflutningur hafi þá
yfirleitt farið fram á vegum Mjólk-
ursamsölunnar og hafi það síðan
sýnt sig að markaður hafi mynd-
ast fyrir tlteknar vörur hér á landi
þá hafi verið tekin upp framleiðsla
á þeim.
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Olgeirsson, hótelstjóri á Hótel Esju, í einu af hinum nýupp-
gerðu herbergjum á hótelinu.
Hótel Esja:
Endurbætur gerðar fyr-
ir 120 milljónir króna
„ÖLL HERBERGIN á Hótel Esju, 135 talsins, hafa verið gerð
UPP komin eru ný húsgögn í þau. Einnig voru gerðar endur-
bætur á baðherbergjum og stigagöngum. Hótelið er sem nýtt
og framkvæmdirnar kostuðu 120 milljónir króna,“ sagði Einar
Olgeirsson, hótelstjóri á Hótel Esju, í samtali við Morgunblaðið.
„Það var tekin sú ákvörðun að
gera endurbætur á hótelinu í stað
þess að byggja við það,“ sagði
Einar. Hann sagði að þessar fram-
kvæmdir hefðu hafist í nóvember
síðastliðnum og vinnustofan
Klöpp hefði haft umsjón með
þeim. „Esjuberg var minnkað um
helming og settur var upp Pizza
Hut-veitingastaður,“ sagði Einar
Olgeirsson.
Vaxtabreytingar bankanna:
Lítil áhrif á markaðsvexti
Vaxtabreytingar bankanna, sem gengu í gildi þann 11. þessa
mánaðar Iijá sumum bankanna og koma munu til framkvæmda
þann 21. hjá öðrum, hafa ekki bein áhrif á markaðsvexti á verð-
bréfamörkuðum. Þar hafa raunvextir nýlega Iækkað nokkuð og
er búist við að þeir muni lækka enn frekar, eða sem nemur 0,25%,
á næstu mánuðum.
„En þetta stefnir
í sömu átt,“ segir
„Við vorum nýbúnir að lækka
vexti af bankabréfum, úr 9,2% í
8,5%,“ segir Sigurður B. Stefánsson
hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar-
bankans. Hann segir markaðinn
vera í ýmsum hlutum. Ef lánum er
líkt við vörur megi segja að um
margar vörutegundir sé að ræða
þar sem eru hin mismunandi láns-
form. Verðið á vörunum, það er
vextirnir, er mismunandi og hreyf-
ist ekki á sama tíma í öllum hlutum
markaðarins.
vissulega allt
hann.
Gunnar Helgi Hálfdanarson
framkvæmdastjóri hjá Fjárfesting-
arfélaginu segir að bein áhrif vaxta-
breytinga bankanna á verðbréfa-
markaði séu engin, en hins vegar
hafi verið í farvatninu 0,25% lækk-
un markaðsvaxta og hennar verði
líklega vart á næstunni.
Garðyrkjuskóli ríkisins:
Opið hús
á sumar-
daginn
fyrsta
Á Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfúsi hefúr skapast
hefð fyrir þvi að hafa opið hús
á sumardaginn fyrsta annað
hvert ár. Á þessum árstíma er
garðskáli skólans í miklum
blóma. Þetta er stærsti gróður-
skáli landsins og þannig fyrir
komið að fólk i hjólastólurn
getur skoðað hann.
Nemendur skólans standa fyrir
þessu opna húsi og munu hafa
ýmislegt á boðstólum. Má þar
nefna sölu á pottaplöntum, græn-
meti og kaffíveitingum ásamt
fleiru. Þetta er aðal fjáröflun nem-
enda fyrir námsferð til Englands
sem fyrirhuguð er í sumar.
Hluti af gróðurhúsum skólans
verður gestum til sýnis og er ban-
anahúsið þar frægast. Kynning
verður á skólanum og verkefni
nemenda verða til sýnis. Einnig
verður kynning á tijápiöntum og
leiðbeiningar um val á þeim, t.d.
í sumarbústaðalönd. Landslags-
arkitektar verða á svæðinu og
svara fyrirspumum gesta og fyrir-
tæki kynna vörur tengdar garð-
yrkju.
Skólinn opnar kl. 10.00 og
verður opinn til kl. 18.00. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Sumardagur-
inn fyrsti á
Seltjarnarnesi
Kvenfélagið Seltjörn verður
með sína árlegu kaffisölu I fé-
lagsheimili Seltjamamess
fimmtudaginn 20. apríl og hefst
hún klukkan 14.30. Einnig
verður sölusýning á handa-
vinnu eldri bæjarbúa á Mela-
braut 5—7, jarðhæð. Hefst hún
klukkan 14.
Síðasta starfsár hefur kvenfé-
lagið Seltjöm látið mjög til sín
taka. Meðal annars héldu félags-
konur að venju jólatrésskemmtun
fyrir böm á Seltjamamesi og
buðu eldri bæjarbúum í dagsferð
að Hruna í Hrunamannahreppi.
Á árinu hefur kvenfélagið gefið
með mjög góðri aðstoð frá bæj-
arbúum 250 stóla í Seltjamames-
kirkju, gefið bijóstamjaltavél á
Heilsugæslustöðina og styrkt
Krísuvíkursamtökin.
Stórsveit Tónlistarskóla Selt-
jarnamess mun koma á kaffisöl-
una og flytja nokkur lög. Ágóði
af kaffísölunni rennur til fyrir-
hugaðrar dagsferðar eldri bæj-
arbúa 10. júní nk.
Formaður félagsins er Bára
Vestmann.
Sumri fagnað
við Fellahelli
Sumardagurinn fyrsti verð-
ur haldinn hátíðlegur við Fella-
helli í Breiðholti eins og undan-
farin ár. Dagskráin verður Qöl-
breytt og margt á boðstólum
jafint fyrir unga sem aldna.
Dagskráin sem hefst klukkan
14 og stendur til miðnættis
verður eftirfarandi:
Dagskráin hefst klukkan 14
með skrúðgöngu við Fellahelli og
stjómar Homaflokkur Kópavogs
göngu um hverfið.
Klukkan 15 hefst dagskrá inni
og úti við Fellahelli og verður
margt til skemmtunar. Hljóm-
sveitin Síðan skein sól leikur fyrir
dansi í Fellahelli frá klukkan 21.
Vetur verður kvaddur og sumri
heilsað með flugeldasýningu
klukkan 23.30.
Kópar með
sumardagskrá
í Kópavogi
Á sumardagsins fyrsta í Kópa-
vogi er að þessu sinni í umsjá
skátafélagsins Kópa.
Dagskráin hefst. með skáta-
messu í Kópavogskirkju klukkan
11. Klukkan 13.15 verður safnast
saman við menntaskólann í Kópa-
vogi og gengið frá MK að íþrótta-
húsinu Digranesi. Klukkan 14
hefst skemmtidagskrá í íþrótta-
húsi Digranesskóla. Urtur verða
með kaffisölu í Félagsheimili
Kópavogs og íþróttahúsi Digra-
nes.
Sumardagskrá
í Frostaskjóli
Félagsmiðstöðin Frostaskjól
gengst fyrir hverfis- og Qöl-
skylduhátíð á sumardaginn
fyrsta.
Dagskráin hefst klukkan 13.30
með skrúðgöngu undir stjóm
Lúðrasveitar Verkalýðsins. Lagt
verður af stað frá Melaskóla,
gengið Fomhaga, Ægisíðu að
KR-heimilinu við Frostaskjól.
Boðið verður upp á þrauta-
braut, dósakast, hringjakast,
boltatrúð, pílukast, stultur, mini-
golf o.fl. Skemmtiatriði verða:
Bamakór Austurbæjarskóla, Tóti
trúður, Maggi Jackson, danssýn-
ing o.fl.
Einnig er hægt að láta spá fyr-
ir sér og fara í ýmsa leiki. 3. fl.
KR í handbolta kvenna verður
með kökubasar og selt verður
kaffi.
Sumar-
skemmtun
Krabbameins-
félagsins
Krabbameinfélag íslands
stendur fyrir sumarskemmtun
í Háskólabíói á morgun, sumar-
daginn fyrsta, og verða það
fyrst og fremst börn sem sjá
um skemmtiatriðin. í firéttatil-
kynningu frá Krabbameinfé-
laginu kemur fram að hér sé
um fjölskylduhátíð að ræða.
Meðal skemmtiatriða má nefna
að Eiríkur Fjalar kemur í heim-
sókn.
Bömin sem skemmta hafa
stundað nám í tónskólum og dans-
skólum, auk bamaskóla, í vetur
og verða á dagskrá atriði sem þau
hafa æft í vetur. Allir skemmti-
kraftamir leggja fram vinnu sína
án endurgjalds og allur ágóði
rennur til Krabbameinsfélags ís-
lands. Kynnir hátíðarinnar verður
Sigrún Waage leikkona kynnir.
Aðgöngumiðar verða seldir í húsi
Krabbameinsfélags íslands milli
kl.13.00 og 16.00 í dag, en í
Háskólabíói á morgun frá klukkan
13.00.
Börnin í
Breiðholtinu
„Bömin í Breiðholtinu" heitir
myndlistarsýning sem haldin
verður í Gerðubergi á morgun,
sumardaginn fyrsta, en verkin á
sýningunni eru eftir börn, sem
dvelja á dagvistunarheimilum í
Breiðholti. Munu þau verða tii
staðar meðan á sýningunni stend-
ur og vera þar með skemmtidag-
skrá bæði á morgun og þá daga
sem sýningin stendur til viðbótar,
en henni lýkur 1. mai.