Morgunblaðið - 19.04.1989, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1989
41
FRÍMERKI Halló!
Er einhver sem vill skiptast á notuðum, nýlega póststimpluðum
frímerkjum við mig?
Ég hef áströlsk, belgísk, frönsk og hollensk á móti þeim íslensku.
M. Meijer, rue au Bois 250, 1150 Brussels, Belgium.
Þessir hringdu ...
Kettlingur á flækingi
Kona hringdi.
Svarthvítur kettlingur með
svarta ól er á flækingi í Smáíbúða-
hverfinu. Eigandi vinsamlegast
hringi í síma 37721.
Gulbröndóttur högni
fannst
Sigrún hringdi.
Gulbröndóttur högni með hvíta
bringu fannst aðfaranótt föstu-
dags við Skúlagötu. Hann er
ómerktur. Upplýsingar í síma
11816.
Kisa á flækingi í
Vesturbænum
Kona í Vesturbænum hringdi.
Svartur högni með hvítt trýni,
bringu og tær er á þvælingi milli
KR-heimilisins og Vegamóta. Af
því að dæma hversu gæfur hann
er tel ég að ekki séu meira en
1-2 mánuðir síðan hann fór að
heiman. Upplýsingar í síma
21805.
Gleraugu týndust
Sigurjón Davíðsson hringdi.
Fyrir helgi týndi ég vönduðum
gullspangargleraugum við Miðbæ
á Háaleitisbraut. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 40863.
Kápuskipti
Helga Þorsteinsdóttir
hringdi.
Kápuskipti urðu í Félagsheimili
Kópavogs á fimmtudagskvöld á
kvenfélagsfundi. Einhver tók grá-
fjólubláa kápu beltislausa í stóru
númeri en skildi eftir litla ljósgráa
númer 16 með belti. Sú sem tók
gráfjólubláu kápuna vinsamlegast
hafi samband í síma 14139.
Hálfsíömsk læða týnd
Rakel hringdi.
Svört læða, hálfsíömsk, hvarf
að heiman frá Háteigsvegi á mið-
vikudag. Kisa, sem er fíngerð og
lítil, er með númerið T-8294 tatt-
óverað í annað eyrað. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 18551.
Fundarlaun.
Silkiklútur tapaðist
Fanney Halldórsdóttir hringdi.
Siðastíiðinn fimmtudagsmorg-
un glataði ég svörtum frönskum
silkiklút með frönsku mynstri,
sennilega á leiðinni frá Fellsmúla
9 að strætisvagnabiðskýlinu á
Háaleitisbraut þar sem ég tók
vagn númer sjö. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 31368 eða
10658.
Lyklar í Blómvangi
Þuríður Sigurjónsdóttir
hringdi.
Fyrir hálfum mánuði fannst
lyklakippa með 9 lyklum í Blóm-
vangi í Hafnarfirði. Upplýsingar
í síma 53110.
Hringnr í óskilum
Ólöf hringdi.
Enn hefur enginn sagst eiga
gullhringinn sem fannst í
Sundlaugunum í Laugardal
föstudaginn 7. apríl. Upplýsingar
í síma 32122 á kvöidin.
Innhverf íhugun
Tæknin innhverf íhugun hefur verið kennd hérlend-
is í meira en 15 ár. Hún er margrannsökuð leið til
að draga úr streitu og spennu og stuðla að þróun
hugar og líkama. Tæknin er auðlærð og auðvelt
er að iðka hana. Nánari upplýsingar (síma 26031.
Kynningarfyrirlestur í menningarmiðstöðin Gerðu-
bergi í kvöld kl. 20.30.
íslenska íhugunarfélagið.
Maharishi Mahesh Yogi
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 3995,-, 5500,-, 7995,- og 9995,-
Terylenebuxur kr. 995,- og 1195,-
Skyrtur, gallabuxur, flauelsbuxur o.fl. á lágu verði.
Síðasta útsöluvika.
Andrés,
Skólevörðustíg 22, sími 18250.
Flug FI903
til Las Palmas
Þolinmóður skrifar:
Þann 3. mars sl. fór Fiugleiðavél
með ofanskráð flugnúmer, í loftið
einni klst. og 15 mín. seinna en
áætlað var. Seinkanir hjá þessu
flugfélagi okkar upplifir fólk því
miður alltof oft.
Flugvélin var þéttsetin fölu fólki
sem var að fara í kærkomið vetrar-
frí til Kanaríeyja. Greinilegt var að
a.m.k. sumar flugfreyjurnar voru
þreyttar og pirraðar, hvort sem það
var vegna vöru- og vistaskorts í
vélinni eða af öðrum orsökum. Þá
var okkur fljótlega tilkynnt að milli-
lenda þyrfti í Lissabon til þess að
taka eldsneyti. Þetta vissu engir
farþeganna fyrirfram, sem nú héldu
að e.t.v. yrði þá bætt úr vistaskorti
um borð í vélinni í leiðinni, far-
þegum til gleði og flugfreyjum til
léttis. Því miður rættist það ekki.
Ekki var komið til Las Palmas
fyrr en eftir miðnætti og flugtími
þá orðinn svipaður og flug til New
York. Ekki var áð sjá að aðrar vél-
ar væru á ferð þama á þessum tíma
sólarhringsins.
Elskulegt spánskt/íslenskt farar-
stjóratríó tók á móti okkur og vant-
aði ekki að þau gerðu allt til að
afsaka Flugleiðir og gera gott úr
þessari löngu flugferð.
í indælis veðri, góðum aðbúnaði
og lipri fararstjórn, liðu þessir
frídagar allt of fljótt og áður en
varði var komið að heimferð.
Urðu nú landarnir að yfirgefa
herbergi sín á hótelunum kl. 12 á
hádegi með einni gleðilegri undan-
tekningu þó, að gera hið besta úr
tímanum til kl. 20 um kvöldið. Kom
þá í ljós að vélin færi einni klst.
seinna í loftið en áætlað var og
stóðst það, þ.e. kl. 23. Þetta var
áreiðanlega síðasta flugvél í loftið
frá Kanaríeyjum þetta kvöldið.
Ekki var búið að fljúga lengi
þegar tilkynnt var að millilenda
þurfti í Cardiff á Englandi til þess
að taka eldsneyti, og eins og á út-
leiðinni kom það flatt upp á far-
þeganna. Þar var lent heldur óþægi-
legri lendingu og síðan haldið til
Keflavíkur í náttmyrkrinu. Þangað
komum við kl. 6.30. Þeir sem ekki
geta sofið í flugvélum eru minnst
sólarhring að jafna sig eftir svona
næturflug.
í meira en áratug er reynsla mín
sú að ferðaskrifstofur á íslandi,
bjóða í fleiri tilvikum en ekki upp
á næturflug til sólarlanda. Fólk er
svo þakklátt að lenda í Keflavík
eftir svona ferð, að spurning er
hvort það sé skýringin á því að það
kvartar ekki kröftuglega undan
þessum flugtímum?
Hvað munu svo líða mörg ár
áður en flug- og ferðaskrifstofuaðil-
ar í landinu fara að bjóða upp á
dagflug, nægilegan varning og vist-
ir um borð eins og fólk upplifir
þegar ferðast er t.d. með dönskum
ferðaskrifstofum!? Flugferðin á að
vera þægilegur hluti orlofsferðar-
innar.
Eiga Flugleiðir, sem okkur þykir
svo vænt um, að taka að sér flug
sem þeir ráða ekki við á sæmandi
hátt, bæði hvað við kemur þeim
sjálfum og ekki sist viðskiptavinun-
um?
Þakkir fyrir
góðapóst- ,
þjónustu
Til Velvakanda.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur, segir máltækið, og
með það í huga langar mig til að
setja nokkrar línur á blað. Þegar
ég fyrir nokkrum mánuðum flutti
af póstsvæði 108 R (Fossvogur)
til 103 R datt mér síst af öllu í
hug, að ég ætti eftir að sakna
póstþjónustunnar. En sú varð þó
raunin. Á þessum tveimur svæðum
er svo mikill munur hvað póst-
þjónustuna varðar, að ég geri mér
nú grein fyrir því, að þjónusta sú
sem ég naut í gegnum árin á svæði
108 telst líklega ekkert sjálfsögð
og því langar mig að senda þakkir
til viðkomandi aðila fyrir dygga
útburðarþjónustu gegnum árin og
elskulegt viðmót þeirra sem starf-
inu gegndu.
Fyrrverandi þiggjandi.
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1989. Umsóknir á þartil gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 21. apríl 1989.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
að Ölfusborgum
að Húsafelli í Borgarfirði
að Svignaskarði í Borgarfirði
að lllugastöðum í Fnjóskadal
í Vatnsfirði, Barðaströnd
að Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
íbúðir á Akureyri
að Flúðum
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma-
bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir
19. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregiö verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt
er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 6. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj-
endur rétt til að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsókinir verða að berast skrifstofu VR
í síðasta lagi föstudaginn 21. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti
umsóknum símleiðis.