Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 Sameinast bankarnir þrír um kauptilboð í Utvegsbankann? LIKLEGAST er að Iðnaðarbanki, Verzlunarbanki og Alþýðubanki geri rikinu sameiginlegt kauptilboð í Útvegsbankann, nái bankarnir saman á annað borð. Bankamir þrír myndu síðan reka Útvegs- bankann í sameiningu til að byrja með, ef að kaupunum yrði, en sameinast síðan einhvem tíma í kjölfar Útvegsbankakaupanna. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins er þetta nú til umræðu, meðal bankaráðforsmannanna þriggja og Jóns Sigurðssonar, bankamála- ráðherra. Jón Sigurðsson vildi ekki skýra frá gangi viðræðna í sam- tali við Morgunblaðið, en sagði þó: „Viðræður mínar ganga út á sameiningu Qögurra banka með það fyrir augum að hér rísi ein öflug lánastofiiun, sem yrði væntanlega næststærsti banki landsins." Heimildir Morgunblaðsins herma að þessi háttur verði hafður á, ef samningar takast á annað borð, þar sem sameiningin sé mjög flókin við- skiptalega og jafnframt séu einhver pólitísk ljón á veginum í átt til sam- einingar. Jón Sigurðsson sagði að enn hefði Útvegsbankinn ekki verið Reykjavík; Ölvaðir öku- menn færri en í fyrra FÆRRI ökumenn eru grun- aðir um ölvun við akstur í Reykjavík það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Einnig hafe færri ölv- aðir ökumenn valdið óhöpp- um en í fyrra. Lögregla hefur kært 343 ökumenn fyrir ölvun við akstur í ár en á sama tíma í fyrra hafði 371 verið kærður. í mars, fyrsta mánuðinum sem sala áfengs öls var leyfð hérlendis, voru 85 ökumenn teknir grun- aðir um ölvun en í mars í fyrra voru 86 ökumenn grunaðir um ölvun. 51 ölvaður ökumaður hefur valdið óhappi á árinu, 16 þeirra í marsmánuði, en í fyrra var talan 56, þar af 9 í mars. verðlagður. „Ég hef tvö markmið: Sameiningu bankakerfisins og hag- stætt verð fyrir bréf ríkisins í Út- vegsbankanum. Einhver viðskipti milli þessara tveggja markmiða verða áreiðanlega að eiga sér stað, en auðvitað er markmiðið ekki að hámarka hag ríkisins, í skilningi einkahagsmuna, heldur að stuðla að því að gera bankakerfið ódýrara. En auðvitað er það líka markmið, að ná sanngjömu verði fyrir bréf- in,“ sagði bankamálaráðherra. Sameiningarmál bankanna voru rædd á fundi ríkisstjómarinnar, í gærmorgun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, og þar munu ráð- herrar Alþýðubandalagsins hafa lýst takmarkaðri hrifningu sinni á þeim sameiningarhugmyndum sem nú em efst á baugi. Ráðherrar Al- þýðubandalagsins munu fremur vilja að leið sú sem forsætisráð- herra hefur lýst sig fylgjandi, að Útvegsbankanum verði skipt upp á milli ríkisbankanna, Landsbanka og Búnaðarbanka, verði farin. Banka- málaráðherra mun ekki ýkja áhyggjufullur vegna þessa máls, þar sem hann hefur vissu fyrir því að Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs Alþýðubankans, og for- seti ASÍ, ásamt fleiri forsvarsmönn- um ASÍ munu vilja að möguleikinn á þessari samvinnu bankanna þriggja, verði kannaður til þrautar. I tengslum við þessar viðræður em svo viðræður nefnda Lands- bankans og Samvinnubankans um hugsanleg kaup Landsbankans á hlut Sambandsins í Samvinnubank- anum. Svo kynni að fara, ef samn- ingar næðust milli þessara banka að Landsbankinn tæki yfir rekstur Samvinnubankans. „Það er mitt áform að reyna að styrkja þetta íslenska bankakerfi, áður en vindar samkeppninnar fara að blása,“ sagði Jón Sigurðsson, bankamálaráðherra. Morgunblaðið/Þorkell Laxinn tregurfyrsta veiðidaginn FLÓÐ var í Hvítá í Borgarfirði og laxinn tregur að ganga í netin í gær, fyrsta daginn sem veiða mátti í net í ánni. Þegar Snorri Gíslason, Katrín Ólafsdóttir og Ólafiir Davíðsson frá Hvitárvöilum vitjuðu um fyrstu lögnina í gærkvöldi, var lítið að hafa og leiðinda- veður í ofanálag. Spáð hefiir verið góðri veiði I ánni í sumar, þannig að líflegra verður kannski I næstu vitjun. Skýrsla bresks ráðgjafafyrirtækis um skipasmíðaiðnaðinn: Forskot í togarahönn- un og fiskveiðitækni ÍSLENSKUR skipasmíða- og skipaviðgerðaiðnaður er talinn hafa forskot í togarahönnun og fiskveiðitækni, svo sem fisk- vinnslu og frystingu um borð, segir í skýrslu breska ráðgjafa- fyrirtækisins A&P Appeldore til iðnaðarráðuneytisins og Lands- sambands iðnaðarmanna, sem unnið hefiir verið að frá því í nóvember 1987. Gæði íslenskra skipasmíða og viðgerða eru talin mikil en að átak þurfi að gera til að auka framleiðni í þessum greinum. Bent er á að íslenskar skipasmíðastöðvar njóti ekki op- inberra styrlqa en styrkir sem erlendar stöðvar njóti valdi því að þörf fyrir nýsmíðar í íslensk- um fiskveiðiflota sé að mestu Ieyti fullnægt erlendis. Iðnaðurinn er talinn búa við umframafkastagetu og bent á þá Morgunbiaðið/Sverrir leíð, m.a. með sameiningaraðgerð- Steingrímur Hermannsson for- um, að koma á fót fáum stórum sætisráðherra í vitnastúku i gær. ------------------------ Afengi vegna sextugsaf- mælis greitt fullu verði STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra bar vitni fyrir Borg- ardómi I máli ríkisvaldsins gegn Magnúsi Thoroddsen í gær og sagð- ist þar ekki hafa veitt gestum í sextugsafmæli sínu í fyrrasumar áfengi, fengið á sérstökum kjörum. Hann sagði að slíkt hefði ekki hvarflað að sér en kvaðst síðar hafa komist að raun um að skilning- ur Ríkisendurskoðunar væri sá að slíkar veislur væru að svo stórum hluta tengdar stöðu viðkomandi manns að ekki væri talið óeðlilegt að nýta heimildina í slíkum tilfellum. hugsanlegt að það hefði borið á góma í fyrrgreindu samtali. Steingrímur sagði aðspurður að þegar heimild til áfengiskaupa á sérstökum kjörum hefði verið nýtt í ráðuneytum hans hefði hann jafn- an falið ráðuneytisstjóra að kanna hjá Ríkisendurskoðun hvort slfkt væri heimilt. Til Ríkisendurskoðun- hefði verið leitað bæði vegna skipasmíðalq'örnum með það fyrir augum að beina þangað verkefnum, en einkum er bent á að íhuga leiðir til að draga úr afkastagetu greinar- innar við Faxaflóasvæðið. í skýrslunni kemur ennfremur fram að spár gefi til kynna skamm- vinna lægð í þessari starfsemi en á næstu þremur árum geti eftirspum aukist á ný. Bandaríkin og Kanada eru talin sérlega vænlegur markað- ur fyrir íslenskan skipasmíðaiðnað vegna hinna háu launa sem þar tíðkast. Mikil áhersla er í skýrslunni lögð á nauðsyn stefnumörkunar fyrir skipasmíðaiðnaðinn. Ráðgjafafyrir- tækið segist í því sambandi hafa kannað íjóra megin kosti sem til greina kæmu, þ.e. að hætta skipa- smíðum alveg, þjóðnýtingu iðnaðar- ins, styrkjaleiðina og í ijórða lagi bætta framleiðni og hagræðingu. Vegna mikilvægi skipasmíða fyrir megin atvinnuveginn, sjávarútveg- inn, er fyrsta leiðin talin útilokuð og einnig er öðrum og þriðja kosti hafnað en sú leið sem valin var er aukin markaðsþróun ásamt bættri framleiðni og hagræðingu. Stjórn- völd eru hvött til að útvega ijár- magn til að vinna að þessum þátt- um, svo og til endurskipulagningar greinarinnar. Talið er íhugandi að auka lánsfjármagn í 80% af heildar- kostnaði við nýsmíðar innanlands, að fulltrúi greinarinnar fái sæti í Fiskveiðasjóði og að heimila 100% bankatryggingar fyrir nýsmíðar hérlendis. Iðnaðurinn sjálfur er hvattur til sókndjarfari markaðs- setningar með það fyrir augum að ná aftur fyrri markaðshlutdeild og til sérstaks átaks til að komást á fiskiskipamarkað N-Ameríku. Fundur SSH um atvinnumál: Verkalýðshreyfingin Qár- magni verkefiii í atvinnulífí - sagði Örn Friðriksson varaforseti ASÍ „FYRSTU skrefin gætu ef til vill verið að lifeyrissjóðir keyptu hluta- bréf í fyrirtækjum og að samtökin tækju þátt í fjármögnun nýrra verkeftia í atvinnulífinu og samhliða því á að auka áhrif og ábyrgð starfsfólks í fyrirtækjum," sagði Órn Friðriksson varaforseti Al- þýðusambands íslands, en hann var meðal ræðumanna á fundi Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um atvinnuástandið þar. Fundurinn var haldinn á Hótel Borg í gær. Hann ræddi um að sam- tök vinnandi fólks ættu að snúa sér að þvi i auknum mæli að hafa áhrif á þróun atvinnumála. Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjóm- ar, flutti ávarp í upphafi fundar og sagði meðal annars: „Það fer ekkert á milli mála að almenningur hefur áhyggjur af atvinnuástand- inu eins og það nú er og eins og það hefiir verið siðustu mánuðina.“ Jón Steinar Gunnlaugsson lög- maður Magnúsar Thoroddsen spurði ráðherrann hvort hann hefði haft orð á því í samtali við Magnús í nóvember síðastliðnum að hann ætti eftir að gera upp áfengi sem notað var í fyrrgreindu sextugsaf- mæli í júní í fyrra. Forsætisráð- herra sagðist ekki kannast við það, og ítrekaði að hann hefði ekki feng- ið áfengi í gegnum opinbera aðila vegna afmælisins, en sagðist enn vera að greiða af láni sem hann hefði fengið til að standa straum af kostnaði við veisluna og taldi > ar þess að þessar reglur hefðu jafnan verið settar að höfðu samráði við stofnunina og einnig vegna stöðu Ríkisendurskoðunar sem endur- skoðanda ríkisreikninga. Magnús L. Sveinsson sagði mikil umskipti hafa orðið frá því fyrir ári þegar mikil eftirspum var eftir vinnuafli á Reykjavíkursvæðinu, svo að talið var að þar væri atvinna fyrir tvö, þijú þúsund fleiri einstakl- inga heldur en þá höfðu vinnu. „Þúsundir manna höfðu streymt til höfuðborgarsvæðisins og fengið nóga vinnu þar, þannig hefur þetta breyst frá því að vera yfrið nóg vinna á þessu svæði, til þess að nú eru nokkur hundruð manna skráðir atvinnulausir hér í Reykjavík," sagði hann, og vék að sérstökum vanda skólafólks, en fjöldi unglinga sem sækir um vinnu hjá Reykjavík- urborg hefur nær tvöfaldast frá fyrra ári. „Það er ljóst að verulegar aukafjárveitingar verða að koma til, ef tryggja á öllu þessu unga fólki vinnu yfir sumarmánuðina,“ Magnús L. Sveinsson. Öm Fnðriksson lýsti áhyggjum af atvinnuleysinu. „Hættan sem að okkur steðjar felst fyrst og fremst í því, að við festumst í varanlegu atvinnuleysi eins og margar stór- þjóðimar," sagði hann. Hann nefndi sem eina af mörgum ástæðum at- vinnuleysis, að stjómvöld hefðu enga atvinnustefnu. „'Stjórhvöld eiga að hafa sterkt frumkvæði í þessu efni og taka þátt í framtíð- arstefnumörkun atvinnumálanna með aðilum á vinnumarkaði." Ágúst Einarsson forstjóri Hrað- frystistöðvarinnar hf. í Reykjavík lýsti þýðingu Reykjavíkur sem ver- stöðvar og sýndi tölur um afla og verðmæti. Þar kom fram að höfuð- borgin er ýmist stærsta eða næst stærsta verstöðin og í hópi tíu stærstu stöðvanna em sex til sjö á suðvesturhorninu undanfarin ár. Ágúst varaði sterklega við þeim skoðunum, að leggja ætti áherslu á að flytja fiskvinnslu frá höfuðborg- arsvæðinu út á land, þýðing hennar væri geysimikil í heildarsamspili atvinnugreina á þessu svæði. Hann kvaðst að lokum geta horft björtum augum til framtíðar fískvinnslunnar hvað varðar ytri skilyrði og sagði: „Auðvitað byggist þetta allt á því að við sem lítil þjóð í stómm heimi bemm gæfu til að standa þokkalega vel saman við úrlausn okkar vanda- mála.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.