Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 19 Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Ingi Rúnar Jónsson og Jóhannes Sturlaugsson lífiræðingur hjá Veiðimálastofhun við merkingar laxaseiða. Aukning á merkingum laxaseiða Vogum. „Merkingar laxaseiða verða alla vega 300 þúsund í ár,“ sagði Jóhannes Sturlaugsson líffræð- ingur hjá Veiðimálastofhun í samtali við fréttaritara Morgun- blaðsins, „og er það talsvert meira en merkt var á síðasta ári“. Auk hefðbundinna merkinga hef- ur mikið komið af verkefnum vegna tilraunaverkefna sem eru í gangi hjá Kollafjarðarstöðinni og meðal annars í samstarfi við fiskeldisfyrir- tæki eins og Vogalax. Eitt stærsta verkefnið er við stærðarflokkun, sem gengur út á það að bæta heimt- ur á hafbeitalaxi og auka arðsemi, sem felst í því að athuga hvernig mismunandi stofnar geta nýst í hafbeit og hvernig má auka hag- kvæmni með aukinni þekkingu á samspili stærðar gönguseiða og endurheimtum. Verkfall BHMR setti strik í reikninginn, að sögn Jóhannesar, bæði vegna þess að ekki næst að merkja það magn sem ætlað var og hins vegar er verið að merkja mikinn fjölda seiða á þeim tíma sem þau eru viðkvæmust. Samkvæmt nýrri reglugerð um merkingar laxa á að merkja hluta þeirra laxaseiða sem er sleppt í sjó, þannig að merk- ingar eiga eftir að aukast vegna kvíaeldis. Það eru eldisstöðvarnar sem greiða fyrir merkingarnar. „Ef greiðslur fyrir merkingar eru mæli- kvarði á fjárhagsstöðu íslenskra seiðaeldisstöðva þá er fjárhagsstaða fiskeldis á íslandi slæm,“ sagði Jó- hannes. - EG Viðskiptadeild: Tveir sækja um prófess- orsstöðu TVEIR umsækjendur er^i um prófessorsstöðu í rekstrarhag- fræði og skyldum greinum við viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla íslands. Þeir eru Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvarinnar hf. í Reykjavík og Pétur Orri Jónsson háskólakennari í Bandaríkjun- um. Gylfi Þ. Gíslason var í þessari stöðu. Dómnefnd sem meta á hæfi umsækjenda hefur ekki tekið ’til starfa. Viðskipta- og hagfræðideild- in hefur tilnefnt Brynjólf Sigurðs- son prófessor í nefndina. Jafnframt hefur deildin lagt til að fulltrúi há- skólaráðs verði Þráinn Eggertsson prófessor og að þriðji dómnefndar- fulltrúinn verði fenginn erlendis frá. Miðað er við að ráðið verði í stöð- una frá og með 15. september næstkomandi. „Þú vinn- ur lífsins glímu - án vímu“ Menntamálaráðuneytið og Nefiid um átak í áfengisvörnum gengust í vetur íyrir samkeppni um einkunnarorð og handrit að myndbandi til notkunar í fiknivörnum meðal ungs fólks og var greint frá niðurstöðum í gær. Hólmfríður Ýr Gunn- laugsdóttir varð hlutskörpust í samkeppninni um bestu ein- kunnarorðin, en Hólmfriður er nemandi í Lækjarskóla í Hafii- arfirði. Besta handrit að mynd- bandi átti hins vegar Gerður Gestsdóttir úr MH. Keppnisreglur voru þær, að rétt til þátttöku áttu nemendur í 6.-9. bekkjum grunnskóla og allir nemendur í framhaldsskólum. Keppt var um bestu einkunnar- orðin og besta handritið að mynd- Morgunblaðið/Þorkell F.v. Laufey Jörgensdóttir, Gerður Gestdóttir og Hólmfríður Ýr Gunnlaugsdóttir. Páll Magnússon gat ekki verið viðstaddur verð- launaafhendinguna. bandi. Voru keppnishóparnir tveir, grunnskólanemamir annars vegar og framhaldskólanemarnir hins vegar og dregið um bestu einkunnarorðin og handrit. Hólm- fríður yr var með bestu einkunar- orðin, „þú vinnur lífsins glímu - án vímu“, en besta framlag fram- haldsskólanema í þessum flokki var „Velgengni án vímu“ eftir Pál Magnússon úr MK. Umrædd handrit að myndbandi áttu að fjalla um kosti þess að ánetjast ekki vímuefnum, en slíkt mynd- band verður nú unnið upp úr vinn- ingshandriti Gerðar Gestsdóttur, en besta framiag gmnnskólanema í þessum flokki var frá Laufey Jörgensen úr Bamaskóla Vest- mannaeyja. Borgarráð: 12,7 milljónum úthlutað úr húsverndunarsjóði Sameigin- leg fiskrækt í borg- firsku lax- veiðiánum VEIÐIRÉTTAREIGENDUR borg- firsku laxveiðiánna hafa ákveðið að ráðast í íjögurra ára áætlun um aukna fiskrækt í héraðinu. Veiðifé- lag Borgarfjarðar ver árlega 3,3 milljónum í þetta verkefni og Veiði- félag Langár 510 þúsund kr. Að sögn Óðins Sigþórssonar í Einars- nesi, stjómarmanns í Veiðifélaginu, er ætlunin að sleppa smáseiðum á ófiskgengnum svæðum og reyna að stækka þannig uppvaxtasvæði laxins. Vildu menn sjá hvort fis- krækt í þetta stómm stíl skilaði sér í aukinni fiskgengd í ánum. Óðinn sagði að hlutur Veiðifélags Hvítár, sem í em aðallega netaveiði- bændur, væri þriggja daga friðun í sumar til viðbótar lögskipuðum friðunardögum. Dagarnir sem um er að ræða era föstudagamir 26. maí, 16. júní og 14. júlí. Aðrir stærstu aðilar Veiðifélags Borgar- íjarðar em veiðifélög Þverár, Norð- urár og Grímsár og Tunguár, én alls mynda níu veiðifélög á vatna- svæði Hvítár Veiðifélag Borgar- flarðar. Þrír bændur sem stunda netaveiði í sjó við Borgarfjörð taka einnig þátt í átaki, ásamt Veiðifé- lagi Langár. BORGARRÁÐ hefiir samþykkt að úthluta rúmum 12,7 milljónum króna úr húsverndunarsjóði borgarinnar fyrir árið 1989. Tólf umsóknir bárust um lán og var samþykkt að veita Ián til viðhalds á níu húsum. Lánin eru verð- tryggð og til tíu ára og er þetta Kálfaverð- laun til að minnka framleiðslu FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað- arins greiðir kúabændum 4 þús- und kr. verðuppbót á ungkálfa sem þeir láta slátra fram til 16 júní. Að sögn Gísla Karlssonar framkvæmdastjóra er tilgangur- inn að hvetja menn til að slátra kálfunum í stað þess að setja þá á og minnka þannig hættuna á offramboði nautgripakjöts eftir hálft annað ár. Vonast hann til að með þessu móti megi koma í veg fyrir 350 tonna framleiðslu. Sala hefur minnkað en margir gripir í uppeldi og telur Gísli að búast megi við offramboði í haust. Sala á nautgripakjöti hefur minnkað vemlega það sem af er þessu ári. Fyrstu þrjá. mánuði ársins var salan til dæmis 29% minni en á sama tíma í fyrra. Um skeið hef- ur mest allt nautgripakjöt verið selt ferskt og jafnvægi verið á markaðnum. Hætt er við að þetta breytist síðar á árinu. Sagði Gísli að búist væri við mikilli slátmn í haust og að frysta þyrfti mikið af kjöti, sem erfittgæti orðið að selja. Töluvert hefur verið slátrað af nautgripum eftir að verkfall dýra- lækna leystist, en slátmn lá niðri í verkfallinu. Hjá Sláturfélagi Suður- lands á Hvolsvelli var til dæmis slátrað hátt í 90 gripum á tveimur fyrstu dögunum eftir að verkfallið leystist, eða nærri því jafn miklu að venjulega er slátrað á einum mánuði, að sögn Ólafs Siguijóns- sonar sláturhússtjóra. Kjötið fór allt ferskt á markað og vissi Ólafur ekki til að erfiðleikar hefðu verið við sölu þess. í þriðja sinn, sem veitt er úr sjóðnum. „Lánin em veitt til að vemda hús og færa þau í sem uppmnnanleg- asta horf,“ sagði Júlíus Hafstein formaður umhverfismálaráðs. „Þarna er fyrst og fremst verið að lána til viðhalds á eldri húsum borg- arinnar, sem em í flestum tilfellum timburhús og sum komin til ára sinna. Mörg þeirra húsa, sem hafa fengið fyrirgreiðslu frá borginni em meira en 100 ára. Engar ákveðnar reglur gilda um hveijir eiga rétt á lánum, það geta allir sótt um þau en síðan er það umhverfismálaráðs að meta umsóknimar. Með umsókn- inni skal fylgja saga hússins og framkvæmdaáætlun, sem síðan er vegin og metin. Ég tel þetta mjög þarft verk hjá borginni því það er enginn annar sem lánar til þessara framkvæmda.“ • Að þessu sinni vom lán veitt til eftirtalinna húsa: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, 2 milljónir króna; Bergstaðastræti 9 A, 1 milljón króna; Hólatorg 4, 2,2 milljónir króna; Kirkjutorg 6, kr. 360 þús.; Sóleyjargata 16, kr. 650 þús.; Suð- urgata 12, 2 milljónir króna; Vest- urgata 3, Hlaðvarpinn, 2 milijónir króna; Vesturgata 44, 2 milljónir króna og Þingholtsstræti 16, kr. 500 þús. ö INNLENT Félag íslenskra bifreiðaeigenda: Bensínhækkun mótmælt STJÓRN Félags íslenskra bifreiðaeigenda hefur sent frá sér mót- mæli vegna fyrirhugaðrar bensínhækkunar um allt að 7 krónur eða 16%. FÍB segir að tekjur heimilanna þurfi að hækka um 2.200 krónur á mánuði til að mæta þessari útgjaldaaukningu. FÍB minnir á að bensíngjaldið öll hækkun bensíngjaldsins verið tekin úr vegasjóði og sett í almenna eyðslu. Ef farið hefði verið eftir ábendingum FÍB væri nú nóg fé í vegasjóði. hafi verið hækkað um síðustu ára- mót og hafi peningamir, um 680 milljónir kr., átt að fara til vega- framkvæmda, þar á meðal snjó- mokstur. Með lánsfjárlögum hafi Bókun Ásmundar Stefánssonar á fundi miðstjórnar ASÍ: Olafiir Ragnar telur sam- skipti manna þeim mun betri sem þau eru minni UMMÆLI Ólafs Ragnars Grímssonar Qármálaráðherra, í viðtali við Morgunblaðið, þar sem hann segir bönd Alþýðubandalagsins við samtök launafólks hafa styrkst á undanförnum vikum og það haíi verið styrkur í deilunni við BHMR, urðu tilefiii fyrirspumar til Ásmundar Stefánssonar á miðstjóraarfundi Alþýðusambands íslands þann 17. maí siðastliðinn. Ásmundur svaraði þvi til að greinilegt væri, að Ólafiir teldi samskipti manna þeim mun betri, sem þau væru minni og kvað ekkert samband hafa verið milli þeirra meðan samningaviðræður við BHMR stóðu yfir. Birna Þórðardóttir bar fram að við Ásmundur Stefánsson höf- fyrirspumina. Hún sat fundinn sem varamaður Hrafnkels A. Jónssonar og sagði hann hafa óskað eftir að bókað yrði svar forseta ASÍ, það er Asmundar Stefánssonar, vegna ummæla Ól- afs Ragnars Grímssonar sem birt- ust í Morgunblaðinu á hvítasunnu- dag, 14. maí. Ummælin, sem Bima vitnaði til, em þessi: „Það er til dæmis opinbert leyndarmál, um ekki verið sammála um alla hluti á undanfómum áram, en við höfum átt mjög góða samvinnu núna. Ég tel að bönd flokksins við samtök launafólks hafi styrkst á undanfömum vikum og tekist hafi með heilsteyptum hætti að slá striki yfir erfiða kafla í þeim samskiptum. Ogþetta breiða bak- land hefur styrkt okkur ómetan- lega í deilunni við BHMR.“ Bima sagði á miðstjómarfund- inum að Hrafnkell teldi að um- mælum Ólafs væri ætlað að etja saman samtökum launafólks og Alþýðusambandinu væri skylt að taka ekki þátt í slíkum leik. Bókað var eftirfarandi svar Ásmundar Stefánssonar: „Það er greinilegt að Ólafur Ragnar Grímsson telur að samskipti manna séu þeim mun betri sem þau era minni.“ Auk þess tók Ásmundur fram á miðstjórnar- fundinum, að hann hefði ekki haft samband við Ólaf Ragnar Grímsson í lokahrinu ASÍ samn- inganna eða síðar og að Ólafur Ragnar Grímsson hefði á engu stigi BHMR samninganna haft samráð við sig um neitt varðandi þær viðræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.