Morgunblaðið - 24.05.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR MHDVTKUDAGUR 24. MAÍ 1989
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
■ STUTTGART vann Kaisers-
lautem, 3:1, í gærkvöldi í v-þýsku
deildarkeppninni. Fritz Walter
skoraði tvö mörk, en Jiirgen Klins-
mann eitt. Þetta var
fjögurra stiga leikur
fyrir Stuttgart í
batáttunni um
UEFA-sæti við
Kaisterslautem.
■ ERIC Ribbeck, framkvæmda-
stjóri Hamburger, sagði starfí sínu
lausu í gærkvöldi.
■ AÐEINS 15.628 áhorfendur
sáu England og Chile gera jafn-
tefli, 0:0, í London í gærkvöldi.
5vo fáir áhorfendur hafa ekki verið
á landsleik á Wembley. Roberto
Rojas, markvörður Chile, varði
mjög vel.
■ ENSKA landsliðið var þannig
skipað: Peter Shilton, Paul Park-
er, Des Walker, Terry Butcher,
Stuart Pearce, Neil Webb, Bryan
Robson, Paul Gascoigne, Nigel
Clough, John Fashanu (Tony
Cottee 70.mín), Chris Waddle.
■ JOHN Fashanu er fyrsti leik-
maður Wimbledon, sem hefur leik-
ið með enska landsliðinu.
ANDERLECHT tryggði sér í
gærkvöldi rétt til að leika til úrslita
í belgísku bikarkeppninni. Félagið
mætir Standard Liege í úrslitum,
en bæði félögin komust áfram á
fleiri mörkum skoruðu á útivelli.
Mechelen vann Anderlecht, 3:1,
en jafnt var í báðum Ieikjunum,
3:3. FC Liege tapaði, 1:2, fyrir
Standard Liege,
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM
Held reynir að
fá Ásgeir lausan
Ræðirvið Arie Haan, þjálfara Stuttgart. Sótt um
vegabréfsáritun fyrir 20 leikmenn til Sovétríkjanna
ÁSGEIR Sigurvinsson ertil-
búinn að leika með íslenska
landsliðinu gegn Sovétríkjun-
um í undankeppni Heims-
meistarakeppninnar í
Moskvu 31. maf. Stuttgart vill
hins vegar helst ekki hleypa
honum í leikinn, en Siegfried
Held, landslíðsþjálfari, ræðir
við Arie Haan, þjálfara Stutt-
gart, í dag til að reyna að fá
Asgeir lausan að sögn Gylfa
Þórðarsonar, formanns
landsliðsnefndar KSÍ.
Amór Guðjohnsen er meiddur
og verður því ekki með í
Moskvu, en að öðm leyti verður
stillt upp sterkasta liði, sem völ
er á nema hvað Pétur Ormslev
er ekki í 20 manna hópi. Sigurður
Grétarsson leikur með Luzem um
helgina og kemur til Moskvu frá
Zurich á mánudag. Sama dag
koma Ólafur Þórðarson, Ágúst
Már Jónsson og Gunnar Gíslason
fra' Kaupmannahöfn og væntan-
lega Ásgeir frá Frankfurt. Guð-
mundur Torfason flýgur beint frá
Vín á sunnudag, en 10 leikmenn
ásamt þjálfumm og fararstjóm
fara frá íslandi á laugardag.
Friðrik Friðriksson, markvörð-
ur, gaf ekki kost á sér í leikinn,
þar sem hann er að leika með B
1909 á mánudaginn í Danmörku.
Gylfi sagði að sótt yrði um
vegabréfsáritun fyrir 20 leik-
menn, þannig að ef eitthvað kæmi
upp á væm menn í viðbragðs-
stöðu. Auk fyrmefndra sex leik-
manna em eftirtaldir í 20 manna
hópnum, en 16 verða endanlega
Siegfried Held
valdir:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson, Guðmundur
Hreiðarsson og Birkir Kristinsson.
Aðrir leikmenn:
Atli Eðvaldsson, Guðni Bergsson,
Viðar Þorkelsson, Þorsteinn Þor-
steinsson, Pétur Amþórsson,
Ómar Torfason, Halldór Áskels-
son, Þorvaldur Örlygsson, Sigurð-
ur Jónsson, Pétur Pétursson og
Ragnar Margeirsson.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Ray Houghton var á skotskónum
gegn West Ham.
A-stigs fimleikanámskeið
Fræðslunefnd Fimleikasambands íslands
gengst fyrir verklegum þætti A-stigs í fim-
leikum helgina 27.-28. maí 1989 í
Reykjavík.
Upplýsingar og innritun á skrifstofu FSÍ
í síma 83123 eða ÍSÍ f síma 83377.
Fræðslunefnd FSÍ
Föstudagur kl. 19:55
26JMAÍ1989 ^^\T'
Leikur 1
K.A.
- FRAM
TT
Leikur 2 VÍKINGUR - K.R.
Leikur 3 FYLKIR
- ÞÓR
Leikur 4 VOLSUNGUR - SELFOSS C)
Leikur 5 STJARNAN - TINDASTÓLL
Leikur 6
- EINHERJI
W
Leikur 7 BREIÐABLIK - LEIFTUR
W
Leikur 8 VÍÐIR
- Í.B.V.z>
Leikur 9 GRINDAVÍK - Í.K.J)
Leikur 10 GROTTA - AFTURELDINGJ
Leikur 11 REYNIR S. - B. ÍSAFJ.
Leikur 12 DALVÍK
- K.S.
W
Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir
kl. 16:15 er 91-84590 og -84464.
GlETRAUNIR I ALLT SUMAR I
Liverpool sendi
West Ham niður
Hougton setti tvö mörk í stórsigri Liverpool, 5:1
LIVERPOOL er nú aðeins hárs-
breidd frá því að vinna tvöfalt
í Englandi í ár. Á laugardag
varð liðið bikarmeistari og í
gærkvöldi mátti West Ham
þola 5:1 tap gegn meisturunum
á Anfield í næst síðasta leik
1. deildar — og féll þar með í
2. deild.
John Aldridge gerði fyrsta mark
leiksins á 19. mínútu, en West
Ham, sem sigraði síðast á Anfield
1963 er „She Loves You“ með
Bítlunum var á
toppnum, barðist
fyrir tilverurétti
sínum og Leroy
Rosenior jafnaði á
30. mínútu. Hann var nálægt því
að bæta öðru marki við skömmu
síðar, en skallaði í slá.
Frá
Bob
Hennessy
í Englandi
Óöryggi greip um sig hjá heima-
mönnum, en þungu fargi var af
þeim létt á 62. mínútu, er Ray
Houghton skoraði — fyrsta mark
hans í síðustu níu leikjum. Hann
var aftur á ferðinni á 82. mínútu,
Ian Rush gerði glæsilegt mark fjór-
um mínútum síðar og John Barnes
innsiglaði stórsigur á 89. mínútu.
Liverpool fær Arsenal í heimsókn
á föstudag og verður leiknum sjón-
varpað beint í Englandi. Arsenal
verður að sigra með tveggja marka
mun til að verða meistari í fyrsta
sinn síðan 1971, er liðið sigraði
tvöfalt. Liverpool, sem sigraði í bik-
ar og deild fyrir þremur árum, hef-
ur hins vegar aðeins tapað tvisvar
á heimavelli í vetur, síðast 17. des-
ember, og fengið níu mörk á sig í
18 leikjum á Anfield.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
AC Mflanó fær
góðan stuðning
í Barcelona
80 þúsund stuðningsmenn verða á Nou Camo
AC Mílanó og Steaua Búkarest
leika til úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða á Nou Camp,
leikvelli Barcelona ídag. Flest-
ir spá AC Mílanó, með Hollend-
ingana Ryyd Gullit, Marco van
Basten og Frank Rijkaard
fremsta í flokki, sigri. Þjálfari
Steaua, Anghel lordanescu, er
þó hvergi banginn. „Við vitum
allir að við leikum gegn frá-
bæru og geysilega sterku liði.
Það hræðir okkur þó ekkert."
Italska meistaraliðið fær góðan
stuðning. 80 þús. stuðningsmenn
liðsins eru mættir til Barcelona, en
aðeins 200 stuðningsmenn rúm-
enska liðsins eru á staðnum. „Við
erum með starkara lið heldur en
þegar við urðum Evrópumeistarar
1986, þegar við unnum Barcelona
í Sevilla,“ sagði þjálfari Steaua.
Frægasti leikmaður rúmenska fé-
lagsins er markaskorarinn mikli
Gheorge Hagi, sem hefur oft verið
kallaður „Rúmenski Maradona."
Mikill viðbúnaður er fyrir leikinn.
Tvö þúsund lögreglumenn verða til
staðar. Nou Camp-leikvöllurinn tek-
ur 120 þús. áhorfendur. Þar af 85
þús. í sæti. Aðeins verða seldir 97
þús. miðar og fá áhorfendur ekki
að vera fyrir aftan mörk vallarins.
Svo getur farið að leiknum verði
ekki sjónvarpað beint, þar sem
starfsmenn spænska sjónvarpsins
hafa boðað til verkfalls kl. 18.30
til 20.30, eða á sama tíma og leikur-
inn stendur yfir. Það mun koma í
ljós í dag - hvort að verkfallinu
verði.
íném
FOLK
■ SILVIO Berlusconi, forseti
AC Mílanó, sagði frá því í gær í
Barcelona, að félagslið frá Eng-
landi væru ekki inn í myndinni í
sambandi við stofnun Evrópu-
deildar í knattspyrnu. Vellir í Eng-
landi væru ekki nægilega traustir.
Berlusconi sagði að hann hafi rætt
við félagslið á Italíu og þá væri lið
eins og Anderlecht, Bayern
Miinchen, IFK Gautaborg, Barc-
elona, Real Madrid, Bordeaux og
Eindhoven inn í myndinni.
■ JÚGÓSLA VINN Safet Susic
skrifaði í gær undir nýjan tveggja
ára samning við París St. Germa-
in. Félagið fær góðan liðsstyrk nú
í vikunni. Júgóslavinn Zlatko
Vujovic, sem var næst markahæsti
leikmaðurinn í Frakklandi, verður
keyptur frá Cannes. Þá mun St.
Germain kaupa franska landsliðs-
manninn og miðvallarspilarann
Daniel Bravo frá Nice. Landsliðs-
markvörður Kamerún Joseph-
Antoine Bell mun fara frá Toulon
til Bordeaux.
■ HUNDRUÐIR knattspymu-
unnenda ruddust inn á völlinn í
Preston, þegar Preston og Port
Vale gerðu jafntefli, 1:1, í keppni
um 2. deildarsæti. Stöðva varð leik-
inn í níu mín. Eldur kom upp á
áhorfendapöllum, en fljótlega náðist
að slökkva eldinn,
■ DIEGO Maradona er ekki
ánægður með framkomu ítalskra
landsliðsmanna, eftir að aðeins einn
þeirra gaf kost á sér í ágóðaleik
fötluð böm á Italíu og barnaspítala
í Buenos Aires í Argentínu. Arg-
entínskir leikmenn komu víðs veg-
ar frá til að taka þátt í leiknum,
sem þeir unnu, 7:2. Þeir léku gegn
leikmönnum úr 3. deildarliðum á
Ítalíu. Maradona frestaði för sinni
til Argentínu til að sjá nýfædda
dóttur sína. „Landsliðsmenn Ítalíu
sýndu að þeir hafa litlar tilfinning-
ar,“ sagði Maradona og Stefana
Tacconi, landsliðsmarkvörður ít-
alíu og Juventus, sagði að ítalskir
landsliðsmenn hefur gert sig að
kjánum í augum almennings.
TENNIS
Námskeið á Akranesi
Iþrótta- og æskulýðsnefnd Akra-
ness stendur fyrir námskeiði í
tennis í íþróttahúsinu við Vestur-
götu um helgina. Aðalleiðbeinandi
verður Margrét Svavarsdóttir, ís-
landsmeistari í einliðaleik kvenna.
Skráning stendur yfir í íþróttahús-
inu. i