Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 Náttúruverndarráð: Ahersla lögð á að merkja frið- lýst svæði og laga göngustíga ENGAR stærri framkvæmdir verða gerðar á vegnm Náttúru- vemdarráðs á helstu ferða- mannastöðunum í sumar. Meiri hluti flárveitinga til þjóðgarð- anna í Skaftafelli og Jökulsár- gljúfrum fer i lagfæringu á göngustígum, snyrtiaðstöðu og tjaldstæðum, en einnig er fyrir- hugað að byggja þurrkþjall fyr- ir þvott í Skaftafelli. Að sögn Þórodds Þóroddssonar framkvæmdastjóra Náttúruvemd- arráðs fær það takmarkaðar fjár- veitingar til framkvæmda á frið- lýstum svæðum. í sumar verður gert átak í að merkja þessi svæði, en víða vantar skilti sem gefa til kynna að svæðin séu friðlýst. Kostnaður við að merkja hvert svæði nemur tugum þúsunda. Ákveðnar fjárveitingar renna til þjóðgarðanna í Skaftafeili og Jök- ulsárgljúfrum sem að mestu fara í viðhald eins og áður segir. Náttúruvemdarráð vinnur með ýmsum samtökum, t.d. Sjálfboða- samtökunum sem ætla að aðstoða við að merkja gönguleiðir í Land- mannalaugum í júlí í sumar. Þau ætla einnig að merkja akveginn upp í Hrafntinnusker í samráði við Vegagerðina. Fyrsta verkefni þeirra í sumar verður við Kerið í Grímsnesi. Þóroddur sagði að óvíst væri um framkvæmdir við Gullfoss í sumar.„Ég vona að eitthvað verði gert þar í sumar. í fyrsta lagi þarf að lagfæra göngustíga við fossinn sem em stórhættulegir og okkur til skammar. Síðan hefur verið rætt um að koma upp hrein- lætisaðstöðu, en það er mjög um- deilt mál. Ég held að það sé nauð- synlegt að gera það, en menn verða að gera sér grein fyrir að þegar slík aðstaða er komin upp þarf einhvem til að sinna henni," sagði Þóroddur. FASTEIGIVIASALA SuöurSandsbraut 10 8.5 21870—687808—687828 Ábyrgð - Reynsla - Óryggi Seljendur! Vegna mikillar sölu und- anfarið bráðvantar allar gerðir eigna á skrá Raðhús HÁLSASEL V. 10,6 Vörum að fá fallegt 194 fm endaraöh. á tveimur hæðum. 3 svefnherb. Sjón- varpshol. Gólfefni, flísar og teppi. Innb. bílsk. Laust 1. sept. Áhv. 1,9 millj. GRUNDARTANGI V. 5,3 Fallegt 65 fm endaraðh. Mögul. á stækkun. Ræktuö lóð. Mikið áhv. Sérhseöir SUÐURGATA HF. V. 10,4 Lúxus sérh. á 1. hæö, 160 fm, í nýl. húsi. Gólfefni eru marmari, parkeL korkur og teppi. Gólf ffeal. í bflsk. Laus e. 3 mán. 4ra-6 herb. HÁAGERÐI V. 5,2 Snotur 3ja-4ra herb. 80 fm íb. á 1. hæö í góöu raöh. Nýl. eldhinnr. 1,3 millj. áhv. NORÐURÁS V. 7,7 Vorum aö fá í sölu gullfallega 136 fm 4ra-5 herb. íb. á tveimur hæðum ásamt 36 fm bflsk. Hital. í plani. Lóð fullfrág. Áhv. 1,8 millj. VESTURBERG V. 5,4 Falleg 90 fm 4ra herb. íb. á 3. hæö. Parket á gólfum. Mögul. að taka 2ja herb. íb. uppí kaupin. Ekkert áhv. 3ja herb. HRINGBRAUT V. 4,7 Falleg 3ja herb. ih. á 3. hæð. Allar innr. nýl. Herb. í kj. fylgir. Ekkert áhv. RAUÐARÁRST. V. 4,0 Góð 3ja herb. íb. í risi. ib. er mikið endurnýjuð. UGLUHÓLAR V.4,7 Falleg 90 fm ib. á 3. hæð. Nýtt parket á gólfum. Stórar sv. Mikið útsýni. HRINGBRAUT V. 5,2 Stórglæsil. 3ja herb. ib. á 3. hæð. fb. er öll endurn. Auka herb. ( kj. fylgir. VESTURBERG V. 4,9 Fallegt 80 fm ib. á 2. hæð. Ekkert áhv. 2ja herb. MÁVAHLfÐ V. 2,8 2ja herb. 58 fm ib. i kj. Laus 1. júní. Ekk- ert áhvilandi. VANTAR Erum með fjárst. kaupanda að einbhúsalóð i Suðurhlíðum Kóp. FANNAFOLD V. 7950 Þ. rr--^----'...'---- Vorum að fá glæsil. endaraðhús í sölu sem selst tilb. u. trév. og máln. Skilast í sept.-okt. 1989. ÁLFABAKKI Vorum að fá í sölu á 2. og 3. hæö skrifsthúsn. alls um 380 fm. Húsiö er nú þegar tilb. u. trév. 2. hæð er 200 fm. 3. hæö 180 fm. Húsn. hentar vel sem læknastofur. GóÖ bílast. Jón Leifs Paul Zukofsky Síðustu áskríftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarmnar: Tónleikar í minn- ingu Jóns Leifs SÍÐUSTU áskriftartónleikar Sinfóníuhfjómsveitar íslands á þessu starfsári verða í Háskólabíói nk. fimmtudag, 25. maí, og hefjast kl. 20.30. Þessir tónleikar verða helgaðir Jóni Leifs, en hann hefði orð- ið níræður 1. mai sl. Efhisskrá tónleikanna gefúr gott yfirlit yfir verk Jóns. Eftirtalin verk verða flutt á tón- leikunum: Endurskin úr norðri op. 40 fyrir strengjasveit, Landsýn op. 41 fyrir fulla hljómsveit með karla- kór, Geysir fyrir fulla hljómsveit, Hekla fyrir fulla hljómsveit og Fine II fyrir strengjasveit. Hljómsveitarstjóri verður Banda- ríkjamaðurinn Paul Zukofsky. Jón Leifs fæddist á Sólheimum, Svínavatnshreppi í Austur-Húna- vatnssýslu 1. maí 1899. Árið 1916 hélt hann til Leipzig til tónlistamáms og bjó meira og minna í Þýskalandi fram til ársins 1945 er hann fluttist hingað alkominn. Jón var hljómsveit- arstjóri vfða í Þýskalandi og 1926 stjómaði hann Fílharmóníusveit Hamborgar í hljómleikaför til Nor- egs, Færeyja og íslands. Jón stofnaði Tónskáldafélag ís- lands 1945 og STEF 1948 en hann lét réttindamál tónskálda og annarra tónlistarmanna mikið til sín taka og stofnaði m.a. Alþjóða tónskáldaráðið með þátttöku 10 þjóða. Tónleikamir verða teknir upp fyr- ir sjónvarp og í næstu viku verða verkin hljóðrituð vegna fyrirhugaðr- ar hljómplötuútgáfu. Auk Sinfóníu- hljómsveitarinnar tekur karlakór þátt í flutningnum og 12 félagar úr Tónskáldafélaginu leika á slagverk. Það þarf vart að kynna Paul Zu- kofsky fyrir unnendum tónlistar. Hann hefur á undanfömum árum unnið hér mikið starf að tónlistar- málum, m.a. sem framkvöðull og stjómandi Sinfóníuhljómsveitar æskunnar og forstöðumaður Zukof- sky-námskeiðanna, sem Tónlistar- skólinn í Reykjavík hefur gengist fyrir. Hann stundaði nám við Juill- iard tónlistarháskólann í New York og er nú forstöðumaður kammer- músíkdeildar skólans. (Fréttatilkynning) ★ Fyrirtæki á söluskrá ★ ★ Matvöruverslun með söluturni. Ársvelta nálægt 50 millj. ★ Bifreiðahlutir. Sérhæft fyrirtæki á sviði innflutnings og þjónustu. ★ Barnafataverslun. Ein besta og glæsilegasta barna- fataverslun landsins. ★ Sólbaðstofa. Vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Stofan nýtur álits og hefur traustan hóp viðskipta- vina. ★ Heildverslun með byggingavörur. ★ Dansstúdíó og heilsurækt. Þekkt fyrirtæki. ★ Söluturnar. Allar stærðir og gerðir. ★ Og fleiri fyrirtæki af ýmsu tagi. ★ Upplýsingar á skrifstofunni kl. 10.00-16.00 virka daga. VARSLAHF FYRIFHÆKJASALA Skipholti 5, 105 Reykjavík, Sírhi 622212 Sölufélag garðyrkjumanna: Tæplega 60 millj. kr. tap á síðasta ári Á AÐALFUNDI Sölufélags Garðyrkjumanna, sem haldinn var á föstudaginn, kom fram að tæplega 60 miljjóna kr. tap varð á rekstri félagsins á síðastliðnu ári. Að sögn Arnar Einarssonar, stjómarformanns Sölufélagsins, er Jjóst að gripa verður til vem- legra aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins, en hann sagði að ekki hefðu verið teknar ákvarðanir um með hvaða hætti það yrði gert. Om sagði að stjóm Sölufélags- ins hefði fengið góða stuðnings- yfirlýsingu frá framleiðendum um að þeir muni standa með stjórn- inni í þeim aðgerðum sem gripið verður til. Ákvarðanir um í hveiju þær verða fólgnar yrðu þó ekki teknar fyrr en ráðinn hefði verið nýr framkvæmdastjóri Sölufélags- ins, en fyrrverandi framkvæmda- stjóri lét af störfum um síðustu mánaðamót. Uppboð hafa ekki farið fram hjá uppboðsmarkaði Sölufélagsins um skeið, heldur hefur grænmetið verið selt á föstu verði. Sagði Öm það vera í athugun hvort uppboð yrðu tekin upp á nýjan leik, en uppboðsmarkaðurinn hefði komið þokkalega út sem sjálfstæð rekstr- areining á síðasta ári. Stjóm Sölufélags garðyrkju- manna var öll endurkjörin á aðal- fundinum, en í henni eiga sæti auk Amar þeir Bergþór Úlfarsson, Rúnar Baldursson, Ámi Guð- mundsson og Georg Ottósson. > ^ # . Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Áhöfnin á Verði ÞH-4. Skipstjórinn Jón Ragnarsson er lengst til vinstri Grindavík: Vörður aflahæstur Grindavik VÖM)UR ÞH-4 varð aflahæstur báta i Grindavík og einnig á Suður- nesjum með 1106 tonn, Gaukur GK-660 var með 1029 tonn og Höfr- ungur n GK-27 var með 1010 tonn. Þessir bátar voru einu bátamir sem fengu yfir 1000 tonn á vertiðinni í Grindavík vetur. Skipstjórinn á Verði er Jón Ragn- veiðum í sumar. arsson og hefur hann ekki verið afla- Vertíðinni lauk formlega þann 15. kóngur áður. Hann kvaðst ekki vera maí en margir bátar halda netaveið- búinn að taka netin upp. „Ætli ég um áfram fram að mánaðamótum. slíti þeim ekki fram að mánaðamót- FÓ um“ sagði Jón. Vörður verður á troll- Hringbraut 4ra herb. - laus Til sölu er um 100 fm íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi nálægt Háskólanum. íbúðin skiptist í 2 saml. stofur með rennihurð á milli, 2 svefnherb., eldhús og bað- herb. Þvottahús og geymsla í kjallara, geymsluskúr (bílskúr) fylgir. íbúðin er í þokkalegu standi, nýmáluð, ný teppi og dúkar, óvenju hátt til lofts en lélegt mixað gler. Ibúðin er laus nú þegar. Áhvílandi langtímalán ca. 1,9 millj. Verð 5,3 millj. Jón Sigfús Sigurjónsson lögfr., Laugavegi 18 A, 5. hæð. Sími11003.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.