Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 43 KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ ■ ' j ■ : & C| ■ ■ ■■.. : Fram - Fylkir íslandsmótið í knattspymu, 1. deild, Endur- tekið efni Guðmundur Steinsson tryggði Fram sigur, 1:0, í lyrsta leiknum eins og í íyrra „ÉG er ánægður með stigin, en engan vegin með leikinn. Völlurinn var renn- biautur og því erfitt að hemja boltann f rokinu," sagði Guðmundur Steinsson eft- ir að hafa tryggt Fram sigur, 1:0, á nýlið- um Fylkis á gervigrasinu i gærkvöldi. Guðraundur, sem skoraði einnig í fyrsta Ieik Framara í fyrra, er liðið lagði Val að velli 1:0, gerði markið í gær strax á 13. mín. „Ég var í dauðafæri og stutt frá markinu. Gat ekki annað en skorað," sagði Guð- mundur sem þrum- aði knettinum upp í þaknetið af markteig. Eftir að varnarmaður hafði bjargað skoti á Iínu eftir horn hrökk boltinn til Guðmundar sem lét tækifærið sér ekki úr greipum ganga. Skapti Hallgrímsson skrífar Birkir Kristinsson, Fram og Guðmundur Baldursson, Fylki. FOLK ■ JÓN Kr. Gíslason, landsliðs- maður í körfuknattleik frá Keflavík, hefur ákveðið að gerast leikmaður SISU í Danmörku. ÍR- ingurinn Þorsteinn Hallgrímsson lék með félaginu á árum áður og var þá lykilmaður SISU þegar það var óstöðvandi ár eftir ár. ■ ÓLAFUR Þórðarsson, lands- liðsmaður í knattspymu, varð fyrir því óláni á sunnudag að missa bíl bróður síns útaf Vesturlandsvegi á sunnudag, er hvellsprakk á hægra framdekki. Ólafiir, sem var á leið suður á Flugstöð Leifs Eiríksson- ar til að taka flugvél til Noregs, fékk hnikk á n\jöðmina og fann til í baki í gær. „Ég leik samt með Brann á fimmtudag og sunnudag og mæti galvaskur til Moskvu,“ sagði Ólafiir við Morgunblaðið í Sirkvöldi. FRAMARAR léku með sorgar- bönd í gærkvöldi til minningar um Gunnar Nielsen, sem var heiðurs- félagi Fram, en dó í síðustu viku. Gunnar var mjög virkur í félags- starfi Fram. MFRANZ Beckenbauer, landslið- seinvaldur V-Þýskalands, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir heims- meistaraleik gegn Wales 31. maí. Hópurinn er skipaður þessum leik- mönnum: Raimond Aumann, Bodo Illgner - Klaus Augenthaler, Thomas Berthold, Guido Buchwald, Holger Fach, Jiiergen Kohler, Stef- an Reuter, Wolfgang Rolff - Andreas Brehme, Thomas Hássler, Gunther Hermann, Andreas Möller, Olaf Thon - Jiirgen Klinsmann, Pierre Littbarski, Frank Mill, Karl- heinz Riedle, Rudi Vöeller. Fyrsta rauða spjaldið á loft Guðmundur Haraldsson varð fyrsti dómarinn til að lyfta rauða spjaldinu í 1. deildinni í sumar. Það gerði hann á 75. mín. leiksins í gærkvöldi og það var Ómar Torfason sem fékk að líta spjaldið og ganga af velli. Guðmundur Magnússon braut á Ómari, dæmt var á brot- ið, en Ómar hefndi sín og sló Fylkismanninn. Quðmundur Steinsson bytjaði íslandsmótið í ár eins og í fyrra — með því að skora sigurmark Fram í 1:0 sigri. Hér er hann á sínum uppá- haldsstað í gærkvöldi, upp við mark andstæðingsins. Morgunblaðið/Sverrir Það voru hins vegar nýliðarnir sem ógnuðu á undan — Baldur Bjarnason var í ákjósanlegu færi rétt utan markteigs á upphafsmin- útunum, en Birkir varði skot hans mjög vel. Framarar sluppu þar með skrekkinn. Meistararnir voru meira með knöttinn og aðgangshajðari, en lítið var um afgerandi færi. Þeir blá- klæddu voru talsvert frá sínu besta, enda aðstæður ekki ákjósanlegar. Rennblautur völlur, hvasst og rign- ing og jafnvel haglél buldi á leik- mönnum á stundum. Fylkismenn þurfa ekki að skammast sín fyrir sinn fyrsta leik — þeir börðust af krafti, héldu Frömurum ágætlega í skeíjum, en þurfa að vera grimm- ari í sókninni. SVISS Luzern lagði Sion Luzern lagði Sion, 1:0, í hröðum og spennandi leik í svissnesku deildarkeppninni í gærkvöldi. Leik- urinn var jafn í byijun, en á 61. mínútu náði Nadig að setja eina mark leiksins og Sion átti ekki mikla mögu- leika eftir það. Anna Bjamadóttir skrífarfrá Sviss Sigurinn tryggði Luzem áfram efsta sætið í deildinni. Liðið er nú með 27 stig - en Grasshoppers, sem vann Bellinzona, 2:0, er með 26 stig. Luzem og Grasshoppers mætast á heimavelli liðs Sigurðar Grétars- sonar á laugardag. daginn 23. maí 1989. Mark Fram: Guðmundur Steinsson (13.) Gult spjald: Viðar Þorkelsson og Guð- mundur Steinsson, Fram og Valur Ragnarsson, Fylki. Rautt spjald: Ómar Torfason, Fram (75.). AJiorfendur: 844. Dómari: Guðmundur Haraldsson og hafði hann ipjög góð tök á leiknum. Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor- steinn Þorsteinsson, Kristján Jónsson, Pétur Ormsiev, Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Pétur Amþórsson, Guðmundur Steinsson, Ragnar Mar- geirsson (Amljótur Davíðsson vm. á 70. mín.), Omar Torfason, Bjamason. Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson, Valur Ragnarsson, Gústaf Vifílsson, Pétur Óskarsson, Gísli Hjálmtýsson, Baldur Bjarnason, Ólafur Magnússon (Guðjón Reynisson vm. á 84. min.), Anton Jakobsson, Hilmar Sighvatsson, Öm Valdimarsson, Guðmundur Magn- ússon. Helgi Marteinn Geirsson, þjálfari Fylkis: „Sáttur við mína menn“ jr Eg var sáttur við mína menn. Þetta var allt annað og betra sem þeir sýndu nú en í Reykjavíkurmótinu,“ sagði Marteinn Geirs- son, þjálfari Fylkis, eftir fýrsta leik félagsins í 1. deild. „Strákam- ir börðust vel, en okkar var refsað fyrir afdrifarík mistök í fyrri hálfleik. Mistök á miðjunni, kostuðu homspymu og mark eftir hana. Þá fengum við dauðafæri í byijun leiksins — og það ér al- veg Ijóst að siík færi verðum við að nýta. En annars var góð vinnsla í liðinu, og ég er ekki svartsýnn á sumarið. Við eram með nokkra nýja menn og ef við náum að slípa hópinn svolítið betur og komum með sama hugarfari í alla leiki og í þennan kvíði ég engu,“ sagði Marteinn. HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA Margrét þjálfar Val argrét Theódórsdóttir, lands- liðskona úr Haukum, var í gærkvöldi ráðinn sem þjálfari 1. deildar kvennaliðs Val í handknatt- leik. „Sögusagnir hafa verið á kreiki um að við værum að leggja kvenna- deildina niður, en þær eiga ekki við nein rök að styðjast — við eram í sókn á þessum vígsstöðvum. Stelp- urnar óskuðu eftir að Margrét tæki við liðinu og nú hefur verið gengið frá því,“ sagði Þórður Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Margrét, sem tekur við af Jóni Hermannssyni, skiptir yfir í Val, en ekki er ljóst hvort hún leikur með liðinu næsta keppnistímabil. HANDKNATTLEIKUR Sigurður Svelnsson KNATTSPYRNA / ENGLAND Velur Sigurður Jónsson IMottingham Forest? Formaður Dortmund til viðrædna við Val „Sigurður Sveinsson fer örugglega," sagði Þórður Sigurðsson hjá Val leiksdeildar Vals, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann sagði ennfremur að Dort- mund skildi vel stöðu Vals og því hefði formaður félagsins boðað komu sína til að ganga frá málun- um. „Það gengur ekki endalaust að erlend félög geti komið hingað og fengið leikmenn fyrir ekki neitt. Hins vegar era þessi mál viðkvæm, því ef félög neita að samþykkja félagaskipti eyðileggur það heilt tímabil fyrir viðkomandi leikmanni og það gerir enginn með bros á vör. En ég hef trú 'aað við kom- umst að samkomulagi," sagði Þórð- ur. Formaður vestur-þýska hand- knattleiksliðsins Dortmund er væntanlegur til íslands á næstunni til viðræðna við forráðamenn hand- knattleiksdeildar Vals vegna fé- lagaskipta Sigurðar Sveinssonar. „Sigurður Sveinsson fer öragglega, en okkur fínnst eðlilegt að við fáum eitthvað upp i tapið, sem við verðum óneitanlega fyrir,“ sagði Þórður Sigurðsson, formaður handknatt- á orðrómur hefur skotist upp W í Englandi, að Sigurður Jóns- son, landsliðsmaður í knatt- spymu, veljí að fara til Notting- ham Forest. Eins og hefur komið fram í Morgunblaðinu, hefur Brian Clough, framkvæmdastjóri Forest, mikinn áhuga að fá Sig- urð til Gity Ground. Sigurður, sem hefur leikið með Sheffíeld Wednesday undanfarin ár, er ákveðinn að fara frá félag- inu. Hann hefur verið orðaður við mörg félög - síðast við FC Kölli. Sigurður var í Köln í vikunni, en þaðan hélt hann til Frakklands til viðræðna við aðila þar. Hann hef- ur hug á að skoða alla möguleika áður en hann tekur endalega ákvörðun um hvað hann gerir. Staðan KR-ÍA.....T. 1:3 FH-KA 0:0 ÍBK-Valur 0:0 ÍA 1 1 0 0 3:1 3 Fram 1 1 0 0 1:0 3 Þór 1 1 0 0 1:0 3 FH 1 0 1 0 0:0 1 ÍBK 1 0 1 0 0:0 1 KA 1 0 1 0 0:0 1 Valur 1 0 1 0 0:0 1 Fylkir 1 0 0 1 0:1 0 1 0 0 1 0:1 0 KR...7. : 1 0 0 1 1:3 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.