Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1989 21 Reuter Dómi mótmælt á Spáni Spænskur dómstóll hefur sýknað 24 af þeim 37 mönnum, sem sakaðir eru um að hafa selt eitraða matarolíu sem varð 650 manns að bana á Spáni árið 1981, og hefiir dómurinn valdið mikilli reiði meðal þeirra fórnarlamba eitrunarinnar, sem komust lífs af, og aðstandendum hinna Iátnu. Þrettán fengu væga fangelsisdóma, en málinu verður áfiýjað til hæstaréttar Iandsins. Á myndinni vernda lögreglumenn einn veijenda hinna ákærðu fyrir fólki sme gat ekki hamið vanþóknun sína vegna dómsins. Baker um friðarumleitanir 1 Mið- Austurlöndum: Israelar og arabar sýni meiri fiiðarvilja Washington. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandarikjanna, skýrði afstöðu stjórnar George Bush Bandaríkjaforseta til friðarumleitana í Mið- Austurlöndum í harðorðri ræðu sem hann hélt á fiindi með leið- togum stuðningsmanna ísraela í Washington á mánudag. Hann hvatti ísraela til þess að binda enda á hemámið á Gaza-svæðinu og Vesturbakka Jórdanár og sýna Palestínumönnum fyllstu sátt- fysi sem nágrönnum er verðskulduðu stjómmálaréttindi. Hann hvatti ennfremur Palestínumenn til þess að hætta að „tala tveim tungum" í yfirlýsingum sínum um ísrael, binda enda á uppreisnina á hernumdu svæðunum og beita sér þess i stað fyrir samkomulagi með friðsamlegum hætti. Baker sagði að ekki væri seinna vænna að viðræður hæfust milli Israela og Palestínumanna um hemumdu svæðin. Hann hvatti ísraela til þess að „gefa óraunsæj- ar hugmyndir" um landvinninga upp á bátinn. „Bindið enda á hemámið," bætti hann við. „Hæt- tið að láta ísraela flytjast búferlum til hemumdu svæðanna. Heimilið skólum að heíja starfsemi á ný. Sýnið Palestinumönnum friðarvilja sem nágrönnum er verðskulda stjómmálaréttindi." Wörner hlynntur viðræðum um skammdræsr kiamavopn Brussel. Keuter. J V JL MANFRED Wörner, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) segir í viðtali við belgískt dagblað sem birtist í gær, að hann sé hlynntur því að hafiiar verði viðræður við aðild- arriki Varsjárbandalagsins um fækkun skammdrægra kjam- orkuvopna i Evrópu. Fram- kvæmdastjórinn leggur hins veg- ar áherslu á að hahn telji óráð- legt að samið verði um algjöra útrýmingu þess háttar vopna í álfunni. Viðtalið birtist í belgíska dag- blaðinu La Libre Belgique en tilefni þess er deila sem upp er komin milli stjómvalda í Vestur-Þýska- landi og Breta og Bandaríkjamanna um endumýjun skammdrægra kjamorkueldflauga NATO í Vest- ur-Evrópu en þær em flestar stað- settar í Vestur-Þýskalandi. Hafa Bandaríkjamenn og Bretar ákaft hvatt til þess að tekin verði bind- andi ákvörðun á vettvangi Atlants- hafsbandalagsins þess efnis að sett- ar verði upp nýjar eldflaugar í stað bandarískra eldflauga af Lance- gerð sem verða úreltar um miðjan næsta áratug. Stjóm Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, hefur ekki viljað samþykkja þau áform en þess í stað hvatt til þess að hafnar verði hið fyrsta viðræður við Sovétmenn og bandamenn þeirra í Austur-Evrópu um fækkun vopna sem falla undir þessa skil- greiningu en skammdrægar teljast þær eldflaugar sem draga innan við 500 kílómetra. Manfred Wörner, sem var varn- armálaráðherra Vestur-Þýskalands áður en hann tók við embætti fram- kvæmdastjóra NATO, segir í við- talinu við belgíska dagblaðið að hann telji æskilegt að viðræður um niðurskurð á þessu sviði kjamorku- heraflans verði hafnar. Hann kveðst hins vegar andvígur því að samið verði um algera útrýmingu bæði skammdrægra kjarnorkueldflauga og vígvallarvopna með kjarnorku- hleðslum, sem einnig teljast skammdræg, í Evrópu. „Skamm- dræg kjarnavopn falla undir varnar- stefnu Atlantshafsbandalagsins en á grundvelli hennar hefur tekist að afstýra bæði kjamorkustyrjöld og átökum með hefðbundnum vopna- búnaði. Við þurfum að ráða yfir bæði kjarnorkuvopnum og hefð- bundnum vopnum, ekki til að hleypa af stað vopnuðum átökum heldur til að koma í veg fyrir þau,“ segir Wömer. Framkvæmdastjórinn kveðst vænta þess að unnt verði að leysa deilu NATO-ríkjanna um skamm- dræg kjarnorkuvopn fyrir fund leið- toga aðildarríkja bandalagsins sem haldinn verður í næstu viku í Bmss- el í Belgíu. Um síðustu helgi lögðu Bandaríkjamenn fram málamiðlun- artillögu þar sem gert er ráð fyrir því að uppsetningu nýrra eldflauga í stað Lance-flauganna verði frestað fram til árins 1992 gegn því að Vestur-Þjóðveijar falli frá þeirri kröfu sinni að hafnar verði viðræð- ur um fækkun þess háttar vopna. Skilyrði fyrir slíkum viðræðum sé það að viðræður austurs og vesturs í Vínarborg um niðurskurð hins hefðbundna herafla í Evrópu skili árangri. Tillagan hefur verið rædd innan ríkisstjómar Helmuts Kohls kanslara og sögðu heimildarmenn Reuters-fréttastofunnar á mánudag að vestur-þýskir embættismenn litu svo á að hún kvæði ekki nógu skýrt á um að viðræður um fækkun skammdrægra kjamorkuvopna yrðu hafnar. Manfred Wömer segir í viðtalinu við La Libre Belgique að hann telji að það myndi reynast gagnleg ráðstöfun að tengja við- ræður um niðurskurð á þessu sviði kjamorkuheraflans við Vínarvið- ræður aðildarríkja NATO og Var- sjárbandalagsins. Baker beindi einnig orðum sínum til stjómvalda í arabaríkjun- um og hvatti þau til þess að leita sátta við ísraela. „Bindið enda á efnahagslegar refsiaðgerðir gegn ísraelum. Hættið að ögra þeim á fundum hjá alþjóðastofnunum. Hverfið frá þeirri hvimleiðu af- stöðu að í zíonismanum felist ekk- ert annað en kynþáttafordómar." Hann hvatti Palestínumenn til þess að hætta að „tala tveim tungum" varðandi það hvort þeir hyggist útrýma ísrael; lýsa fremur yfir andstöðu við slíkar hugmyndir á „öllum tungumálum, ekki 'aðeins þeim sem talað er til Vestur- landabúa.“ Hann hvatti Frelsis- samtök Palestínumanna (PLO) til þess að breyta stofnskrá sinni, sem segir fyrir um útrýmingu ísraels, og binda enda á uppreisnina á hemumdu svæðunum, intifada, en reyna þess í stað að ná samningum með friðsamlegum hætti. Sérfræðingur bandaríska ut- anríkisráðuneytisins í málefnum Mið-Austurlanda sagði að þetta væri harðorðasta yfirlýsing sem hann hefði heyrt frá bandariskum ráðherra um friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum til þessa. Fund- armenn klöppuðu utanríkisráð- herranum lof í lófa er hann hvatti Palestínumenn til þess að sýna friðarvilja en grafarþögn skall hins vegar á þegar hann fór fram á það sama við Israela. Samstarf aðildarríkja Evrópubandalagsins: Obilgirni Margaret Thatcher veld- ur deilum innan Ihaldsflokksins ALVARLEGUR ágreiningur er kominn upp inna.ii breska íhaldsflokksins og ríkisstjómar Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands. Að sögn breska tímaritsins The Ec- onomist stendur Thatcher frammi fyrir miklum vanda því flokkurinn sé klofínn í afstöðu sinni til framtíðar Evrópu- bandalagsins. Margaret Thatc- her hefiir ávallt og ævinlega varað við því að valdið verði í vaxandi mæli fært í hendur embættismanna í höfúðstöðvum Evrópubandalagsins í Brussel en þær raddir gerast sífellt háværari að þessi stefha breska forsætisráðherrans fái ekki staðist. í grein The Economist segir að óbilgimi Margaret Thatcher hafi gert það að verk- um að Michael Heseltine, sem neyddist til að segja af sér embætti vamarmálaráðherra vegna Westland-hneykslisins fyrir þremur áram, ógni nú yeldi hennar innan breska íhaldsflokksins. I greininni segir að algjör glundroði ríki nú innan flokksins og beri að skrifa hann á reikning forsætisráðherrans. Hún hafi aldrei verið hlynnt raunverulegu samstarfi ríkja Vestur-Evrópu á vettvangi Evrópubandalagsins. Hún hafí á hinn bóginn vonast til þess að hún gæti með þessu móti Michael Heseltine. fengið önnur ríki Vestur-Evrópu til að taka upp stefnu sína. Nú telji hún á hinn bóginn að hún hafi verið blekkt og að hugmynd- in sé sú að færa innanríkismál Bretlands í hendur möppudýra í Brussel. í grein breska tímaritsins segir að búast megi við harðvítugum deilum innan ríkisstjórnarinnar er skýrsla nefndar sem fjallar um samstarf á sviði gengis- og pen- ingamála verður tekin til umfjöll- unar. í skýrslu nefndarinnar, sem lýtur stjóm Jaques Delors, forseta framkvæmdastjórnar Evrópu- bandalagsins, er m.a. lagt til að komið verði á fót nýjum stofnun- um á þessu sviði innan Evrópu- Margaret Thatcher. bandalagsins en síðar er gert ráð fyrir því að settur verði á stofn evrópskur seðlabanki og að inn- leiddur verði sameiginlegur evr- ópskur gjaldmiðill. Líklegt er talið að leiðtogafundur Evrópubanda- lagsins, sem haldinn verður í Madrid í næsta mánuði, muni einkum snúast um skýrslu Del- ors-nefndarinnar. Ráðherrar í ríkisstjórn Margaret Thacher eru sagðir andvígir mörgum þeim til- lögum sem fram koma í skýrslu nefndarinnar en á hinn bóginn telji þeir flestir að yfirlýst and- staða þeirra mégni tæpast að telja ríkisstjórnum annarra aðildarríkja bandalagsins hughvarf. Þeim þyki sýnt að óbilgimi af hálfu Breta á þessum vettvangi geti orðið til þess að einangra bresku ríkis- stjómina innan bandalagsins. Ólíklegt sé talið að Thatcher og efnahagsráðgjafi hennar Sir Alan Walters verði reiðubúin til að fall- ast á málamiðlanir í þessu efni. Fyrir skemmstu kom út bók eftir Michael Heseltine, fyrrum vamarmálaráðherra Bretlands, er nefnist „The Challenge of Europe". Ólíkt Thatcher telur hann enga ástæðu til að óttast hugmyndir þær er fram koma í skýrslu Delors-nefndarinnar. He- seltine virðar ýmsar hugmyndir um róttækar breytingar á sam- starfi ríkja Evrópubandalagsins og telur enga ástæðu til að ætla að Bretar glati sjálfræði í eigin málum. Hins vegar sé fyllsta ástæða til að fara varlega í þess- um efnum sem öðrum. í grein The Economist segir að það sé engin tilviljun að bók Heseltine komi nú fyrir sjónir manna. Þvert á móti lýsi tímasetningin miklu pólitísku innsæi. Höfundurinn viti fullvel að hann eigi góða möguleika á því að taka við embætti leiðtoga Ihaldsflokksins af Margaret Thatcher. Fram hafi komið í skoð- anakönunum að hann sé sá maður sem kjósendur flokksins geti best sætt sig við og með útgáfu bókar- innar sé Heseltine því ef til vill fyrst og_ fremst að biðla til þing- manna íhaldsflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.