Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24.' MAÍ 1989 25 Heiðursfélagamir Böðvar Sigurðsson og Kristinn Ó. Karlsson ásamt Birgi Siguijónssyni og Halldóm Þorvarðardóttur varaformanni. Sörli 45 ára: Undirbúa reiðhöll í Hafharfírði Hestamannafélagið Sörli í Hafiiarfirði er 45 ára á þessu ári. Af því tilefiii vom útnefiidir tveir heiðursfélagar, Böðvar Sig- urðsson og Kristinn Ó. Karlsson. í fréttatilkynningu frá hesta- mannafélaginu Sörla segir, að nú séu hátt í 350 félagsmenn og á svæði félagsins í Hafnarfirði eru nú um 1.100 hross. íþróttadeild Sörla er nú að athuga byggingu reiðhallar, sem jafnframt myndi hýsa aðstöðu fyrir kennslu og dag- legan rekstur félagsins. Þá er unnið við endurbætur á skeið- og hringvallarsvæðum fé- lagsins og eigendur hesthúsanna í Hlíðarþúfum eru að lagfæra gatna- kerfi, snyrta umhverfi og bæta lýs- ingu í kringum hús sín. Krísuvík- umefnd Sörla er nú að hefjast handa við girðingarvinnu, áburðar- dreifingu, jarðarbætur og ræktun á svæði félagsins við Kleifarvatn og á vegum unglinganefndar Sörla er nú unnið að undirbúningi sérstaks unglingamóts á Þingvöllum í sumar í samvinnu við hestamannafélög í nágrenni Hafnarfjarðar. „ Að ná tökum á tílverunni“ Námsefhi gegn vímuefnavanda ungs fólks Lionshreyfingin á íslandi afhenti menntamálaráðherra Svavari Gestssyni fyrir nokkm námsefiiið „Að ná tökum á tilverunni". Námsefni þetta er framlag hreyfingarinnar til íslenzku þjóðarinn- ar í baráttunni gegn vímuefiiavanda ungs fólks og verður mennta- kerfinu heimil frjáls notkun þess í skólum landsins. Námsefnið var afhent í lok einnig fram nokkur ungmenni úr baráttudags Lionsmanna í Há- Álftamýraskóla, sem lagt höfðu skólabíói fyrir nokkru. Dagrská stund á námsefnið Að ná tökum baráttudagsins var útvarpað beint á tilverunni og luku þeir lofsorði um Rás 2 og komu þar margir á það og töldu nauðsynlegt að það kunnir skemmtikraftar fram, allir yrði kennt í öllum skólum lands- endurgjaldslaust. Þarna komu ins. Halldór Svavarsson, fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á íslandi, afhendir Svavari Gestssyni, menntamálaráðherra, skjöld frá Lionshreyfingunni á baráttudeginum í háskólabíói. Afínæliskveðia: Þórarinn Stefánsson kennari, Laugarvatni Það var um vordaga 1931 sem ungur maður að austan var á reisu me_ð félögum sínum um Grímsnes í Ámessýslu. Þetta var Þórarinn Stefánsson frá Mýmm í Skriðudal. Hann hafði þá nýlokið sveinsprófí í húsgajgnasmíði, eftir fjögurra ára nám. A vegi Þórarins og félaga hans varð þá Jónas Jónsson frá Hriflu, hinn þjóðkunni skólafrömuð- ur, en hann var þá að koma úr einni af sínum eftirlitsferðum frá Laugar- vatni. Á Laugarvatni var þá nýupp- risinn skólastaður, sem var í mót- un, og þurfti að mörgu að hyggja ef vel átti að fara. Jónas frá Hriflu, sem talinn var mikill mannþekkjari, valdi Þórarin Stefánsson úr hópi ungu mannanna og sendi hann til Laugarvatns, þar sem hann var strax næsta vetur ráðinn kennari við Héraðsskólann í smíði og teikningu. Þá kennslu annaðist Þórarinn við skólann sam- fleytt í fjörutíu ár, auk þess sem hann átti þátt í útskrift nokkurra iðnaðarmanna í húsasmíði og hús- gagnasmíði, sem útskrifuðust í þeim greinum frá Héraðsskólanum að Laugarvatni. Þórarinn Stefánsson kennari á um þessar mundir merkisafmæli. Hann er áttatíu og fimm ára. Þórarinn fæddist 17. maí 1904 á Víðilæk í Skriðdal. Foreldrar hans voru Stefán Þórarinsson hrepp- sstjóri að Mýrum og fyrri kona hans Jónína Salný Einarsdóttir frá Kolstaðagerði á Völlum. Af tíu börnum þeirra hjóna var Þórarinn með þeim eldri. Móðir Þórarins andaðist langt um aldur fram 1917 og mun þá einhveiju af börnunum hafa verið komið í fóstur. Faðir Þórarins gekk aftur í hjónaband með Ingifinnu Jónsdóttur frá Hall- bjarnarstöðum og eignaðist með henni fimm börn. Mikil umsvif voru á heimilinu að Mýrum, heimilið mannmargt og mikil gestakoma. Faðir Þórarins var búfræðingur frá Eiðum. Vegna þess að hann hafði meiri menntun en almennt gerðist, hlóðust á hann ýmis trúnaðarstörf fyrir sveit hans, svo margir þurftu að leita til hans, ýmiskonar erinda. Þórarinn kynnt- ist því snemma félagsmálum og miklum umsvifum, sem síðar meir á lífsleiðinni komu honum að góðum notum í félagsmálum og umgengni við fólk og málefni. Á öðru ári sínu að Laugarvatni hitti Þórarinn Stefánsson elskuna sína, Guðmundu Margréti Guð- mundsdóttur, dóttur Guðmundar Magnússonar trésmíðameistara í Vestmannaeyjum og konu hans Helgu Jónsdóttur. Guðmunda var þá á námskeiði sem Héraðsskólinn hélt fyrir verðandi húsmæður, eitt með þeim fyrstu sinnar tegundar sem haldið var á landsbyggðinni. Þórarinn og Guðmunda gengu í hjónaband 23. september 1932. Þau hófu búskap í einu herbergi með aðgang að eidhúskompu með öðrum kennarahjónum, en þannig var bú- skapur manna að Laugarvatni í þá daga og menn urðu að una glaðir við sitt, þó stundum hafi það ef til vill verið erfitt. Guðmunda og Þórarinn eignuð- ust tvö böm, Emu Helgu hússtjórn- arkennara og Stefán Guðmund rekstrar- og starfsmannastjóra hjá Seðlabanka íslands. Maður Emu Helgu er Daníel Þór Emilsson hús- gagnasmiður frá Kleifarstekk í Breiðdal og éiga þau tvo syni og eina dóttur. Stefán Guðmundur er giftur Láru Kristínu Samúelsdóttur myndmenntakennara frá ísafirði og eiga þau einn son og þijár dætur. Barnabörn Þórarins og Guð- mundu eru efnisfólk og öll menntuð hvert á sínu sviði og listræn. Flest þeirra eru gift eða í sambýli og eiga börn. Þórarinn og Guðmunda hafa átt samhent og farsælt fjölskyldulíf og notið þess í ríkum mæli. Þau dvelj- ast nú um þessar mundir úti í Belgíu hjá Margréti kennara, sonar- dóttur sinni, sem þar dvelur nú, ásamt fjölskyldu sinni, í framhalds- námi. Meginverkefni Þórarins að Laug- arvatni var smíða- og teiknikennsla. En að uppbyggingu staðarins vann hann í öllum kennslufríum og var í þeim efnum mikill burðarás. Bjarni Bjarnason skólastjóri lýsti Þórarni mjög vel í afmælisgrein sem hann skrifaði um hann sextugan. Hann segir meðal annars um hann á þessa leið: „Ég tel Þórarin í fremstu röð allra þeirra mörgu manna, sem ég hef starfað með á langri lífsævi." Ég hugsa að flestir samferðamenn Þórarins myndu vilja taka undir þessi orð Bjarna. Er ég kom að Laugarvatni til starfa, kveið ég fyrir þvf að koma inn í það gróna samfélag sem þar var þá. Það sem kom mér til þess að starfa þar svo lengi, sem raun bar vitni, var hið trausta og hjálp- fúsa fólk sem var þar fyrir, sann- kallað mannval, sem leysti fram úr mörgum torráðnum gátum hins „ókunna manns“. Þórarinn og Guðmunda voru meðal þessa heiðursfólks og kynnt- ist ég þeim snemma eftir komuna að Laugarvatni. Þau voru með bókabúðina, símstöðina o.fl. svo oft þurfti til þeirra að leita um ýmis mál og þiggja hjá þeim um leið kaffisopa og vinsamlegt spjall. Þórarinn hafði ekki starfað mörg ár að Laugarvatni, þegar hann var kosinn í sveitarstjórn Laugardals- hrepps og endurkjörinn árum sam- an. Félagsmálahæfíleikar hans munu hafa verið ættarfylgja að austan. Eins og pabbi hans í Skrið- dalnum var Þórarinn í Laugardal og að Laugarvatni kosinn í ótal ráð og nefndir, sem of langt yrði upp að telja. Það sem undirritaðri ber fyrst og fremst að minnast nú, er skóla- nefndarformennska Þórarins í þágu Hússtjórnarskóla Suðurlands. Hann var stjórnskipaður skólanefndar- formaður 1960 og tók þá við for- mennskunni af Halldóru Guð- mundsdóttur í Miðengi, sem sagði af sér fyrir aldurssakir. Þórarinn hafði þá strax mörgu að sinna fyr- ir skólann því framundan var bygg- ing Heimakletts sem var bústaður fyrir kennara, teikningar og hönnun á nýju skólahúsi og síðar fram- kvæmdir. Með einstakri lægni og " ljúfmennsku tókst Þórami að fá framkvæmd ótrúlegustu verk fyrir skólann. í þeim efnum sparaði hann hvorki tíma né orku. Engum sem þekkir Þórarin blandast hugur um að hann er list- fengur maður. Um það bera einna mest vitni þeir listrænu og vel gerðu munir sem nemendur hans fluttu með sér heim á vorin, víðsvegar út um land, frá Héraðsskólanum að Laugarvatni í 40 ár eða öll árin sem hann kenndi þar smíðar og teikn- ingu. Jafnvel örgustu klaufa og slóða gat Þórarinn fengið til að smíða nytsama hluti og haglega gerða. { Oft var gaman að horfa á Þórar- in, næstum prúðbúinn, með hatt á höfði, ganga úr smíðahúsinu að aflokinni kennslustund með stráka- hópinn á eftir sér. Strákarnir virt- ust keppast um að ganga sem næst honum, til þess að geta spjallað við hann. Það eru líka eftirminnilegar stundir að Laugarvatni á vorin þeg- ar Þórarinn gekk með allan nem- endaskarann úr Héraðsskólanum upp í skóg til að kenna þeim að gróðursetja tré. Teiknikennsla Þórarins við Hér- aðsskólann að Laugarvatni var eins og það besta sem maður hefur séð í öðrum löndum. Hann átti auðvelt með að framkalla hæfileika ungl- inganna og leyfa þeim fijálsar leið- ir sér til þroska. Eftir starfslokin að Laugarvatni fluttust þau Guðmunda og Þórarinn til Reykjavíkur og settust að í íbúð sem þau áttu á Ásvallagötunni. Fjölskylda þeirra hafði staðið sam- an um að gera íbúðina þannig úr garði að þau fyndu sig sem fyrst þar heima. í kjallaranum í húsinu fékk Þórarinn lítið verkstæði, þar sem hann skar út skímarfonta og aðra listmuni, þar til heilsan leyfði ekki mikla áreynslu. Hann snéri sér þá að myndlistinni og nýlega er hann búinn að halda myndlistarsýn- ingu með fleira fólki. Ég óska vini mínum Þórarni Stef- ánssyni allrar blessunar með áttatíu og fimm ára afmælið og megi hann sem lengst lifa glaður og hress, sáttur við allt og alla, eins og hann hefur ævinlega verið. Jensína Halldórsdóttir fv. skólastjóri Hússtjórnarskóla Suðurlands, Laugarvatni. Fiskverö á uppboðsmörkuðum 23. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 60,50 45,00 55,63 11,074 616.038 Þorskursmár 28,00 28,00 28,00 0,110 3.080 Ýsa 76,00 59,00 69,29 6,328 438.429 Koli 53,00 53,00 53,00 0,075 3.975 Steinbítur 39,00 39,00 39,00 0,145 5.636 Ufsi 28,00 28,00 28,00 0,310 8.666 Grálúða 48,00 43,00 45,22 141,278 6.388.155 Lúða 370,00 150,00 207,26 0,886 183.633 Skötuselur(a) 340,00 340,00 340,00 0,393 133.617 Skötuselur(b) 90,00 90,00 90,00 0,076 6.840 Tindabykkja 25,00 25,00 25,00 0,026 638 Svartfugl 30,00 30,00 30,00 0,060 1.800 Samtals 48,46 160,759 7.790.507 Selt var úr Víði HF, Júlíusi Geirmundssyni og úr bátum. í dag verður selt úr Víði HF og úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 62,00 23,00 51,31 9,456 485.203 Ýsa 80,00 60,00 72,59 3,082 223.718 Keila 7,00 7,00 7,00 0,028 196 Karfi 18,00 18,00 18,00 0,014 252 Ufsi 28,00 15,00 26,86 2,455 65.934 Steinbíturog hlýri 31,00 15,00 18,79 0,448 8.416 Langa 24,00 24,00 24,00 0,106 2.544 Lúða smá 150,00 150,00 150,00 0,007 1.050 Blandað 65,00 5,00 36,91 0,047 1.735 Samtals 50,44 15,643 789.047 Selt var úr neta- og handfærabátum. í dag verður selt úr Freyju RE, 25 t. ufsi og úr neta- og færabátum FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 59,00 40,50 54,15 10,068 545.217 Ýsa 75,00 35,00 63,65 21,744 1.383.982 Ufsi 32,50 28,00 31,96 3,190 101.945 Karfi 27,50 25,00 26,34 9,790 257.895 Steinbitur 26,50 21,00 25,64 0,673 17.258 Langa 27,50 22,00 25,56 0,178 4.550 Keila 9,00 6,00 7,80 0,250 1.950 Skarkoli 49,50 49,50 49,50 0,300 14.850 Lúða 295,00 195,00 226,47 0,290 63.563 Skata 76,00 74,00 75,87 0,313 23.748 Skötuselur 102,00 80,00 96,84 0,081 7.844 Samtals 51,73 46,877 2.424.802 Selt var úr Hraunsvík GK, Sveini Guðmundssyni GK og Far- sæli GK. I dag verður selt úr ýmsum bátum og hefst uppboð klukkan 11.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.