Morgunblaðið - 24.05.1989, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1989
inni Perm í Úralfjöllum, komu á
hæla Sukhanovu. 500 fegurðar-
gyðrjur hvaðanæva úr Sovétríkjun:
um tóku þátt í undankeppninni. í
fyrra var fegurðardrottning
Moskvu valin í fyrsta sinn.
étnlqanna bæði af dóm-
nefnd og sjónvarpsáhorf-
endum. Anna Gorbunova,
frá Zelenograd skammt frá
Moskvu, og Jekaterina
Meshtsjeq'akova frá borg-
Fegurðardrottning Sovétríkjanna, Júlia Sukhanova, fyrir miðju,
Anna Gorbunova (t.h.) og Jekaterina Meshtjeijakova. Þær urðu hiut-
skarpastar í fyrstu fegurðarsamkeppni Sovétríkjanna 21. maí síðast-
liðinn.
GOLF
Kylfingar á íslendingamóti í Englandi
Alls tóku 63 kylfingar þátt í „Pre- Arctic golf-
keppninni“ á Sundridge golfvellinum í Englandi
fyrir nokkru síðan, 28 íslendingar, 33 Bretar og 2
Danir. Englendingurinn Joe White bar sigur úr býtum
pg í sigurlaun fékk hann ferð með Flugleiðum til
íslands til að taka þátt í miðnæturgolfmóti Golf-
klúbbs Akureyrar í sumar og gistingu á Hótel KEA
meðan á dvölinni stendur.
Joe White, einn af yfirmönnum IBM-fyrirtækisins
í Englandi, sigraði í Pre-Arctic-keppninni að þessu
sinni, Sam Staffurth varð annar og Jim O’Connor
í þriðja sæti. Alls voru veitt 19 verðlaun í mótinu
og meðal þeirra sem hlutu verðlaun í „Pre Arctic"
voru þeir Jóhannes Einarsson hjá Cargolux, búsett-
ur í Luxemborg, og Jón A. Baldvinsson, sendiráðs-
prestur í London. Úrslit í keppni þeirra íslenzku
kyifínga sem gagngert komu að heiman til að taka
þátt í mótinu urðu þau að Inga Magnúsdóttir, GA,
bar sigur úr býtum, Þorsteinn Erlingsson, GS, varð
annar og Svana Tryggvadóttir, GR, varð í þriðja
sæti. Þess má geta að sjö íslenzkir skipstjórar tóku
þátt í mótinu, Þorsteinn Erlingsson þeirra á meðal,
með góðum árangri. í tvíliðaleik, sem tengdist „Pre-
Arctic-keppninni" léku íslendingur og Engiendingur
saman f liði og sigruðu Pétur Antonsson og Sam
Stafford, Marie Rooks og Þorsteinn Erlingsson urðu
í öðru sæti og Joe White og Hafsteinn Guðnason í
þriðrja sæti.
Það var Jóhann F. Sigurðsson, fyrrum yfírmaður
Flugleiða í Englandi, sem hafði veg og vanda af
mótinu, en hann rekur nú fyrirtæki í Englandi, sem
skipuleggur golfferðir hvort sem er til Islands eða
Englands. Alls voru veitt 19 verðlaun og voru fyrir-
tækin Flugleiðir, Sölumiðstöð hraðfiystihúsanna,
Sölustofnun lagmetis, Sambandið og Cargolux helstu
bakhjarlar mótsins. Næsta „Pre-Arctic“ keppni verð-
ur haldin á Sundridge golfvellinum 4. mai að ári.
Jóhann hefur unnið að kynningu á golfferðum til
íslands víða í Evrópu og hafa fréttir af miðnæturmót-
inu á Akureyri birzt í golftímaritum í Englandi,
V-Þýzkalandi, Hollandi og Finnlandi og fleiri út-
breidd tímarit munu birta fréttir um mótið á næst-
unni.
Hluti íslenzku
keppendanna á
mótinu á
Sundridge-gol-
vellinum í Brom-
ley skammt frá*
London ásamt Jó-
hanni Sigurðs-
syni, sem skipu-
lagði mótið, og
nokkrum enskum
hjónum úr golf-
klúbbnum sem í
ár og í fyrra taka
á móti ungum
íslenzkum kylf-
ingum og hýsa þá
meðan þeir
stunda golf undir
handleiðslu kenn-
ara á Sundridge-
golfvellinum.
Morgunblaðið/Bill Lovelace
FEGURÐ
17 ára Moskvu-
mær kjörin
ungfrú Sovétríkin
Sautján ára stúlka, Júlia Suk-
hanova, var krýnd ungfrú Sov-
étríkin fyrir skemmstu og bar hún
sigurorð af 34 öðrum keppendum
í þessari fyrstu fegurðarsamkeppni
sem stúlkur hvaðanæva úr hinu
víðlenda ríki geta tekið þátt í. Suk-
hanova, sem er borin og bamfædd
í Moskvu, sagði að áhugamál sín
væru líkamsrækt og umhverfísmál
og stefnir hún að því að vinna við
auglýsingagerð. Hún var
valin fegursta stúlka Sov-
%
SKEMMTILEGT
OG
FJÖLBREYTT
HEILSUÁTAK
í Heilsugarðinum í Garðabœ er lögð
öhersla á margbreytilega líkamsþjálfun
sem slyrkir og eykur þol.
Þú mœtir hvencer sem þér hentar og
.• eins oft í viku og þú vilt.
^ Inni-ogútiþjálfun
Allir finna eitthvað við sitt hœfi í Heilsugarðinum því
þjálfunin er bœði Ijölbreyttog skemmtileg.
Þartvinnastsaman:
• Markvisstœkjaþjálfun
•Hressileg leikfimi
• Skokk eftir skipulögðum skokkleiðum
undirleiðsögnkennara.
Þú fullkomnar svo daginn með því að skella þér í
gufuna og nuddpottinn á eftir.
Nuddarar geta séð um að ná úr þér sfreitunni og
góðir Ijósabekkir eru alltaf við höndina.
í Heilsugarðinum í Garðabœ er öll aðstaða til
fyrirmyndar. Fagfólk er á staðnum sem þú getur
ráðfœrt þig við: Lœknir, íþróttafrœðingur,
nœringarfrœðingur og sjúkraþjálfari.
Láttu heilsuna hafa forgang
og skelltu þér í fþruga heilsurœkt.
• Ókeypis reynslutími •
Skráning og upplýsingar
í síma 656970 eða 656971.
HEILSUGARÐURINN
GARÐATORGI1, GARÐABÆ.
jy r
mm