Morgunblaðið - 14.06.1989, Side 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
132. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Hundruð hermanna stóðu vörð við Torg hins himneska friðar í gær er það var opnað á ný eftir blóð-
baðið mikla aðfaranótt sunnudagsins 4. júni.
Gorbatsjov í Vestur-Þýskalandi:
Vinnum að afVopnun
og sameiningu Evrópu
- segir í sameiginlegri yfirlýsingu
Sovétforsetans og Kohls kanslara
Bonn. Reuter.
RÍKISSTJÓRNIR Sovétrikjanna og Vestur-Þýskalands hafa heitið því
að miða viðbúnað herafla ríkjanna tveggja einvörðungu við varnir í
framtíðinni og að vinna að sameiningu Evrópu. Þetta kom fram i sam-
eiginlegri yfirlýsingu þeirra Míkhaíls S. Gorbatsjovs, forseta Sovétríkj-
anna, og Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, sem birt var í
Bonn í gærdag. Almenningur í Vestur-Þýskalands hefúr tekið leiðtoga
sovéskra kommúnista fagnandi en heimsókn hans hófst á mánudag.
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands, sagði
yfirlýsinguna marka þáttaskil í sam-
skiptum ríkjanna tveggja en þetta
er í fyrsta skipti sem stjórnvöld í
Sovétríkjunum gera viðlíka sam-
komulag við vestrænt ríki.
í yfirlýsingunni, sem er sex blað-
Stjórnvöld í Kína hóta írekari valdbeitingu gegn umbótasinnum:
Oryggissveitir heQa leit
að leiðtognm námsmanna
Peking. Reuter, Daily Teiegraph.
HAFIN er leit að leiðtogum kínverskra námsmanna sem skipulögðu
mótmæli umbótasinna í miðborg Peking og hefiir öryggisgæsla við
landamærastöðvar, flugvelli og járnbrautarstöðvar verið efld til að
tryggja að mennirnir komist ekki úr landi. Yfirvöld í Kína vöruðu
í gær við frekari mótmælum og sagði í tilkynningu stjómvalda að
skotvopnum yrði beitt kæmu „gagnbyltingarmenn" saman að nýju.
Kínverski andófsmaðurinn Fang Lizhi dvelst enn í sendiráði Banda-
ríkjanna í Peking en kínversk sfjórnvöld hafa gefið út handtökuskip-
un á hendur honum og eiginkonu hans.
Kínversk stjórvöld hófu í gær
leit að 21 námsmanni en þeir eru
sagðir hafa skipulagt mótmæli lýð-
ræðissinna á Torgi hins himneska
friðar. Talið er að kínverskir her-
menn hafi myrt þúsundir manna
er mótmælin voru brotin á bak aft-
ur á aðfaranótt sunnudagsins 4.
Mannfallið í Úzbekístan:
Trúarofstæki múslima
sagt orsök óeirðanna
Moskvu. Reuter.
Lögreglumenn og herliðar sovésku öryggislögreglunnar, KGB, leita
enn í brunarústum íbúðarhúsa að fórnarlömbum blóðugra átaka sem
verið hafa milli Úzbeka og lítils þjóðarbrots, meskheta, í Sovétlýðveld-
inu Úzbekístan undanfarna tíu daga. Að minnsta kosti 90 manns hafa
týnt lífi í átökunum. Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétforseti, segir að múslim-
skir bókstafstrúarmenn hafi æst til óeirðanna en Úzbekar eru af trú-
flokki shíta-múslima; meskhetar súnníta-múslimar.
Nikolaj Ryzhkov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, hélt til lýðveldisins á
mánudag og segir TASS-fréttastofan
hann hafa tjáð meskhetum er hafast
við í flóttamannabúðum að kröfur
þeirra um leyfi til að setjast aftur að
í fornum heimkynnum í Georgíu yrðu
teknar til athugunar. Flokksleiðtog-
inn í Georgíu hafði áður sagt að það
kæmi ekki til greina.
Sjónarvottar meskheta segja úz-
besku óeirðaseggina vel skipulagða
og gorti þeir af því að fá greitt fyrir
hermdarverkin. „Skyndilega heyrð-
um við villimannleg öskur ungra
manna,“ sagði íbúi í þorpinu Komso-
molsk. „Þeir sögðu mér að koma
með þeim ella yrði kveikt í húsinu."
Kvaðst hann hafa séð Úzbekana
varpa gosdrykkjarflöskum með
bensíni upp á þök íbúðarhúsa og
kveikja í tugum þeirra. Grænum fán-
um múslima hefur verið veifað í hóp-
göngum og ráðist hefur verið á lög-
reglustöðvar og aðrar opinberar
byggingar.
Sjá einnig: „Tugþúsundir
meskheta fluttar . . .“ á bls.
21.
júní að kínverskum tíma. Kínverska
ríkissjónvarpið sýndi í gær myndir
af námsmönnunum og sagði frétta-
þuiur að hveijum þeim sem vissi
um ferðir þeirra bæri skylda til að
tilkynna það yfirvöidum þar eð
mennirnir væru nú eftirlýstir. Talið
er að þeir fari allir huldu höfði.
Yfirvöld í Kína munu m.a. hafa
komist yfir sjónvarpsviðtöl erlendra
fréttamanna við leiðtoga andófs-
manna og þannig getað nafngreint
þá. í fréttunum var þess og getið
að landamærum Kína hefði verið
lokað til að koma í veg fyrir. að
mennirnir gætu flúið land og sýnd-
ar voru myndir af því er hermenn
handtóku námsmenn, sem klæddir
voru eins og flækingar. Allt frá því
morðin voru framin á Torgi hins
himneska friðar hafa kínverskir
ijölmiðlar lagt á það áherslu að
skipulögð samtök „gagnbyltingar-
sinna og villimanna“ hafi verið brot-
in á bak aftur er hermönnum var
sigað á námsmennina. Forsætisráð-
herra landsins, Li Peng, endurtók
þetta í ræðu er hann flutti í gær
og varaði erlend ríki við því að
hafa afskipti af innanríkismálum
Kínveija.
í tilkynningu frá ráðuneyti ör-
yggismála sem birt var í gær segir
að öryggissveitir muni beita skot-
vopnum til að leysa upp ólöglega
fjöldafundi. Á forsíðu eins dag-
blaðsins var eftirfarandi aðvörun
birt; „Horfið ekki á hermenn“. Þá
ítrekaði ráðuneytið handtökuskipun
á hendur andófsmanninum Fang
Lizhi og eiginkonu hans en þau
hafa leitað skjóls í sendiráði Banda-
ríkjanna í Peking. Var ákalli þessu
einkum beint til lögregluyfirvalda
og menn hvattir til þess að Láta
Fang Lizhi ekki sleppa úr landi.
Háttsettir kínverskir og bandarískir
embættismenn hafa átt fundi
þrívegis undanfarna daga til að
ræða mál Fangs Lizhi sem þegar
þykir hafa skaðað samskipti
ríkjanna. Á mánudag ræddi James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, við Han Xu, sendiherra
Kína í Washington, en bandarískir
sérfræðingar og fyrrum embættis-
menn kváðust í gær ekki fá séð
hvernig unnt yrði að leysa deilu
þessa á næstu vikum.
Sjá einnig forystugrein á
miðopnu.
síður, segir að stefnumótun í öryggis-
málum og viðbúnaður herafla
ríkjanna muni miðast við að koma í
veg fyrir stríð. Ríkin lýsa bæði yfir
stuðningi við þá hugmynd að jöfnuð-
ur skuli ríkja á sviði hins hefðbundna
herafla í álfunni og að stefna beri
að helmingsfækkun langdrægra
kjarnorkuvopna og banni við fram-
leiðslu efnavopna.
Þá skuldbinda ríkin sig til að vinna
að sameiningu Evrópu og að stuðla
að lýðræði og virðingu fyrir mann-
réttindum í álfunni. „Ríkin munu
vinna að því að ná þessu markmiði
með því að treysta friðinn í Evrópu
og með því að auka samvinnu
ríkjanna í álfunni,“ segir m.a. í yfir-
lýsingunni en í henni er einnig að
finna ákvæði um að sérhver þjóð og
sérhvert ríki hafi skýlausan rétt til
að ákvarða eigin framtíð og stjórn-
skipulag auk þess sem kveðið er á
um aukna samvinnu ríkjanna tveggja
á fjölmörgum sviðum.
Gorbatsjov tjáði blaðamönnum í
gær að ógerlegt væri að segja til um
hvenær þýsku ríkin tvö gætu samein-
ast. Mikilvægt væri að menn gerðu
sér staðreyndir málsins ljósar en
ekki væri útilokað áð stórkostlegar
breytingar ættu eftir að eiga sér stað
í Evrópu og víðar um heim.
Þúsundir manna hrópuðu nafn
Gorbatsjovs er hann heilsaði vestur-
þýskum almenningi í miðborg Bonn
í gær en skoðanakannir sýna að for-
seti Sovétríkjanna er vinsælasti er-
lendi stjórnmálamaðurinn þar í landi.
Sjá „Kort sýnir . . . ábls. 20.
Reuter
Bryndrekinn Bismarck
fundinn á hafsbotni
Bandarískur rannsóknarleiðangur hefur fundið flak þýska orrustu-
skipsins Bismarck um 1.000 kílómetra vestur af borginni Brest i
Frakklandi. Skipið liggur á réttum kili á um 4.000 metra dýpi.
Myndin var tekin er breski fiotinn sökkti skipinu þann 28. maí 1941
í einni af frægustu sjóorustum sögunnar.
Sjá „Þýska orrustuskipið . . .“ á bls. 21.